DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Raspberry Flirt

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og stroffprjóni með þveru hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-34
DROPS Design: Mynstur as-099
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-125-125-150-150-175 g litur 08, bleikfjólublár
100-125-125-150-150-175 g litur 05, beige

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið/fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (perlugrár) NR 614: 6-6-6-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 6,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LYKKJA:
1 lykkja: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* þar til lykkjan mælist 2 cm.

ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermi):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 96-104-112-120-132-144 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í litnum bleikfjólublár + 1 þræði í litnum beige (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-14-14-18-18-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 110-118-126-138-150-166 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm er einungis prjónaðar fyrstu 55-59-63-69-75-83 lykkjur í umferð, síðustu 55-59-63-69-75-83 lykkjur settar á þráð.

FRAMSTYKKI:
= 55-59-63-69-75-83 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fitjið upp 1 lykkju í lok fyrstu 2 umferða = 57-61-65-71-77-85 lykkjur. Prjónið nýjar lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúnin slétt og 1 lykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Setjið 55-59-63-69-75-83 lykkjur á hringprjón 8 og prjónið á sama hátt og á framstykki þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm – en felli ekki af!
Í næstu umferð frá réttu er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – JAFNFRAMT eru gerðar lykkjur þannig:
Fellið af 4-5-5-4-6-7 lykkjur, gerið 1 LYKKJA – sjá útskýringu að ofan, * fellið af næstu 5-5-6-5-5-6 lykkjur, gerið 1 lykkju * prjónið frá *-* alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, fellið af 29-31-31-33-35-35 lykkjur (= hálsmál), * gerið 1 lykkju, fellið af næstu 5-5-6-5-5-6 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, gerið 1 lykkju, fellið af síðustu 4-5-5-4-6-7 lykkjur.

ERMI:
Fitjið upp 26-28-28-30-32-32 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði í litnum bleikfjólublár + 1 þræði í litnum beige (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 8 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-7-8-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 35-35-36-38-38-40 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-8-7 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-3½-3½-3-3 cm millibili alls 10-11-12-12-13-13 sinnum = 55-57-60-62-64-66 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 52-51-50-49-47-45 cm og fellið síðan laust af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í innan við 1 lykkju garðaprjón. Saumið tölur í framstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Veerle wrote:

De boordsteek bovenaan voor- en achterpand staat alleen uitgelegd voor de goede kant. Hoe brei je de verkeerde kant? 1 av gedraaid - 1 r?

11.02.2021 - 04:22

DROPS Design answered:

Dag Veerle,

Ja je hebt gelijk, bovenaan brei je immers heen en weer en moet je dus ook aan de verkeerde kant breien. Het klopt zoals je het zegt: de gedraaid rechte steek is aan de verkeerde kant een gedraaid averechte steek en de averechte steek is aan de verkeerde kant een rechte steek.

11.02.2021 - 13:59

country flag Lot wrote:

Beste, ik zie in het voorbeeld geen aanduiding in cm voor de boord van de mouw. Ik brei in een andere naalddikte, dus ik zou het aantal steken moeten berekenen. Wat is de breedte van de boord van de mouw in cm? Alvast bedankt!

01.02.2021 - 16:52

DROPS Design answered:

Dag Lot,

Er is inderdaad geen manchetbreedte bekend. Je zou de naalddikte voor de boord door kunnen berekenen op basis van de naalddikte die je voor de trui gebruikt. Waarschijnlijk komt het dan wel goed.

23.02.2021 - 13:34

country flag Vickie Nielsen wrote:

Hej Der er en ting jeg ikke forstår i opskriften. Skal jeg strikke en lige så bred rib kant øverst på ryggen som jeg har lavet foran oppe ved halsen?

