DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Valdres

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með norrænu mynstri og áferðamynstri í röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 197-1
DROPS Design: Mynstur u-861
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-650-700-750-850-850 g litur 77, ljós eik
100-100-100-100-100-150 g litur 04, súkkulaðibrúnn
100-100-100-100-100-150 g litur 11, appelsínugulur
50-50-50-100-100-100 g litur 65, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með áferðamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón/perluprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 260 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44 = 5,9. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja saman.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um berustykki):
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina á 10 cm en sem gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að laga með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili á berustykki.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við hvert A.5 þannig:
Fækkið um 1 lykkju á eftir A.5 þannig: Takið síðustu lykkju í A.5 af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á undan A.5 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.5, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Þ.e.a.s. fækkað er um 2 lykkjur við hvert A.5 og alls 8 sinnum í umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Stykkin eru sett saman og berustykki er prjónað í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 260-288-316-344-376-400 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós eik.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 44-48-52-56-64-64 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 216-240-264-288-312-336 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt þannig: Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju, prjónið 107-119-131-143-155-167 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónamerki merkir hliðar í stykki. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur (= 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 12 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (það á að mæla frá þessu prjónamerki síðar). Prjónið síðan A.2 yfir A.1 – lesið LEIÐBEININGAR-1. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3 yfir A.2. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.3 (sjá ör fyrir þína stærð) prjónið næstu umferð í A.3 þannig:
Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 101-113-125-137-149-161 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 7 lykkjur, prjónið næstu 101-113-125-137-149-161 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Stykkið mælist ca 32-29-32-32-31-30 cm frá prjónamerki (ca 43-40-45-45-46-45 cm öll lengdin). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað i hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni. Fitjið upp 48-52-52-56-56-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum ljós eik. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-10-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-46-48-50 lykkjur.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM:
Prjónið nú mynstur ca 8-8-5-5-4-4 cm, ef óskað er eftir að stilla lengdina á ermi er það gert núna – sjá útskýringu að neðan.
Prjónið nú sömu mynstureiningu eins og á fram- og bakstykki (frá prjónamerki og upp að handveg = ca 32-29-32-32-31-30 cm), þ.e.a.s. öll ermin á að mælast ca 45-42-42-42-40-39 cm. Gerið þannig:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð sléttprjón, prjónið síðan næstu umferð þannig:
Prjónið A.4a (= 2-3-4-5-0-1 lykkjur), A.4b (= 12 lykkjur) alls 3-3-3-3-4-4 sinnum á breidd, A.4c (= 2-3-4-5-0-1 lykkjur). Haldið áfram þar til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina – ATH: Ef óskað er eftir því að hafa ermina lengri eru endurteknar 2 umferðir merktar með stjörnu að óskaðri lengd, áður en prjónað er áfram í næstu umferð í A.4. Ef óskað er eftir að hafa ermarnar styttri er einungis prjónaður óskaður fjöldi umferða af A.4, en prjónið minnst 1 af umferðum brugðið. – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-9-9-10-12-12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 16-21-20-19-24-23 sinnum = 72-84-84-84-96-96 lykkjur. Lykkjur í A.4a og A.4c og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inni í mynstur A.4b. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur – A.2 er prjónað yfir A.4b og er stillt út í hvorri hlið, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3 (= 12 lykkjur) yfir A.2.
Þegar allar lykkjur undir ermi hafa verið auknar út, prjónið A.3 alls 6-7-7-7-8-8 sinnum á breidd. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.3 er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 65-77-77-77-89-89 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Ermin mælist ca 45-42-42-42-40-39 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handvegi = 332-380-404-428-476-500 lykkjur. Byrjið umferð í skiptingunni á milli hægri ermi og bakstykkis. Prjónið þannig: * A.5 (= 2 lykkjur, laskalína), haldið áfram með mynstur A.3 eins og áður yfir næstu 97-109-121-133-145-157 lykkjurnar (= framstykki/bakstykki), A.5 (= 2 lykkjur, laskalína), prjónið mynstur A.3 eins og áður yfir næstu 65-77-77-77-89-89 (= ermi) *,prjónið *-* alls 2 sinnum – lesið LEIÐBEININGAR-2.
Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 27-31-32-33-37-39 sinnum. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað A.6 (= 12 lykkjur) yfir A.3. Á eftir síðustu úrtöku fyrir laskalínu eru 116-132-148-164-180-188 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. Stykkið mælist ca 20-23-24-25-27-28 cm.
Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og að berustykkið verði aðeins hærra aftan í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan. Prjónið upphækkun aftan í hnakka eða farið beint áfram og prjónið kant í hálsmáli ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (þetta merkir byrjun á umferð eftir að upphækkun hefur verið prjónuð).
Haldið áfram með litnum ljós eik og prjónið að miðju að aftan, setjið 1 merkiþráð. Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 30-30-34-34-40-40 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-68-68-80-80 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 54-54-61-61-72-72 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-54-64-64 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-48-48-56-56 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið að miðju að aftan. Klippið frá. Umferðin byrjar nú við prjónamerki, þ.e.a.s. í skiptingu á milli hægri ermi og bakstykkis.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Haldið áfram með litnum ljós eik og prjónið næstu umferð með úrtöku þannig: Prjónið * 40-46-54-58-66-70 lykkjur slétt og fækkið um 0-6-12-13-19-22 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið næstu 18-20-20-24-24-24 lykkjur 2 og 2 slétt saman (= 9-10-10-12-12-12 lykkjur færri) *, prjónið *-* alls 2 sinnum = 98-100-104-114-118-120 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 8-0-4-4-8-0 lykkjur, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir þær lykkjur sem eftir eru = 116-120-124-136-140-144 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í stroffi (þ.e.a.s. 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir hvorri ermi í ystu lykkjubogana.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.02.2019
Leiðrétting: KANTUR Í HÁLSI:..KANTUR Í HÁLSI:
Haldið áfram með ljósri eik og prjónið næstu umferð með úrtöku þannig: Prjónið * 40-46-54-58-66-70 lykkjur slétt og fækkið um 0-6-12-13-19-22 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið næstu 18-20-20-24-24-24 lykkjurnar 2 og 2 slétt saman (= 9-10-10-12-12-12 lykkjur færri) *,..
Yfirfarið á vefsvæði: 12.06.2019
Leiðrétting - mynsturteikning A.4C í stærð L-XL hefur verið leiðrétt.
Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2019
ERMI:.. (stærð M = 7 sinnum):..Þegar allar lykkjur undir ermi hafa verið auknar út, prjónið A.3 alls 6-7-7-7-8-8 sinnum á breidd.

