DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Celestina

Prjónuð samfella fyrir börn með gatamynstri og köðlum. Stærð fyrirburar – 4 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino.

DROPS Baby 31-6
DROPS Design: Mynstur nr bm-076-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: (0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
1(100) 100-100-150-150 (150-150) g litur 11, ísblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 - eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 fyrir stroff og kanta í garðaprjóni - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferð með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (hvít), NR 521: 5 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.16. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar ekki nægilega margar lykkjur eru á prjóni fyrir kaðal, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það á ekki að myndast gat.

LASKALÍNA:
Lykkjum er fækkað mismunandi á framstykki/bakstykki og á ermum – lesið ÚRTAKA!
FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Lykkjum er fækkað í hverri umferð frá réttu (= önnur hver umferð) þannig: Fækkið um 1 lykkju alls (7) 6-4-8-6 (3-0) sinnum, síðan 2 lykkjur alls (1) 4-6-5-7 (10-13) sinnum.
ERMI: Fækkið alls um 2 lykkjur á hvorri ermi í hverri umferð frá réttu (= önnur hver umferð) alls (6) 7-5-9-8 (6-3) sinnum, síðan í hverri umferð (4) 6-10-8-10 (14-20) sinnum.

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
BAKSTYKKI:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu á vinstra bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir 5 kantlykkjum að framan snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri).
Fækkið fyrir laskalínu á hægra bakstykki þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 5 kantlykkjum að framan slétt saman (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu á vinstra bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 3 lykkjur á eftir 5 kantlykkjum að framan snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið fyrir laskalínu á hægra bakstykki þannig: Prjónið 3 síðustu lykkjur á undan 5 kantlykkjum að framan slétt saman (= 2 lykkjur færri).
FRAMSTYKKI:
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU HVORU MEGIN VIÐ MIÐJULYKKJU: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki mitt að framan, lyftið 2 lykkjum saman eins og prjóna eigi þær slétt, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR HVORU MEGIN VIÐ MIÐJULYKKJU: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki mitt að framan, lyftið 3 lykkjum saman eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið 3 lyftu lykkjunum yfir 2 lykkjur sem prjónaðar voru saman (= 4 lykkjur færri).
ERMI:
Prjónið að prjónamerki í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar á ermi snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma, prjónið síðustu 2 lykkjur á ermi slétt saman (= 1 lykkja færri = alls 2 lykkjur færri á hvorri ermi).

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum á hægra framstykki. 1 HNAPPAGAT = Prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
<0: 1 og 3 cm.
0/1 mán + 1/3 mán: 1 og 4 cm.
6/9 mán + 12/18 mán: 1 og 4½ cm.
2 ára + 3/4 ára: 1 og 5 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Fyrst í 2 litlum stykkjum bæði á fram- og bakstykki sem síðar er prjónað saman, fram og til baka upp þar sem fram- og bakstykki er prjónað saman og síðan er prjónað í hring á hringprjón.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Stykkin eru sett saman og berustykkið er prjónað fram og til baka, þ.e.a.s. það verður op við miðju að aftan. Stykkið kemur til með að togna aðeins á breiddina ca 3-5 cm þegar það er mátað.

