Happy Hour |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónað sjal með gatamynstri og garðaprjóni í röndum úr DROPS Alpaca.
DROPS 186-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: EINING-1: * 2 umferðir garðaprjón með litnum natur, 2 umferðir garðaprjón með litnum turkos *, prjónið frá *-*. EINING-3: * 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós fjólublár, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur *, prjónið frá *-*. EINING-5: * 2 umferðir garðaprjón með litnum kirsuber, 2 umferðir garðaprjón með litnm natur *, prjónið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. A.2 sýnir staðsetningu á A.1 þegar lykkjum er fækkað í annarri hlið á stykki og aukið er út í hinni hlið á stykki. A.X kemur alltaf til með að verða endurtekið alveg eins á hæðina, en það verðu pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri af A.1 á breiddina í hvert skipti sem A.X er endurtekið á hæðina. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað á ská frá horni að horni í einingum í garðaprjóni og gatamynstri. Til að fá pláss fyrir allar lykkjur er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. SJAL: Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum natur. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan garðaprjóni RENDUR – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT því sem prjónað er þannig: EINING-1 (garðaprjón í röndum með litnum natur/turkos): UMFERÐ 1 (rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkjuna (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Endurtakið umferð 1 og 2 þar til prjónaðar hafa verið alls 88 umferðir í garðaprjóni. Nú eru 46 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið einingu-2 eins og útskýrt er að neðan. EINING-2 (gatamynstur í sléttprjóni með litnum natur): UMFERÐ 1 (rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri og 47 lykkjur í umferð). UMFERÐ 2 (ranga): prjónið 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Prjónið síðan A.1 JAFNFRAMT heldur úrtakan áfram í annarri hliðinni á stykki og útaukning heldur áfram í hinni hlið á stykki – lesið MYNSTUR og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni (= 7 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið síðan 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Haldið áfram með A.1 eins og útskýrt er í A.2 með úrtöku í annarri hlið á stykki og útaukningu í hinni hlið á stykki alveg eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 8 sinnum á hæðina (þ.e.a.s. A.X alls 4 sinnum á hæðina) eru 71 lykkja í umferð. Skiptið yfir í litinn ljós fjólublár og prjónið einingu-3 eins og útskýrt er að neðan. EINING-3 (garðaprjón í röndum með litnum ljós fjólublár/natur): UMFERÐ 1 (rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri og 72 lykkjur í umferð). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Endurtakið umferð 1 og 2 í röndum þar til prjónaðar hafa verið 82 umferðir í garðaprjóni. JAFNFRAMT í síðustu umferð frá réttu í garðaprjóni eru auknar út 6 lykkjur jafnt yfir (fyrir utan venjulegu útaukninguna í lok á umferð) = 118 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið einingu-4 eins og útskýrt er að neðan. EINING-4 (gatamynstur í sléttprjóni með natur): UMFERÐ 1 (rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri og 119 lykkjur í umferð). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Prjónið síðan A.1 alveg eins og eining-2 með úrtöku í annarri hlið á stykki og útaukningu í hinni hlið á stykki, þ.e.a.s. prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni (= 19 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið síðan 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Haldið áfram með A.1 alveg eins og útskýrt er í A.2 (en með fleiri mynstureiningar á breidd) – JAFNFRAMT heldur úrtaka áfram í annarri hlið á stykki og útaukning í hinni hlið á stykki alveg eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 8 sinnum á hæðina (þ.e.a.s. A.X alls 4 sinnum á hæðina) eru 143 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í kirsuberjarauður og prjónið einingu-5 eins og útskýrt er að neðan. EINING-5 (garðaprjón í röndum með litnum kirsuberjarauður/natur): UMFERÐ 1 (rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri og 144 lykkjur í umferð). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Endurtakið umferð 1 og 2 í röndum þar til prjónaðar hafa verið 82 umferðir í garðaprjóni. JAFNFRAMT í síðustu umferð frá réttu í garðaprjóni eru auknar út 6 lykkjur jafnt yfir (fyrir utan venjulegu útaukningu í lok á umferð) = 190 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið einingu-6 eins og útskýrt er að neðan. EINING-6 (gatamynstur í sléttprjóni með litnum natur): UMFERÐ 1 (rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri og 191 lykkjur í umferð). UMFERÐ 2 (ranga): prjónið 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Prjónið síðan A.1 alveg eins og í einingu-2 og einingu-4 (nú er pláss fyrir 31 mynstureiningu á breidd) - JAFNFRAMT heldur úrtaka áfram í annarri hlið á stykki og útaukning heldur áfram í hinni hlið á stykki alveg eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 8 sinnum á hæðina (þ.e.a.s. A.X alls 4 sinnum á hæðina) eru 215 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn turkos og prjónið einingu-7 eins og útskýrt er að neðan. EINING-7: UMFERÐ 1 (rétta) með litnum turkos: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri og 216 lykkjur í umferð). UMFERÐ 2 (ranga) með litnum turkos: Prjónið 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). UMFERÐ 3 (= rétta) með litnum natur: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 4 (ranga) með natur: Prjónið 2 lykkjur slétt, taki upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju á vinstri prjón og prjónið snúið slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Endurtakið umferð 1-4 einu sinni til viðbótar. Skiptið yfir í litinn turkos og endurtakið umferð 1-2 tvisvar sinnum til viðbótar (= 2 umferðir garðaprjón með litnum turkos, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur, 2 umferðir garðaprjón með litnum turkos, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur, 4 umferðir garðaprjón með litnum turkos). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, * stingið vinstri prjón í 2 lykkjur á hægri prjón frá vinstri til hægri og prjónið lykkjurnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir er 1 lykkja á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkju. Þegar fellt er svona af þá kemur affellingarkanturinn til með að verða teygjanlegur. Festið alla enda. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (19)
Britta wrote:
Hallo, können Sie bitte noch die Abmessungen angeben, danke.
