DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Serafina

Prjónaður kjóll fyrir börn með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð 0-4 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS Alpaca.

DROPS Baby 31-17
DROPS Design: Mynstur z-100-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-150-150 (150-150) g litur 4305, fjólublár/grár/blár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Blóm (hvít) NR 600: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (fyrst A.2a, svo A.2b og A.2c) Veldu mynstur fyrir rétta stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 168 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 28. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 27. og 28. hver lykkja saman.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur með garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 168-180-204-228 (252-276) lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 84-90-102-114 (126-138) lykkjur, prjónamerkin merkja hliðar á stykki. Prjónið A.1 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 14-15-17-19 (21-23) sinnum á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 8 cm. Prjónið síðan A.2 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 14-15-17-19 (21-23) sinnum á breidd). Í umferð merktri með ör er lykkjum fækkað jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1. Í hvert skipti sem fækkað hefur um 12 lykkjur er prjónuð 1 mynstureiningu færri af A.2 á breiddina. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 108-120-132-156 (156-180) lykkjur í umferð (= 54-60-66-78 (78-90) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin).

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
PRJÓNIÐ MYNSTUR JAFNFRAMT ÞVÍ SEM FELLT ER AF FYRIR HANDVEG ÞANNIG:
MYNSTUR:
Haldið áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er stykkið prjónað áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Stykkið mælist ca 27-27-33-33 (39-39) cm.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 24-26-31-36 (41-44) cm, prjónið þannig: Prjónið 9 lykkjur garðaprjón, prjónið mynstur/garðaprjón eins og áður, en fækkið um 4-4-4-8 (2-6) lykkjur jafnt yfir þar til eftir eru 9 lykkjur á undan næsta prjónamerki, prjónið 18 lykkjur garðaprjón, prjónið mynstur/garðaprjón eins og áður, en fækkið um 4-4-4-8 (2-6) lykkjur jafnt yfir þar til eftir eru 9 lykkjur í umferð, endið með 9 lykkjur garðaprjón = 100-112-124-140 (152-168) lykkjur alls (= 50-56-62-70 (76-84) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Prjónið svona áfram þar til stykkið mælist 25-27-32-37 (42-45) cm. Fækkið lykkjum fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið mynstur þar til eftir eru 9 lykkjur á undan næsta prjónamerki, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, fellið af næstu 12 lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið mynstur eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur garðaprjón og fellið af síðustu 6 lykkjur. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Stykkið er nú prjónað fram og til baka.
= 38-44-50-58 (64-72) lykkjur. Haldið áfram með mynstur og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki.
Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir handveg innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki – lesið ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-4-5-4 (4-5) sinnum = 32-36-40-50 (56-62) lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-34-40-46 (52-56) cm fellið af miðju 16-18-22-24 (26-26) lykkjur fyrir hálsmáli = 8-9-9-13 (15-18) lykkjur á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð hvor fyrir sig.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón út að handveg eins og áður þar til stykkið mælist alls 34-36-42-48 (54-58) cm. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Sauma á þessa öxl síðar saman við vinstri öxl á framstykki.

HÆGRI ÖXL:
Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón út að handveg eins og áður þar til stykkið mælist alls 34-36-42-48 (54-58) cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Í þessa öxl á að sauma síðar tölurnar í.

FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 30-32-37-42 (48-51) cm. Nú eru felldar af miðju 10-12-16-16 (18-18) lykkjurnar fyrir hálsmáli = 11-12-12-17 (19-22) lykkjur á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
Fellið af 1 lykkju í hverri umferð frá hálsi alls 3-3-3-4 (4-4) sinnum = 8-9-9-13 (15-18) lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-34-40-46 (52-56) cm prjónið áfram í sléttprjóni með 3 lykkjur í garðaprjóni út að handveg. Þegar stykkið mælist 34-36-42-48 (54-58) cm fellið af fyrir 2 hnappagötum frá réttu þannig: Prjónið 1-1-1-2 (3-3) lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 hnappagat), prjónið 2-2-2-4 (5-8) lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 hnappagat), endið með 1-2-2-3 (3-3) lykkjum með garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð (= frá röngu).

VINSTRI ÖXL:
Fellið af 1 lykkju í hverri umferð frá hálsi alls 3-3-3-4 (4-4) sinnum = 8-9-9-13 (15-18) lykkjur.
Prjónið áfram í sléttprjóni með 3 lykkjum í garðaprjóni út að handveg eins og áður þar til stykkið mælist alls 34-36-42-48 (54-58) cm. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Sauma á þessa öxl síðar saman við vinstri öxl á bakstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í hægri öxl á bakstykki. Saumið saman vinstri öxl með lykkjuspori.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Byrjið við hægri öxl á bakstykki og prjónið upp 46-70 lykkjur í kringum háls, frá réttu. Prjónið 3 umferðir slétt, fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.06.2019
Leiðrétting - VINSTRI ÖXL:Fellið af 1 lykkju í hverri umferð frá hálsi alls 3-3-3-4 (4-4) sinnum = 8-9-9-13 (15-18) lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = takið 2 lykkjur saman óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = í þessari umferð er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir
symbols = í þessari umferð er fækkað um 12 lykkjur jafnt yfir
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Serafina

Enni / Tänkimäätein, Finland

Serafina

Dalmazia Lodi Rizzini, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (101)

country flag Carola Hosang wrote:

På det sista diagrammet A2b är det sista hålmönstret placerat precis ovanför det första hålmönstret. Men när man tittar på er bild på färdiga klänningen så är det sista hålmönstret placerat mittemellan första hålmönstret. Det verkar vara fel på sista diagrammet, hur ska jag göra för att få hålmönstret att hamna mittemellan?

