DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nougat Cardigan

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS 191-3
DROPS Design: Mynstur ai-114
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-250-300-350-350 g litur 02, hveiti
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 18, ljós grágrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 15, fjólublá þoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Air 04, 03, 16, 10.
B) DROPS Air 03, 01, 15, 14.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27) = 3,037.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til eftir eru 3 lykkjur í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagati þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm.
Fellið síðan af 6 næstu hnappagöt með ca 9-9-9-10-10-10 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þannig að berustykki verði aðeins hærri í hnakka. Það má sleppa þessari upphækkun og þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum hveiti.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 3-3-4-4-5-5 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Einnig er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram og prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð við miðju að aftan (= 46-48-50-52-54-56 lykkjur inn frá hvorri hlið).
Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorum enda.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur – lesið LEIÐBEININGAR, þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 (= 12 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, JAFNFRAMT eru auknar út lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör í mynsturteikningu – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
ATH: Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Í umferð merktri með ör 1 er aukið út um 27-35-31-39-35-43 lykkjur jafnt yfir = 119-131-131-143-143-155 lykkjur.
Í umferð merktri með ör 2 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 155-167-179-191-191-215 lykkjur.
Í umferð merktri með ör 3 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 191-203-227-239-239-275 lykkjur.
Í umferð merktri með ör 4 er aukið út um 34-34-34-34-46-46 lykkjur jafnt yfir = 225-237-261-273-285-321 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 (= 12 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir (í síðasta skipti sem A.1 er prjónað í umferð eru einungis prjónaðar 10 fyrstu lykkjur í mynsturteikningu), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Í umferð merktri með ör 5 er aukið út um 2-14-14-18-30-18 lykkjur jafnt yfir = 227-251-275-291-315-339 lykkjur.
Skiptið yfir í litinn hveiti. Haldið síðan áfram með litnum hveiti, sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan- passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (ef prjónfestan passar á hæðina hefur þetta mál náð stærð S þegar A.1 hefur verið prjónað til loka).
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 36-39-43-47-51-56 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 61-69-77-83-93-101 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið næstu 36-39-43-47-51-56 lykkjur (= hægra framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 149-163-179-197-215-233 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka með litnum hveiti, sléttprjóni, 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-6-6 cm millibili alls 3 sinnum = 137-151-167-185-203-221 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-15-17-17-19-19 cm aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 5 sinnum = 157-171-187-205-223-241 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm aukið út um 11-13-13-15-17-19 lykkjur jafnt yfir = 168-184-200-220-240-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 7 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til þess að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður.

ERMI:
= 47-52-56-57-60-63 lykkjur. Setjið 47-52-56-57-60-63 lykkjurnar af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum hveiti = 55-60-64-67-70-73 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn með litnum hveiti. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR.
Fækkið lykkjum svona í 4.-3.-3.-3.-3.-3. hverri umferð 10-12-13-13-14-14 sinnum = 35-36-38-41-42-45 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-23-23-23-23 cm er aukið út um 1-4-2-3-2-3 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Prjónið A.2 (= 4 lykkjur) hringinn. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og litinn natur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir í litinn hveiti, prjónið 1 umferð stroff eins og áður og fellið laust af með litnum hveiti og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Ermin mælist 35-35-34-34-34-34-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.01.2019
Leiðrétting - UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Prjónið 1 umferð brugðna frá röngu, með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorum enda.
Yfirfarið á vefsvæði: 04.01.2022
ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):.. í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

Mynstur

symbols = natur
symbols = hveiti
symbols = fjólublá þoka
symbols = ljós grágrænn
symbols = útaukningsumferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Jannie wrote:

Str M. 8 nye m slået op og derefter strikket videre på bagstykket. 8 nye masker slået op og derefter strikket videre på højre forstykke. Ialt 163 m. Så ærmerne, Hvordan strikker jeg i de NYE masker (som lige blev strikket i forlængelse af hhv bag- og forstykkerne ? Jeres video til spørgsmålet er virker ikke.

24.07.2023 - 17:38

DROPS Design answered:

Hei Jennie Ta en titt på denne videoen: Hvordan strikkes masker op under ærmet mvh DROPS Design

27.07.2023 - 14:30

country flag Sabine wrote:

Es ist sehr ärgerlich, die weiße Wolle reicht nicht für den 2. Ärmel - da hätte man 2x50 g bestellen müssen - wenn ich jetzt nachbestelle , wird durch die Versandkosten das eine Knäul echt teuer -

04.02.2023 - 12:16

country flag Louise wrote:

Comment fait-on le fil serré tel qu’indiqué dans la section rehausse encolure dos ? Merci de me répondre et bonne journée.

