DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Skye

Prjónuð peysa með köðlum, gatamynstri, klauf í hlið og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS 188-36
DROPS Design: Mynstur ai-105
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-500 g litur 18, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. Mynstur A.1 + A.2 + A.3 + A.4 + A.5 mælist ca 48 cm á breidd.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 25 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 40 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 10. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 9. og 10. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið út mitt undir ermi þannig - byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt.

LASKALÍNA:
* Prjónið yfir bakstykki/framstykki þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki.
Prjónið 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið lykkjur á ermi saman þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig upp að klauf. Síðan er prjónað í hring.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-92-100-108-108-120 lykkjur á hringprjón 4 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2-0-0-0-0-2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið *-* alls 0-1-2-3-1-2 sinnum, A.4A (= 8 lykkjur) 0-0-0-0-1-1 sinni, A.1A (= 14 lykkjur), A.2A (= 8 lykkjur), A.3A (= 34 lykkjur), A.4A (= 8 lykkjur), A.5A (= 14 lykkjur), A.2A (= 8 lykkjur) 0-0-0-0-1-1 sinnum, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið *-* alls 0-1-2-3-1-2 sinnum, 2-0-0-0-0-2 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið síðan áfram með stroff svona þar til stykkið mælist 8 cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 2-0-0-0-0-2 lykkjur sléttprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 0-1-2-3-1-2 sinnum, prjónið mynsturteikningu eins og áður, en prjónið B yfir A, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 0-1-2-3-1-2 sinnum, 2-0-0-0-0-2 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1B til A.5B er lokið eru 102-106-114-122-128-140 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2-4-8-12-4-10 lykkjur sléttprjón – fækkið um 0-0-0-1-0-1 lykkjur yfir þessar, A.4C (= 11 lykkjur) 0-0-0-0-1-1 sinni, A.1C (= 15 lykkjur), A.2C (= 11 lykkjur), A.3C (= 40 lykkjur), A.4C (= 11 lykkjur), A.5C (= 15 lykkjur), A.2C (= 11 lykkjur) 0-0-0-0-1-1 sinni, 2-4-8-12-4-10 lykkjur sléttprjón – fækkið um 0-0-0-1-0-1 lykkju yfir þessar, 3 lykkjur garðaprjón = 102-106-114-120-128-138 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 18 cm í öllum stærðum.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið bakstykki á sama hringprjón og framstykki = 204-212-228-240-256-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið er skipt út fyrir sléttprjón héðan. Þegar stykkið mælist 37-37-36-36-37-36 cm fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur í hvorri hlið (= 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Nú eru 96-100-106-112-118-128 lykkjur á bakstykki og framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar nægilega margar lykkjur hafa verið auknar út. Fitjið upp 40-40-44-44-48-48 lykkjur á sokkaprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 2 cm er skipt yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2-4-4-6-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8-6-9-6-5-9 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-16-19-20-20 sinnum = 60-64-72-78-82-84 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-39-36-36-36-33 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi (= 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 54-58-64-70-72-74 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 300-316-340-364-380-404 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 22-24-27-28-30-33 sinnum – þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynsturteikningu eru prjónaðar slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið JAFNFRAMT þegar eftir er 1 umferð þar til A.1/A.5 mætir laskaúrtöku, fækkið að auki um 4 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal í A.1/A.5 (á einungis við mynsturteikningu að laskalínu).
Eftir allar úrtökur eru 108-108-108-124-124-124 lykkjur í umferð. Berustykkið mælist ca 20-22-25-26-27-30 cm.
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 3 lykkjur yfir hvern kaðal með 6 lykkjum og fækkið um 7 lykkjur yfir hvern kaðal með 14 lykkjum = 82-82-82-98-98-98 lykkjur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-14-6-10-14 lykkjur jafnt yfir = 92-92-96-104-108-112 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.09.2019
Leiðrétting - BERUSTYKKI:..Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 3 lykkjur yfir hvern kaðal með 6 lykkjum og fækkið um 7 lykkjur yfir hvern kaðal með 14 lykkjum = 82-82-82-98-98-98 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 7 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 7 lykkjur slétt, prjónið 7 lykkjur af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

188-36 Skye

Margrethe, Norway

188-36 Skye

Deborah, Italy

Skye

Martina, Czech Republic

Skye

Martina, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Michael Harish wrote:

Is there a way to knit this patter with 2 needles?

22.12.2023 - 15:19

DROPS Design answered:

Dear Michael, due to the raglan and the elevated number of stitches it's recommended to use a circular needle. However, you could use straight needles for the rest of the piece and only use circular needles for the yoke. You can read more in the following lesson: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19. Happy knitting!

28.12.2023 - 19:35

country flag Mandy wrote:

A.4A (= 8 stitches) 0-0-0-0-1-1 time, A.1A (= 14 stitches), A.2A (= 8 stitches), A.3A (= 34 stitches), A.4A (= 8 stitches), A.5A (= 14 stitches), A.2A (= 8 etc. I am confused when it says 4A = 8 stitches 0 times ? as opposed tp 2A(=8 stitches)? I am trying to knit a large size.Pls explain and help. Thank ypu

14.11.2023 - 15:32

DROPS Design answered:

Hi Mandy, This means that in your size L you do not work A.4A, starting with A.1A after the first ribbed section. In the same way, do not work A.2A before the next ribbed section. Happy knitting!

