DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Heart

Prjónuð peysa með norrænu mynstri úr DROPS Air eða DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-6
DROPS Design: Mynstur ne-285
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-700-750-800-900 g litur 8907, þoka
150-150-200-200-200-250 g litur 0612, millibrúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 0500, ljós grár

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 10, þoka
100-100-100-100-100-150 g litur 05, brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 18, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5
HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið/fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5
HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 73 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 6,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-76-80-84-84-92 á hringprjón 4,5 með litnum þoka.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm.
Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-16-20-20-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 84-92-100-104-92-100 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Prjónið A.1 hringinn (= 21-23-25-26-23-25 mynstureiningar með 4 lykkjum) – sjá MYNSTUR að ofan. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað upp að umferð merktri í þinni stærð, eru 252-276-300-312-322-350 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 26-28-29-31-33-35 cm mælt við miðju að framan frá uppfitjunarkanti. Prjónið e.t.v. áfram eftir A.1, en án útaukninga að réttu máli (á eftir síðustu umferð í A.1 er prjónað sléttprjón og í litnum þoka).
Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið yfir fyrstu 38-41-44-47-50-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 51-57-63-63-62-67 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-6-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 74-80-86-92-98-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 51-57-63-63-62-67 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-6-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 38-41-44-47-50-54 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-174-186-198-222-240 lykkjur. Prjónið þar til öll mynsturteikning A.1 er lokið á hæðina og síðan er prjónað sléttprjón með litnum þoka. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 34-34-38-38-46-48 lykkjur jafnt yfir = 196-208-224-236-268-288 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 51-57-63-63-62-67 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón/stuttan hringprjón 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 57-63-69-69-74-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið á umferð hér, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Ef það verður eftir umferð í A.1 í þinni stærð, prjónið áfram þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan með litnum þoka og sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 10-12-15-14-16-17 sinnum = 37-39-39-41-42-45 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 37-35-35-33-32-30 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-9-9-7-10-7 lykkjur jafnt yfir = 44-48-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Ermin mælist ca 40-38-38-36-35-33 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = þoka
symbols = ljós grár eða ljós grágrænn
symbols = millibrúnn eða brúnn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Malgorzata wrote:

Co oznaczaja te strzalki na schemacie

08.12.2023 - 00:14

DROPS Design answered:

Witaj Małgosiu, strzałki dotyczą tego fragmentu: KARCZEK: ... Gdy schemat A.1 zostanie przerobiony do właściwego okrążenia w danym rozmiarze, jest 252-276-300-312-322-350 oczek, a długość robótki wynosi ok. 26-28-29-31-33-35 cm od rzędu nabierania oczek, mierząc po środku przodu > do właściwego okrążenia powinno być zastąpione 'do okrążenia oznaczonego strzałką w schemacie'. Już poprawiam. Pozdrawiamy!

08.12.2023 - 08:39

country flag Alison Miranda wrote:

Good afternoon. Is there a section of instructions missing between pages 2 and 3? I have …BODY: Followed by… - 162-174-186-198-222-240 stitches. Work until…. I feel there should be a section here? Many thanks Alison

28.07.2023 - 17:45

DROPS Design answered:

Hi Alison, the pattern is correct. After separating body and sleeves, you start to knit body in the round (there are 162-174-186-198-222-240 stitches for the body; see number for your size) and finish A.1. Then work stocking stitch with fog. Happy knitting!

29.07.2023 - 09:51

country flag SS wrote:

Hej! När man ska göra omslag på andra raden i A1, så får jag det inte till att bli rätt. I ett omslag så "ingår" ju en rät maska som man stickar intill omslaget. Räknas den som en egen maska i diagrammet eller räknas det in i omslaget? Blir det alltså Omslag-Dimma-Dimma-Mellanbrun? Dvs. 3 dimma och 1 mellanbrun. Eller blir det Omslag-Dimma-Mellanbrun, dvs. 2 dimma och 1 mellanbrun? Mvh S Mvh Sonia

17.10.2022 - 12:40

DROPS Design answered:

