DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Inner Circle

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður með norrænu mynstri úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónuð húfa með norrænu mynstri úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine.

DROPS 196-23
DROPS Design: Mynstur u-869
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL
Höfuðmál: 56/58 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 54, beige
150-200-200-200-250-250 g litur 69, ljós grágrænn
Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 g litur 07, ljós brúnn
150-200-200-200-200-250 g litur 15, ljós grágrænn

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 g litur 54, beige
100-150-150-150-150-200 g litur 69, ljós grágrænn
Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 07, ljós brúnn
100-100-150-150-150-150 g litur 15, ljós grágrænn

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 56/58 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 54, beige
100 g litur 69, ljós grágrænn
Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 07, ljós brúnn
100 g litur 15, ljós grágrænn

PEYSA:

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

HÚFA:

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Karisma 21, 16
B) DROPS Merino Extra Fine 5, 13
C) DROPS Karisma 56, 11
D) DROPS Merino Extra Fine 6, 7

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Veldu mynstur fyrir þína stærð.
Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um marglitt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

UPPHÆKKUN:
Setjið einn merkiþráð í fyrstu lykkjuna í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka að byrjun á umferð.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 6,8.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna ca 6. og 7. hverja lykkju saman. Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 7. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-116-120-124-128-132 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós grágrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn beige. Prjónið nú stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkar um 16-19-19-20-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 92-97-101-104-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-32-36-39-42 lykkjur jafnt yfir = 112-119-133-140-147-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Til að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur A.1 (= 7 lykkjur) 16-17-19-20-21-22 mynstureiningar hringinn í umferð (byrjaðu í þinni stærð í mynsturteikningu) – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur í hring. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 288-306-342-360-378-396 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú 23-24-24-24-24-24 cm.
Stærð S er nú lokið – haldið áfram með næsta kafla að neðan.
Í stærð M, L, XL, XXL og XXXL er prjónað þannig:
Stærð M, L og XL:
Prjónið með sléttprjóni með beige þar til stykkið mælist 25-27-28 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24-24 cm er aukið út um 14-6-20 lykkjur jafnt yfir = 320-348-380 lykkjur. Haldið síðan áfram með næsta kafla að neðan.
Stærð XXL og XXXL:
Prjónið með sléttprjóni með beige þar til stykkið mælist 30-32 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24 cm er aukið út um 11-14 lykkjur jafnt yfir og þegar stykkið mælist 27-29 cm er aukið út um 11-14 lykkjur jafnt yfir = 400-424 lykkjur. Haldið síðan áfram með næsta kafla.

ALLAR STÆRÐIR:
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-46-50-56-60-65 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-100-112-120-130 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-46-50-56-60-65 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-200-220-244-264-288 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 92-100-110-122-132-144 lykkjur á milli prjónamerkja bæði á bakstykki og á framstykki.
Prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist við ermar er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð (ca öðrum hverjum cm) alls 10 sinnum í hvorri hlið = 224-240-260-284-304-328 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-24-25-25-25 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 60-64-68-72-76-84 lykkjur jafnt yfir = 284-304-328-356-380-412 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4/sokkaprjóna og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist við ermar er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca 8.-6.-5.-4.-4.-4. hverri umferð alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-36-35-34-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 54-60-64-68-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-40-39-38-37-35 cm frá þar sem stykkið skiptist við ermar og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.
Það eru 2 mismunandi mynsturteikningar fyrir húfu. Ef þú vilt hafa mynstur með stóru tré er prjónað eftir mynsturteikningu A.2, ef þú vilt mynstur með litlu tré er prjónað eftir mynsturteikningu A.3.

HÚFA:
Fitjið upp 124 lykkjur á hringprjón 3 með litnum beige. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 108 lykkjur. Nú er prjónað mynstur A.2 eða a.3 – veldu mynsturteikningu fyrir stórt eða lítið tré (= 18 lykkjur) alls 6 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.2/A.3 hefur verið prjónað til loka eru 12 lykkjur á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjur á prjóni, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.09.2018
Leiðrétting: ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni...
Yfirfarið á vefsvæði: 14.09.2018
ALLAR STÆRÐIR: Næsta umferð er prjónuð þannig:...

Mynstur

symbols = beige
symbols = ljós grágrænn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.
symbols = prjónstefna
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Inner Circle

Maaike De Grande, Belgium

Inner Circle

Gillian Johnstone, Cyprus

Inner Circle

nugova, Germany

Inner Circle

Marion Dambeck, Germany

Inner Circle

IntreccidiCeci, Italy

196-23 Inner Circle

Kerstin, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Luďka wrote:

Dobrý den, chybička v českém návodu. Typ na přidávání boky - začínáme 2 oka před značkou, ne 4.

02.11.2021 - 10:42

DROPS Design answered:

Dobrý den, Luďko, díky - opraveno! Hezký den, Hana

04.11.2021 - 06:03

country flag Ann Cassidy wrote:

I have read the pattern through but can’t seem to find the body measurements which the sizes correspond to - as in small medium large. What chest measurements do the different sizes fit? What is the actual finished size for each of them? Can you help? Many thanks

04.05.2021 - 00:45

DROPS Design answered:

Dear Ann, since all of our modells are different styles, there are no general sizing measurements. You can find the finished measurememnts of each garnment on th schematic drawing at the botton of the page. If you are still undure, try comparing those measurements to a piece that fits you. Happy Knitting!

