DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7326.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nordic Romance

Prjónað sjal úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, mosaikmynstri og öldumynstri.

DROPS 195-5
DROPS Design: Mynstur no-014
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Mál:
Hæð mælt meðfram miðju lykkju: ca 64 cm.
Lengd mælt meðfram kanti efst: ca 190 cm.

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 05, grár
150 g litur 01, natur
50 g litur 03, perlugrár
50 g litur 06, dökk grár
50 g litur 18, gulur

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni og mosaik mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7326.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING Í EININGU MEÐ EINUM LIT OG GARÐAPRJÓNI:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 hver röð í mynsturteikningu jafngildir 1 umferð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 261 lykkjur), mínus miðju lykkju (= 1 lykkja) og deilið með fjölda lykkja með 2 = 130 lykkjur hvoru megin við miðju lykkju. Deilið síðan 130 lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera á undan/á eftir miðju lykkju (t.d. 3) = 43,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 43. hverja lykkju á undan miðju lykkju. Aukið alveg eins út á eftir miðju lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn JAFNFRAMT því sem fellt er af. Sláið 1 sinni uppá prjóninn yfir alla uppslætti frá fyrri umferð með uppslætti, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Passið uppá að herða ekki á þræðinum þegar fellt er af.
Ef kanturinn er enn stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

MOSAIKMYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.3 til A.11 og lesið útskýringu um aðferð að neðan.
Hver röð í þessari mynsturteikningu jafngildir 2 umferðum. Þ.e.a.s. frá réttu er prjónað eftir mynsturteikningu frá hægri til vinstri með útaukningum eins og útskýrt er í mynsturteikningu og frá röngu er prjónuð sama umferð frá vinstri til hægri, en án útaukninga (þ.e.a.s. einungis er aukið út frá réttu).

Í öllum umferðum frá réttu er þráðurinn aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er steypt af prjóni.
Í öllum umferðum frá röngu er þráðurinn framan við stykkið (þ.e.a.s. að þér og ennþá frá röngu á stykki) þegar lykkju er steypt af prjóni.
Passið uppá að þræðirnir verði ekki stífir á bakhlið á stykki!

Til að fá betri yfirsýn yfir mynstur er hægt að setja prjónamerki á milli hverra mynstureininga með A.4B/A.5B.

A.3, A.6 og A.9 = byrjunar lykkja og loka lykkja. Þessi lykkja er prjónuð í þeim lit sem mynsturtákn sýnir, JAFNFRAMT sýnir mynsturtákn hvernig prjóna á mynsturröðina í A.X, A.Y og A.Z.
A.X, A.Y og A.Z er kaflinn sem sýnir raðirnar sem mosaikmynstrið er prjónað.
Aðrar raðir í A.4/A.5, A.7/A.8 og A.10/A.11, þ.e.a.s. alveg einlitu raðirnar eru prjónaðar með 2 umferðum í garðaprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að steypa af nokkrum lykkjum (miðjulykkja er alltaf prjónuð í sléttprjóni).

KAFLI A.X:
Í hverri mynsturröð sem er með rúðu með litlum svörtum ferningi í A.3 (þ.e.a.s. litur A), eiga allar lykkjur með lit A í A.4 og A.5 að prjónast slétt og allar lykkjur með lit B er steypt af prjóni.
Í mynsturröð sem er með rúðu með tómri stjörnu í A.3 (litur B), eiga allar lykkjur með lit B í A.4 og A.5 að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A er steypt af prjóni.

KAFLI A.Y:
Í hverri mynsturröð sem er með rúðu með litlum svörtum ferningi í hægri kanti í A.6 (þ.e.a.s. litur C), eiga allar lykkjur með lit C í A.7 og A.8 að prjónast slétt og allar lykkjur með lit D er steypt af prjóni.
Í mynsturröð sem er með rúðu með litlu lóðréttu striki í A.6 (litur D), eiga allar lykkjur með lit D í A.7 og A.8 að prjónast slétt og allar lykkjur með lit C er steypt af prjóni.

