DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 190-16
DROPS Design: Mynstur w-691
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-500-550-600 g litur 19, ljós gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 204 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 38) = 5,3. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 4 og 5. hver lykkja saman.

ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA-3 (á við um handveg):
Fækkið lykkjum innan við A.5/A.7 í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir A.5 þannig: Takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan A.7 þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan A.7: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna upp að handveg, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 204-221-238-255-272-289 lykkjur á hringprjón 5 með Paris.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan eftir A.1 (= 12-13-14-15-16-17 mynstureiningar á breidd). Prjónið A.1 3 sinnum á hæðina. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 38-43-44-45-42-39 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 166-178-194-210-230-250 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 1 í byrjun á umferð og 1 eftir 83-89-97-105-115-125 lykkjur (= hliðar). Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum með 4-4-4-4-4½-4½ cm millibili alls 7 sinnum = 138-150-166-182-202-222 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm prjónið A.2 yfir allar lykkjur, í síðustu umferð í A.2 er fækkað um 0-0-4-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 138-150-162-180-198-222 lykkjur. Prjónið A.3, í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 0-0-4-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 138-150-166-182-202-222 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 7-7-8-8-9-10 lykkjur, A.4 yfir næstu 55-61-67-75-83-91 lykkjur (endið með 1 lykkju slétt), garðaprjón yfir næstu 14-14-16-16-18-20 lykkjur, A.4 yfir næstu 55-61-67-75-83-91 lykkjur og endið með 7-7-8-8-9-10 lykkjur garðaprjón. Prjónið A.4 1 sinni á hæðina (haldið áfram með garðaprjón í hvorri hlið). Síðan er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-6 lykkjur, prjónið 63-69-75-83-91-99 lykkjur, fellið af næstu 6-6-8-8-10-12 lykkjur, prjónið 63-69-75-83-91-99 lykkjur slétt og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-6 lykkjur. Prjónið fram- og bakstykki til loka fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 63-69-75-83-91-99 lykkjur. Prjónið síðan þannig, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: A.7, byrjið á 2. umferð í mynstri (frá vinstri hlið í mynsturteikningu) (= 4 lykkjur), 55-61-67-75-83-91 lykkjur brugðið, A.5 (byrjið á 2. umferð í mynstri). Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: A.5, fækkið um 1 lykkju – lesið ÚRTAKA-3, prjónið 0-3-3-7-8-12 lykkjur sléttprjón, A.6 A yfir næstu 48-48-54-54-60-60 lykkjur, A.6 B (= 3 lykkjur), 0-3-3-7-8-12 lykkjur sléttprjón, fækkið um 1 lykkju, A.7. Haldið áfram með þetta mynstur og fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu 0-3-3-7-8-12 sinnum til viðbótar = 61-61-67-67-73-73 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 25-25-29-29-33-33 lykkjur. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja frá hálsmáli = 17-17-18-18-19-19 lykkjur eftir á hvorri öxl. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við háls þegar lykkjum er fækkað, prjónið þær í sléttprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.

FRAMSTYKKI:
= 63-69-75-83-91-99 lykkjur. Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm = 61-61-67-67-73-73 lykkjur. Setjið nú miðju 19-19-23-23-27-27 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 17-17-18-18-19-19 lykkjur eftir á öxl – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við hálsmál þegar lykkjum er fækkað, prjónið þær í sléttprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, saumið kant í kant í ystu lykkjuna til að koma í veg fyrir að saumurinn verði of þykkur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 65 til 80 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði) á stuttan hringprjón 5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af með sléttum lykkjum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.04.2020
BAKSTYKKI:..Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 25-25-29-29-33-33 lykkjurnar.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið 2 lykkjur í eina lykkju
symbols = fellið af 1 lykkju
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Annalisa wrote:

Buongiorno, sto eseguendo il modello indicato, ma dalle foto sembra che le spalle siano rifinite con un motivo a zig zag che non è indicato negli schemi illustrati. È possibile avere le istruzioni? Grazie mille

22.11.2023 - 23:05

DROPS Design answered:

Buonasera Annalisa, tutte le istruzioni per lavorare il modello sono riportate, non ci sono spiegazioni aggiuntive necessarie. Buon lavoro!

26.11.2023 - 23:22

country flag VALERIE COTE wrote:

Bonjour, question concernant les diminutions #2 Dos & Devant si je comprend bien, nous devons diminué à chaque 4 cm 3mailles on répète ceci 7 fois. Ce qui devrait être une diminution de 21 mailles et non pas 24 (166m - 4m= 162m - dim#2 = 141 et non pas 138 tel qu'indiqué. Devons-nous putôt diminué 8 fois 3 mailles? de plus, est-ce qu'on diminue seulement le 1er fil marqueur ou au 2, car si c'est au 2, là non plus ça ne fonctionne pas. merci

27.05.2023 - 20:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cote, on doit diminuer 4 mailles à chaque fois (1 maille de chaque côté de chaque fil marqueur comme indiqué sous DIMINUTIONS-2 (dos & devant): ); et ce 7 fois au total, vous aviez (en taille L) 194 mailles - 28 mailles (7 fois 4 mailles) = il reste 166 mailles. bon tricot!

