DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 31-9
DROPS Design: Mynstur z-101-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Í ALLT SETTIÐ ÞARF:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200 (200-200) g litur 2923, gulur
50-50-50 (50-50) g litur 618, ljós beige

-----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: (0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS ALPACA från Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(150) 150-150-150-200 (200-200) g litur 2923, gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 fyrir stroff -eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferð með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: (5) 6-7-7-7 (7-8) st
----------------------------------------------------------

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2- 3/4) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 (50-50) g litur 618, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferð með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 2 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

LASKALÍNA (á við um peysu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona við hvert prjónamerki (= 2 lykkjur færri við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í umferð).

ÚRTAKA-1 (á við um sokka):
Fækkið um 1 lykkju á undan 1 lykkju brugðið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 lykkju brugðið þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.

ÚRTAKA FYRIR TÁ (á við um sokka):
Fækkið lykkjum 3 lykkjum á undan prjónamerki þannig: prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er fyrst prjónað fram og til baka. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna áður en fram- og bakstykki og ermar eru sett saman og prjónað áfram fram og til baka.
Kantur að framan er prjónaður á og kantur í hálsmáli er prjónaður í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp (90) 102-118-126-138 (146-162) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki, þar á kantur að framan síðar að prjónast upp) á hringprjón 2,5 með litnum gulur í DROPS Alpaca. Prjónið stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist (2) 2-3-3-3 (4-4) cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (9) 13-16-17-18 (21-23) cm fækkið síðan lykkjum fyrir ermi í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, (19) 22-25-27-30 (32-36) lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af næstu (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur, prjónið (38) 44-50-54-60 (64-72) lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), fellið af næstu (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur, prjónið (19) 22-25-27-30 (32-36) lykkjur í sléttprjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= vinstra framstykki) = (78) 90-102-110-122 (130-146) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring.
Fitjið upp (36) 36-36-36-40 (40-44) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum gulur í DROPS Alpaca. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 3, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með (2) 1½-1½-1-1 (1½-1½) cm millibili alls (3) 6-8-11-11 (13-14) sinnum = (42) 48-52-58-62 (66-72) lykkjur.
Þegar stykkið mælist (9½) 13-15½-17-19½ (23-27) cm fellið af fyrstu og síðustu (3) 3-4-4-4 (4-4) lykkjur (= alls (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur færri) = (36) 42-44-50-54 (58-64) lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = (150) 174-190-210-230 (246-274) lykkjur. Í fyrstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig, umferðin er prjónuð frá röngu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, (22) 25-28-31-34 (36-40) lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, (30) 36-38-42-46 (50-56) lykkjur með sléttprjóni, setjið 1 prjónamerki, (44) 50-56-62-68 (72-80) lykkjur með sléttprjóni, setjið 1 prjónamerki, (30) 36-38-42-46 (50-56) lykkjur með sléttprjóni, setjið 1 prjónamerki og endið með (22) 25-28-31-34 (36-40) lykkjur með sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið (3) 0-0-0-0 (0-0) umferð í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni á hvorri hlið á stykki.
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið LASKALÍNA! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu (= önnur hver umferð) alls (8) 11-12-14-16 (18-21) sinnum = (86) 86-94-98-102 (102-106) lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um (10) 10-10-14-14 (14-14) lykkjur jafnt yfir = (76) 76-84-84-88 (88-92) lykkjur.
Látið lykkjur verða eftir á hringprjóni, nú á að prjóna kant að framan á hvoru framstykki, síðan er prjónaður 1 kantur í hálsmáli yfir þessar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Prjónið upp (42) 58-70-74-78 (90-102) lykkjur frá réttu innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni við miðju að framan á hringprjón 2,5 með litnum gulur í DROPS Alpaca. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt. Þegar kantur að framan mælist ca 2 cm, fellið af allar lykkjur og passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri kantur að framan, en fellið af fyrir (4) 5-6-6-6 (6-7) hnappagötum jafnt yfir þegar kantur að framan mælist ca 1 cm (síðar er fellt af fyrir 1 hnappagati á kanti í hálsmáli þannig að fellt er af fyrir fyrsta hnappagati á kanti í hálsi ca 3-4 cm niður frá hálsi. Fellið af fyrir hnappagötum með ca 4-5 cm millibili, passið uppá að það sé gert í brugðnum lykkjum). 1 hnappagat = 2 lykkjur brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 5 lykkjur í hvorum kanti að framan á hvorri hlið á stykki innan við 1 lykkju og setjið allar lykkjur á hringprjón 2,5 = (86) 86-94-94-98 (98-102) lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm – fellið af fyrir hnappagötum með því að prjóna fyrstu 2 lykkjurnar brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= frá réttu). Fellið af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir hvorri ermi. Saumið tölur í vinstri kant að framan.
---------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 40-44-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós beige í DROPS Alpaca. Prjónið stroff í hring (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5-6-7 (9-10) cm.
Setjið síðustu lykkju sem var prjónuð á sama prjón og fyrstu 19-19-23 (23-27) lykkjur í umferð = 20-20-24 (24-28) lykkjur á prjóni fyrir hæl.
Aðrar 20-24-24 (28-28) lykkjur (= ofan á fæti) eru settar á þráð - stroff ofan á fæti kemur nú til með að byrja og enda með 1 lykkju brugðið.
Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3-4 (4-4) cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar lykkjur (= 10-12-12 (14-14) lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig:
UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 18-18-22 (22-26) lykkjur.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjurnar sléttar saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 16-16-20 (20-24) lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru og saumið þær saman í ystu lykkjubogana (= mitt undir fæti).
Prjónið síðan upp 24-24-28 (28-32) lykkjur í ystu lykkjubogana yfir hæl. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 44-48-52 (56-60) lykkjur. Haldið áfram að prjóna hringinn. ATH: Prjónið stroff yfir 20-24-24 (28-28) lykkjur ofan á fæti og sléttprjón yfir 24-24-28 (28-32) lykkjur undir fæti. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stroff ofan á fæti – lesið ÚRTAKA-1! Fækkið lykkjum svona 2 sinnum = 40-44-48 (52-56) lykkjur.
Þegar sokkurinn mælist 7½-8½-9 (11-12) cm frá aftast á hæl (nú eru ca 2½-2½-3 (3-4) cm til loka) skiptast lykkjurnar þannig að það verða 20-22-24 (26-28) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚRTAKA FYRIR TÁ!
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-6 (6-7) sinnum = 20-24-24 (28-28) lykkjur. Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman = 10-12-12 (14-14) lykkjur.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Little Penguin

