DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Carnival

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og A-formi. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri og röndum.

DROPS 196-6
DROPS Design: Mynstur u-857
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð : : S - M - L - L/XL - XL/XXL - XXL/XXXL
Höfuðmál: ca 54/56 - 54/56 - 56/58 - 56/58 - 58/60 - 58/60 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 77, ljós eik
100-100-150-150-150-150 g litur 50, sægrænn
100-100-100-100-150-150 g litur 01, natur
100-100-100-100-100-100 g litur 11, appelsínugulur
100-100-100-100-100-100 g litur 47, skógargrænn
100-100-100-100-100-100 g litur 48, vínrauður
100-100-100-100-100-100 g litur 52, sinnepsgulur
50-100-100-100-100-100 g litur 30, ljós gallabuxnablár
50-50-50-50-50-100 g litur 33, millibleikur

PEYSA:
Stærð: S - M - L - L/XL - XL/XXL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200-250-250-300-300 g litur 77, ljós eik
100-100-100-100-150-150 g litur 50, sægrænn
100-100-100-100-100-150 g litur 01, natur
100-100-100-100-100-100 g litur 47, skógargrænn
50-100-100-100-100-100 g litur 48, vínrauður
50-50-100-100-100-100 g litur 11, appelsínugulur
50-50-100-100-100-100 g litur 30, ljós gallabuxnablár
50-50-50-50-50-100 g litur 52, sinnepsgulur
50-50-50-50-50-50 g litur 33, millibleikur

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 - 58/60 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-50 g litur 77, ljós eik
50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50 g litur 11, appelsínugulur
50-50-50 g litur 48, vínrauður
50-50-50 g litur 30, ljós gallabuxnablár
50-50-50 g litur 33, millibleikur
50-50-50 g litur 50, sægrænn
50-50-50 g litur 52, sinnepsgulur

PEYSA:

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni og mynsturprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið með sléttprjóni og mynstri.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrri stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÚFA:

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm fyrir stykkið með sléttprjóni og mynstri.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun aftan í peysu.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar.
Byrjið frá réttu með litnum ljós eik og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt frá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.5 og A.6.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.
Mikilvægt er að prjónfestan haldist einnig á hæðina, annars kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of þröngur!

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um efst á húfu):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 104-108-112-116-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum sægrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð í stroffi með litnum sægrænn er skipt yfir í litinn ljós eik. Haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-4-4-4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-28-28-28-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 128-134-140-144-152-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið 2 umferðir sléttprjón með litnum ljós eik. Prjónið síðan A.1 hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í A.1 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING.
Í umferð merktri með ör-1 er aukið út um 32-34-36-40-40-40 lykkjur jafnt yfir = 160-168-176-184-192-200 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-21-22-23-24-25 mynstureiningar með 8 lykkjum).
Í umferð merktri með ör-2 er aukið út um 32-36-40-44-48-52 lykkjur jafnt yfir = 192-204-216-228-240-252 lykkjur (nú er pláss fyrir 32-34-36-38-40-42 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Í umferð merktri með ör-3 er aukið út um 24-30-36-36-42-42 lykkjur jafnt yfir = 216-234-252-264-282-294 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-39-42-44-47-49 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Í umferð merktri með ör-4 er aukið út um 20-26-28-28-30-34 lykkjur jafnt yfir = 236-260-280-292-312-328 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-65-70-73-78-82 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Í umferð merktri með ör-5 er aukið út um 16-20-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 252-280-300-316-336-356 lykkjur (nú er pláss fyrir 63-70-75-79-84-89 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Í umferð merktri með ör-6 er aukið út um 16-16-16-20-24-28 lykkjur jafnt yfir = 268-296-316-336-360-384 lykkjur (nú er pláss fyrir 67-74-79-28-30-32 mynstureiningar með 4-4-4-12-12-12 lykkjum).
Þegar síðasta umferð í A.1 er eftir mælist stykkið ca 23-23-25-27-27-30 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Síðasta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 41-44-46-49-54-59 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 52-60-66-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 82-88-92-98-108-118 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 52-60-66-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-44-46-49-54-59 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Klippið frá.
Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 180-192-204-216-240-264 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í annarri hlið á stykki og byrjið umferð við prjónamerki. Fyrsta umferð er prjónuð þannig:
STÆRÐ XS/S - S/M - L/XL - XL/XXL: Prjónið A.2 hringinn (= 15-16-18-20 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3 hringinn (= 15-16-18-20 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með A.3 eins og útskýrt undir ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ M/L - XXL/XXXL: Prjónið A.3 hringinn (= 17-22 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með A.3 eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR!
ALLAR STÆRÐIR:
Haldið áfram með A.3 eins og útskýrt er að ofan, JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-7 er aukið út um 12-16-12-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 192-208-216-232-256-280 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-27-29-32-35 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð merktri með ör-8 er aukið út um 12-8-12-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 204-216-228-240-264-288 lykkjur (nú er pláss fyrir 34-36-38-40-44-48 mynstureiningar með 6 lykkjum). Í umferð merktri með ör-9 er aukið út um 12-0-12-0-0-0 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 216-216-240-240-264-288 lykkjur (nú er pláss fyrir 54-54-60-60-66-72 lykkjur með 4 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 hringinn í öllum stærðum (= 9-9-10-10-11-12 mynstureiningar með 24 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 59-59-61-63-63-66 cm frá öxl og niður (ca 33 cm frá skiptingu í öllum stærðum).