Mynstur

symbols = brugðið með ljós eik
symbols = slétt með ljós eik
symbols = slétt með súkkulaðibrúnn
symbols = slétt með appelsínugulur
symbols = slétt með gallabuxnablár
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Valdres

Astrid, Sweden

Valdres

Johanna, Estonia

Valdres

@bee.knittingoutdoors, Austria

Valdres

vanderls, Canada

Valdres

MegQuinn, United States

197-1 Valdres

Merethe, Denmark

Valdres

Antje, Germany

Valdres

Barbara, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (203)

country flag Erika wrote:

Why are you making a pattern If it doesn t work with de tools you discribe.

04.02.2019 - 11:29

DROPS Design answered:

Dear Erika, the sleeves are started with the double pointed needles, then you switch to the circular needle 40 cm when you have increased enough stitches to fit the small circular needle. Happy knitting!

04.02.2019 - 14:25

country flag Erika wrote:

De shortest round needle is way top long to knit the sleeves. I cant werk whit the needles whitout knot. I want to knit the sleeves whit round needle 40cm but iT is way to long. Can you help me.

04.02.2019 - 11:04

DROPS Design answered:

Dear Erika, you can then work the sleeves on double pointed needles or use the magic loop technique with a longer needle until you get anough sts for the 40 cm needle. Happy knitting!

04.02.2019 - 14:14

country flag Iwt wrote:

Jeg har strikket i str medium, men lurer på om det er en feil i masketallene for halsfellingen. Det virker som det telles fra der hals-forhøyningen slutter og ikke midt i raglangfellingen. Genseren er også svært stor i størrelse. Ellers flott genser!

02.02.2019 - 21:41

DROPS Design answered:

Hei Iwt. Det hadde du rett i, her var det en feil. Du skal felle 6 mnasker over de 46 maskene du strikker først slik at maskeantalelt blir 100 etter denne omgangen. Starten på omgangen er mellom høyre erme og bakstykket, så disse maskene strikkes over bakstykket. Når du strikker masker sammen 2 og 2 blir dette over ermene. Ja, denne modellen er vid, som du også kan se på målskissen nederst på oppskriften. God fornøyelse.

