DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Narvik

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2-12 ára.

DROPS Children 32-12
DROPS Design: Mynstur u-076-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-300-300-350-400 g litur 44, ljós grár
50-100-100-100-100-100 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 48, vínrauður

-------------------------------------------------------
FYLGIHLUTIR FYRIR STYKKIÐ:

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4 (í 3 minnstu stærðum): lengd 40 cm og 60 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4 (í 3 minnstu stærðum): lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3 (í 3 minnstu stærðum): lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3 (í 3 stærstu stærðum): lengd 40 cm og 80 cm fyrri stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

----------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-14-15-16 lykkjur framhjá lykkju með prjónamerki í, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-29-31-33 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-43-46-49 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-57-61-65 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-71-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-79-85-85-91-97 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að framan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.2 á einungis við um stærð 2 og 3/4 ára). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um norrænt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkja) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 21) = 3,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðnir svo að ekki myndast göt.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 81-84-87-90-93-96 lykkjur á hringprjón 3 með vínrauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2-2½ cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 21-24-27-30-33-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 102-108-114-120-126-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónaðu UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 hringinn (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 6 lykkjum).
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og ÚTAUKNING-1.
Ör-1: Aukið út um 10-12-14-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 112-120-128-136-144-152 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með 8 lykkjum).
Ör-2: Aukið út um 24-32-32-40-32-40 lykkjur jafnt yfir = 136-152-160-176-176-192 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-19-20-22-22-24 mynstureiningar með 8 lykkjum – ATH: Passið uppá að fá með útaukningar á milli ör-2 og ör-3 sem eru teiknaðar í mynsturteikningu).
Ör-3: Nú eru 170-190-200-220-220-240 lykkjur í umferð. Aukið út um 22-18-24-20-32-30 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 192-208-224-240-252-270 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-13-14-15-14-15 mynstureiningar með 16-16-16-16-18-18 lykkjum).
Ör-4: Aukið út um 18-26-16-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 210-234-240-246-258-276 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 15-16-17-18-19-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón með ljós grár að réttu máli.
Næsta umferð prjónað með ljós grár þannig: Prjónið 32-35-37-38-40-43 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 42-48-47-48-50-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 63-69-73-75-79-85 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-48-47-48-50-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær lykkjur sem eftir eru 31-34-36-37-39-42 lykkjur slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 138-150-158-166-174-182 lykkjur. Prjónið síðan þannig:

STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA:
Prjónið 1 umferð slétt með ljós grár. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 23-25 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með ljós grár þar til stykkið mælist 17-20 cm frá skiptingu. Prjónið síðan STROFF eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ára:
Prjónið sléttprjón hringinn með ljós grár þar til stykkið mælist 23-26-29-32 cm frá skiptingu. Prjónið síðan STROFF eins og útskýrt er að neðan.

STROFF:
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 30-33-34-35-39-43 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 168-183-192-201-213-225 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 42-48-47-48-50-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-6 lykkjur sem fitjaðar upp undir ermi = 48-54-53-56-58-59 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-6 lykkjurnar undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi.

STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA:
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið 1 umferð slétt með ljós grár. Síðan er prjónað A.2 hringinn (= 8-9 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með ljós grár eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ára:
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með ljós grár. Haldið áfram eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-3-3-3 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-3½-4-4-4½ cm millibili alls 6-8-7-7-8-8 sinnum = 36-38-39-42-42-43 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 19-22-26-31-35-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-1-3-3-6-5 lykkjur jafnt yfir = 36-39-42-45-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 23-26-30-35-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins.

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = natur
symbols = vínrauður
symbols = byrjið á þessari umferð í þinni stærð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Narvik

MrsEtsuko, Japan

Narvik

Anita, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Barbara Donahue wrote:

How do you get from arrow 2 increase add 40 = 192. then it shows 240 stitches? Please help

24.03.2024 - 21:30

DROPS Design answered:

Dear Barbara, please check the NOTE at arrow-2 in the pattern instructions: "NOTE: Make sure you work the increases between arrow-2 and arrow-3 as shown in the diagram". Between arrow 2 and arrow 3 you will have 2 increases in the charts (shown with the black oval in the edges of the chart). This means that you will have 2 increases per repeat of chart A.1 on the round by the time you reach arrow 3. Since you have 24 repeats of A.1 for the largest size you will increase 48 stitches (2 stitches x 24 repeats = 48 stitches). 192 stitches + 48 increases = 240 stitches. Happy knitting!

25.03.2024 - 00:52

country flag Constance Lövefors wrote:

Vid pil 2 finns en kommentar om ökning från, i mitt fall, 136 till 176 maskor. \\r\\nI nästa stycke, vid pil 3 står ”det är nu 220 maskor på varvet”. Nej, det är det inte - det är fortfarande 176 maskor! Var har jag fattat fel?

