DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Miles Away

Hekluð peysa með gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Cotton Light.

DROPS 187-2
DROPS Design: Mynstur cl-084
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 21, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 stuðlar og 8 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Fyrst er bakstykkið og framstykki heklað, hvort fyrir sig, síðan eru ermar heklaðar. Öll stykkin eru síðan saumuð saman í lokin. Kantur í kringum hálsmál er heklaðuð í lokin.

BAKSTYKKI:
Heklið 94-101-108-122-129-143 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Cotton Light.
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum, * 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, heklið frá *-* þar til 1 loftlykkja er eftir, 1 stuðull í síðustu loftlykkju = 80-86-92-104-110-122 stuðlar. Heklið síðan frá réttu þannig: Heklið A.1 – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, A.2 (= 6 lykkjur) alls 13-14-15-17-18-20 sinnum á breidd og endið með A.3 yfir síðasta stuðul. Haldið áfram með mynstrið.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! A.1 til A.3 er endurtekið á hæðina.
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, er gerður handvegur þannig: Klippið þráðinn frá, hoppið yfir 6-6-6-12-12-12 lykkjur (= fyrir handveg), heklið 1 keðjulykkju í næstu lykkju, 3 loftlykkjur, A.2 yfir næstu 66-72-78-78-84-96 lykkjur og endið með A.3 yfir næstu lykkju (nú eru eftir 6-6-6-12-12-12 lykkjur í umferð fyrir handveg) = alls 68-74-80-80-86-98 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er A.1 heklað í síðasta stuðul. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, stillið af að síðasta umferð sé hekluð frá röngu, heklið hvora öxl til loka fyrir sig.
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 20-23-24-24-25-31 stuðlum (= öxl). Heklið 2 umferðir til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul. Klippið þráðinn frá og festið enda. Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Hoppið yfir 28-28-32-32-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli, heklið 1 keðjulykkju í næstu lykkju og 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 19-22-23-23-24-30 lykkjum.
Heklið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Heklið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-44-46-46-48 cm, stillið af þannig að síðasta umferðin sem er hekluð sé fyrsta umferðin í A.2 (síðasta umferðin er hekluð frá réttu).
Nú skiptist stykkið og hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig þannig:

HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu. Heklið A.3 yfir fyrstu 1-1-2-2-3-3 lykkjur (heklað er um loftlykkjur og í stuðla), heklið A.2 yfir næstu 15-18-18-18-18-24 lykkjur, heklið A.4 yfir næstu 12 lykkjur, snúið stykkinu. Haldið áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli eftir mynsturteikningu A.4. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 20-23-24-24-25-31 stuðlar í síðustu umferð. Heklið mynstur þar til stykkið mælist 52-54-56-58-62 cm, stillið af að endað sé með 1 umferð með stuðlum frá röngu. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð):
Heklið nú vinstri öxl þannig (fyrsta umferð = ranga):
Hoppið yfir 12-12-16-16-20-20 stuðlar frá þar sem A.4 var heklað (= fyrir hálsmál), heklið 1 keðjulykkju í næstu lykkju, heklið síðan A.5 yfir sömu lykkju og næstu 11 lykkjur (= alls 12 lykkjur), heklið A.2 yfir næstu 15-18-18-18-18-24 lykkjur og endið með A.1 yfir síðustu 1-1-2-2-3-3 lykkjur (heklað er um loftlykkjur og í stuðla). Haldið áfram með mynstur og úrtöku fyrir hálsmáli eftir mynsturteikningu A.5. Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 20-23-24-24-25-31 stuðlar í síðustu umferð. Heklið mynstur þar til stykkið mælist 52-54-56-58-62 cm, stillið málið af við hægri öxl. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 45-45-49-49-52-52 loftlykkjur með hekluál 4,5 með Cotton Light. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 5-5-7-7-5-5 loftlykkjum, * 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, heklið frá *-* þar til eftir eru 1-1-3-3-1-1 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja og eina af síðustu 1-1-3-3-1-1 loftlykkjum = 38-38-42-42-44-44 stuðlar.
Heklið A.1 yfir fyrstu 1-1-3-3-1-1 stuðla, A.2 þar til eftir eru 1-1-3-3-1-1 stuðlar (= 6-6-6-6-7-7 sinnum á breidd), A.3 yfir síðustu 1-1-3-3-1-1 stuðla. Heklið A.1 til A.3 á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 stuðla í fyrsta og síðasta stuðul í umferð (= 2 stuðlar fleiri). Aukið svona út með 4-3½-3½-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-11-13-13-15 sinnum = 58-60-64-68-70-74 lykkjur. Útauknar lykkjur eru heklaðar jafnóðum inn í A.2. ATH: Það er alltaf 1 stuðull (eða 3 loftlykkjur = 1 stuðull) í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 48-48-47-44-44-41 cm, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, sauma á ermasaum síðar upp að prjónamerki og sauma á þær umferðir sem eftir eru saman með 6-6-6-12-12-12 stuðlum á bakstykki/framstykki sem hoppað var yfir fyrir handveg á hvorri hlið á stykki (= mitt undir ermi). Haldið síðan áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 52-52-51-51-51-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma í ystu lykkjubogana. Saumið ermar í, prjónamerki á ermi merkir hliðarsauma á framstykki og bakstykki og umferðin sem er hekluð á eftir prjónamerki er saumuð að 6-6-6-12-12-12 lykkjum sem hoppað var yfir fyrir handveg á framstykki/bakstykki. Byrjið neðst á ermi og saumið ermasaum í ysta lykkjubogann, haldið áfram að sauma hliðarsaum á framstykki og á bakstykki. Klippið frá og festið alla enda.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmál frá mitt ofan á öxl þannig: Heklið 1 fastalykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið og stillið af að endað sé með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð, passið uppá að kanturinn verði ekki stífur. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 stuðull í stuðul
symbols = 1 stuðull um loftlykkju
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir hvernig hekla á næstu umferð í/um lykkjurnar
symbols = heklið 1 stuðul í hverja og eina af 2 næstu lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar í næstu lykkju og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni (þegar umferðin byrjar svona er fyrsta stuðul skipt út fyrir 3 loftlykkjur)
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Miles Away