FRAMSTYKKI:
Prjónið fyrst 2 lítil stykki (kantur í skrefbót) sem sett eru saman og prjónið áfram fram og til baka.
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 3 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 (= 5 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 9 lykkjur á prjóni. Geymið stykkið og prjónið 1 stykki til viðbótar alveg eins. Setjið stykkin saman og prjónið A.2 yfir lykkjurnar (fyrsta umferð = frá röngu) = 21 lykkjur. Klippið þráðinn frá. Geymið stykkið og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið nú stykkin saman og stykkið er prjónað áfram í hring þannig:
* Fitjið upp (16) 22-24-28-30 (34-38) nýjar lykkjur, prjónið síðan frá réttu yfir bakstykki/framstykki þannig: Prjónið A.3 yfir fyrstu 9 lykkjur, A.4 yfir næstu 3 lykkjur (setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í A.4 = miðja að framan/miðja að aftan = miðjulykkja), A.3 yfir síðustu 9 lykkjur, fitjið upp (16) 22-24-28-30 (34-38) nýjar lykkjur, setjið 1 merkiþráð (= í hlið) * , prjónið frá *-* alls 2 sinnum = (106) 130-138-154-162 (178-194) lykkjur (= (53) 65-69-77-81-(89-97) lykkjur á milli merkiþráða). Merkiþræðir eru staðsettir í hlið og prjónamerki er staðsett við miðju að framan/miðju að aftan.
Prjónið síðan þannig: * Prjónið A.5a yfir fyrstu 12 lykkjur, A.6 yfir næstu (4) 6-6-6-6 (6-6) lykkjur, endurtakið A.7 yfir næstu (0) 4-6-10-12 (16-20) lykkjur, prjónið mynstur eins og áður (þ.e.a.s. A.3) þar til eftir er 1 lykkja á undan lykkju með prjónamerki (= miðja að framan/miðja að aftan), prjónið A.4 yfir næstu 3 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru (16) 22-24-28-30 (34-38) lykkjur á unda merkiþræði í hlið, endurtakið A.8 yfir næstu (0) 4-6-10-12 (16-20) lykkjur, A.9 yfir næstu (4) 6-6-6-6 (6-6) lykkjur, A.10a yfir síðustu 12 lykkjur á undan merkiþræði í hlið * (þ.e.a.s. mynstur speglast hvoru megin við lykkju með prjónamerki við miðju að framan/miðju að aftan), prjónið frá *-* alls 2 sinnum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur. Þ.e.a.s. í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur við miðju að framan/miðju að aftan og aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn í hvorri hlið, þannig að lykkjufjöldinn verður áfram sá sami. Mynstrið heldur áfram eins og áður til loka máls, þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkju og kaðla yfir kaðla (mynstur hverfur við miðju að framan/aftan og aukið er út fyrir nýtt mynstur í hvorri hlið á stykki).

STÆRÐ 0:
Þegar A.5a og A.10a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, * prjónið A.13 yfir fyrstu lykkju í A.5a, A.5b yfir næstu 18 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 19 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði í hlið, A.10b yfir næstu 18 lykkjur, A.14 yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði í hlið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum.

STÆRÐ 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ÁRA:
Þegar A.5a og A.10a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, * prjónið A.11a yfir fyrstu lykkju í A.5a, A.5b yfir næstu 18 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 19 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði í hlið, A.10b yfir næstu 18 lykkjur, A.12a yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði í hlið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum.
Þegar A.11a og A.12a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina * prjónið A.13 yfir fyrstu lykkju í A.11a, A.11b yfir næstu 8 lykkjur, mynstur eins og áður þar til eftir eru 9 lykkjur á undan merkiþræði í hlið, A.12b yfir næstu 8 lykkjur, A.14 yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði í hlið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
Endurtakið A.13 og A.14 og mynstur eins og áður á hæðina þar til stykkið mælist (7) 9-13-13-14 (14-17) cm mælt meðfram merkiþræði í hlið, stillið af að síðasta lykkjan sem aukin er út í hlið sé prjónuð slétt.
Prjónið síðan * A.15a yfir fyrstu lykkju í A.13, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja á undan merkiþræði í hlið, A.16a yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum.
Þegar A.15a og A.16a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina * prjónið A.13 yfir fyrstu lykkju í A.15a, A.15b yfir næstu 11 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 12 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði í hlið, A.16b yfir næstu 11 lykkjur, A.14 yfir síðustu lykkju á undan merkiþræði *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist alls (14) 16-20-20-21 (24-27) cm, stillið af að síðasta umferð sé 1 útauknings-/úrtökuumferð. Prjónið síðan næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru efir á undan merkiþræði í hlið, fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, fellið af síðustu 4 lykkjur = 8 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki = (90) 114-122-138-146 (162-178) lykkjur = (45) 57-61-69-73 (81-89) lykkjur bæði á framstykki og bakstykki. Klippið þráðinn frá og festið. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp (36) 40-40-40-44 (44-48) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið síðan stykkið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð.
Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með (0) 4-3-2-2 (2- 2½) cm millibili alls (1) 2-4-6-7 (9-10) sinnum = (38) 44-48-52-58 (62-68) lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist (12) 16-20-20-24 (29-35 cm). Þetta mál gefur erminni ca 3-5 cm uppábrot neðst á ermi.
Fellið af 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 8 lykkjur alls) = (30) 36-40-44-50 (54-60) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = (150) 186-202-226-246 (270-298) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki).
Stykkið er nú prjónað áfram fram og til baka frá 2 lykkjum á undan miðju að aftan (þ.e.a.s. 2 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki) frá réttu og lykkjum er fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig:
Prjónið 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (= kantur að framan) – sjá HNAPPAGAT, prjónið mynstur eins og áður og fækkið lykkjum fyrir laskalínu, fitjið upp 5 nýjar lykkjur í lokin á prjóninn (= kantur að framan).
Haldið svona áfram. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka.
Þegar úrtöku fyrir laskalínu er lokið eru (79) 83-83-91-99 (103-107) lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um (19) 19-19-23-23 (25-25) lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = (60) 64-64-68-76 (78-82) lykkjur. Fellið af.

