DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Periwinkle Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS 191-29
DROPS Design: Mynstur me-134
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-800 g litur 19, ljós gráblar
100-150-150-150-150-150 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 8-8-8-8-9-9 st.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Merino Extra Fine 30, 01.
B) DROPS Merino Extra Fine 01, 15.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 211 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 20,1. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 19. og 20. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir slétt svo ekki myndast göt.

LEIÐBEININGARA-1 (á við um kanta að framan):
Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið með grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstur er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 3, 11, 19, 26, 34, 41, 49 og 56 cm.
M: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 58 cm.
L: 3, 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm.
XL: 3, 12, 20, 29, 37, 46, 54 og 62 cm.
XXL: 3, 11, 19, 26, 34, 42, 49, 57 og 64 cm.
XXXL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59 og 66 cm.
ATH: Síðasta af þessum 8-8-8-8-9-9 hnappagötum er fellt af ca mitt í kanti í hálsmáli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan til loka.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærri í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun aðeins neðar í uppskrift.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 211-231-249-269-295-323 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum ljós gráblár. Prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 5 lykkjur slétt, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 lykkjum slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 201-221-237-257-281-309 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 53-58-62-67-73-80 lykkjur inn frá hvorri hlið = 95-105-113-123-135-149 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir slétt). Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við miðju að framan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 8 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 185-205-221-241-265-293 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 45-50-53-58-63-69 lykkjur slétt (= framstykki), fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 79-89-95-105-115-127 lykkjur slétt (= bakstykki), fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur fyrir handveg og prjónið þær 45-50-53-58-63-69 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 44-46-48-52-52-54 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum ljós gráblár. Prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 9-7-9-7-9-7 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-13-16-17-19-20 sinnum (skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni) = 66-72-80-86-90-94 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 46-45-43-41-40-38 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur, prjónið 58-64-70-76-78-80 lykkjur slétt og fellið af þær 4-4-5-5-6-7 lykkjur sem eftir eru.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt er af fyrir handvegi = 285-317-341-373-397-425 lykkjur.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Haldið áfram með litnum ljós gráblár og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en kantar að framan eru prjónaðir slétt. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-6-0-2-6-4 lykkjur jafnt yfir = 281-311-341-371-391-421 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 1-2-3-3-4-6 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar eru sett saman er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 27-30-33-36-38-41 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.1A er fækkað um 10-0-10-20-20-30 lykkjur jafnt yfir = 271-311-331-351-371-391 lykkjur. ATH: Í stærð S og L er lykkjum fækkað í einingum með natur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 13-15-16-17-18-19 mynstureiningar með 20 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í A.2A. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 141-161-171-181-191-201 lykkjur í umferð.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram að prjóna kant í hálsmáli ef ekki er óskað eftir að prjóna upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í miðju lykkju í umferð = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur slétt fram hjá lykkju með prjónamerki í, snúið við, herðið á þræði og prjónið 31-33-35-37-39-41 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 46-49-52-55-58-61 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið 61-65-69-73-77-81 lykkjur brugðið. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 76-81-86-91-96-101 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum natur og fækkið jafnframt um 24-40-44-48-54-58 lykkjur jafnt yfir = 117-121-127-133-137-143 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður slétt). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kanti að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2018
Tákn í mynsturteikningu fyrir natur og ljós blágrár hafa verið leiðrétt
Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2018
Leiðrétting í mynsturteikningu A.2A

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með natur
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með ljós gráblár
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = úrtökuumferð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Elly De Hooge wrote:

Goeden middag, kun je bv dit fair isle patroon ook op een boven naar beneden breien manier gebruiken. Dus ipv minderen de steken meereden? Vr.gr Elly

29.03.2024 - 13:15

DROPS Design answered:

Dag Elly,

Ja, dat zou kunnen, dan doe je het precies andersom. Waar je normaal moet minderen, ga je meerderen etc.

10.04.2024 - 09:39

country flag Elvia wrote:

Hello! Thank you for your lovely free patterns. I have joined the sleeves to the body. Knitting has become difficult at this point. Knitting gets tight when I reach the sleeves. Is this the expected? Do you have any suggestions that can make it easier? Thanks!!

