DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Forest Call

Prjónuð peysa með kimono ermum, öldumynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk.

DROPS 187-33
DROPS Design: Mynstur de-177
Garnflokkur A + A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M – L -XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-400 g litur 08, grænn/beige
250-300-350-350-400-400 g litur 16, grænn/blár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-200 g litur 18, eplagrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 13 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð eða 16 lykkjur öldumynstur á breidd með 3 þráðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð í A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Stykkið skiptist við handveg, þar eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermar. Síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 173-191-209-209-227-245 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði af hvorum lit með Delight og 1 þærði af Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan þannig – frá réttu: A.2 (10 lykkjur = kantur að framan), A.1 yfir næstu 153-171-189-189-207-225 lykkjur (= 9 mynstureiningar af A.1 á breidd – sjá mynstureiningu fyrir rétta stærð), endið með A.3 (10 lykkjur = kantur að framan). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm. Setjið fyrstu og síðustu 44-48-52-52-56-60 lykkjur á þráð, prjónið síðan yfir 85-95-105-105-115-125 lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 40-44-48-48-52-56 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 165-183-201-201-219-237 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 6 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 153-171-189-189-207-225 lykkjur (= 9 mynstureiningar af A.1 á breidd), endið með 6 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm (= 20-21-22-23-24-25 cm frá skiptingu frá framstykki/bakstykki). Fellið nú af miðju 17-19-21-21-23-25 lykkjur í umferð = 74-82-90-90-98-106 lykkjur eftir á hvorri öxl/ermi. Haldið áfram þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið síðan af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn = 44-48-52-52-56-60 lykkjur.
Fitjið upp 40-44-48-48-52-56 nýjar lykkjur í lok fyrstu umferðar frá réttu = 84-92-100-100-108-116 lykkjur. Prjónið þannig (frá röngu): 6 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 68-76-84-84-92-100 lykkjur (= 4 mynstureiningar af A.1 á breidd), endið með A.2. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá skiptingu frá framstykki/bakstykki). Fellið af fyrstu 74-82-90-90-98-106 lykkjur í næstu umferð frá röngu, prjónið út umferðina (= 10 lykkjur eftir á prjóni (= kantur að framan). Snúið stykkinu og prjónið stuttar umferðir og garðaprjón yfir kant að framan þannig:
Byrjið frá réttu og * prjónið yfir fyrstu 5 lykkjur, snúið og prjónið til baka, snúið, prjónið yfir allar lykkjur, snúið og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 8-9-10-10-11-12 cm þar sem hann er stystur. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka síðustu 44-48-52-52-56-60 lykkjur á prjóni.
Fitjið upp 40-44-48-48-52-56 nýjar lykkjur í lok fyrstu umferðar frá röngu = 84-92-100-100-108-116 lykkjur. Prjónið nú þannig (frá réttu): 6 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 68-76-84-84-92-100 lykkjur(= 4 mynstureiningar af A.1 á breidd), endið með A.3. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá skiptingu frá framstykki/bakstykki). Fellið af fyrstu 74-82-90-90-98-106 lykkjur í næstu umferð frá réttu (= 10 lykkjur eftir á prjóni (= kantur að framan)). Snúið stykkinu og prjónið stuttar umferðir og garðaprjón yfir kant að framan þannig:
Byrjið frá röngu og * prjónið yfir fyrstu 5 lykkjur, snúið og prjónið til baka, snúið, prjónið yfir allar lykkjur, snúið og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 8-9-10-10-11-12 cm þar sem hann er stystur. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum og axlasauma. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið við hálsmál.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 3 þræði ca 2 metra (= 1 þráður af hvorum lit með Delight og 1 þráður Kid-Silk).
Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, þræðið snúruna í gegnum eitt af götum í kanti að framan, ca 33 cm frá neðri kanti, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á endann. Gerið það saman í hinum kantinum að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Lucia wrote:

Nello schema A2 il quadretto vuoto corrisponde a 1 maglia diritto dal diritto del lavoro, 1 maglia rovescio dal rovescio del lavoro mentre il quadretto con x corrisponde a 1 maglia diritto dal diritto del lavoro. Tra l'altro i quadretti con x si trovano sui ferri pari, quindi sul rovescio del lavoro. Può darsi che ci sia un errore e che il quadretto con x sia da intendersi = 1 maglia rovescia dal diritto del lavoro, 1 maglia diritta dal rovescio del lavoro? Grazie❣

05.02.2022 - 15:29

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, abbiamo corretto la legenda: il simbolo con la X corrisponde a 1 maglia diritto dal rovescio del lavoro. Buon lavoro!

05.02.2022 - 21:06

country flag Forest Call Drops 187-33 wrote:

Was bedeutet denn: die Arbeit wird ab dem vorderen Rand gestrickt? Also was genau ist der "vordere Rand"?

21.03.2021 - 14:25

DROPS Design answered:

Hallo! Die Jacke wird von unten nach oben gestrickt, der Rumpfteil wird in einem Teil bis zum Armoch gestrickt, dh die Hinreihen beginnen bei dem rechten Vorderteil und enden mit dem linken Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!

22.03.2021 - 08:17

country flag Leen wrote:

Beste, tot nu toe waren alle patronen in small perfect voor mijn maat, maar ik vermoed dat er hier een fout in het patroon gelopen is. Als ik de stekenverhouding van het proeflapje gebruik, dan wordt mijn vest minstens 133 cm breed (achterpand + 2 zijpanden voor), wat waanzinnig breed is voor mijn maat. Zeker wanneer je kijkt naar het patroonfotootje waarop staat dat het achterpand 52 cm zou moeten zijn. Is het mogelijk om een aanpassing door te geven zodat het er uit ziet zoals op de foto’s?

18.03.2020 - 15:45

DROPS Design answered:

Dag Leen,

Het komt door het golfpatroon dat het nodig is om meer steken op te zetten en dit trekt dus bij zodra je gaat breien. (Het proeflapje is aangegeven in tricotsteek.)

18.03.2020 - 18:09

country flag Elisabeth wrote:

Hallo Antje, beim drucken einfach die Einstellung überprüfen und dem Drucker "sagen", dass nur die Seiten gedruckt werden sollen, die Sie benötigen. Sie drücken auf "Anleitung drucken", dann erscheint Ihr Drucker, dort ist meistens ein Punkt bei "alle Seiten" (hier 7 mit Werbung) angeklickt. Sie schreiben in das Feld drunter 1-6 und verzichten somit auf die letzte Seite.

29.06.2018 - 14:04

country flag Antje wrote:

Hallo, die Anleitungen gefallen mir , aber beim ausdrucken habe ich das Problem, das immer zum Schluss 1 Seite mit Werbung ausgedruckt wird. Wie kann ich das vermeiden?

17.05.2018 - 14:04

country flag Samira wrote:

Forest Call... 192.168.0.1

15.05.2018 - 09:57

country flag Elke Tan wrote:

For a name I suggest "Fairy woods" :)

16.01.2018 - 22:47

country flag Gabriele wrote:

Eine schöne Jacke für den Übergang.

15.12.2017 - 19:08

country flag Heidi wrote:

Walk in the forest

14.12.2017 - 12:06