DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Flora Viola

Hekluð peysa með laskalínu úr DROPS Puna. Stykkið er heklað ofan frá og niður með sólfjöðrum, gatamynstri og A-formi. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-20
DROPS Design: Mynstur pu-035
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
700-750-800-900-1000-1100 g litur 11, plóma

HEKLFESTA:
16 tvíbrugðnirstuðlar á breidd og 5,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, skiptið út fyrsta tvíbrugðna stuðli út með 4 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
1 sólfjöður = 2 loftlykkjur + 1 kúla + 4 loftlykkjur + 1 kúla + 2 loftlykkjur.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð í 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum.
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af fyrstu 2 fastalykkjum, heklið næstu 2 tvíbrugðna stuðla saman (= 1 lykkja færri), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja fastalykkju þar til 4 fastalykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 næstu tvíbrugðna stuðla saman (= 1 lykkja færri), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af síðustu 2 fastalykkjum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er berustykki heklað, síðan er stykkinu skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar sem heklað er síðan í hring hvort fyrir sig.

BERUSTYKKI:
Heklið 102-102-111-116-116-125 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Puna og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju (= fyrsta fastalykkjan) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, hoppið yfir fyrstu loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 3-3-5-3-3-5 loftlykkjum * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð = 88-88-96-100-100-108 fastalykkjur.
Heklið síðan mynstur þannig:
Umferðin byrjar í skiptingu á milli bakstykkis og ermi (þ.e.a.s. fyrst er heklað yfir ermi, framstykki, ermi og að lokum yfir bakstykki).
Hægri ermi: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, A.2 yfir 1 lykkju, A.3 yfir 1 lykkju.
Framstykki: Heklið A.4 yfir næstu 2-2-4-2-2-4 lykkjur, A.5 yfir 17-17-17-18-18-18 lykkjur, A.6 yfir 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.7 yfir 1 lykkju (= miðja að framan), A.8 yfir 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.9 yfir 17-17-17-18-18-18 lykkjur, A.4 yfir næstu 2-2-4-2-2-4 lykkjur.
Vinstri ermi: Heklið eins og hægri ermi.
Bakstykki: Heklið eins og framstykki.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
A.4, A.5 og A.9 er endurtekið á hæðina. Heklið A.2 að ör sem sýnir þína stærð, heklið síðan A.4 yfir þessar lykkjur.
Þegar A.1, A.3, A.6, A.7 og A.8 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 55-55-59-63-63-67 fastalykkjur og 4 sólfjaðrir á hvoru framstykki/bakstykki og 29-31-39-37-33-31 fastalykkja á hvorri ermi = alls 168-172-196-200-192-196 fastalykkjur + 8 sólfjaðra mynstur.
Stykkið mælist ca 14 cm, mælt meðfram öxl.
Heklið síðan áfram þannig:
Hægri ermi: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, A.4 yfir næstu 27-29-37-35-31-29 lykkjur, A.3 yfir 1 lykkju.
Framstykki: Heklið A.4 yfir næstu 2-2-4-2-2-4 lykkjur, A.5 alls 2 sinnum á breidd, A.6 yfir næstu 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.7 (= 1 lykkja = miðja að framan), A.8 yfir næstu 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.9 alls 2 sinum á breidd, A.4 yfir næstu 2-2-4-2-2-4 lykkjur.
Vinstri ermi: Heklið eins og hægri ermi.
