DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 190-12
DROPS Design: Mynstur cm-077
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Mál: Breidd efst: 168 cm. Lengd við miðju: 95 cm án kögurs

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300 g litur 28, púður
50 g litur 04, bleikfjólublár
50 g litur 06, rauður
50 g litur 10, pistasía
50 g litur 13, kórall
50 g litur 14, kirsuber
50 g litur 15, sinnepsgulur
50 g litur 23, ljós fjólublár
50 g litur 24, turkos
50 g litur 29, sægrænn
ATH: Ef hekla á stykkið með einum lit þá þarf ca 500 g Cotton Merino.

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 stuðlar og 8 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. 1 heklaður ferningur mælist 15 x 15 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklaðir eru 36 ferningar í mismunandi litasamsetningum sem heklaðir eru saman í lokin.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Byrjið með heklunál 4,5 og Cotton Merino.
Heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 og heklið 1 ferning af hverri af mismunandi litasamsetningum eins og útskýrt er að neðan.
Heklið síðan allar 18 mismunandi litasamsetningarnar einu sinni til viðbótar EN litum er víxlað í 2. og 3. umferð í hverri litasamsetningu = 36 heklaðir ferningar.
ATH: Litasamsetning 2 og 5 er einnig með gagnstæða liti og litasamsetning 10 og 14 er einnig með gagnstæða liti. Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir verða þess vegna 4 ferningar sem hafa alveg eins lit og aðrir ferningar (= 8 ferningar). Hinir 28 ferningarnir hafa hver sína litasamsetningu.

LITASAMSETNING 1:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: pistasía
UMFERÐ 3: ljós fjólublár
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 2:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: rauður
UMFERÐ 3: sægrænn
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 3:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: kirsuber
UMFERÐ 3: sinnepsgulur
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 4:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: bleikfjólublár
UMFERÐ 3: kirsuberjar
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 5:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: sægrænn
UMFERÐ 3: rauður
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 6:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: turkos
UMFERÐ 3: pistasía
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 7:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: sægrænn
UMFERÐ 3: turkos
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 8:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: pistasía
UMFERÐ 3: bleikfjólublár
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 9:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: ljós fjólublár
UMFERÐ 3: kórall
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 10:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: rauður
UMFERÐ 3: kórall
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 11:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: turkos
UMFERÐ 3: bleikfjólublár
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 12:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: kórall
UMFERÐ 3: turkos
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 13:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: kirsuber
UMFERÐ 3: pistasía
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 14:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: kórall
UMFERÐ 3: rauður
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 15:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: sinnepsgulur
UMFERÐ 3: kirsuber
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 16:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: ljós fjólublár
UMFERÐ 3: sinnepsgulur
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 17:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: sinnepsgulur
UMFERÐ 3: sægrænn
UMFERÐ 4-5: púður

LITASAMSETNING 18:
Loftlykkjuhringur í byrjun á umferð + UMFERÐ 1: púður
UMFERÐ 2: bleikfjólublár
UMFERÐ 3: ljós fjólublár
UMFERÐ 4-5: púður

FRÁGANGUR:
Leggið hekluðu ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Númer í mynsturteikningu sýnir hvar mismunandi litasamsetningarnar eiga að vera. Númer með A að aftan sýna 18 fyrstu litasamsetningarnar sem voru heklaðar og númer með B að aftan sýna síðustu 18 litasamsetningarnar sem voru heklaðar (þ.e.a.s. þeir ferningar sem heklaðir voru með gagnstæða liti í 2. og 3. umferð).
Það getur verið gott að festa ferningana saman tímabundið með því að hnýta þá saman með þræði, þannig að þeir færist ekki úr stað of mikið þegar frágangur er gerður.