04.05.2021 - 04:08

country flag Saara wrote:

Hei! Onkohan ohjeessa jokin virhe vai enkö vain ymmärrä? Olen tehnyt nyt L-kokoisessa neuleessa A1 kuvion valmiiksi. Neule on jo kuitenkin nyt tuon 27cm pitkä vaikka pitäisi olla vasta 24cm. Tarkistin neuletiheyden ja se täsmää silti ohjeeseen. Voinko nyt siis vaan tehdä tarvittavat lisäykset suoraan seuraavalla kerroksella ja jatkaa ohjeen seuraavaan vaiheeseen?

16.03.2021 - 10:13

DROPS Design answered:

Hei, piirroksessa A.1 on 56 kerrosta, eli mallineuleen korkeus on 20 cm, jos neuletiheys on oikea. Joustinneuleen 3 cm + mallineuleen 20 cm tekee 23 cm. Olethan mitannut työn etukappaleen kohdalta (johon ei ole tehty korotusta).

23.03.2021 - 16:28

country flag Jocelyne Lebert wrote:

Pour ce modele, inner circle ,comment interpreter augmenter, 14-6-20 mailles a intervalles reguliers Puis apres 11-14 mailles a intervalles reguliers. Merci pour votre reponse.

21.02.2021 - 16:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebert, en fonction de chaque taille, vous augmentez un nombre de mailles différents, autrement dit, en taille M, L et XL vous augmentez 14-6-20 m = 14 m en M, 6 m en L et 20 m en XL; en XXL et XXXL vous augmentez 11-14 m = 11 m en XXL et 14 m en XXXL; Bon tricot!

22.02.2021 - 08:49

country flag Ann-christin Persson wrote:

La upp masker för halsen. Eftersom det står rundsticka 3, och det fanns ju bara en rundsticka 3 mm 80 cm. Men det blev ju så tajt. Är det något som inte stämmer. Känns som det skulle vara en 40 cm rundsticka till det. Men stog inte att man skulle ha en sån till tröjan Hur gör jag nu? Mönster 196-23 Mvh Ann-christin

16.02.2021 - 15:12

DROPS Design answered:

Hej Ann-Christin, du kan med fordel strikke halsen på strømpepinde 3 :)

16.02.2021 - 15:32

country flag Vincenza wrote:

Grazie infinite,auguri di Buone Feste

21.12.2020 - 20:17

country flag Vincenza wrote:

Buona sera potrebbe dirmi come si arriva da 119 maglie a 309 ?gli aumenti quando vengono eseguiti?sul diagramma non capisco il segno più scuro che si trova ad inizio o fine riga.Grazie

21.12.2020 - 18:52

DROPS Design answered:

Buonasera Vincenza, il diagramma A.1 parte da 7 maglie e finisce con 18 maglie, quindi con 11 aumenti e si lavora per 17 volte sul giro per la taglia M, per cui 11 x 17 = 187 che sommati ai 119 fanno 306 maglie. Il simbolo scuro a inizio o fine riga è proprio l'aumento, da fare con 1 gettato, che poi si lavorerà a diritto ritorto sul giro successivo. Buon lavoro!

21.12.2020 - 20:02

country flag Tina wrote:

Bei der Passe bei einer Länge von 24 cm steht 14-6-20 Maschen zunehmen, sodass es 320-348-380 Maschen ergibt...sollte das für M-L-XL 14-18-20 Maschen heißen, oder stimmt es so, wie es beschrieben ist???

01.11.2020 - 21:48

DROPS Design answered:

Liebe Tina, so stimmt es, nach A.1 sind es 306-342-360 Maschen in M-L-XL und es werden 14-6-20 Maschen zugenommen = jetzt haben Sie 320-348-380 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

02.11.2020 - 09:20

country flag Anna wrote:

Üdv! Ez nem kérdés, inkább hibajelzés, amit egy ideje már észrevettem és úgy gondoltam, hogy ideje volna jelezni... Bocsánat, hogy itt írom, de sehol nem találtam kapcsolattartási e-mail címet. "Zegyen #dropsdesign taget a képekre a szoliális médiában" Zegyen-tegyen. Van rá lehetőség, hogy ezt az elütést kicseréljék? Elnézést kérek a zaklatásért! Köszönöm a csodás mintákat!

08.09.2020 - 18:09

DROPS Design answered:

Kedves Anna! Köszönjük a levelét, és a hibajelzést is, egyeztetek arról, hogyan lehet javítani az elütést. Bízom benne, hogy minél előbb sikerül, A magyar oldalon talált hibát leggyorsabban a Facebook "Magyar DROPS csoport"-jában tud jelezni - magyarul. A csoportba jelentkezésnél ind a három kérdésre válaszolni kell. Köszönettel, és kívánok további sikeres kézimunkázást!

17.09.2020 - 05:24

country flag Maren wrote:

Jeg er ferdig med mønsteret på genseren. Står at arbeide skal måle 24 cm. Mitt måler 35 fra oppleggskanten. Så antar at jeg må ta opp å begynne på nytt. Bør jeg gå ned en hel størrelse på og bruke 2 og 3 istede for 3 og 4?

21.04.2020 - 11:32

DROPS Design answered:

Hej Maren, din strikkeprøve skal have 21 masker i bredden og 28 pinde i højden på 10x10 cm. Hvis prøven bliver for stor skal du prøve med mindre pinde. God fornøjelse!

22.04.2020 - 11:23