DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

California Dream

Heklaður toppur með gatamynstri og blúndu úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.

DROPS 190-21
DROPS Design: Mynstur cm-091
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 01, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – fyrir uppfitjunarlykkjur.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.

HEKLLEIÐBEININGAR-1 (á við um fram- og bakstykki, en ekki mynsturteikningu):
Fyrsta stuðli í byrjun hverrar umferðar er skipt út fyrir 3 loftlykkjur.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um fram- og bakstykki, en ekki mynsturteikningu):
Þegar heklað er í hring er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum með því að hekla 2 stuðla saman.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda stuðla í umferð (t.d. 146 stuðlar) og deilið stuðlunum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 6,6.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul til skiptis í ca. 6. og 7. hvern stuðul.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður, framstykki og bakstykki er heklað hvort fyrir sig niður að handveg, síðan er heklað í hring yfir bæði stykkin. Síðan eru hlýrar / bönd heklað neðan frá og upp og að lokum er hekluð blúnda fram og til baka á hlýra / bönd, blúndan er saumuð við fram-/bakstykki.

FRAMSTYKKI:
Heklið 51-53-53-55-57-59 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 5 með Cotton Merino. Skiptið um heklunál 4, snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 47-49-49-51-53-55 loftlykkjum = 49-51-51-53-55-57 stuðlar.
Í næstu umferð byrjar útaukning í hvorri hlið á stykki JAFNFRAMT er mynstur heklað þannig:
Aukið út um 1 stuðul hvoru megin á stykki (= 2 stuðlar fleiri) – lesið ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út í hverri umferð alls 3-5-8-13-14-15 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 5-5-3-0-0-0 sinnum = 65-71-73-79-83-87 stuðlar í síðustu umferð.
Næsta umferð er hekluð þannig – með byrjun frá réttu: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1 – heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 0-1-1-2-3-4 stuðlum, A.1a yfir næstu 10 stuðla, endurtakið A.1b yfir næstu 30 stuðla (= alls 5 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 9 stuðla og 1 stuðul í hvern af síðustu 0-1-1-2-3-4 stuðlum. Haldið áfram þar til A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið síðan þannig – með byrjun frá röngu: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 1 stuðull er eftir á undan fyrsta loftlykkjuboga, heklið A.2c, endurtakið A.2b alls 3 sinnum á breidd, A.2a og 1 stuðull í hvern stuðul út umferðina. Haldið áfram þar til A.2 hefur verið heklað á hæðina.
Heklið síðan þannig – með byrjun frá röngu: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að fyrsta loftlykkjuboga, heklið A.3 og 1 stuðul í hvern stuðul út umferðina. Haldið áfram þar til A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina. Heklið síðan 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 14-15-15-16-16-17 cm. Klippið frá og festið enda, snúið. Geymið stykkið.

BAKSTYKKI:
Heklið 51-53-53-55-57-59 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 5 með Cotton Merino. Skiptið yfir í heklunál 4, snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 47-49-49-51-53-55 loftlykkjur = 49-51-51-53-55-57 stuðlar.
Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT er aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð alls 8-10-11-13-14-15 sinnum = 65-71-73-79-83-87 stuðlar í síðustu umferð. Þegar stykkið mælist 14-15-15-16-16-17 cm (stillið af eftir framstykki), klippið frá og festið enda, snúið.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið nú bæði stykkin saman þannig:
Heklið 4-4-7-8-12-15 loftlykkjur fyrir handveg, 1 stuðull í hvern af 65-71-73-79-83-87 stuðlum frá bakstykki, heklið 8-8-14-16-24-30 loftlykkjur fyrir handveg, 1 stuðull í hvern af 65-71-73-79-83-87 stuðlum frá framstykki, heklið 4-4-7-8-12-15 loftlykkjur fyrir handveg og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Heklið síðan stykkið í hring, haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju = 146-158-174-190-214-234 stuðlar. Þegar heklað er í hring er snúið við á eftir hverja umferð þannig að heklað er í annað hvert skipti frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að áferðin verði eins á allri flíkinni – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-14-16-24-30 loftlykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8-9-10-11-12-13 cm.
Heklið nú í hring eftir mynsturteikningu A.4 jafnframt því sem aukið er út í fyrstu umferð (umferð merktri með ör í mynsturteikningu) þannig: Heklið A.4b alls 28-30-33-36-39-43 sinnum í umferð – A.4a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð í viðbót við A.4b – JAFNFRAMT er aukið út um 11-11-12-13-10-12 loftlykkjuboga (= 1 stuðull + 1 loftlykkja) jafnt yfir - sjá ÚTAUKNING-2 = 84-90-99-108-117-129 loftlykkjubogar (= 1 stuðull + 1 loftlykkja). Haldið áfram hringinn, þ.e.a.s. mynstrið er alltaf heklað frá réttu. Þegar A.4 er lokið á hæðina, klippið frá og festið enda.

