DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Inner Circle Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-22
DROPS Design: Mynstur me-150
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 07, ljós brúnn
100-100-150-150-150-150 g litur 15, ljós grágrænn

Eða notið:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 g litur 54, beige
100-150-150-150-150-200 g litur 69, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: fyrir stykkið með sléttprjóni.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið með sléttprjóni.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Karisma 21, 16
B) DROPS Merino Extra Fine 5, 13
C) DROPS Karisma 56, 11
D) DROPS Merino Extra Fine 6, 7

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR (á við um marglitt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

UPPHÆKKUN:
Setjið einn merkiþráð í miðju á stykki (= miðja að aftan) þannig: S: Í 62 lykkju, M: eftir 65 lykkjur, L: eftir 72 lykkjur, XL: í 76 lykkju, XXL: eftir 79 lykkjur, XXXL: eftir 83 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 12-12-13-14-14-15 lykkjur framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-26-28-28-30 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-39-42-42-45 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-52-56-56-60 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-65-70-70-75 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 72-72-7884-84-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kanturinn er prjónaður slétt).

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 6,3.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju saman og lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan.
Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 6. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru efir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt þannig að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6 næstu hnappagötum með ca 7½ -8-8-8-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-128-132-136-140-144 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum ljós grágrænn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í litinn ljós brúnn. Prjónið nú stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 7 lykkjur á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3 cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan!
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-21-21-21-21-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 102-107-111-115-119-123 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21-23-33-36-39-42 lykkjur jafnt yfir = 123-130-144-151-158-165 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Til að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 16-17-19-20-21-22 mynstureiningar með 7 lykkjum), A.2 (= 1 lykkja), endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar allt A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 299-317-353-371-389-407 lykkjur í umferð.
Stykkið á nú að mælast 23-24-24-24-24-24 cm frá uppfitjunarkanti.
Stærð S er nú lokið – haldið áfram með næsta kafla að neðan.
Í stærð M, L, XL, XXL og XXXL er prjónað þannig:
Stærð M, L og XL:
Prjónið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan með ljós brúnn þar til stykkið mælist 25-27-28 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24-24 cm er aukið út um 13-5-19 lykkjur jafnt yfir = 330-358-390 lykkjur. Haldið síðan áfram með næsta kafla að neðan.
Stærð XXL og XXXL:
Prjónið áfram með sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan með ljós brúnn þar til stykkið mælist 30-32 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24 cm er aukið út um 11-14 lykkjur jafnt yfir og þegar stykkið mælist 27-29 cm er aukið út um 10-13 lykkjur jafnt yfir = 410-434 lykkjur. Haldið síðan áfram með næsta kafla.

ALLAR STÆRÐIR:
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 47-51-55-61-65-70 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 85-92-100-112-120-130 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-51-55-61-65-70 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 195-210-230-254-274-298 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 51-55-60-66-71-77 lykkjur inn frá hvorri hlið = 93-100-110-122-132-144 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið sléttprjón með ljós brúnn og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist upp við ermar er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð (ca öðrum hverjum cm) alls 10 sinnum í hvorri hlið = 235-250-270-294-314-338 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 24-24-24-25-25-25 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 57-62-66-74-78-82 lykkjur jafnt yfir = 292-312-336-368-392-420 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4/sokkaprjóna og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist við ermar er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca 8.-6.-5.-4.-4.-4. hverri umferð alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-36-35-34-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 54-60-64-68-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-40-39-38-37-35 cm frá þar sem stykkið skiptist við ermar og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.09.2018
Leiðrétting: ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni...
Yfirfarið á vefsvæði: 31.10.2018
Leiðrétting: UPPHÆKKUN hefur verið endurrituð þannig að hún er nú miðjustillt frá miðju að aftan.

