DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1413
DROPS Design: Mynstur li-095
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L
Öll lengdin fyrir þæfingu: ca 34 - 36 - 37 cm
Öll lengdin eftir þæfingu: 28 - 29 - 30 cm
Lengd frá opi fyrir þumal fyrir þæfingu: ca 15 cm
Lengd frá opi fyrir þumal eftir þæfingu: 12 cm

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-150 g litur 9020, perlugrár
50 g í allar stærðir litur 4305, dökk blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
Eftir þæfingu: 10 x 10 cm = 22 lykkjur og 34 umferðir.

FYLGIHLUTIR: 2 st nælur og 2 litlir plastpokar fyrir þæfingu.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA-1:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 14. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 13. og 14. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur í sömu lykkju.

ÚRTAKA-2:
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með prjónamerki í slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna þar til A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið síðan vettlinginn í hring í sléttprjóni á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 56-56-62 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum dökk blár.
Prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka. Skiptið yfir í litinn perlugrár og prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið ÚRTAKA-1 = 52-52-58 lykkjur. Skiptið til baka yfir í litinn dökk blár og prjónið 2 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni og í litnum perlugrár – í fyrstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-54 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11-12 cm er fækkað um 4-0-2 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52 lykkjur.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Setjið 1 prjónamerki í 25.-27.-29. lykkju í umferð (= merkir útaukningu á þumli). Prjónið áfram með stjörnu mitt ofan á hendi þannig: Prjónið 0-1-2 lykkjur með litnum perlugrár, prjónið A.1 (= 21 lykkjur), og prjónið með litnum perlugrár út umferðina. Haldið svona áfram með A.1. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út á ytri hlið við útauknar lykkjur í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8 sinnum = 56-62-68 lykkjur.
Eftir síðustu útaukningu eru útauknar lykkjur + lykkja með prjónamerki + 1 lykkja hvoru megin við þessar lykkjur settar á þráð fyrir þumal (A.1 á nú að vera lokið) = 15-17-19 þumallykkjur á þræði. Stykkið mælist ca 20-22-23 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið síðan vettlinginn í hring á sokkaprjóna í sléttprjóni og með litnum perlugrár til loka.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð þegar prjónað er í hring eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði (= aftan við þumal) = 44-48-52 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 13-13-12 cm frá lykkjum sem fitjaðar voru upp aftan við þumal eru sett 2 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 23.-25.- 27. lykkju í umferð. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum í öllum stærðum = 12 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

ÞUMALL:
Þumallinn er prjónaður með litnum perlugrár. Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjón 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp aftan við þumal = 18-20-22 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar þumallinn mælist ca 6-6½-7 cm fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir = 16-18-20 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt. Í næstu umferð er fækkað um 6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 10-10-12 lykkjur. Þegar þumallinn mælist 7½-8-8½ cm prjónið allar lykkjur slétt saman tvær og tvær = 5-5-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema gagnstætt.
Þ.e.a.s. aukið út fyrir þumal hvoru megin við 20.-22.-24. lykkju í umferð og þegar prjóna á stjörnu mitt ofan á hendi þá er prjónað þannig: Prjónið 22-24-26 lykkjur með litnum perlugrár, prjónið A.1 (= 21 lykkjur) og prjónið 0-1-2 lykkjur með litnum perlugrár.

ÞUMALL:
Prjónið þumal á sama hátt og á hægri vettlingi.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op meðfram ytri hlið á vettlingi – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur (saumið með litnum perlugrár).

ÞÆFING:
Til þess að koma í veg fyrir að þumallinn þæfist saman, snúið vettlingnum við og setjið lítinn plastpoka í þumalinn. Festið hann með nælu – ATH: Festið næluna lóðrétt niður að topp á þumli þannig að auðvelt sé að taka hana úr eftir þæfingu. Snúið vettlingnum til baka þannig að vettlingurinn þæfist með réttuna út.
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.04.2019
Leiðrétting:..ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11-12 cm er fækkað um 4-0-2 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52 lykkjur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Setjið 1 prjónamerki í 25.-27.-29. lykkju í umferð (= merkir útaukningu á þumli). Prjónið áfram með stjörnu mitt ofan á hendi þannig: Prjónið 0-1-2 lykkjur með perlugrár, prjónið A.1 (= 21 lykkjur), og prjónið með perlugrár út umferðina. Haldið svona áfram með A.1. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri).

Mynstur

symbols = perlugrár
symbols = dökk blár
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1413

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Tanja wrote:

Hej, jeg har strikket et par vanter i Nepal, som skulle filtes efterfølgende. Jeg har valgt 40 grader, 1000 omdrejninger og 58 min. Det var er forkert valg, da jeg fik mini vanter. De kan bruges som pynt til juletræ, men det var jo ikke meningen :). Skal man vælge et almindeligt program til bomuld der kører 2,5-3 timer? Og hvad med omdrejninger? Er 1600 ikke for meget?