KAFLI A.Z:
Í þessari mynsturröð sem byrjar með rúðu með skásettu striki í A.9 (þ.e.a.s. litur E), eiga allar lykkjur með lit E í A.10 og A.11 að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A er steypt af prjóni.

ÖLDUMYNSTUR:
Sjá mynsturteikning A.12 og A.13. Hver röð jafngildir 1 umferð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur og prjónað er ofan frá og niður.
Alltaf er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju og 2 lykkjur í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu eins og útskýrt er í uppskrift (= 6 lykkjur fleiri í hverri útauknings umferð og einungis er aukið út frá réttu).
Í byrjun á sjali er prjónað með einum lit í einingu í garðaprjóni. Síðan er prjónað mosaikmynstur. Að lokum er prjónaður kantur með öldumynstri.
Mikilvægt er að fylgja mynsturteikningu vandlega.
Sjálft mosaikmynstrið er einnig prjónað í garðaprjóni, en mynstrið er ekki prjónað með venjulegum garðaprjóns lykkjum. Mynstrið kemur fram með því að steypa lykkjum af prjóni. Lesið útskýringu með MOSAIKMYNSTUR áður en byrjað er að prjóna. Athugið vel að í hverri röð í mynsturteikningu í mosaikmynstri (A.3 til A.11) jafngildir 2 umferðum í garðaprjóni. Þegar það á við um aðrar mynstureiningar (A.1, A.2, A.12 og A.13) jafngildir hver röð í mynsturteikningu 1 umferð.

SJAL:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum grár. Fyrstu 2 umferðirnar eru prjónaðar þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 9 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan A.1 og A.2 þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðjulykkja – þessi lykkja er prjónuð í sléttprjóni til loka, óháð hvernig aðrar lykkjur eru prjónaðar), prjónið A.2 yfir síðustu 4 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram að prjóna og auka út eins og útskýrt er í A.1 og A.2 þar til prjónaðar hafa verið alls 86 umferðir í garðaprjóni á eftir uppfitjunarkanti = 261 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir garðaprjón til viðbótar með grár með útaukningu í hvorri hlið og í miðju eins og áður, að auki er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. aukið út um 3 lykkjur á undan miðju ykkju og 3 lykkjur á eftir miðjulykkju – sjá ÚTAUKNING. Nú hafa verið prjónaðar alls 88 umferðir í garðaprjóni, það eru 273 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19 cm frá miðju og út – mælt í prjónstefnu.
Prjónið síðan MOSAIKMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð svona frá réttu: Prjónið A.3 (= 1 lykkja), prjónið A.4A yfir 2 lykkjur, prjónið A.4B yfir næstu 132 lykkjur (= 33 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.4C yfir 1 lykkju, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðjulykkja – þessi lykkja er prjónuð með grunnlit í mynsturrönd), prjónið A.5A yfir 1 lykkju, prjónið A.5B yfir næstu 132 lykkjur (= 33 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.5C yfir 2 lykkjur og endið með A.3 (= 1 lykkja).
Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir að 1 röð í hverju og einu af þessum mynsturteikningum jafngildir 2 umferðum í garðaprjóni. Passið uppá að þræðir á bakhlið á stykki verði ekki stífir.
Þegar A.3, A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 363 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig. Prjónið A.6 (= 1 lykkja), prjónið A.7A yfir 2 lykkjur, prjónið A.7B yfir næstu 174 lykkjur (= 29 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.7C yfir 4 lykkjur, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðjulykkja – þessi lykkja er prjónuð með grunnlit í mynsturrönd), prjónið A.8A yfir 4 lykkjur, prjónið A.8B yfir næstu 174 lykkjur (= 29 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.8C yfir 2 lykkjur og endið með A.6 (= 1 lykkja). Þegar A.6, A.7 og A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 465 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.9 (= 1 lykkja), prjónið A.10A yfir 2 lykkjur, prjónið A.10B yfir næstu 228 lykkjur (= 114 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.10C yfir 1 lykkju, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðjulykkja – þessi lykkja er prjónuð með grunnlit í mynsturröð), prjónið A.11A yfir 1 lykkju, prjónið A.11B yfir næstu 228 lykkjur (= 114 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.11C yfir 2 lykkjur og endið með A.9 (= 1 lykkja). Þegar A.9, A.10 og A.11 hefur verið prjóna til loka á hæðina eru 519 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með litnum perlugrár og prjónið 2 sléttar umferðir þar sem aukið er út um 16 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð, þ.e.a.s. útaukningar í hlið og í miðju halda áfram eins og áður, að auki er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir á undan miðjulykkju og 8 lykkjur jafnt yfir eftir miðjulykkju = 541 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir í litinn natur og prjónið ÖLDUMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.12A yfir 4 lykkjur, prjónið A.12B yfir næstu 260 lykkjur (= 20 mynstureiningar með 13 lykkjum), prjónið A.12C yfir 6 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), prjónið A.13A yfir 6 lykkjur, prjónið A.12B yfir næstu 260 lykkjur (= 20 mynstureiningar með 13 lykkjum) og endið með A.13C yfir 4 síðustu lykkjur. Þegar öldumynstur hefur verið prjónað til loka eru 773 lykkjur í umferð.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með útaukningum í hliðum og hvoru megin við miðjulykkju eins og áður = 785 lykkjur í umferð. Sjá AFFELLING og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá og festið enda.

