DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1122.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Island Dream

Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light með gatamynstri og perluprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 190-42
DROPS Design: Mynstur cl-090
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

ATH: Málin á teikningu gefur til kynna að flíkin sé smá, en vegna mynsturs verður flíkin teygjanleg. Prjónaðu þá stærð sem þú myndir venjulega nota þegar þú prjónar.

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-200-200-200-250-250 g litur 27, mynta

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 32 umferðir með perluprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 4-4-4-4-5-5 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1122.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út/fækka lykkjum í umferð, teljið fjölda lykkja á prjóni (t.d. 161 l), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem á að auka út/fækka (t.d. 3) = 50,3.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 49. og 50. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan. Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 50. hverja lykkju (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat).

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 7, 11, 15 og 20 cm
M: 7, 12, 17 og 22 cm
L: 7, 12, 17 og 23 cm
XL: 7, 13, 19 og 25 cm
XXL: 1, 12, 17, 22 og 26 cm
XXXL: 7, 13, 18, 23 og 28 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 161-171-191-211-241-261 lykkjur á hringprjón 4 með Cotton Light. Prjónið 1 umferð slétt (= frá röngu). Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynsturteikningu A.1a yfir næstu 150-160-180-200-230-250 lykkjur (= 15-16-18-20-23-25 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.1b (= 1 lykkja) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til A.1 er lokið á hæðina – í umferð merktri með ör í mynsturteikningu er lykkjufjöldinn jafnaður til 158-174-190-210-238-262 lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið 42-46-50-55-62-68 lykkjur inn frá miðju að framan – merkir hliðar (= 74-82-90-100-114-126 lykkjur á bakstykki).
Prjónið síðan þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir næstu 148-164-180-200-228-252 lykkjur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 38-42-46-51-58-64 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hlið), prjónið 66-74-82-92-106-118 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 38-42-46-51-58-64 lykkjur. Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 66-74-82-92-106-118 lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg og hálsmáli á sama tíma.
HANDVEGUR:
Fellið síðan af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-4-2-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-5-7-7 sinnum (= 3-6-8-12-18-23 lykkjur færri í hvorri hlið)
HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm fellið af miðju 20-22-22-22-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmái í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur alls 3 sinnum og síðan 1 lykkju alls 3-3-5-5-6-6 sinnum.
Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 11-11-11-12-12-12 lykkjur á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir öxl þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm, fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 38-42-46-51-58-64 lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg og hálsmáli á sama tíma þannig:
HANDVEGUR:
Fellið síðan af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-4-2-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-5-7-7 sinnum (= 3-6-8-12-18-23 lykkjur færri í hvorri hlið)
HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm fellið af fyrstu 15-16-16-16-16-17 lykkjur frá réttu fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmái í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur alls 3 sinnum og síðan 1 lykkju alls 3-3-5-5-6-6 sinnum.
Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 11-11-11-12-12-12 lykkjur á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir öxl þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.08.2023
HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm fellið af fyrstu 15-16-16-16-16-17 lykkjur frá réttu fyrir hálsmáli.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = útaukning/úrtaka
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Island Dream

jurgita17

Island Dream

Yarnveiled, Netherlands

Island Dream

Bodil, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Patricia wrote:

¿Cuantos puntos debo restar para tejer talla XS?

28.07.2023 - 06:50

DROPS Design answered:

Hola Patricia, no hay un cálculo fijo para obtener una talla más pequeña. Puedes leer la siguiente lección sobre cómo calcular un patrón https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=23; si tienes la misma tensión que la indicada puedes obtener los números a montar a partir de los cm necesarios para tu talla. Para calcular el patrón deberás usar reglas de tres.

29.07.2023 - 16:36

country flag Françoise wrote:

Bonjour dans l’explication du devant droit il est indiqué < rabattre pour l'encolure les 15-16-16-16-16-17 premières mailles sur l'endroit et terminer chaque épaule séparément.> or il me semble qu’il n’y a q’une épaule sur le devant droit . Est-ce une erreur: un copier collé des explications du dos? Ou doit on suivre la suite des diminutions qui sont les mêmes qu’au dos?

