DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Run Run Rudolph

Prjónaður galli fyrir börn með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 12 mán – 6 ára.

DROPS Children 32-3
DROPS Design: Mynstur me-045-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 12/18 mán - 2 - 3/4 - 5/6 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
80/86 - 92 - 98/104 - 110/116

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300-350-400 g litur 07, ljós brúnn
50-50-50-100 g litur 01, natur
50-50-50-50 g litur 11, rauður

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – fyrir sléttprjón á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS HEKLUNÁL NR 3: Fyrir snoppu á hreindýri.

DROPS TRÉTALA, NR 503: 5-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað með sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan):
Allur kanturinn að framan er prjónaður með litnum ljós brúnum. Þ.e.a.s. notið 1 dokku af ljós brúnum í hvorn kant að framan þegar þess er þörf (þ.e.a.s. í umferð þar sem ljós brúnn er ekki hluti af mynstri).
Skipt er um þráð á milli kants að framan og berustykkis (þetta er gert svona til þess að forðast að festa þræði út á kanti að framan). Þegar skipt er um þræði eru þræðirnir tvinnaðir saman með hverjum öðrum svo að lykkjurnar hangi saman.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (= 74 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10,6.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert til skiptis á eftir ca 10. og 11. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat – ATH: Ekki er lykkjum fækkað/aukið út yfir kanta að framan).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi og innan á skálm):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu eftir 1½-2 cm í kanti á hálsmáli, síðan er fellt af fyrir næstu 4-5-6-6 hnappagötum með ca 8-8-7½-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Einfaldara er að stilla lengd á ermum og skálmum ef stykkið er prjónað ofan frá og niður og því er gallinn prjónaður ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-88-92-96 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum ljós brúnn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 7-5-4-1 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-83-88-95 lykkjur. Prjónið síðan upphækkun aftan í hnakka í sléttprjóni þannig (þetta er gert til að flíkin passi betur): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur í umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur í annarri hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur í annarri hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur í umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11-12-11-12 mynstureiningar með 6-6-7-7 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 187-203-220-239 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum ljós brúnn.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 7-7-10-7 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 194-210-230-246 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 13-14-15-16 cm mælt fyrir miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli).
Nú skiptist stykkið þannig: Prjónið 29-31-34-36 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 52-56-62-66 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið þær 29-31-34-36 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki) = 122-130-142-150 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í 32-34-37-39 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 58-62-68-72 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 10-10-12-12 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-20-24-24 cm frá skiptingu = 130-138-150-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38 cm frá skiptingu, endið kant að framan við miðju að framan. Fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 124-132-144-152 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur í 3 cm – stykkið mælist nú 32-34-38-41 cm frá handveg og 45-48-53-57 cm frá miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli). Nú skiptist stykkið fyrir skálmar.

SKÁLM:
Byrjið við miðju að framan, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn yfir fyrstu 62-66-72-76 lykkjur (þær 62-66-72-76 sem eftir eru hvíla nú á prjóninum). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= innanverðu á skálm). Þegar skálmin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur að innanverðu á skálm – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-4.-6.-7. hverri umferð alls 10-10-11-11 sinnum = 42-46-50-54 lykkjur. Þegar skálmin mælist 13-18-25-31 cm frá skiptingu, aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm eða að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðnar auknar út til 3 lykkjur brugðnar = 65-70-75-80 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Setjið lykkjur af hringprjóni á sokkaprjón 4 og prjónið hina skálmina á sama hátt. Allur gallinn mælist ca 71-79-93-103 cm, mælt frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið lykkjur af öðrum þræðinum á sokkaprjón 4 og prjónið að takið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur (= mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn. Þegar ermin mælist 2-2-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-4.-4. hverri umferð alls 7-9-10-12 sinnum = 34-34-36-36 lykkjur. Þegar ermin mælist 10-12-15-18 cm frá skiptingu, aukið út um 6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm eða að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 50-50-55-55 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

SNOPPA:
Heklið með litnum rauður með heklunál 3 þannig: Heklið 4 loftlykkjur og 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, klippið frá og festið enda. Heklið 1 snoppu á hvert hreindýr (= 11-12-11-12 snoppur). Hnýtið snoppurnar á hvert hreindýr og festið enda.

FRÁGANGUR:
Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kant að framan og saumið niður með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = ljós brúnn
symbols = rauður
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Brigitte Keslich wrote:

Hallo, kann es sein, dass ein Fehler im Diagramm A1 12/18+2 in der zweiten Reihe ist. In der Reihe 1 wird 1 Masche pro Diagramm zugenommen. In Reihe sind es auf einmal 2 Maschen mehr. Gibt es hierzu eine Korrektur?

12.07.2022 - 21:54

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, In der ersten Reihe sind 2 Zunahmen: eine nach der ersten Masche von A.1 und die andere am Ende des Rapports, nach der 6. Masche.

24.07.2022 - 20:10

country flag Anne wrote:

Hallo, ich will jetzt die Passe stricken. Muss ich mit A2 anfangen und danach A1 und A2 im Wechsel ?

12.10.2021 - 23:25

DROPS Design answered:

Liebe Anne, die Passe stricken Sie so: 5 Blenden-Maschen krausrechts, wiederholen Sie jetzt Diagram A.1 bis 6 Maschen übrig sind (= je nach der Größe 11 oder 12 Rapporte à 6-7 Maschen), dann stricken Sie A.2 (= 1 Masche) und 5 BlendenMaschen kraus rechts. Bei den Rückreihen stricken Sie: A.2, dann A.1 wiederholen aber jetzt von links nach rechts lesen. Viel Spaß beim stricken!

13.10.2021 - 08:09

country flag Margaretha Olsson wrote:

Såg just var jag gjort fel!

26.02.2021 - 15:56

country flag Margaretha Olsson wrote:

Fastnar på mönstret A1 3/4 år. 4e varvet ser ut att vara en maska mer i rapporten än vad det blir med bara en ökning i rapporten på varv 3. Jag får inte ihop det.

26.02.2021 - 15:52

DROPS Design answered:

Hej Margaretha. Du har 2 ökningar på varv 3 i diagram A.1. Du har ett omslag mellan maska nr 1 och 2 och ett omslag efter sista maskan i diagrammet. Mvh DROPS Design

01.03.2021 - 09:52

country flag Ginet DuPerron wrote:

Vraiment original et très chaud.

17.08.2020 - 20:07