DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 64-11
DROPS Design
Garnflokkur C
----------------------------------------------------------
Stærð: X/S - S/M - L
Efni:
DROPS Bomull-lin frá Garnstudio
800-900-1000 gr litur nr 01, hvítur

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur C)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5 OG 4,5 - eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með prjóna 4,5 og sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Bætt er við 9 lykkjum í mynstureiningu vegna þess að kaðallinn dregst saman.
----------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 180-210-240 lykkjur á hringprjón 3,5 með hvítum. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í síðustu umferð með garðaprjóni er aukið út um 108-126-144 lykkjur jafnt yfir þannig: * 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju í tveimur næstu lykkjum, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* = 288-336-384 lykkjur á prjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið M.1 yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan og við miðju að aftan – sjá ör í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt stykkið mælist 39-41-44 cm fellið af 8 lykkjur á hvorri hlið fyrir handveg (reiknað út frá prjónamerki að framan og að aftan). Fram- og bakstykki (= 136-160-184 lykkjur) eru nú prjónuð til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 136-160-184 lykkjur. Fellið af á hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð: 4 lykkjur 0-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-2-4 sinnum, 2 lykkjur 1-2-4 sinnum, 1 lykkja 3-3-5 sinnum = 126-126-126 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið fyrir saum). Prjónið áfram mynstur en 1 kantlykkja á hvorri hlið er prjónuð með garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 50-53-56 cm er fækkað um 16-16-16 lykkjur jafnt yfir miðju 38-38-38 lykkjurnar. Í næstu umferð eru felldar af 24-24-24 miðju lykkjurnar fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við háls í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 4 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum = 32-32-32 lykkjur eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 58-61-64 cm fækkið um 10-10-10 lykkjur jafnt yfir á hvorri öxl = 22-22-22 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur felldar af.

BAKSTYKKI:
= 136-160-184 lykkjur. Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki = 126-126-126 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-59-62 cm, fækkið nú um 20-20-20 lykkjur jafnt yfir miðju 54-54-54 lykkjurnar. Í næstu umferð eru felldar af miðju 34-34-34 lykkjurnar. Fellið síðan af 2 lykkjur við háls í annarri hverri umferð 2 sinnum = 32-32-32 lykkjur eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 58-61-64 cm fækkið um 10-10-10 lykkjur jafnt yfir á hvorri öxl = 22-22-22 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur felldar af.

ERMI:
Fitjið upp 50-50-50 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með hvítum og prjónið 2 umferðir garðaprjón, í síðustu umferð með garðaprjóni er auki út um 30-30-30 lykkjur jafnt yfir í umferð = 80-80-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið M.2 yfir 8 lykkjur, síðan M.1 yfir 72 lykkjur. Haldið svona áfram. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við M.2, 12-12-12 sinnum í stærð XS: í 9. hverri umferð = 104 lykkjur, stærð S/M og L: til skiptis í 8. og 9. hverri umferð = 104-104 lykkjur. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar inn í M.1 jafnóðum. Þegar stykkið mælist 49-46-45 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (= M.2). Fellið síðan af á hvorri hlið fyrir ermakúpu í annarri hverri umferð: 4 lykkjur 2-0-0 sinnum, 3 lykkja 1-2-1 sinni, 2 lykkjur 1-8-13 sinnum, 3 lykkjur 1-2-2 sinnum, 4 lykkjur 3-1-0 sinnum. Fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir þær lykkjur sem eftir eru. Í næstu umferð eru allar lykkjur felldar af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma, takið upp ca 90 til 100 lykkjur í kringum háls á sokkaprjón 3,5 með hvítum.
Prjónið 1 umferð brugðna, 4 umferðir sléttprjón, 1 umferð brugðin og síðan 5 umferðir með sléttprjóni fyrir uppábrot. Fellið laust af, brjótið uppá kant í hálsi tvöfaldan að röngu og saumið niður. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkjur á búk.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 64-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Capite Britou wrote:

Bonjour, quelle longueur d'aiguilles pour une taille S/M pour ce modèle merci

28.01.2024 - 18:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Britou, on doit toujours utiliser une aiguille circulaire de circonférence inférieure à celle de la circonférence totale, autrement dit, une aiguille de 80 cm suffira pour le bas du pull, vous pouvez utiliser une aiguille circulaire de 40 cm pour le haut des manches/le col ou les tricoter sur aiguilles doubles pointes/magic loop. Bon tricot!

29.01.2024 - 12:23

country flag Marianne Kenny wrote:

Hi are rows 22, 23 and 24 repetitions of 30 pattern stitches? Regards Marianne

31.01.2023 - 22:51

DROPS Design answered:

Dear Marianne, rows 22, 23 and 24 of A.1 have 24 stitches in the repeat. It shows more stitches so that you can better see how the cable is displaced. You work 30 stitches in each repeat, but you don't need to increase stitches; you just start working on the last 6 stitches of the previous repeat. Happy knitting!