30.05.2023 - 10:33

country flag Dawn Banner wrote:

I’m still confused! So on A5 I work row 3 but on A7 I work row 2? Is this right?

02.07.2022 - 10:02

DROPS Design answered:

Dear Dawn, sorry, it was typo, you work the 3rd row in both charts. Happy knitting!

02.07.2022 - 16:27

country flag Dawn Banner wrote:

I am totally baffled by this pattern! So, the first row on the back piece is on the wrong side and is row 2 on the chart reading left to right is A7, Purl, then A5. Next row , right side reading right to left is A7 (work 2 stitches in one stitch (twice) Yarn over, Knit 2 together) A6, B6, A5 (K4) Next row, Wrong side, reading left to right A5 (yarn over K2 tog, work 2 stitches in one stitch twice, A6B, A6A, A7 (Cast off 1 stitch, twice, K 4). Is this right? I’m totally confused!

27.06.2022 - 10:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Banner, First row is worked from WS as you wrote, but next row from RS will be worked as follows: A.5 (work now row 3), decrease 1 (armhole - see decrease tip-3), knit 0 to 12 sts (see size) , then work A.6A over 48-60 sts, A.6B (3 sts), 0 to 12 sts in stocking stitch, decrease 1 stitch (armhole), and finish with A.7 (2nd row). From WS: A.7, purl, A.6B, repeat A.6A, purl, A.5. Can this help?

27.06.2022 - 15:11

country flag Hanne wrote:

Mangler mønster til ærmegabet, kan se på billedet at der er strikket et mønster, men har ikke kunnet finde vejledningen

21.03.2021 - 20:40

country flag Pauline Semb wrote:

Hei! Holder på med bakstykket og jeg blir så forvirret av A.5 og A.7. Skal jeg alltid starte fra venstre når A.7 strikkes fra vrangen? Og er det vare første gang fra retten man strikker 3 masker etter felling? Jeg er på 2.pinne fra retten ( mener det er linje nr. 5 i A.5 og A.7 og linje nr. 3 i A.6. Har nå strikket A.5 linje nr.5, fellt en maske, men nå får jeg ikke A.6 til å stemme??

21.05.2020 - 22:05

DROPS Design answered:

Hej Pauline, sæt et mærke på hver side af A.6, det maskeantal forandres ikke, det er kun de yderste masker i hver side som går over 4-6 masker ifølge diagrammerne. Sørg for at du altid lukker de 2 yderste masker af ifølge diagrammet, i starten af pinden. God fornøjelse!

29.05.2020 - 09:57

country flag Jessicah wrote:

What are the finished measurements? I just want to make sure I'm picking the right size and I didnt see them. Thank you :)

04.05.2020 - 01:36

DROPS Design answered:

Hi Jessicah, There is a diagram at the bottom of the page with all the measurements for each size. Happy knitting!

04.05.2020 - 08:01

country flag Lieve Samyn wrote:

Zou je hier ook mouwtjes kunnen inzetten ? leuk patroontje ! bedankt

31.03.2020 - 10:34

DROPS Design answered:

Dag Lieve Samyn,

Je zou mouwtjes uit een ander patroon kunnen nemen met ongeveer dezelfde afmetingen van het armsgat. En dan zou je het telpatroon ietsje aan moeten passen, bij voorbeeld in plaats van A.5 en A.7 een ribbelsteek breien oid.

05.05.2020 - 14:53

country flag Anika wrote:

Liebes Drops team, ich bin gerade dabei das Rückenteil in Größe L zu stricken. Hier schreibt ihr, dass ich bei einer Länge von 62 cm die mittleren 29 Maschen (Halsausschnitt) abketten soll. Dann wird jede Schulter einzeln weitergeschrickt. Weiter schreibt ihr, dass ich wiederum bei einer Gesamtlänge von ebenfalls 62 cm abketten soll. Da das Vorderteil auch eine Gesamtlänge von 62 cm hat, gehe ich davon aus, dass der Halsausschnitt beim Rückenteil bei ca. 60 cm gearbeitet werden muss?

29.03.2020 - 13:17

DROPS Design answered:

Liebe Anika, die mittleren 29 Maschen für den Halsausschnitt würde ich dann 2 cm früher (nach 60 cm) abketten, so stimmt die gesamte Länge. Unser designteam wird das mal schauen. Viel Spaß beim stricken!

03.04.2020 - 14:17

country flag Nathalie wrote:

Thanks a lot for your quick reply! This makes sense, but just to double-check - was the answer to Mrs Little on April 23d ("the 3rd row in A.7 will be worked from WS and will be read from the left towards the right") wrong? Based on your reply from today, the 3d row will in fact be worked from RS and be read from right to left... Thanks again!

04.06.2019 - 12:56

DROPS Design answered:

Dear Nathalie, yes there might be a typo in the answer, meaning the 3rd row is a RS row which means it will be read from the right towards the left. Happy knitting!

04.06.2019 - 14:14