Bakstykki: Heklið eins og framstykki.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist alls 22-24-25-27-29-31 cm, mælt meðfram öxl (þ.e.a.s. ca 7-9-10-12-14-15 umferð eftir fyrstu endurtekningu á mynstri A.1, A.3 og A.6 til A.8).
Nú eru ca 65-71-77-89-93-97 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar og ca 6-6-6-6-6-8 sólfjaðrir á hvoru framstykki/bakstykki og ca 45-51-59-61-61-63 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar á hvorri ermi = alls ca 220-244-272-300-308-320 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar + ca 12-12-12-12-12-16 sólfjaðra mynstur.
Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig:
Hægri ermi: Hoppið yfir ermalykkjur (= ca 45-51-59-61-61-63 lykkjur) og heklið 6-6-6-8-10-12 loftlykkjur undir ermi.
Framstykki: Heklið mynstur eins og áður.
Vinstri ermi: Hoppið yfir ermalykkjur (= ca 45-51-59-61-61-63 lykkjur) og heklið 6-6-6-8-10-12 loftlykkjur undir ermi.
Bakstykki: Heklið eins og framstykki.
Nú eru ca 71-77-83-93-103-109 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar/loftlykkjur (meðtaldar loftlykkjur undir ermi) + ca 6-6-6-6-6-8 sólfjaðrir á hvoru framstykki/bakstykki = alls ca 142-154-166-186-206-218 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar og ca 12-12-12-12-12-16 sólfjaðra mynstur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 1 umferð með mynstri eins og áður og 1 fastalykkju/tvíbrugðna stuðla í hverja loftlykkju undir ermi. Færið umferðina til þannig að hún byrji mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt undir báðar ermar.
Heklið síðan mynstur eins og áður, en fækkið lykkjum á hvorri hlið þannig:
Framstykki: Heklið A.4 yfir fyrstu 2-2-4-4-5-8 lykkjurnar, A.10 yfir næstu 5 lykkjurnar + sólfjaðramynstur + 1 lykkja (stillið af hvaða umferð er byrjað með miðað við mynstur), heklið mynstur eins og áður (þ.e.a.s. haldið áfram að auka út við miðju að framan) þar til eftir eru 8-8-10-10-11-14 lykkjur og 1 sólfjöður á undan prjónamerki, heklið A.11 yfir 1 lykkju + sólfjaðra mynstur + 5 lykkjur, heklið A.4 yfir næstu 2-2-4-4-5-8 lykkjurnar.
Bakstykki: Heklið eins og framstykki.
Haldið svona áfram með mynstur.
Þ.e.a.s. í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er aukið út um lykkjur hvoru megin við A.7 (þ.e.a.s. lykkjum er aukið út í A.6 og A.8) og lykkjum er fækkað í A.10 og A.11 (þegar fækkað/aukið er um tvíbrugðna stuðla er aukið út um 2 tvíbrugðna stuðla hvoru megin við A.7 (= alls 8 tvíbrugðnir stuðlar fleiri) og fækkað um 1 tvíbrugðinn stuðul í hverri einingu af A.10/A.11 (= alls 4 tvíbrugðnir stuðlar færri), þ.e.a.s. aukið út um alls 4 tvíbrugðna stuðla í umferð).
Mynstur í hliðum fækkar og aukið er út fyrir nýtt mynstur við miðju að framan/miðja að aftan.
Þegar A.10 og A.11 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina heldur úrtakan áfram í tvíbrugðnum stuðlum eins og áður (þ.e.a.s. ekki fækkar lengur í sólfjaðra mynstri).
Þegar stykkið mælist 20 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, mælt meðfram hlið þar sem stykkið er minnst, aukið út um lykkjur eins og áður, en ekki lengur aukið út fyrir sólfjöðrum, þ.e.a.s. allar lykkjur sem auknar eru út eru heklaðar í fastalykkjum/tvíbrugðnum stuðlum.
Þegar stykkið mælist 25-25-26-26-26-26 cm frá skiptingu, mælt meðfram hlið þar sem stykkið er minnst (þ.e.a.s. ca 11 umferðir með tvíbrugðnum stuðlum ) 11 sinnum fleiri), er heklaður 1 kantur þannig:
Heklið * 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* hringinn, stillið af að endað sé með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur, hoppið e.t.v. yfir færri lykkjur. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm mælt frá öxl og niður, þar sem stykkið er styst.

