DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Meet Me in Provence

Peysa með stuttum ermum, gatamynstri og röndum, hekluð ofan frá og niður úr DROPS BabyMerino. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-27
DROPS Design: Mynstur bm-051
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-400-400-450 g litur 25, bláfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 stuðlar og 12 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Blóm (hvítur) NR 600: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul).
Þegar kantar á ermum eru heklaðir í hring byrjar og endar hver umferð í A.1 þannig:
1. og 2. umferð í A.1 byrjar með 3 loftlykkjum (koma ekki í stað fyrsta stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
3. og 4. umferð í A.1 byrjar með 3 loftlykkjum (koma ekki í stað fyrsta stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

RENDUR:
Í fyrstu 3 endurtekningum í mynsturteikningu á hæðina er 1. og 2. umferð heklaðar með litnum hvítur, þær umferðir sem eru eftir eru heklaðar í litnum lavender – lesið LITASKIPTI. Síðan eru þær endurtekningar sem eftir eru í mynsturteikningu heklaðar í litnum lavender.

LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn með nýja litnum, síðan er heklað áfram.

ÚTAUKNING / ÚRTAKA:
Til að reikna út hvernig auka / fækka á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja (t.d. 24 lykkjur) og deilið með fjölda útaukningu / úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 8.
Ef auka á út jafnt yfir í þessu dæmi eru heklaðir 2 stuðlar í 8. hvern stuðul.
Ef fækka á lykkjum jafnt yfir í þessu dæmi eru heklaðir 7. og 8. hvern stuðull saman.
Fækkað er um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í / um næsta stuðul / lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í / um næsta stuðul / lykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er heklað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring. Kantur að framan og kantur í hálsmáli er heklað fram og til baka í lokin.