Georgia, Canada

Miles Away

Purebeck, Germany

Miles Away

Diane, United Kingdom

Miles Away

JMFS, United States

187-2 Miles Away

Nathalie, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (90)

country flag Christine wrote:

Hallo Drops-Team, wie erkenne ich beim häkeln, die rechte bzw. linke Seite? Welches Merkmal gibt es? Viele Grüße Christine

09.09.2021 - 12:15

DROPS Design answered:

Liebe Christine, die 1. Reihe wird hier eine Rückreihe, dann beginnen Sie mit Diagramme: A.1, A.2 wiederholen und mit A.3 enden (bei Rückreihen: A.3, A.2 wierdholen (links nach rechts lesen) und mit A.1 enden). Gerne können Sie dann eine Markierung bei den ungeraden Reihen = Hinreihen einsezten, so wissen Sie welche Seite ist die Außenseite. Viel Spaß beim häkeln!

09.09.2021 - 17:15

country flag Hélène wrote:

J’ai la même question que Chistine du 10 août 2021. Il est dit pour faire le devant de crocheter comme le dos jusqu'à ce que l’ouvrage mesure 42-44-44-46-46-48 et on commence les épaules. Mais le dos on commence les épaules à 36-37-38-39-40-41. Donc pas la même hauteur.

17.08.2021 - 00:39

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, pour le dos, vous avez formé les emmanchures à 36-41 cm (cf taille); et les épaules (= l'encolure) à 52-62 cm (fin des épaules à 54-64 cm). Pour le devant, vous crochetez comme pour le dos jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 42 à 48 cm, autrement dit, vous formez les emmanchures à 36-41 cm comme pour le dos, la hauteur de 42-48 cm du devant correspond à celle l'encolure devant, les emmanchures sont déjà faites à ce moment là vu que vous avez crocheté comme pour le dos. Bon crochet!

17.08.2021 - 10:09

country flag Christine wrote:

Hallo, ich komme mit der Anleitung Vorderteil nicht klar. Hier kann ich nicht die Armausschnitte finden. Können Sie mir helfen? Viele Grüße Christine.

10.08.2021 - 23:12

DROPS Design answered:

Liebe Christine, die Armausschnitte häkeln Sie wenn die Arbeit (siehe unter Rückenteil) 36-37-38-39-40-41 cm misst, dh: Faden abschneiden, die ersten 6/12 M (siehe Größe) überspringen (= die sind für Armausschnitt), und wie zuvor häkeln bis 6/12 M am Ende der Reihe übrig sind. Viel Spaß beim häkeln!

11.08.2021 - 09:37

country flag Christina wrote:

Alle delen heb ik volgens de beschrijving gehaakt. De afmetingen, verhoudingen en steken voor mast L kloppen exact. Toch zijn de mouwen te smal voor de mouwruimte. Waar kan het hier zijn misgegaan?

08.08.2021 - 22:59

DROPS Design answered:

Dag Christina,

Heb je er rekening mee gehouden dat de mouw a.h.w. een stukje in de panden schuift? Dus dat het eerste stukje van de naad aan de onderkant van de mouw tegen de afgekante steken op de panden komen? Zie ook de tekening onderaan.

