DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 185-2
DROPS Design: Mynstur me-124
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 13/14 ára - S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
700-750-850-950-1000-1100-1200 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 218 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 21,8.
Í þessu dæmi er aukið út til skiptis eftir ca 21. og 22. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum jafnt yfir eru (í þessu dæmi) prjónaðar til skiptis ca 20. og 21. hver lykkja og 21. og 22. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar):
Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Fækkið um 1 lykkju jafnframt því sem fellt er af þannig: Prjónið 2 lykkjur saman, prjónið 1 lykkju, steypið yfir fyrir affellingu (= 1 auka lykkja færri).

STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Ermin er prjónuð upp og heldur áfram upp á öxl og meðfram hnakka efst að aftan. Lykkjur í hálsmáli efst á ermi er fækkað við framstykki og smá hluti af ermi er prjónaður áfram efst á bakstykki sem saumað er saman mitt að aftan, þannig að hálsmálið verðu aðeins hærra í hnakka en á framstykki – sjá mynsturteikningu 1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjóna upp að handvegi, ermin er prjónuð áfram fram og til baka. Að lokum eru ermar saumaðar við handveg, axlir á fram og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 218-230-246-264-280-298-314 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 228-240-256-276-292-312-328. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, eitt í byrjun umferðar og eitt eftir 114-120-128-138-146-156-164 lykkjur (= í hvora hlið). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið MYNSTUR þannig – sjá útskýringu að ofan: * Prjónið 20-23-27-27-31-31-35 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 22 lykkjur), A.2 (= 10 lykkjur) yfir næstu 30-30-30-40-40-50-50 lykkjur (= 3-3-3-4-4-5-5 mynstureiningar á breidd), A.3 (= 22 lykkjur), 20-23-27-27-31-31-35 lykkjur sléttprjón, prjónamerki er staðsett hér *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og endurtekningu á mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6-8-8-9-9-9-10 cm millibili alls 5 sinnum = 248-260-276-296-312-332-348 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-47-48-49-50-51-52 cm fellið af 6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og hvort stykki er prjónað fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 118-124-132-142-150-160-168 lykkjur. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT er haldið áfram með affellingu fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 3-3-4-4-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-0-1-1-2-2-2 sinnum = 104-112-114-124-130-140-144 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-59-61-63-65-67-69 cm fellið af, JAFNFRAMT er fækkað um 20-20-20-22-18-24-24 lykkjur jafnt yfir lykkjurnar í mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 – lestið AFFELING.

FRAMSTYKKI:
= 118-124-132-142-150-160-168 lykkjur. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg eins og á bakstykki = 104-112-114-124-130-140-144 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-56-58-60-62-64-66 cm fækkið um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir miðju 40-40-40-48-48-48-48 lykkjur áður en þessar lykkjur eru settar á þráð fyrir hálsmáli (= 30-30-30-36-36-36 lykkjur á þræði fyrir hálsmáli). Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi eru felldar af 2 lykkjur = 30-34-35-36-39-44-46 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 49-59-61-63-65-67-69 cm (stillið af eftir bakstykki) fellið af, JAFNFRAMT er fækkað um 5-5-4-5-3-6-6 lykkjur jafnt yfir 15-15-15-16-16-21-21 lykkjur við háls – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina öxlina alveg eins.

HÆGRI ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir garðaprjón.
Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 10 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 5 lykkjur jafnt yfir = 51-53-55-57-59-61-63 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið mynstur í næstu umferð þannig: Sléttprjón yfir fyrstu 4-5-6-7-8-9-10 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 42 lykkjur, prjónið fyrstu lykkjuna í A.4, 4-5-6-7-8-9-10 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-12-13-12-12-14-13 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2-2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 14-15-16-17-18-19-20 sinnum = 79-83-87-91-95-99-103 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-50-50-49-49-48-48 cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan ermina fram og til baka. JAFNFRAMT er fellt af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð á hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2-4-6-7-9-10-12 sinnum og 1 lykkja 12-10-8-8-6-6-4 sinnum = 41 lykkja eftir í öllum stærðum. Stykkið mælist nú 55-60-60-60-60-60-60 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram með mynstur yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 12-14-13-15-17-18-19 cm. Fellið síðan af í hægri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: 19 lykkjur 1 sinni JAFNFRAMT þar sem 8 af þessum 19 lykkjum eru prjónaðar saman 2 og 2 áður en fellt er af, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni. Prjónið 3 umferðir án úrtöku. Fækkið um 1 lykkju í næstu umferð = 16 lykkjur eftir í öllum stærðum. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-27-28 cm. Öll ermin mælist ca 74-81-82-84-86-87-88 cm.

VINSTRI ERMI:
Prjónið eins og hægri ermi, en fellt er af efst í gangstæðri hlið, þ.e.a.s. í byrjun hverrar umferðar frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman ermar við miðju að aftan innan við affellingarkantinn á hvorri ermi. Saumið ermar í við fram- og bakstykki á búk í ystu lykkjubogana þannig: Saumið saum frá handveg og upp meðfram öxl á bakstykki að miðju að aftan. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið alveg eins frá handveg og upp meðfram öxl á framstykki upp að hálsi. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 94-94-108-108-108-108-108 lykkjur í kringum kant í hálsi (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 22-22-26-26-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 116-116-134-134-134-134-134 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón. Fellið af. Brjótið kantinn í hálsmáli saman tvöfaldan og saumið inn að innanverðu, garðaprjón að garðaprjóni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.10.2017
Engin villa, en mynsturteikning A.1 og A.3 hefur verið einfölduð + það er búið að leggja inn auka línu undir FRAM- OG BAKSTYKKI (= MUNIÐ EFTIR PRJÓNFESTUNNI! Haldið svona áfram með mynstur og endurtekningu á mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist 9 cm...).

