DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Polar Days Pillow

Prjónaður púði með köðlum og perluprjóni. Stykkið er prjónað úr DROPS Karisma.

DROPS 183-36
DROPS Design: Mynstur u-844
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Mál: ca 45 x 45 cm – púðaverið passar fyrir kodda 50 x 50 cm það er fallegra ef það strekkist aðeins á verinu.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300 g litur 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PÚÐI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

PÚÐI:
Fitjið upp 184 lykkjur á hringprjón 4 með Karisma.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 90 lykkjur = hliðar. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
ATHUGIIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 20 lykkjur, A.2a (= 10 lykkjur), A.3a (= 2 lykkjur), A.4a (= 26 lykkjur), A.3a (= 2 lykkjur, A.2a (= 10 lykkjur), prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir þær 114 lykkjur sem eftir eru. Þegar A.2a til A.4a er lokið eru 204 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 20 lykkjur, A.2b (= 14 lykkjur), A.3b (= 4 lykkjur), A.4b (= 34 lykkjur), A.3b (= 4 lykkjur), A.2b (= 14 lykkjur), prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir þær 114 lykkjur sem eftir eru.
Endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Haldið áfram hringinn þar til A.4b hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina, síðan eru fyrstu 19 umferðirnar í A.4b endurteknar (sjá ör í mynsturteikningu).
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 4 lykkjur yfir hvert mynstur A.2b, fækkið um 2 lykkjur yfir hvert mynstur A.3b og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir kaðla í A.4b = 184 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af – lesið AFFELLING.

FRÁGANGUR.
Brjótið uppá stykkið við prjónamerkin. Saumið efri kantinn saman kant í kant í ystu lykkjubogana. Setjið kodda í verið og saumið síðan neðri kantinn saman.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.08.2018
Leiðrétting á efnismagni: DROPS Karisma frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B) 300 g litur 01, natur

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = brugðið frá réttu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðna, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðna af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju í aftari lykkjubogann og 1 lykkju í fremri lykkjubogann)

symbols = prjónið 2 lykkjur brugðnar í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju í aftari lykkjubogann og 1 lykkju í fremri lykkjubogann)
symbols = 19. umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Diamond Sky & Polar Days Pillow

Nicolina Nyman, Finland

Polštář

Dorotka5, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Berit Rustad wrote:

Det skal iflg oppskriften legges opp 184 masker. Etter to riller skal jeg starte med ulike mønster og plutselig skal det være 204 masker. Men... jeg ser ikke hvordan det plutselig skjer at det er 20 flere masker på runden. Står ikke noe at man skal legge ut fra 184 til 204 masker.

09.02.2023 - 21:32

DROPS Design answered:

Hei Berit, Du har ruter med svart firkant i diagrammene, som er å strikke 2 vrang i samme masken (øker 1 maske) og ruter med en åpen diamant som er å strikke 2 rett i samme masken (1 maske økt). Når du får med alle disse rutene får du økt 20 masker. God fornøyelse!

10.02.2023 - 08:39

country flag Christina Scheller wrote:

Die Anleitung ist sehr irreführend! Bitte streicht doch die Bemerkung bei "Muster" mit den Hin und Rückreihen und ändert die Diagramme dementsprechend. Auch wäre es besser wenn im Text nicht von der nächsten Runde die Rede wäre sondern explizit von der dritten Runde mit Anfang der B Diagramme. Ich stricke wohl zu locker, obwohl die Maschenprobe in Ordnung war. Hab das Kissen wieder aufgezogen weil das Perlmuster mir nicht gefiel.