16.03.2024 - 17:59

country flag Gertraud Stift wrote:

In der Anleitung zur Passe ist ein Fehler ab Pfeil 2. Dort werden zu den bestehenden 112 Maschen 24 Maschen zugenommen, verteilt zwischen Pfeil 2 und 3. Sind dann 136 Maschen. Bei Pfeil 3 sollten aber bereits 170 Maschen vorhanden sein. Richtig müßte es daher heißen dass 48 Maschen zugenommen werden müssen. Oder 2*24 bei den im Muster eingezeichneten Markieren.

13.05.2023 - 16:11

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stift, vor dieser Runde sind es wegen Zunahmen im Diagram schon 170 Maschen auf der Nadel, und bei dieser Runde soll man jetzt 22 Maschen regelmäßig verteilt zunehmen, so sind es 192 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

15.05.2023 - 08:25

country flag PRESCHEY Véronique wrote:

Bonjour, je voudrais savoir ce que vous entendez par " RÉHAUSSE (encolure dos): Sauter ce paragraphe si on ne veut pas de réhausse " Merci pour votre retour

02.03.2021 - 11:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Preschey, pour que l'encolure dos soit plus haute que celle du devant, on peut tricoter des rangs raccourcis dans le dos = une réhausse (voir vidéo) - si on ne la fait pas, l'encolure dos et devant seront alors identiques. Bon tricot!

02.03.2021 - 13:01

country flag Lene Grue wrote:

Jeg strikker str. 5/6. Skal udtagningerne passe midt bag når jeg begynder at strikke kryds mønsteret eller skal man bare prøve at få det til at passe. Når jeg tager ud efter hver 15 maske er der ikke 15 masker tilbage mellem udtagningerne når jeg når frem til midt bag.

31.01.2021 - 21:24

DROPS Design answered:

Hei Lene. Er det ved 3. pil du er? Før det store krysset? Du har 200 masker og skal øke jevnt 24 masker på omgangen = 224 masker. Du må da øke ca 8 ganger etter 9 masker og 16 ganger etter 8 masker for å få en jevn økning. mvh DROPS design

08.02.2021 - 10:31

country flag Maria Linghammar wrote:

Hej, i mönstret st 92 står vid Pil-2: Öka 24 maskor jämnt fördelat = 136 maskor (det finns nu plats för 17 rapporter à 8 maskor – OBS: Se till att få med ökningarna mellan pil-2 och pil-3 som är intecknade i diagrammen). När jag stickat detta har jag 138 maskor på rundstickan och inte 170 som det står vid förklaring för Pil-3: Det är nu 170 maskor på varvfördelat...Vad har jag missat? Har läst och läst, men har fastnat här! Vänliga hälsningar Maria Linghammar

31.01.2021 - 18:35

DROPS Design answered:

Hej Maria. På varv 19 har du ett omslag inritat i början, vilket innebär att du gör ett omslag varje gång du börjar diagrammet. Diagrammet upprepas 17 gånger på ett varv så på det varvet ökar du alltså 17 maskor. Samma sak på varv 21 där du har ett omslag i slutet av diagrammet på det varvet. 136+17+17= 170m. Mvh DROPS Design

02.02.2021 - 11:01

country flag Patricia wrote:

Peut être que les personnes ne vous remonte pas le problème. J'ai eu quelques retour sur Facebook en posant la question. Bien cordialement

10.11.2020 - 13:35

country flag Patricia wrote:

BonjourLe modèle Narvik est le deuxième modèle de pull norvégien pour enfant que je tricote sur ce site Très très gros problème de taille. Pour le col (une fois n'est pas coutume) il m'a fallu monter les mailles en taille 12 ans pour un enfant de 4 ans !!! . Mon échantillon était parfait pourtant. Il faut ensuite se "débrouiller" pour tricoter le corps du pull pour obtenir une taille acceptable. Que se passe t'il avec vos explications ?? Vous ne testez pas vos modèles avant ?

07.11.2020 - 17:03

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, nous n'avons eu aucun retour similaire jusqu'à présent malgré le succès de ce modèle - le nombre de mailles indiqué ici correspond approximativement à ceux de même taille dans des modèles de même tension. Votre commentaire sera transmis à nos stylites pour une ultime vérification. Bonne continuation!

09.11.2020 - 12:12

country flag Bjørg wrote:

Hei Hvor er mønstret til 2år blitt av?

17.06.2020 - 20:12

DROPS Design answered:

Hej. De 2 översta diagrammen gäller strl 2 år och 3/4 år. Mvh DROPS Design

18.06.2020 - 09:20

country flag Macarena wrote:

Hola! Teji este patrón y me quedó muy bien, con la a Merino extra fine. Sin embargo al bloquear se agrandó más de dos tallas (de la talla 6 a la talla 10) nunca me había pasado algo así! Quisiera saber si es la lana que nunca la había utilizado o si tienen alguna razón (bloquee con agua temperatura ambiente, con jabón neutro) muchas gracias!

07.04.2020 - 15:46

DROPS Design answered:

Hola Macarena. Esta calidad se usa mucho en las prendas para niños y adultos y no tenemos pruebas de que las pendas se deformen con los lavados. Una de las cosas que podría haber pasado, es que tuvieras la tensión del tejido un poco floja y, al absorber el agua, la prenda se deformó.

23.04.2020 - 20:52