DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Missy Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður norrænu mynstri. Stærð 12 mán – 12 ára.

DROPS Children 32-8
DROPS Design: Mynstur li-012-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á bandi í cm:
80/86 (92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152)

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200 (200-200-250-250-300-300) g litur 2923, gulur
100 (100-100-150-150-150-150) g litur 0100, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – fyrir sléttprjón á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS TALA, kókoshneta NR NR 516: 5 (6-6-6-7-7-8) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 . Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um kanta að framan):
Allur kantur að framan er prjónaður með litnum gulur. Þ.e.a.s. notið 1 dokku af litnum gulur í hvorn kant að framan þegar þess er þörf (þ.e.a.s. þar sem gulur er ekki hluti af mynstri).
Skipt er um enda á milli kants að framan og berustykkis (þetta er gert svona til að koma í veg fyrir að endar séu festið meðfram kanti að framan). Þegar skipt er um þráð eru þeir tvinnaðir saman með hvorum öðrum til að lykkjurnar hangi saman.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (= 74 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10,57.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju saman. Ef auka á út þá er það gert til skiptis á eftir ca 10. og 11. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat – ATH: Ekki er lykkjum fækkað/aukið út yfir kanta að framan).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið út svona við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig. Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur á prjóni, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur eru eftir í hinni hliðinni, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur í hinni hliðinni. Haldið áfram að prjóna yfir 8 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá röngu og prjónið 2. og 3. lykkjur frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu eftir 1½-2 cm í kanti í hálsmáli, fellið síðan af fyrir næstu 4 (5-5-5-6-6-7) hnappagötum með ca 6 (6-6½-7-6½-7-7) cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Prjónið fyrst berustykki sem skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84 (88-92-96-100-108-112) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum gulur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 7 (5-4-1-5-6-10) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING (prjónið 2 lykkjur brugðið saman = 1 lykkja færri) = 77 (83-88-95-95-102-102) lykkjur.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11 (12-11-12-12-13-13) mynstureiningar með 6 (6-7-7-7-7-7) lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu lykkju og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 187 (203-220-239-251-271-271) lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið með gulur. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 7 (7-10-7-3-0-11) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 194 (210-230-246-254-271-282) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 13 (14-15-16-17-18-19) cm mælt við miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli), skiptist stykkið þannig: Prjónið 29 (31-34-36-38-40-42) lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 52 (56-62-66-70-75-78) lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á 1 þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið þær lykkjur sem eftir eru 29 (31-34-36-38-40-42) lykkjur eins og áður (= framstykki) = 122 (130-142-150-158-167-174) lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki 32 (34-37-39-41-43-45) lykkjur inn frá hvorri hlið (= 58 (62-68-72-76-81-84) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kant að framan.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu = 130 (138-150-158-166-175-182) lykkjur. Þegar stykkið mælist 11 (13-16-19-22-25-28) cm frá skiptingu, aukið út um 14 (14-14-14-14-13-14) lykkjur í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 144 (152-164-172-180-188-196) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm, fellið síðan af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 34 (37-41-45-49-53-57) cm, mælt frá öxl.

ERMI:
Setjið lykkjurnar frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48 (52-56-60-60-64-66) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur (= mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum gulur. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2 (2½-2½-2½-3½-3½-3½) cm millibili alls 6 (6-8-8-8-8-9) sinnum = 36 (40-40-44-44-48-48) lykkjur. Þegar ermin mælist 14 (16-21-24-28-31-35) cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm að óskaðri lengd.
Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls ca 18 (20-25-28-32-35-39) cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.01.2019
Leiðrétting - FRAM- OG BAKSTYKKI:..= 144 (152-164-172-180-188-196) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.

Mynstur

symbols = gulur
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Little Missy Jacket

Dawn, Guernsey

Little Missy Jacket

Torya, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Carmen Sosa wrote:

Hola! Estoy tejiendo Little Miss Jacket con las agujas y el hilo adecuado a las medidas,pero al terminar el canesú, mide 5 cm más que el patrón.Qué puedo hacer? Si sigoasí,la chaqueta es demasiado grande. Un saludo

12.09.2023 - 09:52

DROPS Design answered:

Hola Carmen, primero comprueba la tensión. Si el canesú es más largo de lo que debería significa que el canesú se ha trabajado demasiado flojo (ya que tienes más cm para el número de filas necesario). Para solucionar esto, puedes hacer la división para la manga y el cuerpo según la medida indicada y la parte restante del dibujo del patrón lo trabajas en las secciones de cuerpo y manga y no en el canesú.

17.09.2023 - 23:08

country flag Jen wrote:

I am having trouble figuring out the A1 and A2 diagrams work together. I’m doing the 5/6 size, so I start with the 7 stitches, then do I go to A2 and do 1 stitch from that diagram?