Isidor Knits, Germany

Cardigan for my niece

ssaras, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag AUFFRET Marie wrote:

Bonjour, Comment fait-on pour assembler les manches au dos et devant ? Peut-on les assembler en tricotant sur l'envers puisqu'on a fini le dos et devant par un rang endroit pour rabattre les mailles des emmanchures.

09.11.2020 - 14:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Auffret, on glisse les mailles des manches sur la même aiguille circulaire que le dos et les devants, juste au-dessus des 6 ou 8 mailles rabattues pour les emmanchures à la fin du bas du gilet - cette vidéo montre comment faire, les premiers rangs peuvent paraître un peu difficile, mais après quelques rangs, c'est plus simple. Bon tricot!

09.11.2020 - 15:51

country flag Christiane wrote:

Hallo, wie muss ich die Maschen bei der Passe verteilen? Kann leider kein System erkennen, wie viele Maschen vom Rumpf und vom Ärmel jeweils gestrickt werden bis ein Markierer kommt. Ich habe insgesamt 246 Maschen, davon 34+1 jeweils außen am Rumpf, 68 in der Mitte vom Rumpf und jeweils 59 Maschen auf jedem Ärmel. Wo müssen die Markierer hin? Vielen Dank.

08.11.2020 - 01:47

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, mit 246 Maschen stricken Sie die Größe 2 Jahre - aber die Verteilung erfolft so: 1 Rand-M kraus rechts, 36 M glatt rechts stricken (= Vorderteil), 1 Markierer, 50 M glatt rechts stricken (= Ärmel), 1 Markierer, 72 M glatt rechts stricken (= Rückenteil), 1 Markierer, 50 M glatt rechts stricken (= Ärmel), 1 Markierer und 36 M glatt rechts und 1 Rand-M kraus rechts (= Vorderteil) - jetzt nehmen Sie für Raglan ab - siehe RAGLANABNAHMEN: in jeder 2. Reihe 18 Mal = 246 - (8 M x 18) = 102 M bleiben. Viel Spaß beim stricken!