Endurtakið A.4 eins langt og það nær þar til stykkið mælist ca 33-35-35-37-36 cm frá skiptingu (styttra mál í stærstu stærðum vegna lengra berustykkis): ATH: Endið eftir eina heila rönd eða mynsturbekk – ef ekki er óskað eftir að hafa mynstur alveg niður að stroffi þá er hægt að prjóna sléttprjón með litnum ljós eik þar sem aukið er út um 56-56-60-60-64-72 lykkjur jafnt yfir = 272-272-300-300-328-360 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8 hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 52-60-66-70-72-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-68-76-80-84-88 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi, þ.e.a.s. setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 29-33-37-39-41-43 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= miðju lykkja). Nú eru 29-33-37-39-41-43 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Prjónamerkið undir ermi á að nota síðar þegar lykkjum er fækkað og prjónamerkið mitt uppi á ermi á nú að nota til að telja hvar mynstrið á að byrja.
LESIÐ ALLAN KAFLANN UM ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið síðustu umferð í A.1 þannig að A.1 endi á sama stað og á fram- og bakstykki.

MYNSTUR:
STÆRÐ S, M, L/XL and XL/XXL: Prjónið A.2 hringinn, en passið uppá að A.2 í L/XL og XL/XXL passi fallega yfir A.1 á berustykki (mynstrið kemur ekki til með að ganga upp í heila mynstureiningu mitt undir ermi).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3, en teljið út frá miðju hvar mynstrið á að byrja – miðjulykkja í A.3 á að passa við lykkju með prjónamerki í mitt ofan á ermi (í L/XL og XL/XXL verða 3 fyrstu umferðir í A.3 að stillast af þannig að að þær passi fallega yfir A.1/A.2). Haldið áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR!

STÆRÐ L and XXL/XXXL: Þegar síðasta umferð í A.1 hefur verið prjónUð til loka er prjónað A.3, en teljið út frá miðju hvar mynstrið á að byrja – miðjulykkja í A.3 á að passa við lykkju með prjónamerki í mitt ofan á ermi (í XXL/XXXL verur að stilla af 3 fyrstu umferðir í A.3 þannig að þær passi fallega yfir A.1/A.2). Haldið áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR!

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4, síðan er prjónað sléttprjón með litnum ljós eik.

ÚRTAKA:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 3-5-6-6-6-7 sinnum og síðan með 5-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 6-7-9-10-11-11 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Þegar ermin mælist ca 36-36-35-33-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) og prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós eik þar sem aukið er út um 10-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-42-41-39-39-37 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 108-108-116 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum sægrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð með stroffi er skipt yfir í litninn ljós eik. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 104-104-112 lykkjur.
Prjónið síðan A.5 hringinn (= 13-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.6 hringinn. A.6 er endurtekið til loka. Þegar stykkið mælist 21-22-23 cm setjið 8 lykkjur í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki er sett í byrjun á umferð. Næstu 7 prjónamerki eru sett með 13-13-14 lykkja millibili.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju af 8 prjónamerkjunum – lesið ÚRTAKA-2 = 8 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-2-4 sinnum = 40 lykkjur eftir í öllum stærðum. Prjónið 2 umferðir slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum stærðum = 10 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.
Húfan mælist ca 26-27-28 cm ofan frá og niður.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.05.2022
ERMI:..MYNSTUR: STÆRÐ S, M, L/XL and XL/XXL: Prjónið A.2 hringinn, en passið uppá að A.2 í L/XL og XL/XXL passi fallega yfir A.1 á berustykki (mynstrið kemur ekki til með að ganga upp í heila mynstureiningu mitt undir ermi).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3, en teljið út frá miðju hvar mynstrið á að byrja – miðjulykkja í A.3 á að passa við lykkju með prjónamerki í mitt ofan á ermi (í L/XL og XL/XXL verða 3 fyrstu umferðirnar í A.3 að stillast af þannig að að þær passi fallega yfir A.1/A.2). Haldið áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR!
STÆRÐ L and XXL/XXXL:

Mynstur

symbols = ljós eik
symbols = sinnepsgulur
symbols = appelsínugulur
symbols = sægrænn
symbols = natur
symbols = vínrauður
symbols = millibleikur
symbols = skógargrænn
symbols = ljós gallabuxnablár
symbols = útauknings umferð
symbols = miðjulykkja á ermi
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Carnival

@fruolsens_strikk, Norway

Winter Carnival

cbeeton, United Kingdom

Winter Carnival

Annette, Norway

Winter Carnival

Sabine, Germany

Winter Carnival

Ali, United Kingdom

Winter Carnival

Palo, United Kingdom

Winter Carnival

Lene Berge, Norway

Winter Carnival

Marina, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (127)

country flag Catharina Jumelet wrote:

Ik ben met de eerste mouw bezig, maar ik loop vast. Omdat er onder de mouw geminderd moet worden, is er een wisselend aantal steken op de naald, hetgeen niet overeen komt met de patroonherhalingen. Het patroon komt dus niet meer uit na een aantal minderingen. Hoe pak ik dat aan? En moet ik A3 in zijn geheel breien vanaf de midsteek, of alleen de eerste 3 naalden?