BAND / HLÝRI Á ÖXL:
Heklið nú band / hlýra á öxl fram og til baka í uppfitjunarkanti á framstykki yfir fyrstu 8-9-9-9-10-10 stuðla. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til bandið / hlýri mælist 10-10-11-11-12-12 cm. Klippið frá og festið. Heklið annað band / hlýra yfir fyrstu 8-9-9-9-10-10 stuðla í hinni hliðinni alveg eins. Heklið á sama hátt og á bakstykki. Saumið böndin / hlýrana saman á öxlum.

BLÚNDA:
Heklið fram og til baka yfir hverja umferð frá bandi / hlýra á öxl (= 20-20-22-22-24-24 cm). Byrjið frá röngu og heklið 1 stuðul í fyrstu umferð, * 1 loftlykkja, 1 stuðull um umferð *, heklið frá *-* meðfram öllu bandinu / hlýra á öxl – stillið af þannig að það verða 26-26-28-28-30-30 loftlykkjubogar (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) í þessari umferð, endið með 1 stuðul í síðustu umferð = 1 stuðull í hvorri hlið og 26-26-28-28-30-30 loftlykkjubogar (= 1 loftlykkja + 1 stuðull). Snúið og heklið þannig – frá réttu: A.5a, A.5b alls 13-13-14-14-15-15 sinnum á breidd, endið með A.5c. Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.5 er lokið á hæðina, klippið frá og festið enda. Heklið blúndu á hitt bandið / hlýra á öxl á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul/ 2 fastalykkjur um hverja stuðulaumferð meðfram öll hálsmálinu.

KANTUR Á ERMUM:
Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul/ 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð meðfram handveg – byrjið strax eftir blúndu, heklið meðfram handveg og fram að blúndu. Geymið leggið blúndukant kant í kant við þennan ermakant (bæði á fram- og bakstykki) og saumið niður með smáu fallegu spori.
Heklið hinn kantinn á sama hátt og saumið blúndukantinn niður.

SNÚRA:
Klippið 3 þræði ca 3 metra með Cotton Merino. Tvinni þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum fyrstu gataumferð á fram- og bakstykki – byrjið við miðju að framan. Hnýtið slaufu að framan.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = hálfur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkjuboga
symbols = þríbrugðinn stuðull um loftlykkja
symbols = umferð byrjar með 1 loftlykkju. Umferð endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferð byrjar með 3 loftlykkjum. Umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferð byrjar með 5 loftlykkjum. Umferð endar með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð - byrjið á næstu umferð!
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

California Dream

Kathryn Baker, New Zealand

California Dream

Sonia, Switzerland

California Dream

Susan, Germany

California Dream

agusiowa, Poland

California Dream

Joan, Singapore

California Dream

Luciana, Italy

California Dream

Victoria's knits, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (159)

country flag Ana Maria wrote:

Buenos días, me acabo de dar cuenta que se empieza por arriba así que así si me cuadra más el patrón. Perdón por las molestias ocasionadas estoy iniciandome en el ganchillo. Gracias y disculpas.

01.09.2022 - 02:32

country flag Ana María wrote:

Buenos días, en relación al patrón al hacer el delantero para el escote ponéis los diagramas A1, A2 y A3 y creo que el orden es al revés para que salga el pico sería A3, A2 y A1. Gracias.

01.09.2022 - 00:55

country flag Ana María wrote:

Buenos días, estoy haciendo este modelo según el patrón y el delantero no me coincide la forma del escote con el de la foto del chaleco ya acabado. Gracias y saludos.

01.09.2022 - 00:48

country flag Zeenat wrote:

Thanks for the prompt response. Now I get it. One more doubt - does the increase happen throughout the whole front piece? I.e. from A1 to A3?

13.08.2022 - 14:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Zeenat, you increase only 3 times on every row then 5 times on every other row - and at the same time work diagrams A.1 as explained - increases will be worked before starting A.2. Happy crocheting!

