DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Jalisco

Prjónað regnbogateppi í perluprjóni, röndum og kögri. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum DROPS Snow.

DROPS 189-1
DROPS Design: Mynstur ee-627
Garnflokkur E + E eða F
-----------------------------------------------------------

Mál: ca 130 cm x 100 cm (án kögurs)

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
200 g litur 01, natur
200 g litur 30, ljós bleikur
150 g litur 54, millifjólublár
150 g litur 05, turkos
150 g litur 12, ljós blár
150 g litur 24, gulur
150 g litur 37, vatnslitablár
150 g litur 26, bleikur
150 g litur 35, lime
150 g litur 31, pastelblár
Ef prjóna á teppið úr einum lit þá þarf ca 1150 g Snow.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 20 – eða þá stærð sem þarf til að 6 lykkjur og 10 umferðir með perluprjóni með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

SKIPT UM ÞRÁÐ:
Í hvert skipti sem skipt erum lit í röndum þá þarf að vera 25 cm langur endi á þræðinum á enda, endinn er notaður í kögur. Þess vegna er mikilvægt að það sé skilin eftir endi í byrjun og í lok á hverri litarönd.
Ef skipt er um lit jafnóðum í röndum þá þarf að tvinna þræðina saman til þess að sleppa við að festa endana. Deilið síðustu 10 cm á enda á nýja og gamla þræðinum, bleytið þá aðeins og tvinnið þá saman í lófa (= þæfast létt saman).

LITAMYNSTUR:
Prjónið 2 umferðir í perluprjóni á hvorri rönd. Rendurnar eru prjónaðar í eftirfarandi litum:

RANDARMYNSTUR:
Prjónið 2 umferðir perluprjón í hverri rönd. Rendurnar eru prjónaðar í þessum litum:
RÖND 1: 2 þræðir ljós blár
RÖND 2: 1 þræðir ljós blár + 1 þráður pastelblár
RÖND 3: 2 þræðir pastelblár
RÖND 4: 1 þráður pastelblár + 1 þráður natur
RÖND 5: 2 þræðir natur
RÖND 6: 1 þráður natur + 1 þráður ljós bleikur
RÖND 7: 2 þræðir ljós bleikur
RÖND 8: 1 þráður ljós bleikur + 1 þráður gulur
RÖND 9: 2 þræðir gulur
RÖND 10: 1 þráður gulur + 1 þráður ljós bleikur
RÖND 11: 2 þræðir ljós bleikur
RÖND 12: 1 þráður ljós bleikur + 1 þráður bleikur
RÖND 13: 2 þræðir bleikir
RÖND 14: 1 þráður bleikur + 1 þráður millifjólublár
RÖND 15: 2 þræðir millifjólublár
RÖND 16: 1 þráður millifjólublár + 1 þráður turkos
RÖND 17: 2 þræðir turkos
RÖND 18: 1 þráður turkos + 1 þráður vatnslitablár
RÖND 19: 2 þræðir vatnslitablár
RÖND 20: 1 þráður vatnslitablár + 1 þráður natur
RÖND 21: 2 þræðir natur
RÖND 22: 1 þráður natur + 1 þráður lime
RÖND 23: 2 þræðir lime
RÖND 24: 1 þráður lime + 1 þráður natur
RÖND 25: 2 þræðir natur
RÖND 26: 1 þráður natur + 1 þráður pastelblár
RÖND 27: 2 þræðir pastelblár
RÖND 28: 1 þráður pastelblár + 1 þráður ljós blár
RÖND 29: 2 þræðir ljós blár
RÖND 30: 1 þráður ljós blár + 1 þráður bleikur
RÖND 31: 2 þræðir bleikur
RÖND 32: 1 þráður bleikur + 1 þráður gulur
RÖND 33: 2 þræðir gulur
RÖND 34: 1 þráður gulur + 1 þráður natur
RÖND 35: 2 þræðir natur
RÖND 36: 1 þráður natur + 1 þráður ljós bleikur
RÖND 37: 2 þræðir ljós bleikur
RÖND 38: 1 þráður ljós bleikur + 1 þráður lime
RÖND 39: 2 þræðir lime
RÖND 40: 1 þráður lime + 1 þráður millifjólublár
RÖND 41: 2 þræðir millifjólublár
RÖND 42: 1 þráður millifjólublár + 1 þráður vatnslitablár
RÖND 43: 2 þræðir vatnslitablár
RÖND 44: 1 þráður vatnslitablár + 1 þráður turkos
RÖND 45: 2 þræðir turkos
RÖND 46: 1 þráður turkos + 1 þráður bleikur
RÖND 47: 2 þræðir bleikur
RÖND 48: 1 þráður bleikur + 1 þráður ljós bleikur
RÖND 49: 2 þræðir ljós bleikur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar.