04.04.2024 - 09:35

DROPS Design answered:

Dag Catharina,

Het patroon past inderdaad niet meer onder de mouw door het minderen. Het gaat erom dat je ervoor zorgt dat het patroon op de bovenkant van de mouw zo goed mogelijk doorloopt. Onder de mouw sluit het patroon dus niet altijd goed aan. Je breit A.3 op de mouw zodat je hetzelfde patroon krijgt als op het lijf.

04.04.2024 - 20:16

country flag Catharina Jumelet wrote:

Ik ben met de eerste mouw bezig, maar ik loop vast. Omdat er onder de mouw geminderd moet worden, is er een wisselend aantal steken op de naald, hetgeen niet overeen komt met de patroonherhalingen. Het patroon komt dus niet meer uit na een aantal minderingen. Hoe pak ik dat aan?

04.04.2024 - 01:29

country flag Mona Lind wrote:

Hei. Finnes denne som kofte.

28.01.2024 - 10:00

DROPS Design answered:

Hei Mona, Dessverre har vi ikke akkurat dette mønster som kofte, men her er lenker til 2 kofter som ligner: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=11524&cid=1 https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=1495&cid=1 God fornøyelse!

29.01.2024 - 06:37

country flag Anne Karin Kvalvik wrote:

Hei! Hvilken pinnestørrelse gjelder den oppgitte strikkefastheten for? Hvorfor er denne ulik for genser og lue? På forhånd takk for svar.

24.01.2024 - 18:59

DROPS Design answered:

Hei Anne Karin, Strikkefasthet er målt med største pinner. Pinnestr er forskjellig for genseren og lua fordi det skal være tettere vev på lua (flere masker og omganger på 10 x 10 cm med mindre pinner). God fornøyelse!

25.01.2024 - 06:44

country flag Joanne wrote:

Bonjour. Je suis un peu confuse avec le tableau A1 et la taille L. Est-ce que je dois suivre le A1 de gauche (S-M-L) ou celui de droite (L-XL...). Merci Joanne

19.01.2024 - 01:02

DROPS Design answered:

Bonjour Joanne, tout dépend de la taille que vous avez choisi: si vous avez choisi la taille L (3ème taille), suivez le A.1 de gauche (S, M, L) mais si vous avez choisi la taille L/XL (4ème taille), choisissez le A.1 de droite (L/XL, XL/XXL). Bon tricot!

19.01.2024 - 09:34

country flag Manuela wrote:

Hallo, wie stellt man es am besten an, bei den Farbwechseln in der Runde (dort wo man immer nur eine Runde eine Farbe strickt), einen schönen Rundenübergang zu bekommen? Bei mir bilden sich da unschöne Löcher und bei lediglich1 Runde kann man ja auch nicht die Technik anwenden, bei der Folgerunde das rechte Maschenglied der unteren Maschen aufzunehmen und zusammenzustricken. Mir fällt irgendwie nichts dazu ein...

17.01.2024 - 13:29

country flag Bitta wrote:

Har upptäckt ett fel i winter carnival A1 efter

19.09.2023 - 15:42

country flag Gitte Agerlund wrote:

Jeg har problemer med at skelne symbolerne fra hinanden, har i den forbindelse nok lavet en fejl, måske flere. Skal lige tilføje at jeg har valgt andre farver. Symbolet i A3, over

02.07.2023 - 12:58

DROPS Design answered:

Hei Gitte. Kan ikke se et spørsmål i her. Men det er fort gjort å ikke se forskjellen på symbolene når det er så mange farger / symbol i et diagram, spesielt om man ser på en mobilskjerm. Et tips er å skrive diagrammene ut og forstørre dem og/eller fargelegge symbolene. mvh DROPS Design

03.07.2023 - 11:31

country flag Lone Larsen wrote:

Kunne man på ryg/forstykke ikke få et mål for længde, som er midt for istedet for skulder Hvor er skulderen på et rundt bærestykke?

22.04.2023 - 11:22

DROPS Design answered:

Hei Lone. Vi har dessverre ikke tilgang på denne modellen lengre, til å kunne måle bakstykket. Kun de målene du ser på målskissen, som er målt fra skulderen og ned. mvh DROPS Design

24.04.2023 - 14:07

country flag Anna Kjellberg Elfstrand wrote:

Hej! Jag saknar mönsterdiagram A4 till tröjan. Med vänlig hälsning, Anna

05.04.2023 - 15:56

DROPS Design answered:

Hej Anna, diagram A.4 ligger nederst til højre i opskriften, lige ovenfor måleskitsen :)

13.04.2023 - 12:30