18.08.2021 - 17:21

country flag Christine Gundlach wrote:

Hallo, ich möchte Drops 187-2 häkeln. Im Diagramm A2 ist für mich nicht erkennbar, ob in der 1. Reihe nach den 6 Stäbchen eine Luftmasche oder eine Masche übersprungen wird? Wird die se Reihe immer wieder mit gehäkelt?

26.07.2021 - 16:59

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gundlach, wenn mann A.2 häkelt beginnt man bei den Hinreihen mit A.1, und endet mit A.3, dh am Ende der 1. Reihe in A.2 endet man mit 1 Stb in das Stb, 1 Lm, 1 Stb überspringen (A.2) und 1 Stb in das letzte Stb (= A.3). Viel Spaß beim häkeln!

27.07.2021 - 09:42

country flag Veerle wrote:

Laatst gehaakte rij van voorpand moet eerste toer van A2 zijn (dus alternerend stokje en losse) en moet aan goede kant gehaakt zijn volgens patroon. Echter : de eerste rij van A2 wordt niet aan de goede kant maar aan de verkeerde kant gehaakt. De goede kant van het haakwerk is toch de kant waar de opzetdraad zich links onderaan bevindt? Wel, aan deze kant wordt de tweede en vierde rij van A2 gehaakt en niet de eerste. Of zie ik dit verkeerd ?

26.05.2021 - 09:08

DROPS Design answered:

Dag Veerle,

Volgens de beschrijving haak je een ketting van lossen en haak je de eerste toer van stokjes aan de verkeerde kant. De opzetdraad bevindt zich daardoor dus aan de rechterkant van het werk.

31.05.2021 - 10:54

country flag Nadia Trappeniers wrote:

Ik heb ong 10 cm gehaakt maar is het normaal dat deze draad zo "splitst"? Het werk ziet er echt niet netjes uit, allemaal draadjes. Ik gebruik haaknld 4,5 in metaal. En het is ook moeilijk om zo te haken want het werk gaat niet vooruit door die gesplitste draad

22.04.2021 - 11:04

DROPS Design answered:

Dag Nadia,

Cotton Light heeft inderdaad meer de neiging om te splitsen vergeleken met bijvoorbeeld Muskat. Het is een kwestie van goed opletten hoe je de naald insteekt.

25.04.2021 - 14:16

country flag Laura wrote:

Leuke trui, heb hem in turkoois (kleur code 14) gemaakt. Alleen aantal bollen katoen is te weinig, ondanks dat ik mouwen al wat korter heb gelaten kom ik bij 2de mouw niet verder dan 7x vermeerderen tot ik door alle garen heen ben.

30.03.2021 - 14:19

country flag Coco wrote:

Mir fällt gerade noch eine Unklarheit auf. Wir befinden uns in der ersten Reihe für die rechte Schulter (woher weiß ich überhaupt, wo getragen rechts und getragen links ist?). Dies ist eine Rückreihe. Ich soll dann A.4 häkeln nach 2M A.3 und 18M A.2. Die erste Reihe A.4 wäre aber eine Hinreihe. Mit welcher fange ich also an, damit ich im Muster bleibe??

21.03.2021 - 17:28

DROPS Design answered:

Liebe Coco, legen Sie die Arbeit über Sie, wie Sie den Vorderteil tragen würden = die linke Seite (von der Vorderseite gesehen) wird die rechte Seite (wenn man der Pullover trägt). Die 1. Reihe in A.4 ist eine Rückreihe, die wird links nach rechts gelesen. Viel Spaß beim häkeln!

22.03.2021 - 08:41

country flag Coco wrote:

Hallo, komme beim Vorderteil im Bereich der Schulter nicht weiter. Wenn ich nach 44cm u. der letzten Hin-R. (= 1.R. A.2) die beschriebene Rückreihe der rechten Schulter häkle, sind die Abnahmen für den Ausschnitt auf der Seite des Armausschnitts. Das Muster ist mir auch nicht klar: Immer 2M A.3, 18M A.2, 12M A.4 u. zurück dann 12M A.4, 18M A.2 und 2M A.3? Das Arbeiten der Armausschnitte fehlt mir hier irgendwie auch komplett. Ich komme überhaupt nicht weiter. Danke und viele Grüße!

21.03.2021 - 17:13

DROPS Design answered:

Liebe Coco, die 1. Reihe beim rechten Schulter muss eine Rückreihe sein, dh vom Schulter: = A.3 = 2 M, A.2 = 18 M und A.4 (über die nächsten 12 M - Reihe mit Sternchen). Bei Hinreihen häkeln Sie: A.4, A.2 und A.3. Für die Armausschnitte werden einfache die 6 ersten und die 6 letzten Maschen nicht mehr gehäkelt = über die mittleren 80 Maschen weiterhäkeln. Viel Spaß beim häkeln!

22.03.2021 - 08:39