16.11.2019 - 12:28

DROPS Design answered:

Hej Carola, det beror på vilken storlet du stickar. Men du får gärna själv flytta på hålmönstret, om du flyttar det 5 maskor kommer det i mitten. Gör gärna ett litet stickprov så du ser hur det kommer att se ut :)

21.11.2019 - 15:15

country flag Annam wrote:

Hej! Jag har börjat på diagram A.1 och ska börja på rad 15.. dock förstår jag inte riktigt. Ska jag först sticka en rät maska sedan ett omslag därefter en minskning ? Eller ska jag sticka direkt på omslaget därefter direkt från omslaget en minskning? Tack på förhand!

13.11.2019 - 21:41

DROPS Design answered:

Hei Annam! Du skal strikke 1 maske rett, 1 kast, ta en maske løst av strikk neste maske rett og løft den løse masken over den strikkede masken. Strikk 5 masker rett, strikk 2 m sammen, 1 kast og strikk 2 masker rett. Lykke til!

14.11.2019 - 13:20

country flag MAThelu wrote:

Pour finir je ne comprends pas l'explication de DIMINUTIONS-1 Vous donnez un exemple pour la taille la plus petite 168 m OK mais à quoi correspond le nombre de diminutions indiqué = 6 puisqu'il faut diminuer de 12 mailles /tour? Dans mon cas si je divise 228 par 12 = 19 je tricote ensemble les 18 et 19ème maille. Est-ce bien ça?

04.10.2019 - 08:56

DROPS Design answered:

Bonjour MAThelu, en taille 12/18 mois (= 80/86 cm), on va d'abord diminuer 6 mailles - cf réponse précédente donc on divise 228/6=38, on va tricoter *36 m, 2 m ens à l'end* et répéter de *-* tout le tour il reste 222 m après le 1er tour de diminutions. Bon tricot!

04.10.2019 - 09:55

country flag MAThelu wrote:

Bonjour et merci pour votre réponse mais je pense que je me suis mal expliquée. Il faut donc bien diminuer 12 mailles à chaque tour? c'est à dire que dans mon cas (228 m) au bout du rang j'aurai 228-12 mailles? Ensuite il faut suivre le diagramme pour savoir quand refaire ces diminutions, or il y 3 diagrammes avec chacun des indications différentes en bas de schéma :92-98/104 - 68/74 et 80/86 - 48/52 et 56/62 A quoi correspondent ces indications? Bonne journée

04.10.2019 - 08:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mathelu, en taille 12/18 mois, vous suivez les diagrammes A.2a et A.2b en stature 80/86, autrement dit, vous allez d'abord diminuer 4 fois 6 mailles dans A.2a = rangs avec étoile, puis (rangs avec un point noir): 1 x 12 m dans A.2a + 3 x 12 m dans A.2b soit 72 diminutions au total, il restera 228-72= 156 m quand A.2b est terminé. Bon tricot!

04.10.2019 - 09:53

country flag MAThelu wrote:

Bonjour, j'ai repris le tricot pour réaliser le modèle baby 31-17 et je but sur l'explication des diminutions. Je fais ce modèle taille 12/18 mois, j'ai donc 228 mailles. Je suis à l'étape ou je vais tricoter A.2 mais je ne comprends pas l'explication des diminutions. Pouvez-vous m'aider? Merci d'avance MA

03.10.2019 - 21:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mathelu, vous allez simplement diminuer 12 mailles à intervalles réguliers (cf leçon) à chacun des rangs avec une flèche, comme A.2 se tricote sur 12 mailles, on répète A.2 1 fois de moins en larguer à chaque rang de diminutions. Bon tricot!

04.10.2019 - 08:12

country flag Jasmin wrote:

Ik brei de grootste maat van Serafina. Kan het zijn dat ik bovenkant schouder aan de voorkant 18 st uitkom en aan de achterkant 14 st? Dit staat bij achterpand: 18) steken op elk schouder. Eindig nu elk schouder apart. LINKER SCHOUDER: Kant 1 steek af op iedere naald vanaf de hals 3-3-3-4 (4-4) keer in totaal = 8-9-9-16 (15-18) steken. Dit klopt toch niet als je 18 st op schouder overhoudt en dan 4 afzet = 14 st Dank u en groetjes

03.10.2019 - 14:13

DROPS Design answered:

Dag Jasmin,

Inderdaad denk ik ook dat er een foutje in zit en ik denk dat het aantal af te kanten steken midden achter 10-12-16-16 (18-18) moet zijn, zodat je 18 steken over houdt op elk schouder. Ik heb het even doorgegeven aan de ontwerp afdeling om te controleren, zodat er een correctie op het patroon kan komen.

03.10.2019 - 18:36

country flag Jasmin wrote:

Ik brei de grootste maat, maar ik kom met 3 bolletjes niet toe hoor. Ik heb er zeker 5 nodig.

11.09.2019 - 15:27

country flag Karina Jensen wrote:

Venstre skulder bagstykket. Der er en fejl? 9 masker - 3 indtagninger = 9??

24.08.2019 - 21:29

DROPS Design answered:

Hej. Det var fel i den danska översättningen (vänster skulder på framstycke och bakstycke hade blandats om), men detta är nu rättat. Beklagar det och lycka till vidare!

26.08.2019 - 08:21

country flag Karina Jensen wrote:

Har svær ved at gennemskue skuldre på Bagstykket. Der må altså være en fejl. Str 68/74: luk de midterste 22 masker. 9 tilbage på hver skulder. Luk 1 maske på hver pind fra halsen 3 gange =9 masker? 9-3=9??

24.08.2019 - 21:27

DROPS Design answered:

Hej. Se svar ovan. Mvh DROPS Design

26.08.2019 - 08:40

country flag Erika wrote:

Ich habs gefunden... es stand ganz oben...

15.08.2019 - 02:05