DROPS Safran uni colour 100% Bómull |
440.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Safran uni colour 100% Bómull 440.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Malibu Top |
|
|
|
Prjónaður toppur í garðaprjóni og röndum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum DROPS Safran.
DROPS 187-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: Prjónið rendur í garðaprjóni með 2 þráðum Safran þannig: gallabuxnablár + gallabuxnablár: 6-6-8-8-8-8 umferðir í garðaprjóni gallabuxnablár + hvítur: 8-8-8-8-8-8 umferðir í garðaprjóni gallabuxnablár + ljós bláfjólublár: 10-10-10-12-12-12 umferðir í garðaprjóni ljós bláfjólublár + kórall: 6-8-8-8-10-10 umferðir í garðaprjóni kórall + kórall: 12-12-12-14-14-14 umferðir í garðaprjóni kórall + gallabuxnablár: 6-8-8-8-8-10 umferðir í garðaprjóni gallabuxnablár + hvítur: 14-14-16-16-16-18 umferðir í garðaprjóni hvítur + hvítur: 8-8-8-8-8-8 umferðir í garðaprjóni hvítur + ferskja: 6-6-6-6-6-6 umferðir í garðaprjóni ferskja + kórall: 8-10-10-10-10-12 umferðir í garðaprjóni kórall + kórall: 10-10-10-10-10-10 umferðir í garðaprjóni kórall + ljós bláfjólublár: 6-6-8-8-10-10 umferðir í garðaprjóni ljós bláfjólublár + hvítur: 4-4-4-4-6-6 umferðir í garðaprjóni kórall + ferskja: 6-6-6-8-8-8 umferðir í garðaprjóni ferskja + ferskja: 12-12-12-12-12-12 umferðir í garðaprjóni ferskja + ljós bleikur: 6-6-6-6-6-6 umferðir í garðaprjóni ljós bleikur + ljós bleikur: 12-12-12-12-12-12 umferðir í garðaprjóni ljós bleikur + hvítur: 6-6-6-6-6-6 umferðir í garðaprjóni hvítur + hvítur: 10-10-10-10-10-10 umferðir í garðaprjóni – eða til loka. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkju færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. BAKSTYKKI: Allt bakstykkið er prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Fitjið upp 72-78-84-92-100-110 lykkjur á hringprjón 5,5 með 2 þráðum Safran (gallabuxnablár + gallabuxnablár). Prjónið garðaprjón og rendur eins og útskýrt er að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-8-8-8-9-9 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 64-70-76-84-92-102 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af 3-3-4-5-5-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 58-64-68-74-82-90 lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3-6-7-9-12-15 sinnum í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA = 52-52-54-56-58-60 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-40-42-42-44-46 cm skiptist stykkið við op á miðju að aftan (þetta er gert eftir 1 umferð slétt frá réttu). Setjið helming af lykkjum á þráð og prjónið hvort stykki til loka fyrir sig. Haldið áfram með rendur og garðaprjón og haldið jafnvel áfram að fækka lykkjum fyrir handveg í hlið í hverri umferð frá réttu ef úrtöku er ekki lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af 13-13-14-14-15-15 lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá miðju að aftan. Prjónið síðan eins og áður og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á næstu umferð frá miðju að aftan = 12-12-12-13-13-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum hvítur þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp eins og á bakstykki og fylgið útskýringum á bakstykki til enda þar til stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm. Úrtöku fyrir handveg er nú lokið og það eru 52-52-54-56-58-60 lykkjur í umferð. Setjið miðju 14-14-16-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjóni og röndum og haldið áfram að fella af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2-2-2 sinnum og síðan 1 lykkju 3-3-3-3-4-4 sinnum = 12-12-12-13-13-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið þegar eftir eru 20 cm neðst niðri í hvorri hlið (= klauf). Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu við miðju að aftan og prjónið upp ca 68 til 84 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 5 með 2 þráðum í litnum hvítur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Skiptið skábandinu í tvo jafn langa hluta og saumið niður einn hluta í hvorri hlið á opi að aftan, efst í hnakka. Hnýtið slaufu við miðju að aftan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6921 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (34)
Voirol Gaëtane wrote:
Bonjour, Mon problème: Quand l'ouvrage mesure 36-37-38-39-40-41 cm, rabattre 3-3-4-5-5-6 mailles au début des 2 rangs suivants pour les emmanchures = 58-64-68-74-82-90 mailles. Est-ce que je dois diminuer 2x à droite de l'ouvrage sur l'endroit? Ou est-ce que je dois diminuer une 1x à droite (endroit)et 1x à gauche (envers) pour faire les emmanchures?