BERUSTYKKI:
Heklið 144-154-158-168-168-175 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 með litnum ljós bláfjólublár BabyMerino.
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 0-3-0-3-3-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* = 122-131-134-143-143-149 stuðlar.
Heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 18-21-21-24-24-24 stuðlum, * heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 stuðlar fleiri), 1 stuðull í hvern af næstu 42-45-48-51-51-57 stuðlum, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 stuðlar fleiri), 1 stuðull í hvern af síðustu 18-21-21-24-24-24 stuðlum = 144-153-156-165-165-171 stuðlar.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig – lesið RENDUR:
Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, A.1 yfir 21-24-24-27-27-27 stuðla (= 7-8-8-9-9-9 mynstureiningar með 3 stuðlum) (= vinstra framstykki), A.2 (= 2 stuðlar), A.1 yfir 12 stuðla (= 4 mynstureiningar), A.3 yfir 1 stuðul, A.1 yfir 12 stuðlar (= 4 mynstureiningar). A.2 yfir 2 stuðla (= vinstri ermi), A.1 yfir 42-45-48-51-51-57 stuðla (= 14-15-16-17-17-19 mynstureiningar) (= bakstykki), A.2 yfir 2 stuðla, A.1 yfir 12 stuðla (= 4 mynstureiningar), A.3 yfir 1 stuðul, A.1 yfir 12 stuðla (= 4 mynstureiningar), A.2 yfir 2 stuðla (= hægri ermi), endið með A.1 yfir 21-24-24-27-27-27 stuðla (= 7-8-8-9-9-9 mynstureiningar) og 1 stuðull í síðasta stuðul (= hægra framstykki). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Í síðustu umferð í A.1 til A.3 er aukið út um 0-0-3-3-3-0 stuðla jafnt yfir hvort framstykki – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA og 0-0-6-0-12-3 stuðlar jafnt yfir bakstykki (= 0-0-12-6-18-3 stuðlar fleiri alls). Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 202-211-226-229-241-232 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 5 cm.
Haldið nú áfram að hekla 1 stuðul í fyrsta og síðasta stuðul og A.1 eins og áður.
Mynsturteikning A.2 er endurtekin yfir 2 miðju stuðla í hverri einingu af A.2 A.2 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. A.2 hefur verið heklað alls 1-1-2-2-3-4 sinnum á hæðina), yfir þær lykkjur sem eru eftir eru heklaðar í A.1 (þ.e.a.s. heklaðar eru 2 mynstureiningar af A.1 yfir hverja mynstureiningu A.3 á ermum og heklaðar eru 2 mynstureiningar af A.1 hvoru megin við hverja mynstureiningu A.2).
Þegar A.2 er lokið eru 202-211-274-277-337-376 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 5-5-8-8-12-15 cm.
Nú er heklað A.4 yfir 2 miðju stuðlana á hverri einingu af A.2 alls 2-3-2-3-2-2 sinnum á hæðina, aðrar lykkjur eru heklaðar í A.1. Þ.e.a.s. yfir hvert mynstur A.2 er heklað þannig: Heklið 2 mynstureiningar af A.1 (= 6 stuðlar), A.4 (= 2 stuðlar) og 2 mynstureiningar af A.1 (= 6 stuðlar). Í hvert skipti sem A.4 er endurtekið eru heklaðar 16 mynstureiningar fleiri af A.1.
Þegar A.4 er lokið eru 250-283-322-349-385-424 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 12-15-15-18-19-22 cm.
Heklið nú A.5 yfir 2 miðju stuðlana á hverri mynstureiningu af A.4 alls 1 sinni á hæðina, aðrar lykkjur eru heklaðar í A.1. Þ.e.a.s. yfir hvert mynstur A.4 er heklað þannig: Heklið 1 mynstureiningu af A.1 (= 3 lykkjur), A.5 (= 2 lykkjur) og 1 mynstureining af A.1 (= 3 lykkjur).
Þegar A.5 er lokið eru 278-311-350-377-413-452 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 15-18-18-21-22-25 cm.
Heklið nú 1 stuðul í fyrsta og síðasta stuðul og A.1 yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 92-103-116-125-137-150 mynstureiningar af A.1) þar til stykkið mælist 17-19-20-22-24-26 cm.
Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið nú 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 39-45-48-54-60-66 lykkjur (= 13-15-16-18-20-22 mynstureiningar af A.1 = framstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 stuðla (= 19-22-25-27-28-30
Mynstureiningar af A.1 = ermi), heklið 12 loftlykkjur undir ermi, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 84-87-102-105-123-138 lykkjur (= 28-29-34-35-41-46 mynstureiningar af A.1 = bakstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 stuðla (= 19-22-25-27-28-30 mynstureiningar af A.1 = ermi), heklið 12 loftlykkjur undir ermi, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 39-45-48-54-60-66 lykkjur (= 13-15-16-18-20-22 mynstureiningar af A.1 = framstykki), endið með 1 stuðul í síðasta stuðul.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 188-203-224-239-269-296 lykkjur. Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið A.1 eins og áður þar til eftir er 1 stuðull (62-67-74-79-89-98 mynstureiningar), endið með 1 stuðul í síðasta stuðul.
Þegar stykkið mælist 1 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er fækkað um stuðla jafnt yfir í hvert skipti sem A.1 er endurtekið á hæðina, fækkað er í 3. umferð í A.1 þannig: Fækkið um 6 stuðla alls 3-3-3-2-2-2 sinnum og 3 stuðla alls 0-0-1-0-1-1 sinnum = 170-185-203-227-254-281 lykkjur. A.1 er nú endurtekið 56-61-67-75-84-93 sinnum á breidd. Þegar stykkið mælist 14 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki er aukið út í 3. hverri umferð í A.1 þannig: Aukið út um 15 stuðla jafnt yfir alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, aukið út um 9 stuðla jafnt yfir alls 3-3-3-2-4-3 sinnum, aukið út um 6 stuðla jafnt yfir alls 1-1-0-1-0-1 sinni = 203-218-245-266-290-314 lykkjur. Útauknu lykkjurnar eru heklaðar í A.1. Mynsturteikning A.1 er endurtekin alls 67-72-81-88-96-104 sinnum á breidd.
Heklið A.1 þar til stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum (= 51-53-55-57-59-61 cm frá kanti í hálsi) – endið eftir 1 umferð með stuðlum. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Á ERMI:
Kantur er heklaður í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 7. loftlykkju af þeim 12 loftlykkjum sem heklaðar voru undir ermi á fram- og bakstykki, heklið 1 stuðul í hverja og eina af 5 næstu loftlykkjum, heklið A.1 eins og áður yfir 57-66-75-81-84-90 lykkjur, endið með 1 stuðul í hverja af 6 loftlykkjum undir ermi = 69-78-87-93-96-102 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn (= 23-26-29-31-32-34 sinnum á breidd) í 2 cm, stillið af að endað sé á umferð einungis með stuðlum.
Heklið síðan kant í kringum ermi þannig: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í fyrsta/næsta stuðul, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.
Heklið hinn kant á ermi á sama hátt.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið frá réttu með litnum ljós bláfjólublár BabyMerino þannig: Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, 1 fastalykkju um sömu lykkju, * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu lykkju *, heklið frá *-* niður yfir allan kantinn á peysunni, endið með 1 fastalykkju í síðasta stuðul. Heklið síðan ca 112 til 134 stuðla um loftlykkjubogana jafnt yfir (passið uppá að kantur að framan verði ekki stífur eða víkki stykkið). Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til kantur að framan mælist 3 cm (= ca 4 umferðir). Klippið frá og festið enda.
Heklið hinn kantinn að framan á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið fram og til baka yfir loftlykkjuumferð í hálsmáli með litnum ljós bláfjólublár BabyMerino þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Byrjið yfir kant að framan, festið enda við stykkið með 1 keðjulykkju í fyrstu kantlykkju að framan, heklið 2 hálfa stuðla (fyrsta hálfa stuðli í umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur) um hverja stuðlaumferð yfir kant að framan, heklið 1 hálfan stuðul á milli hverra stuðla yfir loftlykkjuumferð í hálsmáli = ca 138-147-150-158-158-165 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul (fyrstu fastalykkju í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju) = ca 138-147-150-158-158-165 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki þannig: Saumið fyrstu tölu ca 1½-2 cm niður frá kanti í hálsmáli, síðan eru saumaðar þær 6-6-6-7-7-7 tölur sem eftir eru í með ca 8-9 cm millibili. Tölum er hneppt í gegnum stuðla í hægri kanti að framan.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = heklið 4 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul um loftlykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 3 stuðla til viðbótar um sömu loftlykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjur að neðan. ATH: Mynsturteikning er hekluð yfir þann fjölda lykkja sem útskýrt er í þessari umferð. Þ.e.a.s. þá stuðla sem ekki er heklað í, hoppið yfir
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Mona wrote:

Hei.Lurer på om det er feil i oppskrifta.Står at det skal være 122 masker og 5 cm to plasser.Skal A2 hekles ved str S i omgangen etter første gang det står at det er ca 5 cm?Skjønner ikke helt hva den omgangen betyr.

29.02.2024 - 20:06

DROPS Design answered:

Hej Mona, i den mindste størrelse skal A.2 kun hækles en gang i højden, så du har stadigvæk kun 202 masker når du starter på A.4 :)

05.03.2024 - 14:15

country flag Bondoux wrote:

Bonjour merci pour votre réponse mais ma question concernait le paragraphe du dessus. La mesure de 5 cm concerne toutes les tailles. Merci pour votre réponse.

25.09.2022 - 16:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bondoux, tout dépend de votre taille, en taille S et M ne sont pas concernées; pour les autres tailles, crochetez A.1 comme avant, crochetez A.2 au-dessus des 2 brides au milieu de chaque A.2 autrement dit, crochetez les 14 m de chaque A.2 précédent ainsi: 2 x A.1 (6 m), A.2 (2 m), 2x A.1 (6 m); autrement dit, vous crochetez 1 x A.2 en hauteur en S et M, 2 fois en hauteur en L et XL, 3 fois en hauteur en XXL et 4 fois en hauteur en XXXL. Pour plus de précisions, n'hésitez pas à nous indiquer la taille que vous réalisez. Bon crochet!

