DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6512.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 197-38
DROPS Design: Mynstur no-018
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - L/XL - XXL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-400-450-500-550-600 g litur 13, bleikfjólublár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 38 umferðir á hæð með gatamynstri á fram- og bakstykki og neðst á ermum = 10 x 10 cm.
1 mynstureining mælist ca : A.1 – 6 cm á breidd, A.2 – 5 cm á breidd, A.4 – 4 cm á breidd.
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni á berustykki og á ermum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir gatamynstur og sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir kant með garðaprjón í hálsmáli.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5-5-5-5-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6512.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál á framstykki):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni + útauknar lykkjur fyrir kraga. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir lykkjum í garðaprjóni í kanti að framan/kraga þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan lykkju í garðaprjóni í kanti að framan/kraga þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju í garðaprjóni í kanti að framan/kraga og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). 1 hnappagat = byrjið frá réttu og prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 5, 12, 19, 26 og 33 cm
M: 6, 13, 20, 27 og 34 cm
L: 7, 14, 21, 28 og 35 cm
L/XL: 8, 15, 22, 29 og 36 cm
XXL: 7, 13, 19, 25, 31 og 37 cm
XXL/XXXL: 8, 14, 20, 26, 32 og 38 cm

----------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er neðan frá og upp að handveg. Síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið aðeins laust upp 291-319-347-375-431-459 lykkjur á hringprjón 3,5 með Nord. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 251-275-299-323-371-395 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 7 cm frá uppfitjunarkanti mælt þar sem stykkið er lengst.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A (= 6 lykkjur), prjónið A.2B þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni (= 19-21-23-25-29-31 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2C (= 7 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3A, A.3B og A.3C alveg eins. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 211-231-251-271-311-331 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4A (= 5 lykkjur), prjónið A.4B þar til 11 lykkjur eru eftir á prjóni (= 19-21-23-25-29-31 mynstureining með 10 lykkjum), prjónið A.4C (= 6 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka prjónið A.5A, A.5B og A.5C alveg eins. Þegar A.X í A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 32 cm í öllum stærðum.
Setjið 1 prjónamerki í 56.-61.-66.-71.-81.-86. lykkju inn frá hvorri hlið (= 99-109-119-129-149-159 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fellt er af fyrir handveg.
Prjónið síðan A.Y í A.5 til loka. JAFNFRAMT er aukið út fyrir kraga og lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og handveg eins og útskýrt er að neðan – munið eftir síðasta hnappagatinu í hægri kanti að framan. Lesið KRAGI, HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en prjónað er áfram!

KRAGI:
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm prjónið með byrjun frá réttu, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hægri kanti að framan (aðrar lykkjur á prjóni eru ekki prjónaðar), prjónið síðan 1 umferð frá réttu eins og áður yfir allar lykkjur, snúið stykkinu og prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 5 kantlykkjur í garðaprjóni í vinstri kanti að framan (án þess að prjóna aðrar lykkjur), prjónið síðan 1 umferð eins og áður frá röngu yfir allar lykkjur.
Haldið síðan áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en nú byrjar útaukning fyrir kraga. Aukið út um 1 lykkju fyrir kraga með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 ystu lykkjur í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Aukið út fyrir kraga í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 12-12-13-13-14-15 sinnum (= 15-15-16-16-17-18 lykkjur fleiri fyrir kraga á hvorri hlið alls 20-20-21-21-22-23 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið ásamt kanti að framan.

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni + útauknar lykkjur fyrir kraga í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 3 sinnum, í 4. hverri umferð alls 7 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 3-3-4-4-5-6 sinnum (= 13-13-14-14-15-16 lykkjur færri fyrir hálsmáli í hvorri hlið).