Mynstur

symbols = ljós brúnn
symbols = ljós grágrænn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Marja De Haan wrote:

Kan dit vest ook rond gebreid worden? Hoe kan ik dat het beste doen? Brei meestal van beneden naar boven, dus dit zou de eerste keer top down worden. Hoop op een antwoord. Dank je wel alvast.

16.01.2019 - 18:21

DROPS Design answered:

Dag Marja,

Dit vest wordt inderdaad in de rondte gebreid op de rondbreinaald van boven naar beneden. Omdat het een vest is met een sluiting midden voor brei je heen en weer op de rondbreinaald. Rechte naalden zijn niet geschikt voor dit patroon, omdat je anders in de knel komt met de steken op het moment dat de mouwen en het lijf van elkaar gescheiden worden.

17.01.2019 - 09:47

country flag Karin wrote:

Kanske har jag orangutangarmar, men 37 cm ärm räckte mig bara till just under armbågen. 56 cm var mer lagom.

17.10.2018 - 21:45

country flag Ulla Schymanski wrote:

Muss der Markierungsfaden für die Erhöhung genau in der Mitter gesetzt werden? Wenn ja, stimmt die Angabe der Maschenzahl nicht mit der Anleitung überein. Z.B. Größe S nach der 51. Masche, das Strickteil hat nach der Halsblende 123 Maschen.

16.10.2018 - 20:17

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schymanski, danke für den Hinweis, unser Designteam wird das noch mal schauen. Danke im voraus für Ihren Geduld.

17.10.2018 - 07:59

country flag Lone Lyk-Jensen wrote:

Angående Inner circle jacket: hvorfor skal man i halskanten strikke 1 retpind og tage 21 masker ind for dernæst at strikke en retpind og tage 33 masker ud? Der skal vel i al fald være en vrangpind imellem. Kan man ikke blot tage 12 masker ud for at ramme de 144 masker, jeg skal have før mønsteret

17.09.2018 - 18:47

DROPS Design answered:

Hej Lone, ja det stemmer, det giver en pæn overgang mellem halskant og bærestykke. God fornøjelse!

20.09.2018 - 09:52

Mary wrote:

There is some error in the pattern,,, in the elevation i think that at last it must finish with a knit row to be correct and two sides be the same,,,, and the elevation must be done before increasing some stitches in the neck as you have mentioned size of stitches before increasing, but in the pattern it is written that elevation can be done after increasing in the neck. Please check and if it is true, correct it. Thank you

16.09.2018 - 07:42

country flag Karin wrote:

Ang ökning på fram- och bakstycke - Om jag ska öka en maska fyra maskor innan markören och sedan sticka fyra maskor är jag ju framme vid markören. Men i er beskrivning står det ”markören sitter mitt emellan dessa fyra maskorna”. Är det en miss eller missförstår jag?

09.09.2018 - 22:10

DROPS Design answered:

Hei Karin. Det har du helt rett i! Du skal strikke til det gjenstår 2 masker før merketråden. Dette har nå blitt rettet, takk for beskjed og god fornøyelse.

11.09.2018 - 08:27

country flag Siwan Bowen wrote:

I have only just started the Cardigan. When I make the button hole after knitting 3cm rib. Do I continue to knit 2 purl 2? Or is the whole row a knit?

30.08.2018 - 23:53

DROPS Design answered:

Dear Siwan, th first buttonhole at the necklin should be placed about 1½-2 cm fron the cast on edge. Since the pattern says you need to knit the ribbing for 3 cm-s, if you make the buttonholes where the pattern says, you will have to continue to knit with the rib pattern for a 1½-1 cm. Happy Knitting!

31.08.2018 - 03:13

country flag Sini Marie Næs wrote:

Hvorfor skal en først felle, for så å øke etter første knapphull? Mvh Sini Marie

23.08.2018 - 22:14

DROPS Design answered:

Hei Sini Marie, Du feller og øker etter første knapphull for å få en bedre passform i nakken. God fornøyelse!

24.08.2018 - 08:37