06.09.2022 - 17:23

DROPS Design answered:

Bonjour Louise, cette vidéo montre comment tricoter les rangs raccourcis pour une réhausse - dans cette vidéo, on va glisser la 1ère maille - vous pouvez également suivre la technique des mailles enveloppées si vous préférez (cf vidéos. Bon tricot!

07.09.2022 - 08:09

country flag Else-Marie Edelfeldt wrote:

Rättelse 1... från 2019....Var skall det in i mönstret. Hittar inte var det ska passa in. Mvh Els-Marie

21.01.2022 - 09:30

DROPS Design answered:

Hej Else-Marie. Det är sist i stycket "FÖRHÖJNING BAK I NACKEN". Rättelsen är alltså inskriven i mönstret, så det är bara att följa mönstret. Mvh DROPS Design

21.01.2022 - 10:28

country flag Marianne Gaarder wrote:

Hej Venligst se bort fra mit forrige spørgsmål. Det fandt jeg ud af. Til gengæld forstår jeg ikke udtagningstips nr 1, hvor der står, at de masker man har slået op skal strikkes drejet ret på næste omgang, for dette er jo på en vrangpind? Vh Marianne

31.12.2021 - 13:35

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Her skal kastet strikkes vridd, ikke rett (vridd vrang). Vi skal få ordnet dette, takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design

04.01.2022 - 15:33

country flag Marianne Gaarder wrote:

Er opskriften korrekt i forhold til når første knaphul strikkes? Der står det skal være i højre side, når trøjen er på og at det skal strikkes på retpinden, når der er 3 masker tilbage på pinden. Men som jeg ser det skal knaphullet strikkes i starten af pinden for at være i den rigtige side?

30.12.2021 - 21:15

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Så bra du fant ut av det selv. Svar på ditt 2. spørsmål se lengre opp. mvh DROPS Design

04.01.2022 - 15:31

country flag Ann-Mari Kindsbækken wrote:

Gjelder Nougat Cardigan. Etter 2.øking stemmer ikke mønsterbord 3 med mønsterbord 2. Iflg mønster skal 1 maske farge hvete i mønsterbord 3 være rett over 1 maske lilla tåke i mønsterbord 2 (nederste spiss i bord 2). For å få det til å stemme må jeg strikke 4 masker lys grågrønn (istedenfor 3 som mønsteret sier) og da vil vel ikke resten av mønsterborden bli symmetrisk. Hvordan løser jeg dette? Mvh Ann-Mari K

08.08.2021 - 10:24

DROPS Design answered:

Hei Ann-Mari. Pga økningene vil det ikke bli helt symmetrisk slik du ser det på diagrammet, men slik må det være. Om du ser på bildet er det "usymmetrisk", men det vises nesten ikke og det faller seg naturlig når plagget blir større ved økningene. mvh DROPS design

18.08.2021 - 07:50

country flag Helena Katajisto wrote:

Hei. Olen kiinnostunut mallista ja langoista malliin 191-3 niin saako mukaan printattuja ohjeita vai onko ohjeet ainoastaan videolla?

06.01.2021 - 08:48

DROPS Design answered:

Hei, voit tulostaa kaikkia ohjeitamme ilmaiseksi sivuiltamme.

12.03.2021 - 14:17

country flag Micheline Jans wrote:

Ik heb een vraag het design laat enkel de goede kant zien, wil zit zegen dat de aververchtse kant dezelfde steken beteken in dezelfde kleuren?

31.12.2020 - 20:51

country flag Christiane wrote:

Hallo, gerne würde ich den Schnitt der Jacke übernehmen und mit der Wolle Air und 1Faden Brushed alpaca silk stricken. Welche Nadelstärke muss ich verwenden und kann ich die Maße so übernehmen bzw. einfach eine Größe kleiner nehmen wegen des doppelten Fadens? Ich freue mich auf Ihren Tipp, bin schon ganz gespannt

08.11.2020 - 22:20

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, wenn Sie 1 Faden Air + 1 Faden Brushed Alpaca Silk stricken möchten, dann bekommen Sie wie ein Faden der Garngruppe E - hier sehen Sie ein Beispiel. Viel Spaß beim stricken!

09.11.2020 - 11:37