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið frá réttu eins og áður þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur á undan fyrstu lykkju með prjónamerki í, fellið af 7-7-7-9-9-9 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur á undan næstu lykkju með prjónamerki í, fellið af 7-7-7-9-9-9 lykkjur fyrir handveg og prjónið út umferðina eins og áður. Framstykkin og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni yfir kraga/kant að framan og A.Y yfir aðrar lykkjur (útaukning fyrir kraga og úrtöku fyrir hálsmáli heldur áfram eins og áður). JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun í hverri umferð frá hlið þannig:
Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-4 sinnum og 1 lykkja 1-3-4-4-7-7 sinnum. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá uppfitjunarkanti þar sem stykkið er lengst. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af fyrstu 31-32-33-34-35-36 lykkjur fyrir öxl = 20-20-21-21-22-23 lykkjur í garðaprjóni eftir á prjóni fyrir kraga, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið kragann til loka eins og útskýrt er að neðan.

KRAGI VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu og prjónið garðaprjón fram og til baka þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 15-15-16-16-17-18 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm mælt meðfram stystu hlið (kraginn mælist ca 14-14-16-16-16-16 cm yst meðfram lengstu hlið). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka með garðaprjóni yfir kraga/kant að framan og A.Y yfir aðrar lykkjur (útaukning fyrir kraga og úrtöku fyrir hálsmáli heldur áfram eins og áður). JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-4 sinnum og 1 lykkja 1-3-4-4-7-7 sinnum. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá uppfitjunarkanti þar sem stykkið er lengst. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir fyrstu 20-20-21-21-22-23 lykkjur (= kragi), síðan eru felldar af þær 31-32-33-34-35-36 lykkjur sem eftir eru fyrir öxl. Klippið frá og prjónið kragann til loka eins og útskýrt er að neðan.

KRAGI HÆGRA FRAMSTYKKI HELDUR ÁFRAM:
Byrjið frá röngu og prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur, * snúið stykkinu, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 15-15-16-16-17-18 lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm meðfram stystu hliðinni og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

BAKSTYKKI:
= 93-103-113-121-141-151 lykkjur. Haldið áfram með A.Y fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-4 sinnum og síðan 1 lykkja 1-3-4-4-7-7 sinnum = 87-89-93-95-99-103 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 21-21-23-23-25-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 31-32-33-34-35-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm frá uppfitjunarkanti þar sem stykkið er lengst. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá affellingarkanti og niður mælt þar sem stykkið er lengst.

ERMI:
Fitjið aðeins laust upp 60-60-60-72-72-72 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Nord. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan A.6 hringinn (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er A.3B prjónað hringinn (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, en þegar 6 umferðir eru eftir í A.3 er prjónað sléttprjón yfir aðra brugðnu lykkjuna í mynstri alveg þar til A.3 er lokið. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 50-50-50-60-60-60 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og látið prjónamerki fylgja áfram með í stykkinu. Prjónamerkið á að nota þegar auka á út undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 14-14-13-13-13-13 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNINGU. Aukið svona út alls 14-17-19-17-21-23 sinnum í S: Í 8. hverri umferð, í M og L/XL: Í 6. hverri umferð, í L: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXL/XXXL: Í 4. hverri umferð = 78-84-88-91-102-106 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 50-50-50-49-47-46 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 4-4-4-5-5-5 lykkjur, prjónið 71-77-81-85-93-97 lykkjur sléttprjón og fellið af þær 3-3-3-4-4-4 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Prjónið síðan ermakúpu til loka fram og til baka á hringprjón 3,5 þannig: Prjónið sléttprjón og fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í öllum stærðum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-4-4-7-10 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hið þar til stykkið mælist 55-56-57-57-58-58 cm.
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermi mælist ca 56-57-58-58-59-59 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkant. Saumið kraga saman við miðju að aftaan (passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður). Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Ulla Lundmark wrote:

Hej! Jag undrar vad A.X och A.Y betyder i mönstergrupp A5. Tacksam för svar.

12.01.2023 - 16:26

DROPS Design answered:

Hei Ulla. Du strikker A.5 (A+B+C) og når du har strikket 20 rader av A.5 (A+B+C) som da også er A.X, måler arbeidet ca 32 cm i alle størrelser. Nå settes det et merke i arbeidet (les oppskriften). Videre strikkes det kun det som er merket med A.Y i A.5 (4 rader) til ferdig mål (A.Y gjentas til ferdig mål). mvh DROPS Design

16.01.2023 - 10:44

country flag Linda Gagnon wrote:

Pour le diagramme A1, à partir du 16e rang jusqu’au 20e rang, les mailles 1 et 14 ne sont plus là, comment je les tricote pour arriver avec les autres mailles. Est ce que je dois les tricoter ensemble ?