13.11.2023 - 04:44

DROPS Design answered:

Dear Elvia, the first rows might look a bit tricky but after some rows, it will work super fine again. You can get helped continuing working the sleeves on double pointed needles or on another circular needle for the first rows. Happy knitting!

13.11.2023 - 08:36

country flag Gerd Formofetten wrote:

Jeg strikker jakken rundt med oppklippsmasker. Får ikke mønsteret til å stemme. Str xl. Skal jeg telle med a2b rundt hele omgangen?

30.12.2021 - 07:43

DROPS Design answered:

Hej Gerd. A.2B stickar du kun en gang på omgangen (rett för de sista 5 stolpemaskerna). Du har 351 m. 5 + (17xA.2A) + A.2B + 5 = 351 m. Mvh DROPS Design

04.01.2022 - 14:39

country flag Carole wrote:

Is this pattern available in kid sizes? Thank you

29.11.2021 - 14:41

DROPS Design answered:

Dear Carole, not exactly the same - find our nordic patterns of jackets for children here. Happy knitting!

29.11.2021 - 15:47

country flag Cecillia wrote:

Hi! What are the measurement (S, M, L) for the finished garment? I can't find it.

05.07.2021 - 06:56

DROPS Design answered:

Dear Cecillia, you will find all finished measurements for each size in the chart at the end of the patttern - measure a similar garment you have and like the shape to find ou the matching size - read more here. Happy knitting!

05.07.2021 - 08:35

country flag Susanne Johnsen wrote:

Hej. Er lige begyndt på mønster og kan ikke finde ud af om den ekstra maskebi mønster A1B skal sluttes af på pinden, eller man skal starte med den i næste pind. Kan ikke få mønsteret til at passe. Vh Susanne strikker str XXXL

21.04.2021 - 08:29

DROPS Design answered:

Hej Susanne, jo, det er for at få mønsteret ens i hver side mod midt foran. Når du slutter med den ene maske i venstre side, så starter du også med den når du strikker tilbage igen :)

28.04.2021 - 15:37

country flag Régine Plessis wrote:

Je réalise ce modèle en taille Médium. Je suis arrivée à une hauteur de 36cm pour les devants et le dos pour faire les emmanchures et d'après le schéma il est indiqué une hauteur de 60 cm. Est- une erreur? Que dois-faire? Je vous remercie. Régine

05.02.2021 - 17:18

DROPS Design answered:

Bonjour Regine, le gilet mesure environ 60 cm de hauteur totale depuis l'épaule. Dans la taille M vous commencez a faire les emmanchures à une hauteur de 36 cm. Comment lire le schéma des mesures vous trouverez ICI. Bon tricot!

05.02.2021 - 17:55

country flag Claire Wauthy wrote:

Bonjour, je réalise ce gilet en taille M. pouvez-vous confirmer qu’il y a 0 diminutions à fait à la fin du diagramme A1A ou bien est-ce une erreur de frappe ? Je vous remercie. Claire

30.07.2020 - 02:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Wauthy, aucune faute de frappe: vous tricotez: 5 m de bordure devant, 30 fois A.1A (= 30 fois 10 m), A.1B (= 1 m) et 5 m de bordure devant = 5+30x10 +1 +5= 311 m. Bon tricot!

30.07.2020 - 09:14

country flag Sunniva wrote:

A2b fra vrangsiden... skal den strikkes først eller sist?

14.02.2020 - 08:02

DROPS Design answered:

Hej Sunniva, du strikker samme mønster men fra modsat side (altså i modsat rækkefølge) som du ser selve mønsteret i diagrammet fra retsiden. God fornøjelse!

14.02.2020 - 11:47

country flag Emma wrote:

Hej. På bilden ser det ut som att de fem framkantmaskorna på vissa ställen är blåa. Enligt vad jag förstår av mönstret skickas de fem framkantmaskorna alltid i vit färg. Har jag missat något? :)

10.07.2019 - 23:05

DROPS Design answered:

Hei Emma. Du strikker stolpene i samme farge som resten av omgangen. God fornøyelse

11.07.2019 - 12:49