Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu | |
= brugðið frá réttu, slétt frá röngu | |
= setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt | |
= setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni brugðna | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðna, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Siberia |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð 13/14 ára – XXXL.
DROPS 185-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 218 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 21,8. Í þessu dæmi er aukið út til skiptis eftir ca 21. og 22. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum jafnt yfir eru (í þessu dæmi) prjónaðar til skiptis ca 20. og 21. hver lykkja og 21. og 22. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Fækkið um 1 lykkju jafnframt því sem fellt er af þannig: Prjónið 2 lykkjur saman, prjónið 1 lykkju, steypið yfir fyrir affellingu (= 1 auka lykkja færri). STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Ermin er prjónuð upp og heldur áfram upp á öxl og meðfram hnakka efst að aftan. Lykkjur í hálsmáli efst á ermi er fækkað við framstykki og smá hluti af ermi er prjónaður áfram efst á bakstykki sem saumað er saman mitt að aftan, þannig að hálsmálið verðu aðeins hærra í hnakka en á framstykki – sjá mynsturteikningu 1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjóna upp að handvegi, ermin er prjónuð áfram fram og til baka. Að lokum eru ermar saumaðar við handveg, axlir á fram og bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 218-230-246-264-280-298-314 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 228-240-256-276-292-312-328. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, eitt í byrjun umferðar og eitt eftir 114-120-128-138-146-156-164 lykkjur (= í hvora hlið). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið MYNSTUR þannig – sjá útskýringu að ofan: * Prjónið 20-23-27-27-31-31-35 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 22 lykkjur), A.2 (= 10 lykkjur) yfir næstu 30-30-30-40-40-50-50 lykkjur (= 3-3-3-4-4-5-5 mynstureiningar á breidd), A.3 (= 22 lykkjur), 20-23-27-27-31-31-35 lykkjur sléttprjón, prjónamerki er staðsett hér *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og endurtekningu á mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6-8-8-9-9-9-10 cm millibili alls 5 sinnum = 248-260-276-296-312-332-348 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-47-48-49-50-51-52 cm fellið af 6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og hvort stykki er prjónað fyrir sig. BAKSTYKKI: = 118-124-132-142-150-160-168 lykkjur. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT er haldið áfram með affellingu fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 3-3-4-4-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-0-1-1-2-2-2 sinnum = 104-112-114-124-130-140-144 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-59-61-63-65-67-69 cm fellið af, JAFNFRAMT er fækkað um 20-20-20-22-18-24-24 lykkjur jafnt yfir lykkjurnar í mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 – lestið AFFELING. FRAMSTYKKI: = 118-124-132-142-150-160-168 lykkjur. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg eins og á bakstykki = 104-112-114-124-130-140-144 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-56-58-60-62-64-66 cm fækkið um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir miðju 40-40-40-48-48-48-48 lykkjur áður en þessar lykkjur eru settar á þráð fyrir hálsmáli (= 30-30-30-36-36-36 lykkjur á þræði fyrir hálsmáli). Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi eru felldar af 2 lykkjur = 30-34-35-36-39-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-59-61-63-65-67-69 cm (stillið af eftir bakstykki) fellið af, JAFNFRAMT er fækkað um 5-5-4-5-3-6-6 lykkjur jafnt yfir 15-15-15-16-16-21-21 lykkjur við háls – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina öxlina alveg eins. HÆGRI ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 10 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 5 lykkjur jafnt yfir = 51-53-55-57-59-61-63 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið mynstur í næstu umferð þannig: Sléttprjón yfir fyrstu 4-5-6-7-8-9-10 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 42 lykkjur, prjónið fyrstu lykkjuna