Hei Sonia. Kastet (omslaget) strikkes alltid i bunnfargen og vridd, slik at det ikke blir hull. 2. rad i diagram A.1 strikkes da slik: kast - diamma - mellombrun - dimma - mellombrun - diamma. Husk at på 1.omgang avslutte det med et kast, samtidig som det startes med et kast på 2. omngang (= 2 kast etter hverandre som må strikkes som 2 masker, med bunnfargen). mvh DROPS Design

24.10.2022 - 14:06

country flag Maite wrote:

Hi! I love the model, but would like to knit it in just one colour, using Nepal, a size S or M. Could you advise how much wool I might need? I'd also appreciate it if you can advise if I can just ignore the A.1 schematic, or if I need to keep anything else in mind. Thank you for all the beautiful patterns and the super service with the pattern help. :)

31.08.2022 - 19:07

DROPS Design answered:

Dear Maite, since this jumper has been worked with 3 colours, we only get the amount of yarn with all colours and we don't have the garment anymore to weight it. You can add all colours together, you might require less. Your DROPS Store can help you with this - even per mail or telephone. You would then have to follow the diagram A.1 with the increases only (last symbol under diagram text) so that you get the correct number of stitches increased evenly over the correct length. Happy knitting!

01.09.2022 - 10:02

country flag Michelina Acquaviva wrote:

Hi is it possible to know how many stitches there are on every increase round?l am not sure where each increase should be placed thank you Lina

06.04.2022 - 01:49

DROPS Design answered:

Dear Lina, you increase 1 stitch in each A.1 on each increase round, if you repeat the diagram A.1 a total of 21 times (in size S for example) in width, you will then increase 21 times on the round. You will increase a total of 8 sts in each A.1 in size S, M, L and XL and 10 sts in each A.1 in size XXL and XXXL. Happy knitting!

06.04.2022 - 07:56

country flag Marijke Koops-Groenland wrote:

Ik hield bij dit patroon voor maat M in ieder geval een hele bol drops Nepal bruin over, jammer want ik brei precies volgens de stekenverhouding.

05.04.2022 - 23:08

country flag BenteThomassen wrote:

Winter Heart 194-6 Hvordan skal det gøres, når der på 1. p i mønsteret er et omslag, og der på næste p vil komme et omslag lige over dette. Det drejer sig om p 1.-2. p og p 7-8?

25.01.2022 - 12:43

DROPS Design answered:

Hej Bente, det gør ikke noget, men husk at strikke omslaget, fra pinden før, drejet :)

27.01.2022 - 10:32

country flag Manon Charette wrote:

Bonjour pour modele 194-6 Dans A1 (L+XL) au 1er rang, doit-on tric les 4 mailles et ensuite faire l'augmentstion a la 5e m OU tric 3 m et aug a la 4e? Merci de clarifier les aug. du shema. Merci

12.11.2021 - 17:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Charette, tricotez bien les mailles comme indiqué par le diagramme autrement dit augmentez alternativement à la fin ou au début de chaque diagramme, par ex au rang 1 de A.1 en L/XL: 4 m end, 1 jeté; au rang 2: 1 jeté, 5 m end (en respectant les couleurs du jacquard) et ainsi de suite. Bon tricot!

15.11.2021 - 07:11

country flag Kaylee wrote:

What are the final bust measurements for the S, M, L, XL, XXL and XXXL in this sweater (Winter Heart)? I'm trying to determine which size to knit and have been unable to find the final measurements within the pattern/info provided. Thank you!

26.10.2021 - 22:11

DROPS Design answered:

Hi Kaylee, There is a measurement chart at the bottom of the pattern. Happy knitting!

27.10.2021 - 07:09

country flag Kaylee wrote:

What are the final bust measurements for the S, M, L, XL, XXL and XXXL in this sweater (Winter Heart)? I'm trying to determine which size to knit and have been unable to find the final measurements within the pattern/info provided. Thank you!

26.10.2021 - 22:10

DROPS Design answered:

Dear Kaylee, you can find teh finished measurements of the piece on the schematic drawing just below the pattern. We suggest that you take a sweater that fits the intended wearer and compare. Happy Stitching!

27.10.2021 - 00:30