26.06.2023 - 11:02DROPS Design answered:
Liebe Britta, sicher, die Länge oben ist ca 215 m und die Höhe in der Mitte ca 44 cm. Viel Spaß beim stricken!
26.06.2023 - 13:18Mia wrote:
Hi ! Ist es richtig,daß bei Partie 4 Lochmuster - 2. Reihe (Rück-Reihe): 1 Masche rechts, den Querfaden vor der nächsten Masche der linken Nadel rechts verschränkt stricken..." Denn in Partie 2 - Reihe 2, da waren es noch 2 Maschen rechts. Müsste es denn bei Partie 4 - 2.Reihe: 2 Maschen rechts heißen? VG Mia
29.09.2022 - 10:03Mia wrote:
Hi ! Meine Frage bezieht sich auf das Diagramm A.2 . Sind die Ab-und Zunahmen mit im Diagramm einberechnet bzw. eingezeichnet? LG Mia
25.09.2022 - 18:01DROPS Design answered:
Liebe Mia, die Ab- und Zunahmen sind nicht in A.2 gezeichnet. Die stricken Sie vor A.2 + nach A.2. Viel Spaß beim stricken!
26.09.2022 - 09:48Marta wrote:
Zrobiłam tą chustę, ale wyszła mi bardzo asymetryczna (bok dziergany na początku dużo dłuższy i węższy niż bok dziergany na końcu). Czy da się jakoś temu zaradzić? Naprężenie włóczki zachowałam identyczne na początku jak i na końcu. Pozdrawiam serdecznie
09.02.2021 - 18:39DROPS Design answered:
Witaj Marto, zalecam blokowanie, zobacz video TUTAJ. Pozdrawiam!
09.02.2021 - 19:51Kasia wrote:
Dzien dobry, doszłam do końca pierwszego AX i nie wiem jak mam postąpić dalej, tzn w którym momencie rozpocząć A.1 w kolejnym rzędzie i czy ma ich za każdym razem być 7 czy może więcej. Bardzo proszę o podpowiedź. Pozdrawiam!
21.01.2021 - 20:37DROPS Design answered:
Witaj Kasiu, zaczynasz kolejny schemat A.1 tak samo jak wcześniej, tzn. masz mniej o 1 o. na początku rzędu, więc będzie 3 oczka prawe, narzut i dalej tak samo jak jest na początku schematu A.x (patrz znów prawy dolny róg). Powtarzać schemat A.X zawsze w taki sam sposób na wysokość, ale za każdym razem gdy powtarzamy schemat A.X na wysokość, jest wystarczająca liczba oczek, aby przerobić 1 dodatkowy motyw A.1 na szerokość. Tzn. tym razem będzie już 8 powtórzeń schematu A.1. Powodzenia!
21.01.2021 - 21:09Barbara Cribb wrote:
What does knit twisted the loop before the next stitch mean?
27.04.2020 - 02:36DROPS Design answered:
Dear Mrs Cribb, pick up a stitch before the next stitch on left needle and work it into back of loop (= you increased 1 stitch). Happy knitting!
27.04.2020 - 09:48Miet wrote:
Bij het breien van de ribbelsteek in 2 kleuren (deel 1,3,...) moet je telkens aan de goede kant de eerste steek averecht afhalen. Maar dan haal je toch een steek af in kleur 1 terwijl je verder breit met kleur 2 ? Klopt dit ? Krijg je dan wel mooie strepen ?
30.09.2018 - 17:36DROPS Design answered:
Dag Miet, De steek die je averecht afhaalt brei je op de teruggaande naald gedraaid recht samen met de steek ernaast, waardoor de strepen er mooi uitzien.
30.09.2018 - 20:47Tanja wrote:
In Partie 3 steht das man nach der 1. Reihe 72 Maschen auf der Nadel hat, somit hat man nach 40 Krausrippen 112 Maschen auf der Nadel. Nun soll man 6 Maschen verteilt zunehmen zusätzlich zu der normalen Zunahme zunehmen. (= 7Maschen)\r\n Das sind nach meiner Rechnung dann 119 Maschen insgesamt, lt. Anleitung sind es 118 Maschen. Ist dies ein Fehler oder ein Denkfehler von mir?
28.04.2018 - 23:30DROPS Design answered:
Liebe Tanja, die 6 Zunahmen werden bei der letzten Hin-Reihe der 41. Krausrippe gestrickt, dh nach 40 Krausrippe stricken Sie die Zunahmen wie zufor und nehmen Sie zusätlich 6 M zu = 71 M + 40 Zunahmen = 111 M + (1 Zunahme wie üblich + 6 Zunahmen) = 118 M. Viel Spaß beim stricken!
30.04.2018 - 10:38Anna wrote:
Please tell me what are the dimensions of this shawl?
27.02.2018 - 07:26DROPS Design answered:
Dear Anna. we will check the measurements and we shall upload them as soon as possible.
04.03.2018 - 17:19Josien wrote:
Prachtig! Wanneer komt het patroon beschikbaar?
18.02.2018 - 14:24