FORMUN:
Bleytið stykkið og leggið varlega út í rétt form. Látið það þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eftir mynsturteikningu og seinni uppslátturinn er látinn falla niður
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða brugðið eftir mynsturteikningu (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beit áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = litur A - dökk grár
symbols = litur B - gulur
symbols = litur C - natur
symbols = litur D - grár
symbols = litur E - perlugrár
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (59)

country flag Kirsten Jørgensen wrote:

Skal bølgemønstret strikkes ret på retsiden og vrang på vrangsiden.

08.03.2024 - 16:36

DROPS Design answered:

Hej Kirsten, ja det stemmer, men hver 6.pind strikkes ret fra vrangen :)

13.03.2024 - 15:21

country flag Eva Malmberg Beckman wrote:

Kan ni vara snälla och översätta ert svar till svenska på Pia Holmens fråga. Jag har kört fast på samma ställe och förstår inte vad ni svarar henne. Ledsen men jag brukar kunna få till sticktermer från såväl norska som danska. Jag måste bara skapa den här sjalen den är bedårande vacker

28.01.2023 - 23:17

DROPS Design answered:

Hej Eva. Du stickar A.1 över de första 4 maskorna, 1 maska slätstickning (=mittmaska) och A.2 över de 4 sista maskorna. En rund vit cirkel betyder "mellan 2 maskor görs det 2 omslag om stickan, på nästa varv stickas det första omslaget rätt eller avigt som diagrammet visar och det sista omslaget släpps ned" och en svart cirkel betyder "mellan 2 maskor görs 1 omslag om stickan, på nästa varv stickas omslaget vridet rätt eller vridet avig som diagrammet visar (det ska inte bli hål)". Det är symbolförklaring nr 3 och 4 över diagrammen. Mvh DROPS Design

31.01.2023 - 07:55

country flag Pia Holmen wrote:

Jeg strikker nordic romance sjal,- men jeg forstår simpelthen ikke diagrammet. Det går galt allerede i A1 og A2 Jeg har 9 masker og de 4 skal strikkes i diagram A1,- men hvilke masker skal strikkes ? Er 3. maske rund hvid cirkel med sort streg igennem,- hvad er det ? Står ikke i diagramforklaringen. Meget forvirrende opskrift ! og hvor mange masker skal jeg have efter 1. pind i diagrammet ?