31.01.2023 - 23:04

country flag Marianne Kenny wrote:

Hi I mean are rows 22, 23 and 24 repetitions of 30 stitches I counted wrong in my first question also do you start the pattern on a wrong side row?

22.01.2023 - 16:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kenny, you will displace the cables when working row 22 and 24, ie on row 22 you displace the first P2 towards the left by working (put 2 sts on a cable needle behind the work, K 4, P 2 from the cable needle) and you will dixplace the last P2 towards the right at the end of the repeat working ( put 4 sts on a cable needle in front of the work, P 2, K 4 from the cable needle.), then on row 24 you will displace the first P2 again towards the left (7th symbol) and then the last P2 towards the right (6th symbol). Then the first cable is now the large one and the 2nd one is the smallest one. Happy knitting!

23.01.2023 - 10:01

country flag Marianne Kenny wrote:

Hi are rows 21, 22 and 23 repetitions of 30 stitches or do you just do the extra 6 stitches at the beginning? Can’t understand how the cabled stitches in row 21 correspond with the 2 purl stitches if you put 6 extra stitches in at the beginning of the repetition?

22.01.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kenny, there are 16 sts in this section and you will make 2 cables over each 8 sts: put 4 sts on a cable needle behind the work, K 4, K 4 from the cable needle. then put 4 sts on a cable needle in front of the work, K 4, K 4 from the cable needle. Happy knitting!

23.01.2023 - 09:56

country flag Mie wrote:

Hvilken længde skal rundpinden have?

08.05.2022 - 14:24

DROPS Design answered:

Hei Mie. Når du strikker rundt på bolen er det best med 80 cm lengde. 50 eller 60 cm når du strikker rundt på halskanten og ønsker du å strikke rundt på erme når du har nok masker, kan du bruke 50 cm. mvh DROPS Design

09.05.2022 - 12:46

country flag Hilde Jenny Sørensen wrote:

Jeg har strikket genseren i oppgitt garn, men ønsker nå å bruke Rainbow Cotton 8/6 fordi jeg ikke finner ønsker farge i oppgitt garn. Jeg prøver å skjønne hvordan jeg skal regne om slik at genseren får samme mål - 2 tråder? større str. for å få riktig mål?

24.04.2022 - 09:24

DROPS Design answered:

Hei Hilde Jenny. Rainbow Cotton 8/6 er ikke et DROPS garn, så det garnet har vi ikke noen informasjon om. Om du ønsker å bruke et annet DROPS garn, kan du bruke vår garnkalkulator og du vil få opp 15 forslag på DROPS kvaliteter du enten strikker med 1 tråd eller 2 tråder. mvh DROPS Design

25.04.2022 - 11:38

country flag Eva Johnsen wrote:

Hei. Er det tilfelle at S/M skal ha 336 m i bolen? Etter rillen, skal det økes fra 210 m til 336? For meg set det ut som dette blir en veldig stor genser. Ser at strikkfastheten er 20 m =10 cm. Håper jeg kan få svar på dette?

28.03.2022 - 15:45

DROPS Design answered:

Hei Eva. Ja, i str S/M skal det være 336 masker på bolen. Strikkefastheten er oppgitt i glattstrikk, men hele genseren er strikker i strukturmønster (maskene vil trekke seg mye sammen). Om du ser målene på målskissen er det den størrelsen genseren vil få. mvh DROPS Design

04.04.2022 - 11:27

country flag Michelle Plettau wrote:

Can you please explain exactly how to read and knit diagrams for 64-11 cabled jumper. I know to start in bottom right and work to left of diagram M. 1. Is diagram M. 1 24 stitches repeated over 24 or 48 rows? Also why is the top half of M. 1 shifted to the right? When do I knit diagram M. 2?

22.10.2021 - 18:36

DROPS Design answered:

Dear Michelle, the pattern itself is 48 wor high, however, the second 24 rows unit is just about the same as the first one, only moved half a repeat to the right (that is is why the to half is shifted as well). Happy Stitching!

24.10.2021 - 02:46

country flag Michelle Plettau wrote:

I would like to knit drops 64-11 cabled sweater. Can you please explain \'exactly\' how to read the diagrams. I know to read from bottom right to left of diagram M. 1 but is the diagram 24 stitches repeated over 24 rows or 48 rows?? Also why is the top part of diagram M. 1 shifted to the right? Also don\'t know when I am supposed to be knitting diagram M. 2 as this isn\'t explained in instructions

22.10.2021 - 18:20

country flag Rita wrote:

Buongiorno, per favore mi spiegate in maniera più semplice questi due passaggi: motivo: Nota! Nel diagramma M.1 6 m del lato destro devono essere prima spostate quando le 6 m vengono spostate nel lato sinistro. manica: motivo 2 su 8 m (4 m a ogni lato del segnapunti), e motivo 1 sulle 72 m rimaste. grazie

07.10.2021 - 08:51