KANTUR AÐ NEÐAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
BAKSTYKKI:
Prjónið upp ca 14-16 lykkjur meðfram neðri kanti á bakstykki (skrefbót) á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af.
FRAMSTYKKI:
Prjónið upp og prjónið eins og bakstykki, en fellið af fyrir 3 hnappagötum jafnt yfir í 3. umferð, með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman og slá einu sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð svo að það myndist gat. Fellið af.

KANTUR Í KRINGUM SKÁLMAR:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp ca (42) 54-58-66-68 (76-84 lykkjur) á hringprjón 2,5, passið uppá að kanturinn verði ekki stífur, prjónið e.t.v. upp fleiri lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið laust af.
Prjónið kant í kringum hina skálmina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið vinstri kant að framan undir hægri kant að framan.
Saumið 2 tölur í vinstri kant að framan í hálsmáli og 3 tölur í kant neðst á samfellu á bakstykki (skrefbót).

----------------------------------------------------------
Fyrir húfu sjá DROPS Baby 31-7.
Fyrir sokka sjá DROPS Baby 31-8.
----------------------------------------------------------

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = fitjið upp 1 nýja lykkju
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = lyftið 2 lykkjum saman af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri)
symbols = engin lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir 2 lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni

diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Winnie Andersen wrote:

Jeg gav op på denne allerede ved diagram A1 og A2 Når man har strikker A1, skal der være 9 masker på pinden, men jeg får det til mange flere - og hvordan laver man et om slag i starten af en pind, som så skal strikkes drejet ret på næste pind.

14.03.2020 - 17:54

country flag DEVILLERS wrote:

Bonjour les deux petites parties du bas commencent par un rang endroit ensuite A1 comment lire A1 puisqu'il est sur 3 rangs le premier rang du A1 se lit comme etant le 1er ou le 2ème rang ou est l'endroit du travail

19.09.2019 - 18:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devillers, le 1er rang de A.1 se tricote sur l'endroit (on termine par 1 rang sur l'endroit), le 1er rang de A.2 se tricote ensuite sur l'envers (et se termine par 1 rang sur l'envers). Bon tricot!