ERMI:
Festið þræði með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju undir ermi, heklið 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðul í hverja af 2-2-2-3-4-5 loftlykkjum undir ermi (passið uppá að það séu heklaðar fastalykkjur eða tvíbrugðnir stuðlar miðað við mynstur), heklið 1 fastalykkjur/tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af ca 45-51-59-61-61-63 lykkjum sem hoppað var yfir fyrir ermi og endið með 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af síðustu 3-3-3-4-5-6 loftlykkjum undir ermi = ca 51-57-65-69-71-75 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar.
Haldið áfram hringinn eftir A.4.
Þegar ermin mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5-3-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 8-11-13-13-14-15 sinnum = ca 35-36-39-43-43-45 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 43-42-41-40-38-37 cm, heklið nú 1 kant í kringum ermi þannig: Heklið * 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina, stillið af að endað sé með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmál þannig: Byrjið mitt ofan á öxl, festið enda með 1 keðjulykkju í 1 lykkju, heklið * 1 fastalykkju í næstu lykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* hringinn þannig, stillið af að umferðin endar með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur í hálsmáli, hoppið e.t.v. yfir færri lykkjur. Klippið frá og festið alla enda.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = tvíbrugðinn stuðull
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = Kúla: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 3 tvíbrugðna stuðla til viðbótar í sömu fastalykkju alveg eins, dragið síðan þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 2 tvíbrugðna stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 2 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálini (= 1 tvíbrugðinn stuðull færri)
symbols = fyrsta umferðin er nú þegar hekluð, þetta sýnir bara hvernig næsta umferð er hekluð í/um lykkjurnar
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (91)

country flag Cecile wrote:

Bonjour. J ai fait le tour avec les mailles en l air pour dissocier les manches du reste du corps. Je fais 3 mailles coulées pour etre au milieu des 6 mailles en l air. Et là je suis perdue. Dois je faire 3 doubles brides sur les mailles en l'air puis commencer A10 ? Ou faut il 3 Db pyis 2A4 puis A10 ? Merci

15.05.2021 - 20:20

DROPS Design answered:

Bonjour Cecile, vous allez crocheter les mailles sous les manches en A.4 (double-brides/mailles serrées), et diminuer de chaque côté dessous la manche avec A.10 et A.11; autrement dit, sous les manches vous aurez: A.11, A.4 avec le marqueur au milieu, A.10, continuez les autres mailles comme avant. Bon crochet!

17.05.2021 - 09:11

country flag Marisol wrote:

Hola, los motivos de motas de la segunda fila del canesú no embonan con los de la anterior y al final de la vuelta me sobran 6 puntos sin tejer. Conté los puntos de las filas anteriores y no tengo puntos de más. Se me ocurrió tejer esos seis puntos al centro del tejido, de 3 en 3 a los laterales del punto central (A7), y es la única manera en que embonan los motivos, pero no sé si esto sea correcto. Por favor, ayuda. Gracias!

04.02.2021 - 22:03

country flag Fabienne Gautier wrote:

Bonjour, je suis bloquée sur la mise en place. Je fais la taille L et j'ai bien 96 m mais pour mettre en place les mailles pour les différentes parties du corps, je ne retombe pas sur le même nombre. Pouvez vous me donner des explications ? Merci

31.12.2020 - 17:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gautier, crochetez ainsi: Manche droite: A.1 (= 1 m), A.2 (= 1 m), A.3 (= 1 m) ( = 3 m) - Devant: A.4 (= 4 m), A.5 (= 17 m), A.6 (= 1 m), A.7 (= 1 m = milieu devant), A.8 (= 1 m), A.9 (= 17 m), A.4 (= 4 m) (= 4+17+1+1+1+17+4=45 m) - Manche gauche: comme pour la manche droite = 3 m - Dos: comme pour le devant = 45 m. Autrement dit, vous avez: 3+45+3+45=96 m. Bon crochet!