Leggið ferningana með röngu að röngu og heklið frá réttu með púður í gegnum bæði lögin á ferningunum. Heklið frá ör 1 meðfram breiðari línunni og síðan þversum niður að stjörnu á milli 6A og 4B þannig – sjá teikningu:
Heklið 1 fastalykkju um loftlykkjuboga yst í horn á 2 hekluðu ferningunum, * heklið 6 loftlykkjur, (1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur), heklið frá (-) 3 sinnum til viðbótar, heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í horni, 2 loftlykkjur (= í skiptingu á milli 2 ferninga), 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga í horni (= nýr ferningur) *, heklið frá *-* þar til 7 ferningar hafa verið heklaðir saman með ferning við hliðina á (þ.e.a.s. fram að 6A) en endið með eina fastalykkju um síðasta loftlykkjubogann í horni. Nú er heklað áfram meðfram breiðari línunni og niður að stjörnu: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í horni (þ.e.a.s. sama loftlykkjuboga og ferningur 4B og loftlykkjuboga í horni á 6A) og haldið áfram að hekla saman alveg eins og áður niður að stjörnu, en endið með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni. Klippið frá og festið enda.

Heklið alveg eins frá ör 2, ör 3, o.s.frv. þar til allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman. Klippið frá og festið enda.

KÖGUR:
Klippið frá 16 þræði í litnum púður ca 26 cm, leggið þá saman tvöfalda. Notið heklunál og dragið miðju á þráðunum í gegnum loftlykkjubogann í horni yst á hlið í 6A, dragið í gegnum endana á kögrinu og herðið að. Festið kögur meðfram öllum neðri kanti á sjalinu, í annan hvern loftlykkjuboga. Til að kögrið hangi fallega er hægt að dýfa því í vatn/spreyja það með vatni, hrista það til og hengja sjalið upp yfir stól eða álíka þannig að kögrið hangi niður þegar það þornar.

Mynstur

symbols = heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Svartur punktur í hring er byrjun á umferð
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhring
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan er hekluð 1 keðjulykkja um fyrstu loftlykkju
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan er hekluð 1 keðjulykkja um fyrstu loftlykkju
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur upp að toppi á fyrsta loftlykkjuboga.
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og haldið síðan áfram um fyrsta loftlykkjuboga í umferð
symbols = 12 loftlykkjur
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Debbie Bullen wrote:

Thank you for your reply. I have used this technique on another Drops blanket but the sunburst shawl instructions indicate that dc bd chains should be worked with two squares on top of each other (wrong side to wrong side) as opposed to working from one to the other making the zig zig pattern. Can I confirm that that is correct. Hope I'm making sense. Thanks very much.

04.08.2020 - 16:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bullen, oh oops you are right sorry, these squares are worked together from RS, this means you will crochet the dc around both chain spaces ( of each square), with the chains in between. I don't think we have a video for this technique, but you just have to work the squares together from WS chain between dc and work the dc around the ch-spaces of both squares, this way, the squares will be next to each other tighter than with the other technique. Happy assembly!

05.08.2020 - 07:46

country flag Debbie Bullen wrote:

Thank you for the lovely pattern. This is the first time using a diagram to crochet and the squares are really lovely. However, I'm finding it difficult understanding the assembly and wondered whether there was a better tutorial to follow. I have watched the recommended tutorial but it is not the same by the look of the instructions in the Sunburst Shawl. Any help would be great. Thank you.

04.08.2020 - 11:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bullen, this video shows for another pattern how to crochet squares together - the technique is the same as for the shawl, you will just here crochet 4/6 chains between each dc and work 1 dc in each chain-space - but this should help you to understand the technique of crochet together. Happy crocheting!

04.08.2020 - 13:45

country flag Margaret K Weller wrote:

Utter Beauty!

22.06.2019 - 19:26

country flag Ola wrote:

Dlaczego schemat jest inny niż kwadraty przedstawione w chuście ? Proszę o odpowiedź.

01.07.2018 - 14:39

DROPS Design answered:

Witaj Olu, wg mnie schemat się zgadza. Czy już zaczęłaś go wykonywać? Jeśli tak napisz co według Ciebie się nie zgadza, sprawdzimy. Pozdrawiamy

02.07.2018 - 21:30

country flag Birgitta Svaneblom wrote:

Hej. Den är så vacker låt den bli med

21.12.2017 - 19:21