DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Woodland Walk

Prjónuð peysa með laskalínu, háum kraga og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk.

DROPS 183-12
DROPS Design: Mynstur z-793
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-500 g litur 7815, grænn/turkos
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-200 g litur 19, dökk grænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8.
Í þessu dæmi eru prjónaðar 7. og 8. hver lykkja slétt saman þegar lykkjum er fækkað.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2.
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 þannig (= 8 útauknar lykkjur í hverri umferð með útaukningu).
Prjónið fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í sléttprjón.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru efir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðiið svo ekki myndast göt.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður frá miðju að aftan. Það er hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þá verður stroffið aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í neðar í uppskrift. Eftir berustykki er prjónað fram- og til baka í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KRAGI:
Fitið upp 96-96-99-102-105-111 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið A.1 (= 3 lykkjur) hringinn í umferð þar til stykkið mælist 16 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-8-5-3-2-3 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 84-88-94-99-103-108 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-12-11-11-10 lykkjur jafnt yfir = 86-90-106-110-114-118 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Nú er hægt að prjóna upphækkun í hnakka eða að fara beint í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan.
Byrjið frá réttu og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið að miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Prjónið mynstur þannig: 5-6-10-11-12-13 lykkjur (= hálft bakstykki), A.2 (= 16 lykkjur), 1 lykkja slétt (= ermi), A.2, 10-12-20-22-24-26 lykkjur slétt (= framstykki), A.2, 1 lykkja slétt (= ermi), A.2, 5-6-10-11-12-13 lykkjur slétt.
Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út í annarri hverri umferð 21-24-25-27-30-32 sinnum = 254-282-306-326-354-374 lykkjur. Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu heldur stærð S áfram með 2 umferðir sléttprjón og mynstur án útaukninga fyrir laskalínu, síðan er prjónað áfram í öllum stærðum þannig:
Stykkið mælist nú 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Ef stykkið er styttra en þetta er haldið áfram með mynstur eins og áður, án þess að auka út fleiri lykkjum þar til stykkið hefur náð réttu máli. Næsta umferð er prjónuð þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður): Prjónið 36-40-42-46-50-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið næstu 72-80-84-92-100-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermum), prjónið þær 36-40-42-46-50-54 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-172-184-200-220-240 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 3-3-4-4-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og haldið áfram með A.2 yfir 10-10-7-8-8-9 lykkjur í mynstri sem eru eftir á framstykki/bakstykki, en í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn í ytri hlið í hverju A.2 (= við miðju að framan og við miðju að aftan) og prjónaðar eru 2 lykkjur slétt saman innan við hvert A.2 (= að hliðum). Lykkjufjöldinn er sá sami, en lykkjur í A.2 koma smá saman að fækka og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni. Þegar allar lykkjur í A.2 eru horfnar er prjónað áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 14.-14-.14-.14-.12-.12. hverri umferð 4-4-4-4-5-5 sinnum = 172-188-200-216-240-260 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-36-37-37-37-37 cm er aukið út um 14-10-13-15-12-16 lykkjur jafnt yfir = 186-198-213-231-252-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið A.1 hringinn í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 55-61-69-71-77-79 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 61-67-77-79-87-91 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn, jafnframt er lykkjum fækkað í A.2 alveg eins og á fram- og bakstykki (lykkjufjöldinn er sá sami). Þegar lykkjurnar í A.2 hefur fækkað og horfið er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-5.-3.-3.-3.-2. umferð alls 12-13-18-18-20-22 sinnum = 37-41-41-43-47-47 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-35-34-33-32-31 cm er aukið út um 5-4-4-2-1-1 lykkjur jafnt yfir = 42-45-45-45-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-41-40-39-38-37 cm, fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Anna wrote:

Mój pierwszy wzór od góry do dołu. Wyszło pięknie. Ładnie się układa.

02.09.2020 - 20:07

country flag Pat Miller wrote:

Thank you once again for your answer - very helpful. 🙂

13.07.2020 - 12:17

country flag Pat Miller wrote:

Many thanks for your last answer. I got 40 cm cable needles. I have another puzzle to do with increasing and decreasing 'evenly' at the neck. What does 'evenly' mean? I can't see how this relates to the TIP which only refers to 2 stitches either side of the marker. Is the increase/decrease meant to happen at regular intervals on the knit round, e.g. 12 stitches added at intervals , or are they to be added either side of the marker? Many thanks again, Pat

10.07.2020 - 18:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Miller, evenly means they should have worked distributed on the whole round - read more how to here. Happy knitting!