TEPPI:
Fitjið upp 78 lykkjur á hringprjón 20 með 2 þráðum í litnum ljós blár, látið endana vera 25 cm (það á að nota þá í kögur í lokin). Prjónið síðan PERLUPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan og lesið SKIPT UM ÞRÁÐ.
Þegar 49. röndin hefur verið prjónuð til loka eru báðir þræðirnir klipptir frá (þetta er gert til þess að það verði nægilega margir þræðir í kögur). Skiptið yfir í 1 nýjan þráð með litnum ljós bleikur og 1 þráð í litnum pastelblár og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá og festið enda í þessum enda á stykki. Nú eru alls 102 þræðir sem eru 25 cm á annarri hlið á stykki fyrir kögur.

KÖGUR:
Þræðirnir á hlið eru fléttaðir saman. Byrjið á öðrum endanum, hnýtið saman 2 og 2 þræði upp yfir alla hliðina með tvöföldum hnútum. Síðan eru notaðir 6 þræðir í hverja fléttu. Leggið endana í 3 hluta með 2 þræði og fléttið þá laust saman. Þegar fléttan mælist ca 14 cm er hnýttur hnútur á endann. Fléttið alla þræðina svona saman (= 17 fléttur) og klippið frá þannig að endarnir verði jafn langir.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Kirsten wrote:

Hallo, Ich lese es richtig und die Nadel Nr.20 bedeutet Nadelstärke 20mm?

26.10.2023 - 16:45

DROPS Design answered:

Liebe Kirsten, richtig, diese Decke wird mit 2 Fäden DROPS Snow und Nadeln Nr 20 / 20 mm gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

27.10.2023 - 08:18

country flag Fausta Gina Cavaletto wrote:

Non ho capito quante maglie x fare una larghezza di cm. 100 e vorrei usare ferri diritti grazie

04.10.2023 - 19:31

DROPS Design answered:

Buonasera Fausta, se vuole modificare la larghezza, deve fare un campione e lavorare in base a quello. Buon lavoro!

05.10.2023 - 21:54

country flag SAINT JALM wrote:

S\'il vous plait, Quelle est la hauteur des rayures? Merci

05.03.2023 - 14:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Saint Jalm, chaque rayure consiste en 2 rangs point de riz, retrouvez les couleurs à utiliser sous RAYURES. Bon tricot!

06.03.2023 - 09:57

country flag Dorka wrote:

Hallo, ich bin mir anhand der Anleitung leider nicht sicher ob man in jeder Reihe BEIDE Fäden abschneiden muss oder nur den Faden den man wechselt.

17.09.2022 - 07:59

DROPS Design answered:

Liebe Dorka, der Faden wird jeweils abgeschnitten und zwar, wird man vor jeder und nach jeder Streifen 25 cm für die Fransen stehen lassen - siehe FARBWECHSEL am Anfang der Anleitung. Viel Spaß beim stricken!

19.09.2022 - 09:16

country flag Anette wrote:

Jag undrar om om följande; Arbetet är stickat i 2 trådar DROPS Eskimo, är det att man använder 2 st garnnystan samtidigt? Om man stickar den i enfärgad ska jag beställa 23 st garnnystan? 1150 gr/50 gr= 23 nystan.

04.11.2020 - 13:17

DROPS Design answered:

Hej Annette, ja det stemmer, husk at overholde strikkefastheden så du ikke strikker for stramt :)

04.11.2020 - 14:36

country flag Tula Strand wrote:

Kan mønsteret strikkes med en tråd polaris? Hvor mange nøster/gram vil det gå med polaris? Samme pinne som med to tråder eskimo?

09.10.2020 - 02:09

DROPS Design answered:

Hej Tula. Ja du kan sticka denna med 1 tråd DROPS Polaris. Se bara till att få den stickfasthet som uppges i oppskriften. Du får räkna ut hur många meter garn du behöver för att göra den, du kan läsa mer om detta här. Lycka till!

09.10.2020 - 06:27

country flag Linda Allen wrote:

How can I purchase the yarn and design for this blanket? Any UK shops sell it?

21.06.2020 - 10:27

DROPS Design answered:

Dear Linda, pattern for this blanket is free and you can choose from several languages (see menu under the main photo) - you can print this pattern directly from our site. For yarn you can find a DROPS store here . Happy knitting!

21.06.2020 - 13:17

country flag Floriana wrote:

Buona giornata, con quale numero di ferri posso sostituire il ferro circolare? Grazie

22.04.2020 - 12:27

DROPS Design answered:

Buongiorno Floriana. Può provare con ferri dritti della stessa misura di quelli suggeriti nel modello. Scelga comunque la misura che le consente di ottenere lo stesso campione indicato. Buon lavoro!

22.04.2020 - 15:15

country flag Melanie Horstink-Knights wrote:

I have just finished this blanket and it was such a joy to make. The end result is stunning and so so warm. It is beautifully soft. I am so happy with it that I have asked my daughter to choose her favourite colours and I'm making her one.

17.04.2020 - 19:04

country flag Pia Ahlefeldt wrote:

78 m virker som meget få til et tæppe i denne størrelse, er det viste tæppe lavet på 78 m. Det ser stort ud til så få masker.

13.04.2020 - 15:35

DROPS Design answered:

Hei Pia. Ja, det er 78 masker. Teppet strikkes på pinne størrelse 20, så man trenger ikke mange masker for at det skal bli stort. God Fornøyelse!

17.04.2020 - 14:54