02.07.2023 - 21:29

country flag Françoise wrote:

Bonjour dans l’explication du devant droit il est indiqué < rabattre pour l'encolure les 15-16-16-16-16-17 premières mailles sur l'endroit et terminer chaque épaule séparément.> or il me semble qu’il n’y a q’une épaule sur le devant droit . Est-ce une erreur: un copier collé des explications du dos? Ou doit on suivre la suite des diminutions qui sont les mêmes qu’au dos?

01.07.2023 - 11:09

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, il s'agit effectivement d'une erreur, qui sera corrigée dès que possible, mais ne prenez pas cette info en compte ici, naturellement, vous n'avez qu'une seule épaule ici. Vous continuez à former l'emmanchure comme indiqué précédemment (comme pour le dos) et formez en même temps l'encolure de l'autre côté. Bonne continuation!

03.07.2023 - 09:54

country flag Angèle wrote:

Bonjour Lorsque vous dîtes rabattre 0 fois 3 mailles, 1 fois 2 mailles et 1 fois 1 maille. Faut-il tricoter le rang sans rabattre ou commencer directement en rabattant 1 x 2 mailles. Merci pour votre retour.

13.06.2023 - 15:09

DROPS Design answered:

Bonjour Angèle, en taille S, on ne rabat pas les 3 mailles, on rabat directement 1 fois 2 mailles puis 1 fois 1 maille. Bon tricot!

13.06.2023 - 16:07

country flag Grace wrote:

How do the decreases for the armholes on the back section work? Do you do all of the cast-offs on the same row, consecutive rows, or every other row? For reference, I am making the size S.

25.06.2022 - 05:43

DROPS Design answered:

Dear Grace, the decreases are worked at the beginning of every row. So, you cast off 3 stitches at the beginning of the row on the RS and on the next row you cast off 3 stitches at the beginning of the row on the WS, e.t.c. Happy knitting!

26.06.2022 - 13:22

country flag Shubhangi Kundu wrote:

Hello! In the row marked with an arrow, we are supposed to make an increase or a decrease, but that depends on the adjustment that's supposed to be made. As in, for size L, the 191 stiches are to be adjusted to 190. We minus 10 band stitches so we have 181 sts. Now do we subtract 181 from 190 or 190 from 191? The first case will require an increase of 9 whereas the second case will require a decrease of 1. Which one of the cases is to be followed for size L?

20.02.2022 - 17:29

DROPS Design answered:

Hi Shubhangi Kundu, in your size you should decrease 1 stitch. Happy knitting!

20.02.2022 - 18:40

country flag Natalie wrote:

Hi! For the spacing of the buttonholes, I am wondering where on the piece I should be measuring from (e.g from the band stitches, the longest part of the scalloped edge, or the shorter part of the scalloped edge)? I know it should be when the piece measures 7cm, but would love to know where I should be measuring from. Thanks so much, love the pattern!

23.01.2022 - 08:58

DROPS Design answered:

Hi Natalie, You measure from the longest point, so the bottom of the scallops. Happy knitting!

24.01.2022 - 08:03

country flag Anneli wrote:

Hei på forstykket og felling til hals, stemmer ikke maskeantaller! Vi skal jo ha 70 masker og felle 15 m(minste str) så skal vi ha 11 masker igjen etter å ha felt-får flere masker igjen! Vet ikke hvor det er feil...

06.09.2021 - 15:53

country flag Isuri wrote:

What does the pattern refer to as "bands"?

23.08.2021 - 20:56

DROPS Design answered:

Dear Isuri, the pattern refer the button and button-hole bands as "bands". Happy Stitching!

24.08.2021 - 03:26

country flag Susana wrote:

Hola, me gustaria si me podes explicar las disminuciones en las sisas,no entiendo eso de 5_5_7_7_ veces. Gracias

22.08.2021 - 23:25

DROPS Design answered:

Hola Susana, cada número hace referencia a su correspondiente talla. Los patrones están escritos para diferentes tallas a la vez, por lo que se separan con guiones las instrucciones en cada talla. Por ejemplo, se trabaja 5 veces para la talla S (la primera del patrón), 5 veces para la talla M, 7 para la talla L, y así sucesivamente.

23.08.2021 - 13:33