30.12.2023 - 13:00

DROPS Design answered:

Hej Tanja, det er forskelligt fra kvalitet til kvaltiet og fra vaskemaskine til vaskemaskine... men du bør kunne gøre dem våde igen med en anelse balsam eller skyllemiddel og så trække dem forsigtigt ud i den rigtige størrelse :)

03.01.2024 - 08:03

country flag Eva Flataunet wrote:

Hej Kan jag tova Vikinggarn Alpaca Storm

12.01.2023 - 06:07

DROPS Design answered:

Hej Eva, du kan tova DROPS Lima som passer til opskriften :)

12.01.2023 - 15:15

country flag Peggy wrote:

Hi, I'm a novice knitter and am struggling with how to proceed on the thumb increases. Is my understanding correct in that I am increasing every 4th row, which means there would be 5 increases as A.1 is worked and then two more increases over the last two rows of A.1 and first 6 rows of pearl grey? In other words, increase in rows 4, 8, 12, 16, and 20 of A.1 and then rows 2 and 6 once I switch back to all pearl grey? Thank you in advance for you help!

10.11.2022 - 01:44

DROPS Design answered:

Dear Peggy, when you increase on every 4th row work like this: *1 row with increases, 3 rows without increases*, repeat these 4 rows until all increases are done - at the same time continue working A.1 and after A.1 is done, continue back and forth -y ou will join in the round only after the stitches on thumb are put aside. Happy knitting!

10.11.2022 - 11:02

country flag Kita wrote:

I have made two pairs of these mittens now and they are lovely. I felt they did run a little small, and made large pairs for what are probably medium hands. Now I plan to knit a pair for a guy with XXL hands and there is just no way the large could be blocked to fit (I tried). Would adding the difference between small and large to the large size be a way to get a decent XXL mitten? So, if it says 56 for small and 62 for large, would 68 give XXL (continuing the pattern adjustments in this vain)?

21.11.2021 - 18:38

DROPS Design answered:

Dear Kita, please understand that we cannot modify our patterns to each individual request. Having said that, if I would want to do this in a bigger size, i would probably try to do it with a bigger needle and thicker yarn generally bigger gauge, like Nepal instead of Lima. Happy Stitching!

21.11.2021 - 19:43

country flag Bente wrote:

Hei, Jeg strikker str M. Har satt et merke på maske 27, strikket 1 grå og skal så strikke mønster A1. Mønsteret er 21 masker og totalen blir da 49 masker. Men jeg har bare 48 masker på pinnen...?? I tillegg står det at jeg skal strikke grå - pinnen ut. Hvor mange grå masker skal jeg egentlig strikke etter mønsteret? Skal merket settes på en annen maske enn 27.?

27.01.2021 - 15:05

DROPS Design answered:

Hei Bente, Du har strikket 1 grå maske, skal strikke A.1 (mønster) i 21 masker og da blir det 26 grå masker til enden av pinnen. Merket markerer hvor tommeløkning skal være og er i det grå partiet. God fornøyelse!

28.01.2021 - 07:40

country flag Caroline wrote:

Hi I have never made a felted item. How do you actually felt the mittens please? Thank you.

02.12.2020 - 15:39

DROPS Design answered:

Dear Caroline, you will read more about felting here - and this video shows how to avoid a thumb to felt together on mittens. Happy felting!

02.12.2020 - 15:52

country flag Esther Lessard wrote:

Bonjour, J'aimerais faire les mitaines feutrées à un homme très grands et costaud. Est-ce possible d'avoir un patron plus grand ?

12.11.2019 - 18:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lessard, vous trouverez ici tous nos modèles de moufles feutrées, parmi lesquelles vous trouverez peut-être la bonne taille ou dont vous pourrez vous inspirer si besoin. Bon tricot!

13.11.2019 - 08:43

country flag Poppy wrote:

Hi, I love this pattern! I’m a bit confused, though. I’ve done “When piece measures 11 cm in all sizes, decrease 4 stitches evenly = 44 stitches.” But then it says to start the star at 10 cm and increase for the thumb at 11cm. Should I start the star first and then do the decrease and increase on the same line or is there a typo? Thanks, Poppy

18.03.2019 - 19:23

DROPS Design answered:

Dear Poppy, thank you for writing to us. The decrease of 4 stitches is for the overall shaping of the mittens so you do it evenly distributed on the round, while increasing for the thumb happens only at one place. As the patterns says "at the same time", so you are doing the two things at the same time. I hope this helps. Happy Knitting, thi is such a lovely project!

20.03.2019 - 11:26

country flag Anneli wrote:

Underbara vantar, jag älskar dom! Jag har stickat dom och tovat två gånger (först i 40 C och en gång till i 30 C) för att nå rätt storlek och är jättenöjd! Ett stort tack för fint garn och ett bra mönster! ❤️

29.01.2019 - 13:07

country flag Rachel Dyas wrote:

Thank you for your reply regarding the thumb length - I can see what I have done - misread when to start the decreases so the main bit pdf the mitten is too short - have unbound and ripped back to where I made the mistake. Thank you very much for getting back to me and in future I will knit with more haste and less speed :D

22.01.2019 - 14:13