14.10.2021 - 15:38

country flag Yvonne wrote:

Bonjour, J'ai découpé la grille et recollé en insérant les lignes manquantes. Le coussin (très beau) est en cours de finition. Très bonne semaine à vous ! Cordialement

19.07.2021 - 08:35

country flag Yvonne wrote:

Bonjour, Je réitère mon message du 4 juillet concernant "Le diagramme A 2b erroné : une erreur est produite 3 fois : La 1ère torsade affiche bien 5 rangs (env-end-env-end-env) avant le prochain croisement des mailles. La 2nde ne comporte que 4 rangs (env-end-env-end) et l'on ne peut croiser/tordre qu'après un rang envers La 3ème torsade est OK, la 4ème est fausse et la 5ème est OK La 6ème qui commence en haut du diagramme et reprend au rang 1 est fausse : 4 rangs.

17.07.2021 - 13:24

DROPS Design answered:

Bonjour Yvonne et merci pour votre message, votre remarque a été transférée à nos stylistes et une correction sera probablement faite après les vacances. Merci pour votre patience. Bon tricot!

19.07.2021 - 08:22

country flag Yvonne wrote:

Bonjour, Le diagramme A 2b est erroné, une erreur est produite 3 fois : La 1ère torsade affiche bien 5 rangs (env-end-env-end-env) avant le prochain croisement des mailles. La 2nde ne comporte que 4 rangs (env-end-env-end) et l'on ne peut croiser/tordre qu'après un rang envers La 3ème torsade est OK, la 4ème est fausse et la 5ème est OK La 6ème qui commence en haut du diagramme et reprend au rang 1 est fausse : 4 rangs

04.07.2021 - 22:32

country flag Sarah wrote:

Ich möchte das Kissen gern nachstricken. Bisher habe ich Zopfmuster noch nicht in Runden gestrickt. Daher meine Frage: Wieso stricke ich die Diagramme mal von links, mal von rechts, wenn ich doch in Runden stricke? Müsste ich da nicht immer aus der gleichen Richtung stricken? Danke schon mal für die Hilfe!

28.02.2019 - 06:14

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, die Diagramme zeigen alle Reihen bzw Runden vom Muster, dh beginnen Sie an der unteren rechten Ecke und lesen Sie jede Runde rechts nach links. Viel Spaß beim stricken!

28.02.2019 - 09:45

country flag Herlinde Vos wrote:

Kunnen die kussens ook gebreid worden met rechte naalden ipv rondbreinaalden?

25.11.2018 - 18:38

DROPS Design answered:

Dag Herlinde,

Dat kan, maar dan moet je de kussens in 2 delen breien (een voorkant en een achterkant), die je op het eind aan elkaar naait. Via deze link vind je meer informatie over hoe je een patroon aan kunt passen om met rechte naalden te breien. Dit kun je ook toepassen op een kussen.

28.11.2018 - 12:33

country flag Daniela wrote:

In der Anleitung werden 450g (900m) Drops Karisma gefordert, ich habe nur 230g (460m) Drops Lima benötigt!!! Die Maschenprobe passt. Das Kissen ist sehr schön geworden.

15.08.2018 - 22:30

country flag Anne wrote:

Hello again. It appears that Anna already asked this question in another language and the response implies that it was an error in the pattern that has been corrected. However, I do not see any corrected patterns here. The pattern implies that the increase occurs after round one, but your response indicates that it happens after round two. Do I use the "a" patterns for two rows before proceeding to the "next round" with the "B" patterns?

06.08.2018 - 17:15

DROPS Design answered:

Dear Anne, you will increase a total of 20 sts in the 2nd row of A.2a-A.4a: 4 sts in each A.2a (= 8 sts), 2 sts in each A.3a (= 4 sts) and 8 sts in A.4a, = 184+ (8+4+8) = 204 sts. Happy knitting!

07.08.2018 - 08:40

country flag Anne wrote:

Still confused....how do you get 204 stitches after round one, when none of the round one patterns have any increases from the initial 184 stitches?

06.08.2018 - 03:30

DROPS Design answered:

Dear Anne, when working diagrams A.2a to A.4a you will increase sts in 2nd row each diagram - see 7th and 8th diagram key. Happy knitting!

06.08.2018 - 09:40