13.07.2020 - 08:28

country flag Pat Miller wrote:

Many thanks for your answer to my query about the 40 cm cable. Would a 60 cm circular needle be too long to use instead of a 40 cm one? I have 60 cm cables. Again, thanks. Pat

23.06.2020 - 12:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Miller, a 60 cm cable needle might be too long for the cast on edge and neck edge - it might also be quite tricky to work magic loop with a 60 cm but it's not impossible neither, you might try. Happy knitting!

23.06.2020 - 16:14

country flag Pat Miller wrote:

Hi, I'm a little puzzled. The pattern asks for DROPS DOUBLE POINTED NEEDLES AND CIRCULAR NEEDLE (40 and 80 cm). I can't see 40 cm needles referred to anywhere in the instructions. I don't have a 40 cm circular needle cable or needles and don't want to buy them if I don't have to. Could you please advise. Many thanks, Pat

23.06.2020 - 01:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Miller, you will use the smaller (40 cm) needle for cast on and the first cm on yoke before you get enough stitches to use a larger one. If you already have a long one and do not want to buy another one, you can use instead the magic loop technique until there are enough stitches to fit the cable and work in the round as "normal". Happy knitting!

23.06.2020 - 09:14

country flag Karin Neumann wrote:

Hallo liebes Team, hätte da mal eine Frage zum hohen Kragen, dieser wird (angezogen) NICHT nach aussen gestülpt?? da ja sonst das Muster innen wäre? Sondern nach INNEN? oder hab ich da einen Denkfehler....

25.11.2019 - 07:46

DROPS Design answered:

Liebe Frau Neumann, A.1 wird so wie gezeigt gestrickt, wenn der Kragen dann gefaltet/gestüpelt wird, sieht mann A.1 von der Rückseite. Viel Spaß beim stricken!

25.11.2019 - 10:41

country flag Silvia wrote:

Buongiorno, il convertitore non mi indica come come sostituire i due filati con uno soltanto. Sarebbe possibile utilizzare un filo di cotton merino? Grazie per l'attenzione Silvia

03.10.2019 - 12:39

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvia, per questo modello può usare 2 capi di un filato del gruppo A o 1 capo di un filato del gruppo C. Cotton Merino appartiene al gruppo B : può comunque provare a fare un campione e vedere se corrisponde a quello indicato. Buon lavoro!

03.10.2019 - 13:45

country flag Gunilla wrote:

Kan jag sticka denna modell enbart i drops kid silk?

16.02.2019 - 20:27

DROPS Design answered:

hei Gunilla. Ja du vil nok kunne strikke denne med 2 tråder Kid-Silk. Vi anbefaler likevel at du lager en strikkeprøve så du er sikker på at strikkefastheten din stemmer med oppskriften. God fornøyelse

21.02.2019 - 08:13

country flag Stéphanie wrote:

Je suis en train de faire ce modèle et je bloque apères la mise en attente des mailles des manches. Je ne comprends pas où enlever les mailles de A2 et où faire le jeté. J’ai procédé comme suit : 1 jeté, les 2 premières mailles de A2 ensemble, ...., les 2 dernières mailles de A2 ensemble, 1 jeté. Je fais cela tous les 2 rangs sur les 4 diagrammes A2 ( dos et devants). Pouvez vous me dire si j’ai bien compris? Merci de votre aide

24.09.2018 - 15:23

DROPS Design answered:

Bonjour Stéphanie, vous faites bien 1 jeté avant le 1er A.2 sur le côté, vous tricotez ensuite les mailles suivantes et vous diminuez 2 m au milieu sous la manche (au niveau du marqueur), vous tricotez le A.2 suivant et faites 1 jeté juste après = vous diminuez 2 m et vous augmentez 2 m soit 4 m au total augmentées/diminuées sur le tour. A.2 va disparaître progressivement car on diminue le nombre de mailles au milieu sous la manche et on augmente le nombre de mailles jersey du dos/devant. Bon tricot!

25.09.2018 - 09:04

Rikma wrote:

Thank you for your quick response. I will give it another try.

20.09.2018 - 21:05