15.11.2023 - 06:53

country flag Maureen Baker wrote:

SKYE PATTERN Yoke decrease raglan up until when A1/A5 meet the raglan I understand. Then I’m confused At the same time decrease an additional 4 stitches evenly over cable in A1/A5 is this mean 4 stitches to be decreased on every row when A1/A5 meet the raglan decrease Regards Maureen

18.10.2022 - 14:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baker, when the cable A.1/A.5 will meet the raglan line, you have to decrease the number of stitches in these cables to keep correct width (you always need more stitches to work cable as to work stocking stitch and since you are decreasing the number of sts, the cable cannot be worked anymore, reason why you should decrease 4 sts in the cable, but only on the first row as this cable meet the raglan line and extra to the raglan decrease; then continue decreasing as before for raglan (do not decrease further stitches in the diagram except for the raglan). Happy knitting!

18.10.2022 - 16:03

country flag Corinne wrote:

Bonjour , Je ne comprends pas les explications au niveau de l'empiècement. On diminue 22 fois 8 mailles pour le raglan, ça , c'est bon. En même temps sur les torsades A1-A5 , 4 mailles. Est-ce que c'est 1 maille par torsade 4 fois ou 4 mailles sur chaque torsade en une seule fois? Merci d'avance.

09.10.2022 - 20:55

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne, pour la même largeur, il faut plus de mailles pour une torsade que pour du jersey, autrement dit, quand on diminue pour le raglan, on doit rétrécir les mailles des torsades pour éviter qu'elles ne déforment l'ouvrage en largeur quand on ne peut plus les tricoter, autrement dit, quand vous diminuez la 1ère maille envers de A.1/la dernière m envers de A.5 pour le raglan, sur ce même tour, tricotez les 8 mailles des torsades ensemble 2 par 2 à l'endroit. Vous diminuez ainsi 16 mailles supplémentaires (4 dans chaque torsade/8 sur le devant + 8 sur le dos). Bon tricot!

10.10.2022 - 09:58

country flag Karin wrote:

Hur gör jag här? SAMTIDIGT när det återstår 1 varv till A.1/A.5 träffar raglanminskningen, minskas det dessutom 4 maskor jämnt fördelat över flätan i A.1/A.5 (gäller endast diagrammen mot raglanen).

26.12.2021 - 16:21

DROPS Design answered:

Hej Karin, du minsker over fletten ved at strikke maskerne i diagrammet med fletten sammen 2 og 2 :)

03.01.2022 - 15:34

country flag Ola wrote:

Podczas zamykania oczek na reglan, kiedy schematy A1/A5 już wchodzą do tych zamykanych oczek, mam zamknąć 4 oczka nad warkoczami. Czy jak warkocze uznaję 8 oczek w schemacie? Jak mam zamykać te oczka, czy przerabiać np. 2 na prawo?

21.12.2021 - 20:50

DROPS Design answered:

Witaj Olu, za te warkocze, o których mowa uznajesz 4 warkocze, każdy po 8 oczek w schemacie. Zamykasz oczka przerabiając każde 2 kolejne oczka razem na prawo ponad każdym warkoczem. W całym okrążeniu zamkniesz w ten sposób 16 oczek. Pozdrawiamy!

22.12.2021 - 09:05

country flag Ola wrote:

Opis nie jest do końca dokładny. Pierwszy, ogólny opis swetra mówi, że przerabiamy przód i tył oddzielnie, a potem na okrągło od pęknięć. Nic na ten temat nie jest później wspomniane w tekście głównym, dlatego czy dobrze rozumiem, że mam przerabiać oddzielnie na taką wysokość, jaką ma mieć pęknięcie na bokach, a potem połączyć obie części i przerabiać na okrągło, razem? Czy schematy będą się wtedy zgadzać?

22.11.2021 - 10:31

DROPS Design answered:

Witaj Olu, sweter jest przerabiany od dołu do góry. Przód i tył są przerabiane oddzielnie w tę i z powrotem na drutach z żyłką, aż do końca pęknięć na bokach. Dalej przerabiane są razem, na okrągło. Jak zaczynasz przerabiać na okrągło, dalej przerabiasz schematy jak wcześniej (kontynuujesz to co przerabiałaś w tę i z powrotem), ale oczka ściegiem francuskim z każdej strony są teraz przerabiane dżersejem. Pozdrawiamy!

22.11.2021 - 15:53

country flag Monika wrote:

Dzień dobry Czy przerabiając robótkę w tę i z powrotem rzędy ściegu fantazyjnego przerabiam tylko na prawej stronie, a na lewej oczka prawe ponad prawymi i lewe ponad lewymi?

18.06.2021 - 09:19

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, zobacz kurs DROPS w tym temacie TUTAJ, albo napisz, o który dokładnie schemat ci chodzi. Pozdrawiamy!

18.06.2021 - 17:05

country flag Jana wrote:

Raglánové ujímání: 3 oka před značkou, 2 oka spleteme hladce, 2 oka upleteme hladce (značka leží mezi nim), 2 oka spleteme obrace - nemá být ...2 oka spleteme hladce (značka leží mezi nim)?

01.04.2021 - 16:16

DROPS Design answered:

Dobrý den, Jano, díky za upozornění - opraveno! Hezký den, Hana

25.04.2021 - 08:14

country flag Maja wrote:

Es geht aber um A2. Nicht A1.

08.03.2021 - 11:46

DROPS Design answered:

Liebe Maja, in A.2 strickt man den gleichen Zopf wie beim A.4 - siehe Video, dh man hat abwechslungsweise 3 Maschen (= Reihe 2, 3, 4 in A.2C) und 2 Maschen (= Reihe 1 und 5 - siehe 7. Symbol). Viel Spaß beim stricken!

08.03.2021 - 14:13