DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Für Elise Jacket

Prjónuð peysa með gatamynstri, litlum köðlum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.

DROPS 183-22
DROPS Design: Mynstur fl-011
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 20, ferskja

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-8-8-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 10,1.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 9. og 10. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan.
Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 10. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkist og erma. Aukið út þannig:
Prjónið fram að 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hverja og eina af skiptingunum sem eftir eru á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð (frá réttu) er uppslátturinn prjónaður brugðinn, svo að það myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur á fram- og bakstykki prjónaðar inn í mynstur A.2/A.3. Nýjar lykkjur á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 10 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagati þegar stroffið á kraga mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-8-8 næstu með ca 8-8-7½-7½-7-7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 132-137-142-147-152-157 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-13-12-11-10-9 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 120-124-130-136-142-148 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 26-28-28-31-28-31 lykkja slétt, prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 4-2-5-2-10-7 sinnum, prjónið 50-54-54-60-56-62 lykkjur slétt, prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 4-2-5-2-10-7 sinnum, prjónið 26-28-28-31-28-31 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 128-128-140-140-162-162 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem allir uppslættir eru prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 8-8-8-8-12-12 lykkjur), A.2 (= 11-11-14-14-16-16 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón og setjið eitt prjónamerki mitt á milli 2 lykkja (= 1 lykkja í sléttprjóni hvoru megin við prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón og setjið eitt prjónamerki mitt á milli 2 lykkja (= 1 lykkja sléttprjón hvoru megin við prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 (= 11-11-14-14-16-16 lykkjur), A.4 (= 16-16-16-16-22-22 lykkjur), A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón og setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa 2 lykkja (= 1 lykkja sléttprjón hvoru megin við prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón og setjið eitt prjónamerki mitt á milli 2 lykkja (= 1 lykkja sléttprjón hvoru megin við prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3, A.5 (= 8-8-8-8-12-12 lykkjur), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð til baka alveg eins (= 2. umferð í mynsturteikningu), uppslátturinn í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma er prjónaður snúinn svo að það myndist gat.
Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri). Haldið síðan áfram með mynstur alveg eins og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 26-30-31-37-38-42 sinnum = 336-368-388-436-466-498 lykkjur.
ATH: Þegar A.2/A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru nýjar lykkjur sem auknar voru út í hverri laskalínu prjónaðar í sléttprjóni. Mynstur A.2/A.3 heldur áfram á hæðina eins og áður, þ.e.a.s. síðustu 10-10-14-14-16-16 umferðirnar í mynsturteikningu A.2/A.3 eru endurteknar á hæðina – ATH: 2-2-2-2-3-3 kaðlar í mynsturteikingu eru gerðir í 4. hverri umferð til loka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru prjónaðar 8-10-12-6-10-6 umferðir með mynstri eins og áður án þess að auka út lykkjur fyrir laskalínu. Stykkið mælist ca 22-25-26-28-30-31 cm. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 51-55-59-65-72-76 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 71-79-81-93-95-103 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 92-100-108-120-132-140 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 71-79-81-93-95-103 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 51-55-59-65-72-76 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). Fram- og til baka og ermar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 210-230-250-274-304-324 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki eftir 55-60-65-71-79-84 lykkjur í hvorri hlið (= 100-110-120-132-146-156 lykkjur á bakstykki).
Haldið áfram fram og til baka með mynstur, sléttprjón og 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan í garðaprjóni. Prjónið sléttprjón yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið (= 4 lykkjur fleiri í umferð) – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 6. hverri umferð 10 sinnum = 250-270-290-314-344-364 lykkjur. Þegar stykkið mælist 23-22-23-23-23-24 cm skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 39-39-42-42-51-51 lykkjur JAFNFRAMT allar 2 lykkjur brugðið auknar til 3 lykkjur brugðið (= 7-7-7-7-8-8 lykkjur fleiri), prjónið yfir næstu 42-52-56-68-66-76 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 19-19-27-25-31-31 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 78-78-84-84-100-100 lykkjur JAFNFRAMT eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið (= 11-11-11-11-15-15 lykkjur fleiri), prjónið yfir næstu 42-52-56-68-66-76 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 19-19-27-25-31-31 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 39-39-42-42-51-51 lykkjur JAFNFRAMT eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið (= 7-7-7-7-8-8 lykkjur fleiri), endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 313-335-371-391-437-457 lykkjur.