í A.4, 4-5-6-7-8-9-10 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-12-13-12-12-14-13 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2-2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 14-15-16-17-18-19-20 sinnum = 79-83-87-91-95-99-103 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-50-50-49-49-48-48 cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan ermina fram og til baka. JAFNFRAMT er fellt af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð á hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2-4-6-7-9-10-12 sinnum og 1 lykkja 12-10-8-8-6-6-4 sinnum = 41 lykkja eftir í öllum stærðum. Stykkið mælist nú 55-60-60-60-60-60-60 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 12-14-13-15-17-18-19 cm. Fellið síðan af í hægri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: 19 lykkjur 1 sinni JAFNFRAMT þar sem 8 af þessum 19 lykkjum eru prjónaðar saman 2 og 2 áður en fellt er af, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni. Prjónið 3 umferðir án úrtöku. Fækkið um 1 lykkju í næstu umferð = 16 lykkjur eftir í öllum stærðum. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-27-28 cm. Öll ermin mælist ca 74-81-82-84-86-87-88 cm. VINSTRI ERMI: Prjónið eins og hægri ermi, en fellt er af efst í gangstæðri hlið, þ.e.a.s. í byrjun hverrar umferðar frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið saman ermar við miðju að aftan innan við affellingarkantinn á hvorri ermi. Saumið ermar í við fram- og bakstykki á búk í ystu lykkjubogana þannig: Saumið saum frá handveg og upp meðfram öxl á bakstykki að miðju að aftan. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið alveg eins frá handveg og upp meðfram öxl á framstykki upp að hálsi. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 94-94-108-108-108-108-108 lykkjur í kringum kant í hálsi (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 22-22-26-26-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 116-116-134-134-134-134-134 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón. Fellið af. Brjótið kantinn í hálsmáli saman tvöfaldan og saumið inn að innanverðu, garðaprjón að garðaprjóni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6917 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (144)
Solange wrote:
Bonjour « L'ÉCHANTILLON! Continuer ainsi. Quand l'ouvrage mesure 9 cm, augmenter 1 maille de chaque côté des marqueurs des côtés » Est-ce que les 9 cm sont après les 5 cm de cote Merci
15.10.2022 - 13:09DROPS Design answered:
Bonjour Solange, les 9 cm sont mesurés depuis le rang de montage, autrement dit, ce sont bien 9 cm de hauteur totale, soit 4 cm après les côtes. Bon tricot!
17.10.2022 - 09:14Solange wrote:
Bonsoir Pouvez-vous m’expliquer, pour le dos, dans la phrase « Quand l’ouvrage mesure 49-59-61-63-65-67-69 cm, rabattre en diminuant EN MÊME TEMPS 20-20-20-22-18-24-24 mailles à intervalles réguliers » et «AU-DESSUS des mailles des diagrammes A.1, A.2 et A.3 »la partie en majuscules. Je ne comprends pas combien de mailles et quand il faut diminuer dans la partie centrale Merci pour votre aide Solange
15.09.2022 - 23:06DROPS Design answered:
Bonjour Solange, comme les torsades requièrent plus de mailles que le jersey, on va diminuer les mailles des torsades des diagrammes A.1, A.2 et A.3 lorsque l'on diminue - cette vidéo montre comment procéder. Bon tricot!
16.09.2022 - 09:41Solange wrote:
Bonjour Sur la base de 21 m pour 10cm, Il me semble qu’il y ait une erreur dans le ratio :exemple pour la taille M on explique que 246 m doivent donner 49x2 cm hors en appliquant la règle de trois je trouve 58cm x2 Il semblerait qu’on retrouve ce même écart sur les différentes mesures proposées pour une même taille Merci et cordialement Solange
15.09.2022 - 14:53DROPS Design answered:
Bonjour Solange, l'échantillon indiqué est en jersey, vous devez donc bien avoir 21 m x 28 rangs jersey = 10 x10 cm, mais, pour les torsades, il faut davantage de mailles que pour le jersey. L'important est de bien respecter votre tension, c'est la meilleure garantie de réussite pour obtenir les mesures indiquées pour la taille. Pensez à effectuer une recherche sur la base de votre tension, vous pourrez peut-être alors trouver l'inspiration, retrouvez par ex. ici tous les modèles homme avec 25-23 m pour 10 cm. Bon tricot!