31.01.2021 - 18:41

DROPS Design answered:

Hei Vickie. Ja, strikk på samme måte som forstykket til arbeidet måler 56-58-60-62-64-66 cm – men ikke fell av. På neste pinne fra retten felles det av med rett over rett og vrang over vrang – SAMTIDIG som det lages hemper slik, les i oppskriften hvordan. mvh DROPS design

01.02.2021 - 15:11

country flag Leen Sels wrote:

Zijn de getallen bij het telpatroon allemaal in cm ? De getallen bij de horizontale lijnen komen namelijk niet overeen met het aantal steken in de beschrijving.

11.07.2020 - 12:39

DROPS Design answered:

Dag Leen

Ja, hoor, de getallen onderaan in de tekening zijn allemaal in cm.

12.07.2020 - 14:29

country flag Leen Sels wrote:

Ik heb naald 9mm nodig i.p.v. 8mm om een stekenverhouding te bekomen van "11 steken in de breedte en 15 naalden in de hoogte met tricotsteek en 2 draden = 10 x 10 cm". Wellicht moet ik dan voor de boordsteek ook een grotere naald nemen dan de voorgeschreven 5,5mm . Hiervoor is echter geen steken verhouding aangegeven. Hoe bepaal ik wel naalddikte ik nodig heb voor de boordsteek?

11.07.2020 - 12:27

DROPS Design answered:

Dag Leen,

Inderdaad moet je dan voor de boordsteek ook de naalddikte aanpassen naar verhouding. Ik zou dan naald 5 mm nemen.

12.07.2020 - 14:30

country flag Paula wrote:

El delantero y la espalda no se cosen, se unen solo por los botones?

12.04.2020 - 01:31

DROPS Design answered:

Hola Paula. En las partes de los hombros la espalda y el delantero se unen sólo por los botones.

12.04.2020 - 17:49

country flag Natasja wrote:

Waarom dienen de lussen eigenlijk? Zijn die voor de knopen?

06.03.2020 - 17:34

DROPS Design answered:

Dag Natasja,

Ja, die zijn inderdaad voor de knopen!

10.03.2020 - 19:44

country flag Lone wrote:

Hej ved bestilling af garn har jeg fået oplyst at jeg skal strikke med 2 tråde af Drops Brushed Alpaca Silk. Det ser ikke ud til at trøjen på billedet er strikket med dette gran. Hvis ikke hvilken type garn er den ene tråd erstattet med eller hvilket gran vil I anbefale 🤗 vil gerne have en blød trøje. De bedste hilsner Lone

04.12.2019 - 19:45

DROPS Design answered:

Hej igen, Jo denne model er strikket i 2 tråde DROPS Brushed Alpaca Silk :)

05.12.2019 - 08:22

country flag Lone wrote:

Hey kan opskriften strikkes på rundpinde nummer 7? Bedste julehilsen Lone

04.12.2019 - 16:57

DROPS Design answered:

Hej Lone, ja hvis du strikker så løst at du får en strikkefasthed på 11 masker i bredden og 15 pinde i højden på 10x10 cm :) Strikkefastheden er vigtig for at få den størrelse du ser i måleskitsen nederst i opskriften.

05.12.2019 - 08:21

country flag Marjan Adema wrote:

Ik wil een "harige" zachte trui van PureMe nabreien. Ik vind de kleuren van brushes Alpaca silk erg mooi. Alleen lijkt het garen op de bol erg harig maar als ik de gebreide truien van deze wol zie is het niet het harige effect wat ik zou willen zien. Is er een garen wat Ha Roger Is? Tweede vraag: moet je brushed alpaca silk met 2 draden breien? Gr. Marjan Adema

12.11.2019 - 13:06

DROPS Design answered:

Dag Marjan,

Brushed Alpaca Silk is daar inderdaad heel geschikt voor. In het patroon waarbij je je vraag geplaatst hebt is dit garen gecombineerd met een ander garen, vandaar dat het niet zo harig lijkt. Brushed Alpaca Silk kun je gewoon met 1 draad breien, je hebt dan een stekenverhouding van ongeveer 17 steken x 24 naalden. Als je een heel grof en dik breisel wilt, kun je met 2 draden breien.

15.11.2019 - 12:34