20.09.2019 - 08:28

country flag Sylvana wrote:

Bonjour Je suis arrivée à l'empiècement avec les diminutions raglan. Faut-il continuer à faire les augmentations/diminutions pour le biais du dessin ? Si oui, où les met-on, notamment dans le dos où il y a la bande de boutonnage ? Merci

19.08.2019 - 12:05

Sylvana answered:

Ne tenez pas compte de ma question précédente, je viens de voir que les indications se trouvaient au début des explications. Toutes mes excuses

19.08.2019 - 12:26

country flag Sylvana wrote:

Bonjour. Je commence à peine, j'ai une question (je fais la taille 3 mois.) Au début du paragraphe DOS & DEVANT : 24 m + 9 m + 1 m (2 dim A4) + 9 m + 24 m + 24 m + 9 m + 1 m (2 dim A4) + 9 m + 24 m ça me fait 134 m et non 138 m comme vous indiquez. Selon moi, 138 c'est sans compter les diminutions d'A4. Suis-je ok avec mes 134 m ? Merci de votre aide. Sylvana

13.08.2019 - 20:43

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvana, tout à fait, vous tricotez en fait 138 m sur ce rang, mais comme vous diminuez 2 m dans chacun des deux A.4, il restera 134 m à la fin de ce rang. Bon tricot!

14.08.2019 - 08:02

country flag Christine Gundlach wrote:

Har I et mønster på en body som denne, men uden hulmønster og andet "fancy"?

17.06.2019 - 18:24

DROPS Design answered:

Hej Christine. Här kan du se alla våra body, hoppas du hittar någon som passar. Lycka till!

20.06.2019 - 11:12

country flag Emma wrote:

Jeg sidder fast i opskriften, synes ikke helt jeg forstår hvad jeg skal gøre. Ved ryg-/forstykket står der at man skal slå nye masker op, men er det i forlængelse af de små for-/bagstykker eller skal man slå helt nye masker op og starte "fra begyndelsen" derfra? Ved ikke helt hvordan jeg skal gribe det an

25.09.2018 - 10:40

DROPS Design answered:

Hei Emma. Du strikker alt inn på samme pinne. Altså: du legger opp helt nye masker, så strikkes det mønster som forklart over for/bak-stykket, og så legger du opp ny masker (det er nå lagt opp ny masker på hver side av for/bakstykket). Dette er nå forsiden/baksiden av bodyen. Gjenta dette 1 gang til over den andre siden - fortsatt på samem pinne så alt blir 1 stykke. Så strikkes mønster som forklart over både de nye maskene du la opp og maskene fra for/bakstykket. God fornøyelse.

28.09.2018 - 08:05

country flag Emma wrote:

Jeg sidder fast i opskriften, synes ikke helt jeg forstår hvad jeg skal gøre. Ved ryg-/forstykket står der at man skal slå nye masker op, men er det i forlængelse af de små for-/bagstykker eller skal man slå helt nye masker op og starte "fra begyndelsen" derfra? Ved ikke helt hvordan jeg skal gribe det an

25.09.2018 - 10:39

country flag Mai-Britt Ekeland Huynh wrote:

Hei. Jeg sitter fast i denne oppskriften. Det står at diagrammet som vises viser fra retten. Vil det da sie at det skal en vrang mellom disse ?

11.07.2018 - 22:18

country flag Daniela wrote:

Habe nun beim zweiten Versuch verstanden: die 22 Maschen müssen mit einem neuen Faden vor dem Vorderteil angeschlagem werden. Insgesamt zwei mal stricken bedeutet hintereinander (Vor-und Dann Rückseite) und nicht zweimal übereinander... fragn haben sich daher erledigt.

10.06.2018 - 13:02

country flag Daniela wrote:

Hier meine Frage zu A4 nochmal richtig herum. In der ersten Reihe von A4 werden zwei Maschen abgenommen. Somit wäre in der zweiten Reihe nur noch eine Masche (Kästchen) Eben mit diesen Abmahmen komme ich daher nach der zweimaligen Wiederholung nur auf 122 Maschen (2x 21 aus vorder- und Rückteil + 2x 44 Maschenzunahmen - 4x4 Abnahmen in A4.

09.06.2018 - 21:42