09.11.2020 - 10:41

country flag Christiane Leischner wrote:

Ich möchte die Jacke in Gr. 122 stricken. Können Sie mir mit der Maschenzahl helfen? Danke

07.11.2020 - 09:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Leischner, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Hier finden Sie alle unsere Anleitungen für Jacken für Kinder, hoffentlich kann es Ihnen etwas helfen. Viel Spaß beim stricken!

09.11.2020 - 09:33

country flag AUFFRET Marie wrote:

Bonjour "Rabattre les mailles restantes et les assembler dans le brin le plus à l'extérieur des mailles (= milieu sous le pied)."Je ne comprends pas bien: comment faire? Avez-vous une vidéo? Merci d'avance.

02.11.2020 - 10:12

country flag Christiane Beyer wrote:

Hallo! Ich verstehe die Größenangaben nicht ganz, ganz oben gibt es 5 verschiedene Größen, in der Anleitung selber werden aber immer 7 mögliche Größen angegeben. Welche sind denn jetzt welche? Außerdem wüsste ich gerne, wie breit denn der Ärmel bei Größe 68/74 am unteren und am oberen Ende sein soll. Mein Ärmel scheint mir recht groß (evtl. habe ich die Maschenprobe falsch hoch gerechnet), deswegen wäre eine Angabe in cm super. Viele Grüße Christiane

24.10.2020 - 23:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Beyer, das Set ist nur für 5 Größen aber die Jacke ist in 7 Größe, dh die Größe 68/74 bei dem Set ist die 2. Größe = 6/9 Monate und bei der Jacke ist es die 4. Größe. Bei dieser Grösse haben Sie 36 M. am Anfang der Ärmel und 58 M am Ende, mit 24 M = 10 cm mist die Ärmel ca 15 cm und 24 cm. Viel Spaß beim stricken!

26.10.2020 - 08:14

country flag Karoline wrote:

Hej, jag undrar om det går lika bra att göra ärmarna på rundstickor som på strumpstickor ? Om ja, hur gör man då isåfall? På samma sätt som beskrivningen? Tack på förhand !

03.07.2020 - 15:11

DROPS Design answered:

Hej Karoline. Ja du kan sticka på rundsticka om du hellre vill det och du stickar då på samma sätt som det står i beskrivningen. Eftersom det är så få maskor så är det nog enklast att använda sig av tekniken magic loop om du ska sticka på rundsticka. Lycka till!

06.07.2020 - 08:42

country flag Antonia wrote:

Ich möchte das Material für die Jacke bestellen. Welchen Durchmesser sollen die Knöpfe haben?

01.06.2020 - 21:14

DROPS Design answered:

Liebe Antonia, hier finden Sie die Knöpfe, sie sind 15 mm durchmesser. Viel Spaß beim stricken!

02.06.2020 - 10:30

country flag Jacqueline wrote:

Kan ik aub de opmerkingen voor dit truitje in het Nederlands zien? Can I see the remarks for this cardigan in Dutch please?

28.04.2020 - 21:19

DROPS Design answered:

Dag Jacqueline,

De opmerkingen en vragen bij patronen worden niet automatisch vertaald. Iedereen kan in zijn eigen taal een opmerking of vraag plaatsen. Eventueel kun je google translate gebruiken.

Verder kun je gerust je vraag stellen hoor, ook al staan er al een aantal in andere talen.

29.04.2020 - 08:57

country flag Julie wrote:

Hej. Jeg har lidt problemer med ærmerne. Jeg har lukket af på retsiden (altså den side jeg strikker ret), hvilket vil sige jeg skal sætte ærmerne på vangsiden. Men hvis jeg gør dette vil ærmerne vende forkert - altså sidde på inderside af jakke og ikke vende ud af. Hvad er det jeg gør forkert?

10.04.2020 - 10:50

DROPS Design answered:

Hej Det går helt fint att sätta dit ärmarna på vrangsidan. Du stickar bara ärmarna från vrangsidan också så blir det riktigt. Lycka till! Mvh DROPS Design

22.04.2020 - 09:09

country flag Judith Mueller wrote:

Der Garnumrechner ist arg verbesserungswürdig, denn er lässt mich nicht alle Garne der Garngruppe A auswählen. Sehr benutzerunfreundlich! Warum liefert er nur eine begrenzte Auswahl an Garnen?\r\n\r\nIch werde die Jacke mit Drops Safran stricken und das benötigte Garn nun eben selbst ausrechnen.

21.03.2020 - 20:41