DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Night Shade Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 184-25
DROPS Design: Mynstur ai-078
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-400-450-500 g litur 06, svartur
50-50-50-50-50-50 g litur 03, perlugrár
50-50-50-50-50-50 g litur 04, milligrár
50-50-50-50-50-50 g litur 10, þoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 25 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS TALA, Hringlaga (stál) NR 542: 6-7-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Öll úrtaka/útaukning er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 12,2.
Í þessu dæmi eru prjónaðar ca 11. og 12. hver lykkja slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1A og A.1B). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni

UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka):
Setjið 1 prjónamerki við miðju að aftan (= í 45.-48.-51.-54.-57.-62. lykkju).
Byrjið frá röngu með litnum svartur og prjónið brugðnar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur fram hjá lykkju með prjónamerki í (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni).
Snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur slétt til baka.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur slétt til baka.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur slétt til baka.
Snúið og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni).

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-1 (á við um stroff):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 2, 12, 22, 33, 44, og 55 cm
M: 2, 12, 22, 32, 42, 52 og 62 cm
L: 2, 12, 22, 32, 42, 53 og 64 cm
XL: 2, 12, 22, 32, 42, 53 og 64 cm
XXL: 2, 12, 22, 33, 44, 55 og 66 cm
XXXL: 2, 12, 22, 33, 44, 55 og 66 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-104-108-116-120-128 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 4 með litnum svartur Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 7-9-7-9-7-9 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 89-95-101-107-113-119 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Til þess að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan.
Þegar upphækkunin hefur verið ger er prjónað MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð) (= 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1A og A.1B hefur verið prjónað til loka eru 245-263-281-315-334-353 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm mælt við miðju að framan frá uppfitjunarkanti.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum svartur þar sem aukið er út um 2-8-6-0-9-14 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 247-271-287-315-343-367 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður með litnum svartur yfir fyrstu 40-43-45-49-54-58 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 48-54-58-64-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 71-77-81-89-99-107 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-54-58-64-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir þær 40-43-45-49-54-58 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 163-175-187-203-227-247 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 38-41-44-48-54-59 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-1 í mynsturteikningu er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan) = 159-171-183-199-223-243 lykkjur. Þegar A.2A og A.2B hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3A/A.3B alveg eins (= 37-40-43-47-53-58 mynstureiningar með 4 lykkjum). A.3A/A.3B er endurtekið til loka.
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-2 í mynsturteikningu er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir = 151-163-175-191-215-235 lykkjur. Síðan eru auknar út 6 lykkjur jafnt yfir í hverri og einni af umferð merktri með ör-3, ör-5 og ör-6 (ekki er aukið út yfir kanta að framan) – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 175-187-199-215-239-259 lykkjur. Þegar stykkið mælist 39 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð brugðin frá röngu með litnum svartur þar sem aukið er út um 53-57-61-69-77-81 lykkjur jafnt yfir = 228-244-260-284-316-340 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 4 cm eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið – lesið ÚTAUKNING-1 = 282-302-322-352-392-422 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm (öll peysan mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl) fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Setjið til baka 48-54-58-64-68-72 lykkjur af þræði á sokkaprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum mitt undir ermi = 54-60-66-72-78-84 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi (= 3-3-4-4-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið A.2A hringinn og fækkið jafnframt um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 52-60-64-72-76-84 lykkjur (13-15-16-18-19-21 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3A hringinn. Þegar A.3A hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón með litnum svartur til loka. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkju mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-1.
Fækkið alls 7-11-12-16-17-20 sinnum þannig:
S: Í 10. hverri umferð,
M: Í 6. hverri umferð,
L: Í 5. hverri umferð,
XL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð,
XXL: Í 3. hverri umferð,
XXXL: Til skiptis í annarri og hverri og 3. hverri umferð.
Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 38-38-40-40-42-44 lykkjur eftir – ATH: Þegar lykkjum er fækkað kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en passið uppá að “doppurnar” í A.3A komi beint yfir hverja aðra í afgang af ermi). Þegar ermin mælist 36-34-32-30-29-27 cm frá prjónamerki (ATH: Styttri mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-12-12-14-16 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 60-60-65-65-70-75 lykkjur (þetta er gert til þess að ermin verði ekki of þröng neðst niðri). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist nú ca 44-42-40-38-37-35 cm frá prjónamerki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = svartur
symbols = perlugrár
symbols = milligrár
symbols = þoka
symbols = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturröð, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo að það myndist gat
symbols = Úrtaka/útaukning – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Anna wrote:

Il modello è bellissimo, l'unica pecca è che il bordo di 5 m lavorate a legaccio alla fine risulta un po' cedevole rispetto al resto. Meglio farlo con un tubolare o in ogni altro metodo che lo irrobustisca un pochino

13.12.2022 - 13:44

country flag Françoise wrote:

Merci pour votre rapide réponse,je me lance... Bonne journée.

19.05.2020 - 14:25

country flag Françoise wrote:

Bonjour, J'ai un doute concernant le 1er rang du diagramme il s'agit bien d'1 jeté 5 mailles 1jeté 1 maille (1 jeté pour la suite) ce n'est pas habituel de voir des augmentations séparée par 1 maille. Je vous remercie pour votre réponse. Prenez soin de vous . Cordialement. Françoise

18.05.2020 - 18:48

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, c'est bien ainsi que se lit le 1er rang de A.1A. Au rang suivant, veillez à bien tricoter les jetés torse pour éviter les trous. Bon tricot!

19.05.2020 - 07:38

country flag Sonja Demerlier wrote:

Een vraagje, wat bedoel jullie met de pijl = mindernaald/meerdernaald. Het staat nergens beschreven wat dat is

12.11.2017 - 16:56

DROPS Design answered:

Hallo Sonja, Bij het stuk over 'LIJF' staat hoe je moet minderen op de naalden gemarkeerd met een pijl in het telpatroon. (In telpatroon A.2a en A.3a zie je pijlen staan)

13.11.2017 - 21:08