15.08.2022 - 08:21

country flag Zeenat wrote:

Hi This is for the front piece. I have worked 65 double crochets, it is called the last row. Does it mean I have to end it here? Now I can’t understand from where to begin the next row which reads as “Work next row as follows, begin from right side: Read CROCHET TIP-1 – work 1 double crochet in each of the first 0…

11.08.2022 - 15:15

DROPS Design answered:

Dear Zeenat, you have increase on both sides (to get 65 sts on last row) and at the same time work the pattern, this means the first row in pattern with diagrams A.1a,b,c is worked over the 49 sts increasing 1 stitch on each side. Happy crocheting!

11.08.2022 - 16:31

country flag Fondia wrote:

I'm rather confused. I am talking about the California dreams pattern. The A1 through a five are those a different type of stitch? If so what stitch? The pattern starts from the bottom of the top section and goes up correct ? As you can probably tell I'm used to making my own patterns not reading one. Thank you for your help I really want to do this and I really really wanted to turn out nice. Fondia

28.07.2022 - 05:34

DROPS Design answered:

Dear Fondia, A.1 to A.5 are the graphs with the stitch patterns used in this model. You can find all graphs, with the graph descriptions, in the lower part of the page, after the pattern instructions. For more help reading these diagrams, please check the following link:https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19 You work from the top down, the front and back piece separately until the armhole and then you work them both together ("body") downwards, until reaching the desired measurements. Happy crocheting!

31.07.2022 - 17:40

country flag Oddrun Haland wrote:

Hei I A.4b Når man øker - lurte på om det er en luftmaske mellom de to stavene i samme masken, alså stav + luftmaske + stav i den samme masken?

08.07.2022 - 15:28

country flag Karine wrote:

Bonsoir, j'adore ce top il est trop joli, je suis debutante dans le. Crochet et je souhaite me lanser avec ce beau modèle. J'en suis au toit début. J'ai fait mon 1er rand de brides (51) maintenant je dois repartir mes 5 augmentation toutes 10 les brides . Mais pdt combien de cm ou rangs et idem concernant tous les 2 rangs ? Merci par avance

06.07.2022 - 21:52

DROPS Design answered:

Bonjour Karine, vous devez maintenant augmenter 1 bride de chaque côté (= cf AUGMENTATIONS-1. ), et, en même temps, crocheter comme indiqué juste après, autrement dit: 1 bride (+ 1 augmentation), A.1a (=10 brides), A.1b (=5x), A.1c (9brides) et 1 bride (+1 augmentation), continuez ainsi en augmentant d'abord 5 fois tous les rangs puis 3 fois tous les 2 rangs (= vous aurez crocheté 8 rangs au total et augmenté 16 mailles - quand A.1 est terminé, continuez comme indiqué avec les diagrammes A.2. Bon crochet!

07.07.2022 - 08:54

country flag Kelly Sierra wrote:

Hola 👋 esta muy linda la blusa y quisiera hacerla pero quiero saber como iniciar para una talla m, y con cuantos puntos debo empezar le agradezco me ayude o más bien cm empezar con todas tallas , y se podrá hacer para niñas de 3 años también? Yo me vi un video de como hacerla pero no explica muy por que habla es de talla chica , mediana , así casi no entiendo 🤔 espero y me ayude porque esta muy linda y quiero hacerla gracias 🙂

08.06.2022 - 13:22

DROPS Design answered:

Hola Kelly. Para la talla M se empieza con 53 puntos de cadeneta (es el 2ª número de puntos en las instrucciones y de medidas en el diagrama bajo el patrón). No tenemos este modelo en versión para niños y no hacemos patrones personalizados.

08.06.2022 - 20:03

country flag Nathalie De Taeye wrote:

Bonjour, j ai fait les augmentations pour avoir 65 brides. Maintenant je dois faire A1a sur 10, A1b sur 30 et A1c sur 9. Ça fait 49. Je ne comprends pas comment passer de 65 à 49. Merci pour la réponse

30.05.2022 - 11:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme De Taeye, les augmentations se commencent au même rang que le 1er rang de A.1, autrement dit, vous devez crocheter les 49 brides en augmentant 1 bride de chaque côté au 1er rang: en M: 1 bride en augmentant 1 bride, A.1a, A1b, A.1c et terminez par 1 bride en augmentant 1 bride et ainsi de suite. Bon crochet!

30.05.2022 - 13:36