DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Clover

Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með öldumynstri og perluprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-4
DROPS Design: Mynstur ai-165
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-500-550-650 litur 12, mosagrænn

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stykkið/sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3.
Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum jafnt óðum eru prjónaðar í þessu dæmi ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í perluprjóni á ermum og sléttprjóni á framstykki/bakstykki.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman = 1 lykkja (færið prjónamerkið til á undan þessari lykkju).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 50-50-52-56-58-60 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-4-6-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 56-56-60-60-64-60 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða fara beint áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 6-6-6-7-7-7 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-12-14-14-14 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-18-21-21-21 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-28-28-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-30-35-35-35 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-36-42-42-42 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið slétt að miðju að aftan. Snúið, herðið á þræði og prjónið síðan 10 lykkjur brugðið fram hjá merkiþræði, snúið. Byrjið næstu umferð (þ.e.a.s. í berustykki) hér:

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptingu á milli ermi og bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 9-9-11-11-13-11 nýjar lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-11-11-13-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi).
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki, í skiptingunni á milli ermi og bakstykkis. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 17 lykkjur framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt.
Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-20-22 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem var útskýrð að ofan). ATH: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 (= 21 lykkjur) yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 180-196-208-216-228-240 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, án útaukninga, þar til stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki.
Næsta umferð er prjónuð í mynstri og sléttprjóni eins og áður, þannig:
Prjónið 50-54-57-60-63-68 lykkjur í sléttprjóni (= á bakstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram í sléttprjóni og mynstri eins og áður yfir næstu 55-59-63-67-71-77 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 1-1-2-3-4-5 lykkjur í sléttprjóni (= á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 114-122-130-142-154-170 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum og látið prjónamerkin fylgja áfram í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri A.2. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-26-26 cm frá þar sem stykkið skiptist upp (ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 130-140-148-162-176-194 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón nr 8. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 37-41-43-43-45-45 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna nr 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 41-45-47-49-53-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið perluprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-3-2-2 cm millibili alls 7-8-9-9-11-11 sinnum = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 36-34-34-32-32-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykki). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 5 lykkjur jafnt yfir = 32-34-34-36-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm.
Ermin mælist ca 41-39-39-37-37-35 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón nr 8.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.04.2019
Leiðrétting: UPPHÆKKUN Í HNAKKA:..Snúið, herðið á bandi og prjónið 30-30-30-35-35-35 lykkjur slétt, snúið, herðið á bandi og prjónið 36-36-36-42-42-42 lykkjur brugðið, snúið, herðið á bandi og prjónið slétt að miðju að aftan. Snúið, herðið á bandi og prjónið síðan 10 lykkjur brugðnar fram hjá prjónamerki, snúið. Byrjið næstu umferð (þ.e.a.s. í berustykki) hér:

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið þeim til baka yfir á vinstri prjón, lyftið næst síðustu lykkjunni yfir ystu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkju, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið lyftar yfir (= 4 lykkjur færri), lyftið síðustu prjónuðu lykkjunni yfir á hægri prjón.
symbols = PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SNÚNAR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið næst síðustu lykkjunni sem var prjónuð yfir síðustu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkjuna, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið lyftar yfir (= 4 lykkjur færri).
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Clover

Tanja, Denmark

Eskimo clover

cathmax, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag MelvinTob wrote:

выигрывал онлайн казино

12.11.2023 - 06:10

country flag Agata wrote:

Dzień dobry, Dlaczego przy podwyższeniu dekoltu, jak obracam robotkę, i robię 10 oczek lewych ostatnich i zaczynam karczek to robi się dziurka ? Może trzeba przerobić wszystkie oczka w okrążeniu? I potem robić karczek. Nie mogę tego zapisu zrozumieć, ostatniego etapu podwyższania dekoltu, j początku karczka. pozdrawiam

06.10.2022 - 00:37

DROPS Design answered:

Witaj Agato, jak obracasz robótkę w środku rzędu (tak jak w przypadku podwyższenia dekoltu z tyłu) wykonujesz klasyczne rzędy skrócone. Nie przerabiaj pierwszego oczka po obróceniu robótki, tylko przełóż je na prawy drut i mocno zaciśnij nitkę, wtedy dziurka (uskok między 2 rzędami) będzie mniejsza i słabiej widoczna. Zobacz video TUTAJ. Pozdrawiamy!

06.10.2022 - 08:14

country flag Laura wrote:

I tried to follow your yarn sub instructions but I can’t do the maths! Would this need 9 or 17 balls of Andes for Med/Lge please? Neither answer seems right to me.

08.02.2022 - 19:02

DROPS Design answered:

Dear Laura, in size M, 450 g DROPS Air worked with 2 strands will give you 751 g DROPS Andes /100 g a ball = 7.5 = 8 balls Andes in M; and in L the 500 g Air will be 834 g Andes = 9 balls. - read more on the yarn converter here. Happy knitting!