19.05.2022 - 19:35

DROPS Design answered:

Hej Pia, Du strikker A.1 over de første 4 masker og A.2 over de sidste 4 masker. A.1 og A.2 består kun af retstrik hvor du tager ud i hver side, en ring på stregen er 2 omslag, hvor det ene strikke og det andet slippes af pinden på næste pind. Den sorte ring på stregen betyder 1 omslag, som strikkes drejet på næste pind. Alle symboler finder du i symbolforklaringen over diagrammerne :)

20.05.2022 - 09:00

country flag Eva wrote:

Tror dette er det mest "rotete" mønsteret jeg har vært borte i. Veldig forvirrende. Men har begynt å strikke sånn cirka og etter eget hode. Men litt skuffende. 😖

13.06.2021 - 20:05

country flag Ingvild wrote:

Jeg leser at sjalet skal strikkes ovenfra og ned. Jeg forstår ikke at det da skal legges opp 5 masker?????

29.05.2021 - 11:22

DROPS Design answered:

Hei Ingvild. Jo, det startes med 5 masker. På 1. pinne økes det med 4 masker = 9 masker, sammen maskeantallet du starter med når du begynner på diagram A.1 og A.2. Når du strikker A.1 og A.2 økes det masker på hver pinne fra retten og når du har strikket totalt 43 riller etter oppleggskanten skal du har 261 masker på pinnen. mvh DROPS design

31.05.2021 - 09:40

country flag Emmanuelle wrote:

Bonjour, j'ai également fait deux fois ce modèle un pour ma mère et en pour moi avec des couleurs différentes. Vos explications sont parfaites, vos vidéos sont parfois aussi très utiles. Merci beaucoup...

17.04.2021 - 09:48

country flag Christiane Fouere wrote:

J'ai fait 2 exemplaires de ce châle magnifique et en suis très fière. Je suis une fan de drops design. Que de beaux modèles vous nois proposez....

20.03.2021 - 21:06

country flag May-Britt wrote:

Kan jeg få en korrekt beskrivelse av mosaikk mønster i A3. Det er umulig å løfte av 3 mørkegrå masker når det kun er en mørkegrå maske i utgangspunktet. Jeg strikker nå sjalet for 2. gang, og har forsøkt flere løsninger (ingen av de stemmer med oppskriften), men her må oppskriften være feil. Og ja, jeg har sjekket hvordan mosaikk mønster skal strikkes. Når jeg studerer bildet ser det ut til at dere har strikket mønstret i vanlig !

23.02.2021 - 01:43

country flag Heidi Forberg wrote:

Nordic romanse. Linje 7 ...der skal man ta 3 grå løs av, men er jo bare en grå ( grå = svart firkant)der....vet at mønster linjene hvisker 2 omg... har sett video med mosaikk strikk....men skjønner likevel ikke Er det en feil der?

28.12.2020 - 21:02

DROPS Design answered:

Hei Heidi. Vi skal hjelpe deg så kan vi kan, men i hvilket diagram i 7. rad (linje) tenker du på? mvh DROPS design

13.01.2021 - 11:48

country flag Gro Hustad wrote:

Hei. Strikker nordic romance sjal. Er det slik at rettomgangene i mønster A. 13A skal starte m. 2 kast, og ikke en rett, dobbeltkast, en rett, enkeltkast som tidligere omg og slutten av omg.?

01.12.2020 - 21:54

DROPS Design answered:

Hei Gro. A.13a strikkes nesten i midten av oppskriften og starter med et dobbeltkast. Slik er forklaringen til ikonet (stående oval sirkel): Mellom 2 masker lages det 2 kast om pinnen, på neste pinne strikkes det første kastet rett eller vrang slik diagrammet viser og det siste kastet slippes ned. mvh DROPS design

09.12.2020 - 13:07