26.09.2022 - 09:46

country flag Marie-Christine BONDOUX wrote:

Je ne comprends pas comment procéder lorsque l'on arrive à 5 cm de hauteur. Pouvez-vous me donner des précisions. Merci.

20.09.2022 - 14:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bondoux, à 5 cm (en S et M), vous devez crocheter A.4 au milieu des A.2 précédents, autrement dit, vous avez 14 m au dernier rang de A.2, crochetez ces 14 m ainsi: crochetez 2 fois A.1 (= 6 premières brides de A.2), crochetez 1 fois A.4 (= 2 brides) et 2 fois A.1 (= les 6 dernières brides de A.2), ainsi vous allez augmenter au milieu de chaque A.2 comme indiqué dans A.4, et toutes les autres mailles vont être crochetées en suivant A.1 (le même motif, mais sans augmentation). Bon crochet!

21.09.2022 - 09:00

country flag Sandra wrote:

. Herhaal telpatroon A.2 over de 2 middelste stokjes in elke herhaling over A.2 0-0-1-1-2-3 keer (dus A.2 wordt 1-1-2-2-3-4 keer in totaal in de hoogte gehaakt), over de overgebleven steken haakt u A.1 (dus haak 2 herhalingen van A.1 over iedere A.3 op de mouwen en haak 2 herhalingen van A.1 aan elke kant van A.2). Ik ben bezig voor maat S, moet a2 nu wel of niet gehaakt worden en hoeveel cm meet het werk dan. Dat kan toch niet 5 cm omdat vorige hoogte al 5 cm is. Alvast bedankt

18.05.2020 - 17:35

DROPS Design answered:

Dag Sandra,

Voor maat S haak je A2 slechts 1 keer en het werk meet dan 5 cm.

20.05.2020 - 09:01

country flag Olga wrote:

I don't understand how two vertical rapport gives the same results for the smallest size: 1. This When A.1 to A.3 have been worked 1 time vertically, there are 202-211-226-229-241-232 treble crochets on last row. Piece measures approx. 5 cm. 2. And this: When A.2 is done there are 202-211-274-277-337-376 treble crochets on last row. Piece measures 5cm.

22.12.2019 - 10:12

country flag Mieke Knollema-kraa wrote:

U publiceert heel mooie patronen. Ik ben erg enthousiast omdat er weinig haakpatronen te krijgen zijn, hier diverse, geweldig en mooi, ook voor de oudere vrouw zoals ik.

22.04.2019 - 23:22

country flag Petra wrote:

Haak 144-154-158-168-168-175 lossen (inclusief 3 lossen om het werk mee te keren) op haaknaald 3.5 mm met lavendelblauw. Haak 1 stokje in de 4e losse van de haaknaald (= 2 stokjes) - lees INFORMATIE VOOR HET HAKEN, 1 stokje in elk van de volgende 0-3-0-3-3-3 lossen, * sla 1 losse over, 1 stokje in elk van de volgende 6 lossen *, herhaal van *-* = 122-131-134-143-143-149 stokjes. \r\nWat wordt bedoelt met 0-3-0-3-3-3 lossen? Ik snap dat niet goed. Ik vind het een heel leuk ventje.

20.03.2018 - 12:57

country flag Uta wrote:

Hi. Also wird in der Passe nur 1x am Anfang Muster A3 gehäkelt??

05.03.2018 - 08:19

DROPS Design answered:

Liebe Uta, genau, A.3 wird nur einmal in der Höhe gehäkelt (2 x in der Reihe), dann wird A.1 über A.3 gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

05.03.2018 - 09:52

country flag Betty wrote:

If using different models for the photoshoots, then models of all ages should be used not only very young or granny models. Some clothing simply does no suit everyone due to bodytype and /or age

20.01.2018 - 11:38

Iris H wrote:

Two comments: 1. Relating to patterns: Being in the older age group, I find elbow length sleeves far more flattering than very short sleeves. Would suggest adding this option to several of your beautiful patterns. 2. I live in Australia where there is an active knitting community. Your dropdown menus do not mention our country.

16.01.2018 - 20:44