Liliana |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Muskat með gatamynstri og öldumynstri, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-41 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um kant í hálsi): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (á við um berustykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= alls 2 lykkjur færri). Endurtakið við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.3b. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður að handveg, síðan er prjónað áfram hringinn. Hvor öxl er prjónuð hvor fyrir sig, áður en stykkið er sett saman. BAKSTYKKI: Fyrst eru prjónaðar tvö axlastykki, síðan eru fitjaðar upp lykkjur fyrir hálsmáli, axlir eru settar saman og síðan er prjónað fram og til baka niður að handvegi. VINSTRI ÖXL (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 18-23-22-27-26-31 lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu: Prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að handveg). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 (= 10 lykkjur) yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd), endið með 5-0-9-4-3-8 lykkjur sléttprjón (= að hálsi). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2 cm er stykkið lagt til hliðar og prjónuð er hægri öxl (stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu). HÆGRI ÖXL (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 18-23-22-27-26-31 lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= að handveg), prjónið brugðið lykkjur út umferðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (= frá hálsi): Prjónið 6-1-10-5-4-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm, stillið af mál við vinstri öxl, það eiga nú að vera prjónaðar jafn margar umferðir og á vinstri öxl (þ.e.a.s. síðasta umferð er prjónuð frá réttu), fitjið upp lykkjur fyrir háls á milli hægri og vinstri axlar frá röngu þannig: Prjónið yfir hægri öxl þannig: 2 kantlykkjur með garðaprjóni, mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru, fitjið upp 39-39-41-41-43-43 nýjar lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir vinstri öxl þar til eftir eru 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. BERUSTYKKI AÐ AFTAN: = 75-85-85-95-95-105 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju eins og áður, prjónið A.2 yfir næstu 70-80-80-90-90-100 lykkjur (= 7-8-8-9-9-10 sinnum á breidd) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 14-15-15-16-13-14 cm. Aukið nú um 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING – fyrir handveg innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í hverri umferð frá réttu (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út alls 4-4-6-6-11-11 sinnum = 83-93-97-107-117-127 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Fitjið upp 4-3-5-5-7-8 lykkjur í lok næstu umferðar frá röngu og 5-4-6-6-8-9 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 92-100-108-118-132-144 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar slétt frá röngu. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 18-23-22-27-26-31 lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið út hringprjón 4. Prjónið frá röngu: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= við handveg), prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (= frá hálsmáli): Prjónið 6-1-10-5-4-9 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.2 yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmál í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, 2 lykkjur 3 sinnum = 28-33-32-37-36-41 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 18-23-22-27-26-31 lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu: Prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (= frá handveg): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd) og endið með 5-0-9-4-3-8 lykkjur í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum og 2 lykkjur 3 sinnum = 28-33-32-37-36-41 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið nú axlir saman þannig: prjónið yfir hægri öxl: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru, fitjið upp 19-19-21-21-23-23 nýjar lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir vinstri öxl þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. BERUSTYKKI AÐ FRAMAN: = 75-85-85-95-95-105 lykkjur. Prjónið á sama hátt og berustykki á bakstykki = 92-100-108-118-132-144 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú stykkin saman frá réttu þannig: Prjónið þannig: Prjónið * 6-5-7-7-9-10 lykkjur garðaprjón, 4-4-6-6-11-11 lykkjur í sléttprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, A.2 yfir næstu 70-80-80-90-90-100 lykkjur eins og áður (= 7-8-8-9-9-10 sinnum á breidd), 4-4-6-6-11-11 lykkjur í sléttprjóni og 7-6-8-8-10-11 lykkjur í sléttprjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Nú eru 184-200-216-236-264-288 lykkjur í umferð, setjið stykkið saman og prjónið síðan hringinn. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir lykkjur á milli framstykki og bakstykkis, síðan er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur = alls 21-19-27-27-41-43 lykkjur sléttprjón á milli framstykki og bakstykki í hvorri hlið á stykki. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan áfram hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-3-3-2-9 cm millibili alls 6-5-4-4-6-2 sinnum = 160-180-200-220-240-280 lykkjur. Nú eru eftir 9-9-19-19-29-39 lykkjur í sléttprjóni á milli framstykkis og bakstykkis í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm frá prjónamerki, stillið af að endað sé með heila mynstureiningu af A.2, prjónið A.3a yfir allar lykkjur (= 16-18-20-22-24-28 sinnum á breidd). Haldið svona áfram með mynstur. Aukið út um A.3a. Þegar A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 256-288-320-352-384-448 lykkjur í umferð. Prjónið A.3b yfir A.3a. Þegar allar lykkjur í A.3b hafa verið auknar út eru 336-342-360-396-432-448 lykkjur í umferð. Þegar eftir eru 4 umferðir í A.4b, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Í síðustu umferð í A.3b er fellt af eins og útskýrt er í mynsturteikningu, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist alls ca 62-64-66-68-70-72 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma í ystu lykkjubogana. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 90-112 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, hringinn. Fellið síðan af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Kathi wrote:
Für die Schultern am Vorderteil werden neue Maschen angeschlagen. Wie werden diese in den darauffolgenden Reihen gestrickt? Kraus rechts oder glatt rechts? Hilfreich wäre auch eine Längenangabe nach allen Zunahmen, bevor man die beiden Schultern verbindet...
09.09.2019 - 16:58DROPS Design answered:
Liebe Kathi, die neuen Maschen für den Halsausschnitt werden glatt rechts gestrickt, bis genügend Maschen zugenommen sind, um 1 x A.2 mehr in der Breite zu stricken. Viel Spaß beim stricken!
10.09.2019 - 08:25Helle Reinhold wrote:
Hvordan skal jeg forstå aflukningen ?
07.06.2019 - 12:12DROPS Design answered:
Hei Helle. Du skal felle av som vist i diagrammet, dvs: over flettene skal du lage kast samtidig som du feller av (dette for at avfellingskanten ikke skal stramme). Her er en video som viser hvordan dette gjøres: . Maskene med sort prikk i diagrammet skal felles av på vanlig måte. God fornøyelse
07.06.2019 - 13:18Gisèle Houle wrote:
Bonjour,\r\nFélicitation pour votre site.\r\nSi je fais des manches courtes, je me demandes si le modèle serait aussi beau?\r\nEt combien de fil/laine il faudrait en surplus? Merci
11.07.2018 - 05:22DROPS Design answered:
Bonjour Mme Houle, merci pour votre retour. Nous ne sommes toutefois pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Consultez d'autres modèles de ce type avec manches courtes pour vous faire une idée, votre magasin DROPS saura vous aider et vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
11.07.2018 - 07:55Lise T. D'Amours wrote:
So airy and feminine! I need this in my wardrobe!
09.01.2018 - 16:02Jutta wrote:
Tolles Muster, toller Schnitt, würde ich gerne stricken.
30.12.2017 - 11:36Beti wrote:
Eine traumhaftes Modell. Ich würde es gern nacharbeiten.
22.12.2017 - 19:44