DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 184-13
DROPS Design: Mynstur z-803
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál: Breidd: 140 cm. Hæð: 84 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 2020, ljós camel
50 g litur 6736, blár/fjólublár
50 g litur 3770, dökk bleikur
50 g litur 3650, rústrauður
50 g litur 2925, dökk appelsínugulur
50 g litur 5565, vínrauður
50 g litur 7238, dökk ólífa
50 g litur 7815, grænn/turkos
50 g litur 6309, turkos/grár
50 g litur 7240, bensínblár
50 g litur 3800, bleikfjólublár

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 34 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 fyrir frágang.

DOMINOFERNINGUR:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Endurtakið umferð 1 og 2 – aukið er út um 2 lykkjur mitt á ferning í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu).

LITIR Á FERNINGUM:
Uppfitjunin er prjónuð með fyrsta lit í ferning. Ferningarnir enda með 2 umferðum af fyrsta lit í ferningi.

FERNINGUR 1 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með litnum blár/fjólublár *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 2 (6 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum dökk bleikur, 2 umferðir með litnum rústrauður *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 3 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með dökk litnum bleikur *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 4 (6 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum dökk appelsínugulur, 2 umferðir með litnum vínrauður *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 5 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með litnum vínrauður *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 6 (6 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum dökk ólífa, 2 umferðir með litnum grænn/turkos *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 7 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með litnum grænn/turkos *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 8 (6 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum turkos/grár, 2 umferðir með litnum bensínblár *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 9 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með litnum turkos/grár *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 10 (6 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum bleikfjólublár, 2 umferðir með litnum blár/fjólublár *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 11 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með litnum rústrauður *, endurtakið frá *-*

FERNINGUR 12 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með litnum dökk appelsínugulur *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 13 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með litnum dökk ólífa *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 14 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með litnum bensínblár *, endurtakið frá *-*.

FERNINGUR 15 (3 st):
* Prjónið 2 umferðir með litnum ljós camel, 2 umferðir með litnum bleikfjólublár *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Prjónaðar eru alls 60 ferningar með 15 mismunandi litasamsetningum. Prjónaðir eru 3 eða 6 ferningar í hverri litasamsetningu.

FERNINGUR:
Fitjið upp 3 lykkjur á prjón 4 með Alpaca – lesið LITIR Á FERNINGUM. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til ferningurinn mælist 14 x 14 cm – endið eftir 2 umferðir með sama lit og í uppfitjun. Fellið af – ATH: Í horni hvoru megin við miðju lykkju er fellt af með því að slá uppá prjóninn (þ.e.a.s. fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og fellið síðan uppsláttinn af). Klippið frá – látið endann vera ca 35 cm, hann er notaður í frágang.

FRÁGANGUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 fyrir staðsetningu á ferningum. Staðsetjið ferningana í sömu stefnu með 10 ferninga á breidd og 6 ferninga á hæð. Notið bandið frá ferningunum til að sauma ferningana saman 2 og 2 með smáu spori – sjá mynsturteikningu A.2.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.05.2018
Leiðrétting: Efnismang aukið í DROPS Alpaca litur 2020.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Annette wrote:

Hallo, in der Korrektur steht der Hinweis, daß man mehr Garn in der Grundfarbe 2020 braucht. Wieviel mehr Knäule sollen es denn sein? Vielen Dank. Mit freundlichen Grüßen Annette

20.06.2021 - 12:43

DROPS Design answered:

Liebe Annette, die Korrektur wurde schon gemacht, dh wenn Sie die Anleitung vor der Korrektur ist dieser Hinweis wichtig, sonnst stimmt die Garnemenge = 200 g DROPS Alpaca Farbe 2020. Viel Spaß beim stricken!

21.06.2021 - 07:47

country flag Lisbet Jespersen wrote:

Jeg vil gerne strikke et sengetæppe fra Drops model 184-13 Auturmn Nights, som ifølge opskriften måler 140x84. Mine mål skal imidlertid være 200x90. Farverne skal bære blålige/grå og beige. Er det muligt for Jer at regne garnforbrug til det større tæppe. Der skal være flest blålige farver. På forhånd tak.