24.02.2022 - 16:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gagnon, en fait au 15ème rang, vous tricotez la double diminution (triangle noir) mais ne faites pas de jeté, autrement dit, vous allez diminuer 2 mailles dans chaque A.1A = il reste 12 mailles seulement. Bon tricot!

24.02.2022 - 17:07

country flag Liliane Dänzer wrote:

Ma première réalisation avec vos modèles gratuits. Je l'adore et je vous remercie de partager avec nous.

20.01.2022 - 15:41

country flag ARLERY Marie-Christiane wrote:

Bonjour.J\'ai un problème avec les manches de ce modèle, taille L/XL. A la fin de A3.B, j\'ai toujours 72 mailles et non 60 comme indiqué. Je pense qu'il ne faut pas faire les jetés à l\'avant dernier rang. Est-ce bien cela ? Merci par avance pour votre réponse.

15.12.2020 - 09:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Arlery, il faut bien faire les jetés pour terminer le motif ajouré, mais pensez à bien faire toutes les diminutions, glissez les 2 première m du tour (elles seront tricotées avec le dernier A.3B du tour): A.3B + les 2 premières m du A.3B suivant/de A.3C = il doit rester 10 m (on diminue 2 m par A.3B) et terminez le dernier A.3B en tricotant les 2 dernières m du tour avec la dernière m du dernier A.3B. Vous avez maintenant 10 m par A.3B x 6 motifs = 60 mailles. Bon tricot!

15.12.2020 - 14:45

country flag Liduine wrote:

I have started work on the Collar Left Front Piece and cannot work out how to measure the collar along the shortest side. Which bit is the shortest side?

18.10.2020 - 06:26

DROPS Design answered:

Dear Lilduine, the shorter side on short rows is the beg of rows from RS on left frong piece (= right side of collar seen from RS) ie the side where you worked less rows. Happy knitting!

19.10.2020 - 08:40

country flag Elsje wrote:

Esta semana he terminado esta chaqueta y queda fenomenal. He escogido una tallamás pequeña, ya que me parece que las tallas quedan grandes. En vez de una M he tejido una S, además he tejido las mangas más cortas. Después de terminar la chaqueta la he lavado en agua tibia y lo he dejado secar en una toalla de playa en 48 horas. Queda así como en la fotografía. La lana me ha gustado mucho, pero ha sobrado bastante.

14.10.2020 - 17:48

country flag Aurora López wrote:

Perdón ya lo he entendido, gracias

24.09.2020 - 23:31

country flag Aurora López wrote:

Hola, Me gustaría que me dijeseis como reducimos puntos en los diagramas 2- 3-4...yo sólo reduzco en el 1 siguiendo los esquemas me salen los mismos puntos de principio a fin, por cada 2 puntos que dejo en 1 echo 1 hebra con lo cual al final me quedo igual

23.09.2020 - 19:28

country flag Proscovia Musenero wrote:

How many balls of yarn do I need for a medium sized jacket?

04.08.2020 - 17:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Musenero, you will find amount of yarn at the very beginning of the pattern, together with the tension and needle sizes, this means in M you need 400 g divided by 50 g a ball Nord = 8 balls Nord are required in size M. Happy knitting!

05.08.2020 - 07:48

country flag Anne Irene wrote:

Ville gjerne ha skrevet ut bilde av jakken også. Jeg har både garn og oppskrift. Jakken heter Lady Angelica Jacket. Modell no-018. Synes det er lettere å se om det blir riktig med et godt bilde ved siden av oppskriften.

25.06.2020 - 15:42

DROPS Design answered:

Hej Anne. Om trycker på knappen "Skriv ut" så kan du välja att skriva ut bilderna där. Mvh DROPS Design

26.06.2020 - 10:38