DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Regn

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Sky. Stykkið er prjónað í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-20
DROPS Design: Mynstur sk-003
Garnflokkur B + B eða D
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL – XXL - XXXL
ATH: Mál á teikningu getur litið út fyrir að vera lítið (á við um fram- og bakstykki), en vegna mynsturs þá verður stykkið teygjanlegt. Prjónaðu því stærðina sem þú myndir prjóna vanalega.

Efni.
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-250-300-300 g litur 03, ljós beige
200-250-250-250-300-300 g litur 04, grár

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stykkið.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 32 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 16. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 15. og 16. hverja lykkju saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 160-176-192-208-224-240 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í litnum ljós beige og 1 þræði í litnum grár (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón þannig: 2 lykkjur brugðið, * 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm prjónið einungis yfir fyrstu 80-88-96-104-112-120 lykkjurnar í umferð, síðustu 80-88-96-104-112-120 lykkjurnar eru settar á þráð.

FRAMSTYKKI:
= 80-88-96-104-112-120 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður til loka. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm prjónið stuttar umferðir þannig: * Prjónið yfir fyrstu 26-26-30-34-38-42 lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið til baka, snúið, prjónið yfir fyrstu 22-22-26-30-34-38 lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið til baka, prjónið 1 umferð yfir allar 80-88-96-104-112-120 lykkjur *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm.

BAKSTYKKI:
Setjið 80-88-96-104-112-120 lykkjur af þræði á hringprjón 6 og prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Fitjið upp 32-32-32-32-40-40 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði í litnum ljós beige og 1 þræði í litnum grár (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkar um 2-2-0-0-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 30-30-32-32-36-36 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7-6-8-7-7-7 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-3-3-3-2½ cm millibili alls 9-10-11-12-11-13 sinnum = 48-50-54-56-58-62 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 45-44-42-42-39-38 cm (styttra mál í stærstu stærðum vegna breiðari axla) – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, skiljið eftir ca 19-20-21-22-23-24 cm fyrir hálsmáli. Saumið ermar í.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Nuria March wrote:

En la explicacion de como hacercel jersey dicen: DELANTERO:\r\n= 80-88-96-104-112-120 puntos. Continuar con el elástico como antes hasta la largura final. Cuando la labor mida 50-52-54-56-58-60 cm trabajar filas cortas como sigue: *Trabajar los primeros 26-26-30-34-38-42 puntos, girar, estirar el hilo y trabajar de vuelta. \r\n\r\nDesconozco que significa \"estirar el hilo\"\r\n¿Podrian explicarme en que consiste?\r\nGracias

09.02.2019 - 12:58

DROPS Design answered:

Hola Nuria. Aquí tienes un video tutorial de cómo trabajar las filas cortas. Estirar o apretar el hilo, este término lo usamos para tener el hilo más tenso ( para evitar que se formen agujeros en medio de la labor).

11.02.2019 - 19:56

country flag Annegret wrote:

Ich möchte dieses-oder ein vergleichbares Modell- gern mit einem Faden Drops Sky stricken und freue mich über einen Tipp

20.01.2019 - 13:45

DROPS Design answered:

Liebe Annegret, dieses Modell wird nur mit 2 Fäden Sky gestrickt, dh nicht nur 1 Faden. Am besten blättern Sie in unseren Anleitungen für Pullover Garngruppe B um die richtige Maschenprobe zu haben wenn Sie nicht mit 2 Fäden stricken möchten. Viel Spaß beim stricken!

21.01.2019 - 11:08

country flag Sue wrote:

Ich habe sehr lange Arme und benötige 5 cm mehr Armlänge. Wo füge ich diese am besten ein?

27.12.2018 - 09:26

DROPS Design answered:

Liebe Sue, vielleicht können Sie die Zunahmen etwas später anfangen? oder dann diese 5 cm regelmäßig zwischen die Zunahmen verteilen? Viel Spaß beim stricken!

02.01.2019 - 12:18

country flag Patricia Olivia Fuchs wrote:

Bei Größe S werden 160 Maschen angeschlagen. Das ergibt bei mir mit Maschenprobe 14 in der Breite aber 57 cm für vorne und hinten, nicht 50. Bitte um Erklärung, danke.

21.12.2018 - 16:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fuchs, die Maschenprobe wird glatt rechts gestrickt = 14 M x 16 R glatt rechts = 10 x 10 cm. Wenn diese Maschenprobe stimmt, dann sollten Sie die richtigen Massen in der jeweiligen Grösse bekommen, auch wenn Sie dann Bündchen/Rippenmuster stricken. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2019 - 08:29

country flag Maillard wrote:

Bonsoir ,j.aimerai savoir si je peux tricoter ce modèle avec la laine Brushed alpaca silk et avec combien de pelotes et qu.elle n d.aiguille merci d.avance

20.11.2018 - 23:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Maillard, ce pull se tricote avec 2 fils DROPS Sky qui appartient au groupe B, DROPS Brushed Alpaca Silk appartient au groupe C et n'apparaît pas comme une alternative. Vous trouverez ici quelques informations sur les alternatives - n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone -pour une assistance personnalisée. Bon tricot!

21.11.2018 - 08:34

country flag Mary wrote:

Hallo, Kann ich denn statt im Rippenmuster auch in einem anderen Muster Stricken? Wenn ja, welche Alternativen würden Sie vorschlagen? Vielen Dank!

15.11.2018 - 21:27

DROPS Design answered:

Liebe Mary, dieses Modell wird im Rippenmuster gestrickt und geschrieben, dh alle Angaben sind so kalkuliert, am besten genauso stricken, wie in der Anleitung beschrieben ist. Viel Spaß beim stricken!

16.11.2018 - 09:35

country flag Dorthe Hald-sørensen wrote:

Hvornår kan man købe andre farver i dette garn

18.10.2018 - 14:28

DROPS Design answered:

Hej Dorthe, til at begynde med kan du købe det i disse 14 flotte farver. Vi har ikke besluttet om flere farver endnu. Men gå gerne ind på farvekortet og skriv en kommentar om hvilken farve du ville ønske dig :)

23.10.2018 - 16:19

country flag Mc wrote:

Bonjour, J'aimerais réaliser ce modèle en "LIMA", cependant quand je calcule mon mètrage de fil, je trouve des quantités astronomiques. Dans les explications que vous donnez il faut 10 pelotes, soit 1900 mètres, il me faudrait donc en "lima" 19 pelotes, pour une taille L ? Merci

28.07.2018 - 11:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mc, la quantité sera automatiquement différente si vous utilisez Lima, car Sky fait environ 190 m pour 50 g alors que Lima fait 100 m environ pour 50 g. Rappelez-vous que des fils de composition différentes donneront des résultats différents, vous trouverez ici plus d'infos sur les alternatives. Bon tricot!

31.07.2018 - 08:54

country flag Sara M wrote:

I cannot wear real wool and would like an alternative to knit this in that doesn’t contain wool. Do you have any suggested alternatives? I tried the yarn converter and it didn’t offer any suggestions. Thank you

26.07.2018 - 02:20

DROPS Design answered:

Dear Sara M, you can use any other yarn group B - remember that different yarns with different textures will give different result - read more about alternatives here. Happy knitting!

26.07.2018 - 10:08

country flag Glorija wrote:

Prosty i piękny

20.06.2018 - 12:36