Prjónið nú stroff þannig: 5 kantlykkjur i garðaprjóni, prjónið stroff með (3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur kaðall) eins og áður yfir næstu 10-10-10-10-15-15 lykkjur, A.6 (= 23-23-27-27-29-29 lykkjur), prjónið (2 lykkjur kaðall, 3 lykkjur brugðið) eins og áður yfir næstu 10-10-10-10-15-15 lykkjur, haldið áfram með (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugði) yfir næstu 67-77-87-97-97-107 lykkjur, prjónið (3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur kaðall) eins og áður yfir næstu 10-10-10-10-15-15 lykkjur, A.7 (= 23-23-27-27-29-29 lykkjur), prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og kaðal yfir kaðal yfir næstu 19-19-19-19-27-27 lykkjur, A.6, prjónið (2 lykkjur kaðall, 3 lykkjur brugðið) eins og áður yfir næstu 10-10-10-10-15-15 lykkjur, haldið áfram með (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir næstu 67-77-87-97-97-107 lykkjur, prjónið (3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur kaðall) eins og áður yfir næstu 10-10-10-10-15-15 lykkjur, A.7, prjónið (2 lykkjur kaðall, 3 lykkjur brugðið) eins og áður yfir næstu 10-10-10-10-15-15 lykkjur, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

ERMI:
Setjið 71-79-81-93-95-103 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-89-93-105-109-119 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-5-6-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjun umferðar er mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón í hring. Þegar ermin mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í ca 8.-5.-5.-3.-3.-3. hverri umferð alls 13-18-19-24-25-28 sinnum = 53-53-55-57-59-63 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 12-12-15-13-11-12 lykkjur jafnt yfir = 65-65-70-70-70-75 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til þess að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Ermin mælist 43-40-40-38-36-36 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.12.2018
Leiðrétting: BERUSTYKKI:..Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 26-30-31-37-38-42 sinnum = 336-368-388-436-466-498 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón frama við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Ginette Allen wrote:

Que signifie "Tricoter les augmentations de chaque raglan en Jersey" Est-ce que ça signifie " tricoter les jetés en maille torse" pour ne pas faire de trou?

23.11.2023 - 14:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Allen, au 1er rang (sur l'envers) après l'augmentation, on va tricoter ces jetés torse à l'envers (= on va tricoter le jeté dans le brin arrière au lieu du brin avant pour éviter un trou, cf vidéo), puis ces nouvelles mailles se tricotent simplement en jersey (à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers). Bon tricot!

23.11.2023 - 15:47

country flag Sirpa wrote:

Ohjeessa on mainonta A.2 mutta en ohjeesta löydä kyseistä malliohjetta? Mikähän noista malli ohjeista on A.2?

22.09.2023 - 08:02

DROPS Design answered:

Hei piirrokset A.2 löytyvät sivun alareunasta (vasemmalla puolella).

02.10.2023 - 17:29

country flag Marianne wrote:

Bonjour, Comme Sylvie l'a déjà demandé, je ne trouve pas les diagrammes A2 et A3. Faut-il seulement tricoter les mailles en jersey?

14.07.2023 - 15:44

DROPS Design answered:

Bonjour Marianne, les diagrammes A.2 et A.3 se trouvent au dessus du diagramme des mesures (choisissez le diagramme correspondant a votre taille). Si vous ne les voyez toujours pas, changez de navigateur internet. Bon tricot!

15.07.2023 - 11:42

country flag Lena wrote:

Hej! Som jag förstår mönstret så är det även mönsterstickning på ryggen? Kan man skippa mönstret på ryggen utan att det påverkar måtten? För övrigt vill jag lämna en synpunkt på fotona. Upplever att det oftast presenteras flera foton från samma vinkel. Man vill se framsida, baksida, från sidan och några inzoomade detaljer.

10.04.2023 - 09:33

DROPS Design answered:

Hej Lena, ja det bestemmer du selv. Tak for input, det tager vi med os :)

14.04.2023 - 07:49

country flag Sylvie wrote:

Bonjour \r\nJe ne trouve pas le diagramme A2 ni A3 sur le modèle

01.03.2023 - 15:38

country flag Edith wrote:

Kan man bruge garn der heder lima drops og er det en god garn at strikke den fine trøje med tak

27.07.2022 - 09:57

DROPS Design answered:

Hej Edith, DROPS Lima tilhører garngruppe B og er for tykt for denne opskrift. Men DROPS Flora er af samme fine kvalitet bare tyndere, så det passer til opskriften. Hvis du vil strikke i Lima kan du vælge imellem disse fine: Cardigan - raglan - Garngruppe B

04.08.2022 - 08:34

country flag Edith PEDERSEN wrote:

JEG VIL LIGE SIGE MANGE GANGE TAK FOR JERSE SPØRSMÅL SOM JEG HAR FÅET FRA JER OG JEG VIL UNDSKYLDE ALLE DE SPØRSMÅL JER HSR SENDT FOR DET VAR MIG SELV DER IKKE HAR TALT RIGTIG I MØNSTERET UNDSKYLD HILSEN EDITH

06.04.2022 - 19:36

country flag Edith PEDERSEN wrote:

Jeg strikke str l-xl i 3 rakke hvor der tages en maske løs maske af og tag en maske over i 5 rækker mønster nr 183-22 hilsen edith

04.04.2022 - 15:43

country flag Edith wrote:

Jer syntes at der er en maske for meget i 4 rækker

04.04.2022 - 14:56

country flag EDITH PEDERSEN wrote:

Er der fejl i denne opskrift da jeg ikke få fejre række i mønstret til at passe opskriften er 183-22 på forhånd TAK

03.04.2022 - 17:08

DROPS Design answered:

Hej Edith, nej det skal det ikke være. Hvilken størrelse strikker du, hvor mange masker har du og hvor er du i opskriften, så skal vi prøve at hjælpe dig :)

04.04.2022 - 11:21