04.01.2021 - 13:54

country flag Irene Higgie wrote:

I am up to the part that says continue pattern as is that is second row of yoke but don’t understand what todo next I really want to do this as love it thanks

22.12.2020 - 00:01

DROPS Design answered:

Hi Irene, This means that where you have worked the first row in A.1 (in width) you continue with the 2nd row in A.1 and the same applies to the other A patterns (2nd row of A.2 over the first row in A.2 etc.). Hope this helps. Happy crocheting!

22.12.2020 - 06:50

country flag Irene Higgie wrote:

Hi when I start the yoke do I repeat the first row of graph right around all sets. I am a bit confused thanks

19.12.2020 - 00:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Higgie, that's correct, this lesson explains here how to work several diagrams consecutively on the round. Happy crocheting!

21.12.2020 - 07:10

country flag Cathy wrote:

So excited to finish but am stuck after completing the yoke. When we transition to work the right sleeve as A1, A4 over the next 27 stitches and A3 it appears that it increases which makes the end stitch count after working this for 7 rounds greater than whats written? If it says work A1 over first stitch is it one treble in stitch or 3 trebles in that one stitch. Similarly is A7 always just 1 stitch? Also how do you count 6 fans? Is it counted vertically?

18.12.2020 - 03:23

DROPS Design answered:

Dear Cathy, after you have worked to the arrow in A.2 on sleeve, you work A.4 over A.2 then after A.1 has been worked 1 time in heith you work: A.1, A.4 over 27 sts and A.3 to row 7= 9 sts in A.1 + 27 sts in A.4 and 9 sts in A.3 = 45 sts for right sleeve. And yes, A.7 is only 1 stitch worked between A.6 and A.8. When you should have 45 sts for each sleeve, 65 sts + 6 fans for front/back piece, these fans are worked in width. Happy crocheting!

18.12.2020 - 07:32

country flag Loly wrote:

Hola estoy haciendo la talla S En los aumentos en la manga estoy haciendo el diagrama 1 en el diagrama 2, hago solamente donde pone talla S ? O continuo todo el diagrama 2, porfavor necesito que me responda, esque no me coincide la cantidad de puntos bajos que me pide el patrón para la talla S muchas gracias, espero comprenda mi pregunta.

12.12.2020 - 20:04

DROPS Design answered:

Hola Loly. Para la talla S , la manga la trabajamos como sigue: primero se trabaja A.1, A.2, A.3 sobre los puntos de la manga. Cuando llegas hasta la flecha con la letra S, trabajamos A.1, A.4 (sobre los puntos de A.2) y A.3.

13.12.2020 - 11:35

country flag Pat Bailey wrote:

So I'm up to the body split... I don't understand about the 6 chain under armholes... Do you work into them in every row... I see sonya doesn't understand either... Please don't reply with happy crocheting... Thought I'd got to grips with it all.... Are you supposed to finish with a particular row before the body split ...

11.10.2020 - 21:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bailey, the 6 chains are worked instead of sleeves at the end of yoke when you divide piece for body/sleeves, this means these 6 chains will be worked only one time (on the last round on yoke), then work 1 round as before and cut the yarn so that round now starts on the middle of one of both sleeves (= in the middle of the 6 chains (3 chain sts on each side of the beg of the round on body). Hope this helps :)

12.10.2020 - 08:42

country flag Amparo Bonet wrote:

Me gustaría poder imprimir las explicaciones de este patrón, pero no me deja hacerlo y pierdo la página, y después me cuesta mucho volver a encontrarla, me puede ayudar? Porfavor.

11.10.2020 - 10:58

DROPS Design answered:

Hola Amparo. Es un problema del navegador que usas (Firefox, Chrome...), no es un problema de la página que podamos solucionar desde aquí. Tienes que marcar el botón imprimir y seguir las instrucciones.

15.10.2020 - 20:56

country flag Loly Romero wrote:

Ooh que bueno congrats😀👏👏👏 Mrs Pat Bailey Le importaría de compartir conmigo por favor como lo ha hecho?lo he preguntado esta tarde en el grupo de Facebook DROPS workshop , gracias

10.10.2020 - 23:42