09.02.2022 - 08:42

country flag Nancy Elliott wrote:

Children's Pattern 34-4 Clover I am having a difficult time following the pattern for the front of this sweater. I have tried everything I can think of and can not get it to fit the diagram. I can not find the video to see how to do it with the yarn over increases. the A1 row 1 is 2 purl k1 yo 1 k3 yo k5 yo 1 k3 yo 1 . Is there any where I can find the video on how to do it correctly? k1 purl 2 that is to 17 stitches without the increases

12.11.2021 - 09:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Elliott, in this pattern A.1 is worked over 17 sts as you described increasing in the knit sts so that there are a total of 21 sts (= P2, K17, P2) in A.1. Can this help?

12.11.2021 - 14:08

country flag Anne wrote:

J'ai déjà réalisé ce pull en taille enfant, avec un seul fil air. Comment le faire en taille adulte avec un seul fil également ? Merci par avance pour votre réponse.

20.10.2021 - 09:48

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, avec 1 seul fil Air votre tension sera différente, il vous faudra recalculer complètement ce modèle pour l'adapter à votre échantillon et aux mesures souhaitées; nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; vous pouvez vous inspirer d'un modèle existant avec l'échantillon que vous souhaitez - votre magasin pourra probablement vous aider, même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension, bon tricot!

20.10.2021 - 14:57

country flag David González Gude wrote:

Hola. En las vueltas cortas para la forma del cuello, en un lado llegan hasta el delantero, mientras en el otro solamente llegan al centro de la manga. He leído como los comentarios anteriores al respecto y creo que el diseñador no está dando respuestas adecuadas. Algo comprensible al ser gratuito el patrón. Alguna idea para que esas vueltas cortas queden equilibradas en ambos lados? Hay una vuelta más en un lado que en el otro.

18.02.2021 - 09:19

DROPS Design answered:

Hola David, las vueltas cortas son equilibradas en ambos lados. Trabajas cada vez 6 puntos mas y al final tienes 18 puntos de cado lado del centro de la espalda. Despues trabajar 10 puntos de revés y mover el mercador aqui. Buen trabajo!

19.02.2021 - 10:22

country flag Annika wrote:

Stickar storlek L. Har kommit till uppdelningen till ärmar och bak/framstycke, ser att antalet maskor i beskrivningen inte riktigt stämmer. 57 m till bakstycke, ärmar 43 m och framstycke 63 m blir 206 m totalt inte 208. Dessutom har man 45 mossstickade m till ärm (9+18+18) och endast 61 slätstickade m till framstycke (17+4+18+18+4 (raglanmaskorna)). Då har jag antagit att man inte vill använda några av de mossstickade m till framstycket eller har jag fel?

31.01.2020 - 13:45

DROPS Design answered:

Hej Du har även 2 maskor i slätstickning till bakstycket: "sticka de sista 1-1-2-3-4-5 maskorna i slätstickning (= på bakstycket)", då ska du få antalet maskor att stämma på varvet. Efter att oket är färdigstickat och du börjar på fram- & bakstycket så stickas en del av de tidigare ärmmaskorna som en del av fram & bakstycket, dvs i slätstickning. Lycka till!

05.02.2020 - 07:35

country flag Susanne Damgaard wrote:

Hej igen. Til andre der ønsker at strikke denne sweater, vil jeg gøre opmærksom på at der er en lille fejl i opskriften. Det drejer sig om afsnittet “Forhøjning bag i nakken”. På næstsidste linje i afsnittet står der ...”strik derefter 10 masker vrang forbi mærket, vend.” Det skal ikke være 10 m, men istedet 18 m for at man kan få forhøjningen i midten af nakken. Mvh Susanne Damgaard

12.01.2020 - 16:01

DROPS Design answered:

Hej Susanne, De sidste 10 masker strikkes fra midt bagpå, for at komme hen til overgangen mellem ærmet og bagstykket, så det stemmer med det som står i opskriften. God fornøjelse!

31.01.2020 - 10:51

country flag Lucia wrote:

Posso sapere come è il dietro del maglione? manca la foto grazie

14.11.2019 - 12:36

DROPS Design answered:

Buongiorno Lucia. Il dietro è lavorato a maglia rasata. Buon lavoro!

14.11.2019 - 14:52

country flag Lene Christensen wrote:

Har strikket mange år efter jeres fantastiske opskrifter. Tak for dem. Vil nu strikke 196-4. Den angivne strikkefasthed - er det på pind 7 eller 8 ?

14.11.2019 - 08:52

DROPS Design answered:

Hej Lene! Vi har brugt pinde 8 for at få strikkefastheden som står i opskriften. Men lav selv en strikkeprøve, det som er vigtigt er at du får 11 masker på 10 cm i bredden og 15 pinde på 10 cm i højden. Lykke til!

14.11.2019 - 13:23