08.02.2019 - 11:14

country flag Andrea wrote:

Hallo Irs, vielleicht einTip für Dich: Ich habe die Ärmel nicht auf dem Nadelspiel sindern in hin und Rück reihen gestrickt.Bedeutet etwas weniger Faden wirrwarr und es wird deutlicher, dass das Muster an den Zunahmen nicht aufgehen kann, bedeutet aber auch etwas Obacht bei der Mustereinteilung, damit die Anordnung en passend sind. zu nähen ist dann lediglich die Umterarmnaht.... Vielleicht hilft es, LG

29.01.2019 - 10:21

country flag Iris wrote:

Hallo, ich scheitere gerade an den Ärmeln. Bekomme das mit dem Muster und den Zunahmen nicht hin. Kann mir bitte jemand einen Tipp geben, wie ich die Zunahmen in A4, A2 einarbeiten muss. Habe die Anleitung schon 1000mal gelesen und den angefangenen Ärmel mehrmals wieder augeribbelt

24.01.2019 - 16:41

DROPS Design answered:

Liebe Iris, die Zunahmen am Ende der Runde stricken Sie wie die nächste Masche in A.4/A.2 (lesen Sie rechts nach links) und die Zunahmen am Anfang der Runde stricken Sie wie das vorrige Masche in A.4/A.2 (lesen Sie jetzt das Diagram links nach rechts), so werden die Muster breiter sein, aber in der untere Mitte bei den Ärmel passt das Muster nicht wegen den Zunahmen. Viel Spaß beim stricken!

25.01.2019 - 08:38

country flag Vicky Williams wrote:

When decreasing in the neck what does - knit together the next 20-20-20-24-24-24 stitches 2 and 2 (= 10-10-10-12-12-12 stitches decreased) actually mean ???

24.01.2019 - 16:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Williams, you will K2 tog a total of 10-12 times (see size) over these 20-24 sts = so that you will have decreased 10-12 stitches. Happy knitting!

24.01.2019 - 17:06

country flag Linda Marit Bjørke wrote:

Er kommet til bolen str S. Her står det at man skal starte omgangen i overgang mellom venstre erme og bakstykke, altså bak på venstre skulder, og strikke A5. Hvis man deretter strikker 97 masker slik det står i mønsteret før man strikker A5 igjen havner man jo et stykke foran på bolen, istedenfor i overgangen mellom venstre erme og forstykke der jeg trodde neste raglandfelling skulle være. Hva misforstår jeg?

20.01.2019 - 16:25

DROPS Design answered:

Hei Linda. Du har helt rett, starten blir i overgangen mellom høyre erme og bakstykket. Dette er nå blitt endret. Takk for beskjed og god fornøyelse

29.01.2019 - 07:32

country flag Charlotte wrote:

Vet dere hvilken størrelse det er strikket til hun som er modellen på bilde?

18.01.2019 - 23:42

DROPS Design answered:

Hei Charlotte. Det er en S eller M. Nederst på siden finner du en målskisse med alle plaggets mål i alle størrelser. Anbefaler at du ser på denne når du velger størrelse. God fornøyelse

21.01.2019 - 10:22

country flag Erika wrote:

I want to knit size s. But om A3 it looks like you knit more in size s than in size m. I have to knit from the bottum to the top and fitst is size m and then size s. I dont understand what i have to knit to get size s.

18.01.2019 - 09:07

DROPS Design answered:

Dear Erika, you work some more rows in A.3 in size S so that the body (rib + body before armholes) are a bit longer = 38 cm (35 cm in size M) and the yoke will be shorter in size S (= 20 cm while it measures 23 cm in size M). Happy knitting!

18.01.2019 - 09:52

country flag Erika wrote:

Hello I have asked a question on januari the 5 Th. And never received na answer. The Pattern is hard to follow. When do you use sertain lengths of needles? And witch part do I need to knit for site s? On the pattern at A3. I dont understand!!! Can you help me please?

17.01.2019 - 22:08

DROPS Design answered:

Dear Erika, you will need the 60 or 80 cm from beg of body to first decreases on yoke, when the needle is then too long for the number of sts, change to shorter circular needle. In size S follow each first number, ie cast on 260 sts and dec 44 sts evenly = 216 sts remain. Can you explain what you don't understand in A.3? Thank you!

18.01.2019 - 09:00