DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Myosotis Cardigan

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og ¾ ermum með blúndu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Cotton Merino.

DROPS 191-36
DROPS Design: Mynstur cm-086
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-450-500-550-650-700 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-100 g litur 29, sægrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 10, pistasía
50-50-50-50-50-50 g litur 26, stormblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Cotton Merino 01, 17, 29, 15.
B) DROPS Cotton Merino 16, 01, 21, 09.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi lykkjum jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 2,8.
í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 3. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónuð ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. Ekki er aukið út yfir kanta að framan.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 8 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 16 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kant að framan):
Í umferð með mynsturbekk á berustykki er prjónað með grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverjum samskeytum á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til eftir eru 3 lykkjur í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir kant með garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagöt með ca 7½-7½-8-7½-7½-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykki verði aðeins hærri í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun aðeins neðar í uppskrift.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 110-116-120-126-130-136 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum pistasía. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 36-39-44-38-43-46 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 146-155-164-164-173-182 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður slétt). Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð mitt í umferð (í S, L, XL og XXXL er merkiþráðurinn er settur á milli 2 miðju lykkjur, í M og XXL er merkirþráðurinn settur í miðjulykkju = miðja að aftan). Byrjið frá réttu með litnum pistasía og prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði/lykkju með merkiþræði í, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-33-34-36-39-40 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45-49-51-54-58-60 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-68-72-77-80 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-81-85-90-96-100 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt).

BERUSTYKKI:
= 146-155-164-164-173-182 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2!
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15-16-17-17-18-19 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.1A er aukið út um 21-36-27-39-54-45 lykkjur jafnt yfir = 167-191-191-203-227-227 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 13-15-15-16-18-18 mynstureiningar með 12 lykkjum).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu með litnum natur þar sem aukið er út um 4-0-0-8-4-4 lykkjur jafnt yfir = 171-191-191-211-231-231 lykkjur (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni og ekki er aukið út yfir kanta að framan).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 8-9-9-10-11-11 mynstureiningar með 20 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2A. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 251-281-281-311-341-341 lykkjur í umferð. Prjónið síðan með natur til loka.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-1-9-11-1-9 lykkjur jafnt yfir = 258-282-290-322-342-350 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (prjónið brugðið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið): Prjónið 41-44-46-51-56-59 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 52-58-58-64-64-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 72-78-82-92-102-108 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 52-58-58-64-64-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki og prjónið þær 41-44-46-51-56-59 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Nú eru 4 prjónamerki í stykkinu.
Í næstu umferð (rétta) er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-5-7-7-8-9 sinnum = 290-322-346-378-406-422 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 45-49-53-58-64-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-68-72-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-96-106-118-126 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-68-72-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 45-49-53-58-64-68 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Takið frá öll prjónamerki.
Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 186-202-222-242-270-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 49-53-58-63-70-75 lykkjur inn frá hvorri hlið = 88-96-106-116-130-140 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir hnappagati í hægri kanti að framan.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 202-218-238-258-286-306 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 200-219-238-257-295-314 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 10-11-12-13-15-16 mynstureiningar með 19 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 280-307-334-361-415-442 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-68-72-78-80-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-82-88-92-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi og byrjið umferð við prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 8-11-13-15-16-15 sinnum = 52-54-56-58-60-64 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 25-23-22-20-19-17 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Prjónið síðan 2 umferðir slétt og aukið JAFNFRAMT út 16-14-12-10-25-21 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 68-68-68-68-85-85 lykkjur. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og prjónið A.4 hringinn (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 17 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 108-108-108-108-135-135 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Ermin mælist ca 34-32-31-29-28-26 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með natur
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með pistasía
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með sægrænn
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með stormblár
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu með natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með natur, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með natur, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman með natur
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt með natur, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman með natur, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Maritha wrote:

Hej Undrar var beskrivningen till den gula koftan finns? Något måste ha blivit fel. Mvh

06.09.2020 - 17:27

DROPS Design answered:

Hej Maritha. De färgerna du ser på bilden märkt med A är DROPS Cotton Merino 01, 17, 29, 15 (den första färgen ersätter den första färgen i mönstret under garnåtgång osv). Mvh DROPS Design

08.09.2020 - 08:37

country flag Marjan Van Riel wrote:

Aan het einde van de mouw moet ik patroon A4 breien, deze kan ik echter niet meer vinden bij het patroon, is A4 weggehaald?

06.06.2020 - 17:38

DROPS Design answered:

Dag Marjan,

Nee, hij staat er wel bij hoor, het is het onderste telpatroon, direct boven de maattekening. Misschien dat hij tijdelijk niet goed geladen werd...

07.06.2020 - 14:14

country flag Willa Strahle wrote:

There are no notations in how many inches for s-m-l, etc. Am ready to start but need to know that before I start. Thank you.

04.04.2019 - 21:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Strahle, all measurements in the chart are in cm - convert and read more about sizing here. Happy crocheting!

05.04.2019 - 09:53

country flag Jennie wrote:

Ska diagrammet verkligen se ut så? Likadant i diagrammet för den som är en pullover. I A2, så är den högra blomman väldigt skev jämfört med den vänstra. Ser inte ut så när man tittar på bilderna på den färdiga tröjan. Fler har kommenterat på detta i mönstret för pullover-varianten men ni har inte besvarat dem eller ändrat i mönstret.

12.05.2018 - 04:45

DROPS Design answered:

Hei Jennie. På grunn av økningen på den 19 omgangen av A.2a blir mønsteret forskjøvet med 1 maske fra omgang 20 og oppover - dette for at det skal gå opp med både masketall og mønster. Det blir pent og vil ikke virke skjevt på den ferdige genseren. God fornøyelse.

16.05.2018 - 09:49

country flag Guillaumond wrote:

Pourquoi faites vous les modèles tricotés de haut en bas sachant que le suivi du tricot est beaucoup plus difficile à contrôler de cette façon. Je tricote depuis très longtemps et je ne trouve pas que cette méthode soit un plus , pouvez-vous me dire quelles sont les raisons de cette méthode ?

18.04.2018 - 16:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Guillaumond, cette technique est de plus en plus plébiscitée par nos utilisatrices, elle permet notamment de pouvoir essayer l'ouvrage au fur et à mesure et de faire des ajustements individuels (longueur par exemple). Bon tricot!

19.04.2018 - 09:17

country flag Montse Martínez wrote:

Precioso patrón, bonitos colores.

15.04.2018 - 22:48

country flag Gunilla Anttila wrote:

Fin den vill jag sticka.

02.01.2018 - 12:10

country flag Conny wrote:

Gelungene Kombination aus Blumenmotiv und Muschelmuster, die möchte ich nacharbeiten

18.12.2017 - 13:46