05.07.2021 - 11:46DROPS Design answered:
Bonjour Mme Voirol, vous allez rabattre 1 fois 3-3-4-5-5-6 mailles en début de rang sur l'endroit + 1 fois 3-3-4-5-5-6 mailles en début de rang sur l'envers (= 3-3-4-5-5-6 mailles au début des deux rangs suivants), autrement dit 1 x à droite et 1 x à gauche. Bon tricot!
05.07.2021 - 12:08Asha Fernando wrote:
Hejsa😀 Hvor meget garn skal jeg bruge, hvis jeg skal lave den ensfarvet i M ?
10.04.2021 - 09:49DROPS Design answered:
Hej Asha, så skal du bruge ca ca 450 gr, men husk - hellere et nøgle for meget end et for lidt, man kan altid lave en scrunchie :)
12.04.2021 - 14:43Pia Husted wrote:
Vil gerne gerne lave denne top men i tre farver maksimalt, kan i hjælpe med hvor meget jeg i så fald skal bruge af garn?😊
31.03.2021 - 12:56DROPS Design answered:
Hej Pia, nej det kan vi desværre ikke, det kommer helt an på hvor store felter du vil strikke af hver farve og i hvilken kombination og størrelse....
06.04.2021 - 13:47Claudia wrote:
Hola! Tengo dos preguntas. En el delantero, me toca pasar los puntos al gancho auxiliar para el cuello y finalizar los hombros. Los puntos se pasan al gancho por el lado del derecho? Y cuando dice "Continuar con el punto musgo y las rayas y seguir cerrando para el cuello cada 2a fila...", comienzo a cerrar los puntos desde el centro del delantero? Gracias!!
08.05.2020 - 22:46DROPS Design answered:
Hola Claudia. Los puntos en espera pasan al gancho auxiliar por el lado derecho. Las disminuciones para el escote se hacen desde el escote por el lado derecho o por el lado revés (depende del delantero que estemos trabajando, el derecho o el izquierdo).
20.11.2020 - 15:53Claudia wrote:
Hola. Me toca dividir la labor para empezar la abertura de la espalda. Cómo sigo? Tejo 1 fila de derecho y luego paso la mitad de los puntos al gancho auxiliar (es decir, cuando empiece a tejer uno de los lados me tocará iniciar del revés)? O primero paso los puntos al gancho auxiliar y luego empiezo a tejer (empezaría cada lado de derecho)? Gracias por la aclaración.
10.04.2020 - 11:00DROPS Design answered:
Hola Claudia. Si, es correcto. Después de completar 1 fila de derecho pasar la mitad de los puntos a un gancho auxiliar y comenzar a trabajar el resto de la espalda comenzando por el lado revés.
14.04.2020 - 21:02Claudia wrote:
Hola! Me podrían decir qué conviene más, si cortar el hilo cuando se hace un cambio de color o llevar el hilo inactivo todo el largo del borde? Mi duda es porque son muchos colores y las franjas varían de pequeñas a grandes. Gracias!
22.03.2020 - 22:11DROPS Design answered:
Hola Claudia. Este vídeo te podría ayudar:
22.03.2020 - 23:18Claudia wrote:
Hola! Quería saber si en el montaje de puntos de este modelo ya están incluidos los puntos de orillo. Gracias!
20.03.2020 - 16:16DROPS Design answered:
Hola Claudia. Los puntos de orillo están incluidos en el número total de puntos.
22.03.2020 - 23:37Claudia wrote:
Hola! Quisiera saber si en el montaje de puntos de este modelo ya están incluidos los puntos de orillo. Gracias!
20.03.2020 - 15:47Pola wrote:
I would like to make this top with one colour of safran yarn. Could you tell me how many skeins will I need?
18.02.2019 - 14:27DROPS Design answered:
Dear Pola, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request. For any further individual assistance please contact your DROPS store - even per mail or telephone. Happy knitting!
18.02.2019 - 16:01Annette wrote:
Wenn ich es mit einem Faden Safran in L stricken möchte, wie viel Maschen muss ich dann aufnehmen? Kann ich das irgendwie umrechnen? Danke
08.08.2018 - 12:34DROPS Design answered:
Liebe Anette, dieses Top wird mit 2 Fäden Safran gestrickt, dh die Maschenprobe wird nicht die gleiche sein wie mit nur 1 Faden und die Anleitung sollen Sie dann ganz anpassen, je nach Ihrer eigenen Maschenprobe. Am besten stricken Sie mit 2 Fäden Safran - wie in der anleitung oder mit nur 1 Faden Garngruppe C - siehe unseren Garnumrechner. Viel Spaß beim stricken!
08.08.2018 - 13:22