DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Pearl

Prjónuð peysa í garðaprjóni með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS 187-37
DROPS Design: Mynstur ai-120
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 fyrir kanta með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 35 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð í A. og A.5.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Endurtakið við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 24 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 100-104-108-112-116-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn það eiga ekki að myndast göt.
Prjónið síðan mynstur frá miðju að aftan þannig:
Prjónið svona yfir hálft bakstykki: Prjónið A.1 (= 5 lykkjur) yfir næstu 5-5-5-5-5-10 lykkjur (= 1-1-1-1-1-2 sinnum á breidd), A.2 (= 1-2-3-4-5-1 lykkjur).
Prjónið yfir framstykki þannig: Prjónið A.5 (= 2-3-4-5-1-2 lykkjur), A.1 yfir 10-10-10-10-15-20 lykkjur, A.2 yfir 1-2-3-4-5-1 lykkjur.
Prjónið yfir vinstri ermi þannig: Prjónið A.3 yfir 16 lykkjur, A.4 yfir 5 lykkjur, A.3 yfir 16 lykkjur.
Prjónið yfir hálft bakstykki þannig: prjónið A.5 yfir 2-3-4-5-1-2 lykkjur og A.1 yfir síðustu 5-5-5-5-10-10 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2, A.4 og A.5 (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.3 = alls 8 lykkjur fleiri í annarri hverri umferð). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum snúnar inn í mynstur, það eiga ekki að myndast göt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Mynstureining A.1 og A.3 er endurtekið á hæðina. Þegar A.2, A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina halda útaukningar áfram í annarri hverri umferð og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og áður. Aukið út hvoru megin við hvert A.3 alls 14-16-19-21-24-27 sinnum (meðtaldar útaukningar í A.2, A.4 og A.5) = 212-232-260-280-308-336 lykkjur. Haldið síðan áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá kanti í hálsi.
Nú skiptist stykkið við ermar og fram- og bakstykki þannig:
Prjónið 31-33-36-40-45-51 brugðnar lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi, prjónið 63-67-73-81-91-103 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi, prjónið 32-34-37-41-46-52 lykkjur brugðið (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 142-154-166-182-202-222 lykkjur.
Prjónið nú stykkið áfram í sléttprjóni, en með rönguna út, þ.e.a.s. snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur frá röngu út.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi (= 71-77-83-91-101-111 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin).
Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 4 cm millibili alls 6-6-7-7-6-6 sinnum = 166-178-194-210-226-246 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er skipt yfir á hringprjón 4,5 og prjónaðar eru 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist alls ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 43-49-57-59-63-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-10-10-10-10-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki mitt undir ermi = 51-59-67-69-73-73 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur.
Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, þær 8-10-10-10-10-8 nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum með 5½-4-2½-2-2-2 cm millibili alls 6-8-12-12-14-12 sinnum = 39-43-43-45-45-49 lykkjur.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 5 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki er prjónað áfram í sléttprjóni frá röngu, þ.e.a.s. snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur frá röngu í hring.
Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-31 cm skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan) í hring frá röngu, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-1-1-0-0-1 lykkju = 39-42-42-45-45-48 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 43-42-41-39-38-36 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist alls 63-64-64-64-65-65 cm frá kanti í hálsmáli. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Guro wrote:

Hei, Hvor mye av garnet beregnes til strukturdelen øverst på denne genseren? Jeg vurderer å strikke den tofarget i Str. S.

15.05.2023 - 09:29

DROPS Design answered:

Hei Guro. Det har vi ikke oversikten over. Vi veier et plagg kun når det er ferdig strikket og sammenligner det med de nøstene vi har brukt.mvh DROPS Design

15.05.2023 - 12:47

country flag Tone wrote:

Etter første omgang med økninger sitter jeg igjen med 5 masker som ikke er strikket (på omgangen). Hva gjør jeg feil?

23.12.2021 - 13:07

DROPS Design answered:

Hej Tone. Vilken storlek stickar du? Mvh DROPS Design

03.01.2022 - 13:59

country flag Dea wrote:

Buongiorno, dove si inizia lo sprone, dope coste a legaccio dice di lavorare un giro con aumenti, bisogna specificare che il giro è lavorato a diritto. Grazie.

05.08.2021 - 15:09

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!