29.06.2020 - 21:42

DROPS Design answered:

Hej Lisbeth, Det kan vi desværre ikke... men hvis din rude måler 14 x 14 cm så skal du bruge 14x6 ruder i de farver du ønsker :)

02.07.2020 - 11:09

country flag Lisbet Jespersen wrote:

Jeg vil gerne strikke et sengetæppe fra Drops model 184-13 Auturmn Nights, som ifølge opskriften måler 140x84. Mine mål skal imidlertid være 200x90. Farverne skal bære blålige/grå og beige. Er det muligt for Jer at regne garnforbrug til det større tæppe. Der skal være flest blålige farver. På forhånd tak. De venligste hilsener Lisbet Jespersen

29.06.2020 - 21:40

DROPS Design answered:

Hej Lisbet, Vi har desværre ikke mulighed for at regne garnforbruget om i de forskellige farver. Det kan være at du kan få hjælp med det i butikken hvor du køber garnet. God fornøjelse!

30.06.2020 - 13:31

country flag Arja Van Der Kooij wrote:

Het patroon is gecorrigeerd qua hoeveelheid garen; een grotere hoeveelheid alpaca 2020. Er staat 200 gram 2020, maar dat is de oude hoeveelheid. Hoeveel gram moet dat dan zijn voor de nieuwe hoeveelheid?

30.07.2019 - 12:22

DROPS Design answered:

Dag Arja,

Als er een correctie bij een patroon staat dan is die reeds doorgevoerd op het online patroon. Als je het patroon voor de correctiedatum had uitgeprint, dan was de correctie nog niet op je afdruk uitgevoerd. De hoeveelheid garen zoals dat er nu staat is dus juist.

10.08.2019 - 18:22

country flag Maragda wrote:

El patrón de la construcción del cuadrado dominó es incorrecto. Empezando con tres puntos y aumentando 2 cada 2 vueltas NUNCA conseguiremos un cuadrado, si no un TRIÁNGULO. El cuadrado de la imagen esta construido de una forma completamente diferente seguro!

23.03.2019 - 09:08

country flag Trude wrote:

Hej, du ökar på varje sida om mitt maskan på vartannat varv, så får du en ruta. Lycka till! ??? Nei man får en trekant. Deretter må man reversere trekanten ved å felle til den blir firkant,vel? Beskrivningen virker uklar. Fellingen gjelder vel annenhver omgang slik økningen gjorde, eller? Også her er det uklart hva man egentlig gjør.....

09.01.2019 - 19:52

DROPS Design answered:

Hei Trude. Det stemmer faktisk at om du fortsetter å strikke til den måler 14 x 14 cm får du en rute. Det høres kanskje ulogisk ut, men på grunn av måten du øker på hver side av midtmasken vil du til slutt få en firkant. Her er en video som viser konseptet, selvom det her felles isteden for å øke, så er det samme teknikk som brukes. God fornøyelse

14.01.2019 - 10:00

Julia wrote:

When I follow the pattern for the domino squares (2 yarn overs every other row) I simply get a triangle. Am I missing something in the pattern?

17.06.2018 - 02:26

DROPS Design answered:

Dear Julia, continue increasing 2 sts in the middle of domino square until you get the correct number of sts and you will get a square. You can findn here some pictures showing how to knit such a domino square. Happy knitting!

18.06.2018 - 08:28

country flag Anna wrote:

Hallo, stricke ich die Decke immer mit zwei Fäden in der jeweiligen Farbe? (Weil es ja so eine dicke Nadelstärke für Alpace ist)

24.05.2018 - 21:48

DROPS Design answered:

Liebe Anna, die ganze Decke ist mit 1 Faden der jeweiligen Farbe gestrickt, bzw locker mit Nadeln Nr 4 und eine Maschenprobe von 21 M x 40 Reihen kraus rechts gestrickt = 10 x 10 cm. Viel Spaß beim stricken!

25.05.2018 - 09:21

country flag Nina wrote:

Det passer på ingen måde, at man skal bruge 100 G camel. Der skal være til 30 firkanter og der er til 9 i hvert nøgle.

23.04.2018 - 17:07

DROPS Design answered:

Hej Nina, Det skal vi få set på, hold øje med en rettelse på nettet. Tak for info!

24.04.2018 - 11:41

country flag Tove Örjansdotter wrote:

Hej! Jag får inte denna beskrivning till dominorutor. När jag börjar med 3 maskor, och gör omslag varannat varv, blir det en trekantig ruta. Hur är det tänkt? Har det blivit fel i mönstret?

10.01.2018 - 21:55

DROPS Design answered:

Hej, du ökar på varje sida om mitt maskan på vartannat varv, så får du en ruta. Lycka till!

22.01.2018 - 16:38