13.08.2023 - 21:08

DROPS Design answered:

Dear Jen, work as follows: 5 front band stitches in garter stitch, then repeat the 7 sts in A.1 a total of 12 times), now work A.2 and end with 5 front band sts in garter stitch. Thanks to A.2 pattern will be now symmetrical. From WS, work 5 front band sts, work A.2, repeat A.1 (reading diagram from the left towards the right) and end with 5 front band sts. Happy knitting!

14.08.2023 - 10:17

country flag Ginette wrote:

Bonjour, pour mon premier jacquard, je me lance dans le modèle DROPS Children 32-8. Je comprends le diagramme A1 mais ne sais pas quand tricoter le diagramme A2. Où ce diagramme doit il être tricoté ? Merci pour vos explications et vos vidéos qui m'aident à progresser pas à pas.

25.04.2023 - 10:33

DROPS Design answered:

Bonjour Ginette, vu sur l'endroit (entre les mailles de bordure des devant)s, vous répétez le diagramme A.1 en largeur et terminez le rang par la maille de A.2 (avant les mailles de bordure devant) pour que le motif soit symétrique (sur l'envers (entre les mailles de bordure des devants), commencez par A.2 et répétez ensuite A.1 en lisant ce diagramme de gauche à droite). Bon tricot!

25.04.2023 - 14:45

country flag Marianne wrote:

Jeg kan ikke få mål til at passe. Den mindste str. er bærestykket 13 cm + 11 cm fra deling under ærmerne + 4 cm rib. Det giver 28 cm + 3 cm halskant, men diagrammet siger 34cm. Er der noget jeg har overset eller udeladt?

21.04.2023 - 17:04

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Legg til forhøyningen (kun bak), vrangbord til hals, bærestykket, bol og vrangbord nederst = 3+3+13+11+4= 34. mvh DROPS Design

24.04.2023 - 13:50

country flag Anne-Mari Larsen wrote:

Rettelse til mitt spørsmål: det skal stå: på femte pinne er det økning etter hver 8. maske (ikke hver 8. maske)..

03.02.2023 - 12:00

country flag Anne-Mari Larsen wrote:

Strikker str 2 år. Har litt vanskeligheter med å forstå mønsteret med økninger. Skal økningene gjøres i hver rapport? Det står at økningene gjøres i bunnfargen, men i diagrammet er det i mønsterfarge, f.eks femte pinne står det økning hver 8. maske? Da får jeg det ikke til å stemme. Takknemlig for svar!

03.02.2023 - 00:21

DROPS Design answered:

Hej Anne-Mari, ja du øker på hver rapport. På 5.pind øker du i natur. Du øker i samme farve som du har strikket masken før :)

03.02.2023 - 11:45

country flag Anne-Mari Larsen wrote:

Hvordan skal mønsteret strikkes i diagrammet; fra venstre mot høyre eller motsatt? Både fra retten og vrangen? Skal diagram A.2 bare strikkes på retten?

01.02.2023 - 16:45

DROPS Design answered:

Hei Anne-Mari, Diagrammene leses høyre til venstre fra retten og venstre til høyre fra vrangen. Dette gjelder for A.2 også. God fornøyelse!

02.02.2023 - 06:54

country flag Svetlana Petersen wrote:

Jeg har brugt den opskrift til størrelse 5/6 år. En god opskrift, har strikket en dejlig trøje. Den eneste bemærkning er angående garn forbrug. Okkerfarvegarn var beregnet rigtig, men naturfarvegarn har jeg brugt kun1 nogle, mens der er angivet 3 nogle.

27.10.2022 - 14:05

country flag Eva wrote:

Som jeg læser arbejdsbeskrivelsen til Little Missy strikkes trøjen frem og tilbage, med 5 kantmasker i retstrik. I mønstret er der flere steder en hel pind med en farve, efterfulgt af en hel pind med den anden farve. Hvordan strikker jeg de efterfølgende pinde med 2 farver uden at bryde garnet? Venlig hilsen Eva

20.10.2022 - 20:29

DROPS Design answered:

Hej Eva, du kan eventuelt strikke fra den side tråden er, men du er naturligvis nødt til at have trådene i samme side når du strikker en pind med tofarvet mønster :)

25.10.2022 - 12:01

country flag Lorraine wrote:

Same as Chris wrote 25/01/22, when I increase stitches, pattern gets out of synch’. I have started, unpicked, tried a different way more times than I care to mention. I have read the ‘how to read pattern’ over and over and well used to working with colours but just cannot work out the increases to fit with pattern. I’ve repeated the first set of 7 stitches x12, then increase again a few rows later to repeat pattern every 8 and that’s where it goes to pot. Any advice PLEASE.

04.09.2022 - 16:44

DROPS Design answered:

Hi Lorraine, All the increases are included in the diagram A.1, at the beginning and end of each repeat. This means that the main body of the pattern is not affected by the increases and you have the same number of repeats of A.1 throughout the yoke, which in your size is 12, (the number of stitches within each repeat does increase though). Hope this helps and happy knitting!

05.09.2022 - 06:54