06.08.2021 - 19:10

country flag Jill wrote:

I noticed when I turned the body piece wrong side out to continue in knit stitches , as in the instructions, it left a small hole because the direction of knitting had changed. Is there a technique to avoid this happening when I do the same on the sleeves?

08.07.2019 - 16:52

DROPS Design answered:

Dear Jill, you can try to pull the yarn really thight, when you turn the piece. Or you can wrap the yarn around the last stitch, before you turn, and then lift the wrap and knit it together with the stitch. Also, you can pick up the yarn right after the stitch where you turned the piece and knit this stitch as a twisted stitch together with the first stich, ths should cover the hole. Happy Knitting. I hope one of teh methods will solve your problem. Happy Knitting!

08.07.2019 - 22:38

country flag Andrea wrote:

Hallo, würde das Modell gern stricken, habe aber eine dünnere Wolle, bei der die Maschenprobe mit 3,5er Nadeln ca 24 M x 32 R (10x10 cm) ergibt. Kann ich die Anleitung irgendwie auf meine Wolle umrechnen? Oder könnten Sie mir bitte andere Top down-Raglanärmel-Vorlägen für meine Wollstärke (Merino) empfehlen? Vielen Dank vorab! Andrea

25.02.2019 - 19:26

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, hier finden Sie alle Pullover, von oben nach unten gestrickt, mit einem Garn der Garngruppe A. Viel Spaß beim stricken!

26.02.2019 - 10:45

country flag Berbett Marie wrote:

Je ne comprends pas comment tourner le tricot à l'envers et continuer au point mousse, le fil se retrouve du mauvais côté de l'aiguille. Merci

10.02.2019 - 15:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berbet, vous pouvez procéder comme pour les rangs raccourcis sur l'envers au début du 1er tour ou bien simplement tricoter le 1er tour à l'envers, et, à la fin du tour, relever le fil entre la dernière m et la 1ère m et le tricoter ensemble torse avec la m suivante pour cacher ce petit trou. Bon tricot!

11.02.2019 - 10:30

country flag Berbett Marie wrote:

Je bloque au moment de tricoter à l'endroit sur l'envers . Le fil se trouve du côté gauche.

08.02.2019 - 17:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berbett, quand on tricote du point mousse en rond, on tricote alternativement 1 tour endroit (le fil est derrière l'ouvrage) et 1 tour envers (le fil est devant l'ouvrage). Quand Vous tricotez ensuite de nouveau 1 tour en mailles endroit, passez le fil derrière l'ouvrage (passez--le entre les 2 aiguilles) pour tricoter 1 maille endroit. cette vidéo montre comment tricoter du point mousse en rond. Bon tricot!

11.02.2019 - 07:58

country flag Silje D wrote:

Så A3 skal ikke økes i det hele tatt?

12.11.2018 - 09:21

DROPS Design answered:

Hej Silje, nej du øker ikke i A.3. God fornøjelse!

16.11.2018 - 15:32

country flag Monique Larochelle wrote:

D'après la photo, après 20cm de l'encolure, je couvre le buste, ce n'est pas mon cas du tout, je suis loin de ça, est-ce qu'il y a un problème avec le patron ? Merci

12.11.2018 - 02:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Larochelle, Quand les augmentations sont faites, vous continuez à tricoter les mailles comme elles se présentent jusqu'à ce que l'empiècement mesure 22 cm depuis le col - (= 20 cm de point fantaisie + 2 cm de bordure d'encolure) - pensez à bien vérifier votre tension en hauteur également. Bon tricot!

12.11.2018 - 10:35

country flag Silje D wrote:

I oppskriften står det at etter at A2, A4 og A5 er strikket en gang så skal en fortsette å øke A2, A4 og A5 i tillegg til at A3 skal økes i hver side totalt 14 ganger. Men det klarer jeg ikke å få til å stemme - da ender jeg opp med mer enn 300 masker. Eneste jeg kan se som fungerer for å få 212 masker er å øke A2, A4 og A5 3 ganger og A3 6 ganger. Er det noe jeg leser feil ved oppskriften?

10.11.2018 - 21:38

DROPS Design answered:

Hei Silje, Du skal øke totalt 8 masker 2. hver omgang totalt 14-16-19-21-24-27 ganger som inkluderer økningene i A.2, A.4 og A.5. Da du er ferdig har du økt 112-128-152-168-192-216 masker og har 212-232-260-280-308-336 masker på pinnen. God fornøyelse!

12.11.2018 - 08:15