15.09.2022 - 15:37Solange wrote:
Bonsoir, Est il possible de réaliser ce pull en 2 parties pour la taille M soit 256m/2 ? Mon échantillon fait 24 m pour 10 cm au lieu de 22 m sur le même nombre de rang, si je fais une règle de trois je ne tombe pas juste Pouvez vous m’aider ? Cordialement
15.09.2022 - 01:36DROPS Design answered:
Bonjour Solange, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Pour les mesures indiquées dans le schéma, il vous faut 21 m x 28 rangs jersey avec les aiguilles 4, essayez avec des aiguilles plus fines si vous avez trop de mailles - retrouvez plus d'infos ici sur l'importance de l'échantillon - pour adapter un modèle sur aiguilles droites, découvrez ici quelques astuces. Bon tricot!
15.09.2022 - 09:57Bente Ane Nilsen wrote:
Hva er mål på de forskjellige størrelser fra medium til og med XL Overvidde og lengde i cm
30.08.2022 - 12:23DROPS Design answered:
Hei Bente Ane, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!
31.08.2022 - 08:20Jane Lykke Nielsen wrote:
Montering af ærmer. De 16 masker øverst på ærmet, skal de lukkes af eller indgå i opsamlingen af masker til halskant? I opskriften under” Bluse”, står der, at halsmaskerne øverst på ærmet lukkes af mod forstykket, og en lille del fra ærmet strikkes videre øverst på bagstykket, og syes sammen midt bagpå. Jeg forstår ikke helt meningen med sproget. Under “halskant” står der, saml masker rundt i halskant ( inklusiv maskerne fra tråden) . Mvh.
08.08.2022 - 15:28DROPS Design answered:
Hej Jane, ja luk de 16 masker af, de skal syes sammen med de 16 masker fra det andet ærme midt bag i nakken. Du kan se sømmene i skitsen Fig.1 :)
11.08.2022 - 09:12LenaMån wrote:
Hej, Omkretsen på mudden längst ner på fram och bak blir alldeles för stor jfr med måtten på skissen i mönstret, trots att jag kontrollerat att min masktäthet stämmer. - mått enl mönster: 49+49=98 cm (strlk M) -min mudd jag stickat: ca 120 cm (strlk M) Kommer detta att dra ihop sig när jag är påbörjar flätmönstret eller är det ngt fel på mönstret? Vad ska jag göra? Mvh Lena
26.06.2022 - 23:21DROPS Design answered:
Hei Lena. Vrangborden vil jo dra seg sammen. I følge strikkefastheten på pinne 3,5 vil man få ca 110 cm på 246 masker (str. M), og når vrangborden skal strikkes 1 rett / 1 vrang vil det trekke seg sammen og bli ca 98 cm, slik målskissen viser. mvh DROPS Design
27.06.2022 - 11:08Anita wrote:
Hi. I am assembling and this sweater is a bit different than I have done before. Is the sleeve top meant to go mid way across the back neck area?
13.03.2022 - 14:04DROPS Design answered:
Dear Anita, yes, that's correct. Happy knitting!
13.03.2022 - 22:31Reegaa wrote:
Kiitos, empä tullut ajatelleeksi asiaa. \r\nMuuten mallissa ei kysyttävää.
08.03.2022 - 01:35Reegaa wrote:
Tämä malli on upea, mutta ! Nyt ainakin hihan pituusa kainalosta ranteeseen on lian lyhyt. Yksikään L-kokoinen ei ole noin lyhyt kätinen. Hox, mitä isompi koko nii lyhempi hihan pituus kainaloon asti. Olisiko mitä vaihtanut paikkaa kokojen suhteen!
05.03.2022 - 14:11DROPS Design answered:
Hei, hihan pituus on lyhyempi suuremmissa kooissa, koska niissä on korkeammat kaarrokkeet. Voit tarvittaessa neuloa muutaman ylimääräisen senttimetrin ennen kuin päätät silmukat keskeltä hihan alta.
07.03.2022 - 17:13