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni brugðna
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðna, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Siberia

Sari Järvenpää, Finland

Siberia

Woll-Elli, Germany

Siberia

svtcox, United States

Siberia

Tanis, Canada

Siberia

Franjaplus, United Kingdom

Siberia & Ivalo

Joanna, Poland

Siberia

Antonella, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (144)

country flag Siri Karlsen wrote:

Hei. Jeg har strikket Sibiria genser i strl M. Har strikket mye i min tid, men nå står jeg bom fast når jeg skal montere denne. Tror ikke jeg har vært borti denne fasongen tidligere. Har gått gjennom oppskriften og mener at den er strikket korrekt. Om derre har noe bilde om hvordan genseren ser ut bak, hadde det kanskje hjulpet. En flott genser og min mann venter spent Med vennlig hilsen Siri Karlsen

08.02.2024 - 17:09

DROPS Design answered:

Hei Siri. Veldig flott genser din mann får :) Denne genseren har sadelskulder, der ermene strikkes nedenifra og opp (som et "normal" erme), men så fortsetter man å strikke oppå skulderen og langs med nakken øverst på ryggen. Halsmaskene øverst på ermet felles mot forstykket og en liten del av ermet strikkes videre øverst på bakstykket som syes sammen midt bak, slik at halsdybden blir høyere på bakstykket enn på forstykket. Vi har dessverre ikke bilde bak på denne genseren, men ta en titt på målskissen nederst på oppskriften. Håper det kan hjelpe. Har dessverre ingen video på dette enda. mvh DROPS Design

09.02.2024 - 09:03

country flag Siri Karlsen wrote:

Hei. Er det noe sted en kan finne målene på en str M for herre. Skal strikke Siberia genser, .

09.01.2024 - 15:52

DROPS Design answered:

Hei Siri, Det er en målskisse på bunnen av oppskriften med mål til alle størrelsene. God fornøyelse!

10.01.2024 - 06:43

country flag Gill Roberts wrote:

Hi. I too am having trouble with attaching the sleeves. I did the decreases only on one side for right and other side for left sleeve so I have a straight edge and a sloped edge. When I try to attach the sleeve to the back I see to have to take the straight edge round a 90° turn along the cast off stitches of the back. It doesn't lie well. Is this correct. Is there any way to see a photo of the back of the finished garment? Or can I send you a photo of my jumper. It's difficult to explain.

01.12.2023 - 16:11

DROPS Design answered:

Dear Gill, unfortunately, you can't add photos in this messages. You can see how the sleeve will look like in the measurements schematic and Fig.1. The upper part of the back piece (shown in Fig.1) is actually the sleeves, so the sleeves will end up over the back piece. Happy knitting!

04.12.2023 - 00:39

country flag Adad Susane wrote:

Bonjour, je n arrive pas à comprendre les diagrammes du pull Siberia sur les rangs envers et encore moins les torsades, et donc impossible de le continuer en allers et retours. Pouvez vous me transmettre les grilles sur l ’envers ou un patron de ce pull à tricoter tout en circulaire? Je vous remercie. Cordialement.

21.11.2023 - 22:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Adad, les diagrammes montrent tous les rangs des points fantaisie, vus sur l'endroit, autrement dit, 1 case blanche se tricote à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers; 1 tiret va se tricoter à l'envers sur l'endroit et à l'endroit sur l'envers; lisez les diagrammes en rond et sur l'endroit de droite à gauche et sur l'envers de gauche à droite. Lorsque vous divisez l'ouvrage après les emmanchures, veillez à ce que les torsades soient toujours sur l'endroit après la division. Bon tricot!

22.11.2023 - 09:09

country flag Simon wrote:

Hi there, I can’t find any tension guide on the pattern or measurements for each of the sizes? Thanks

11.11.2023 - 07:02

DROPS Design answered:

Dear Simon, the measurements are in the size chart, before the knitting charts and after the written instructions. You can see how to read this here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. The gauge for both needles is indicated in the materials section at the top of the page: 21 stitches and 28 rows stocking stitch on 10 cm in width and 10 cm in height for the main needles and 22 stitches and 30 rows stocking stitch on 10 cm in width and 10 cm in height for the rib. Happy knitting!

12.11.2023 - 22:49

country flag Nancy wrote:

Bonjour Faut il rabattre toutes les mailles du dos à 61 cm pour le modèle siberia ? Aucune maille en attente pour l’encolure?

09.10.2023 - 15:05

DROPS Design answered:

Bonjour Nancy, tout à fait, si vous regardez le schéma Fig.1 en bas de page, vous pouvez voir que le haut du dos s'arrête avant l'encolure; ce sont les manches qui seront cousues le long du haut du dos, et on va rabattre les mailles de l'encolure à la fin des manches. Bon tricot!

09.10.2023 - 16:26

country flag Beatrice wrote:

Buongiorno, nel modello non riesco a capire come diminuire nelle maniche dove dice diminuire 19 maglie sul diritto, devo quindi diminuire solo da un lato, quello a destra sul diritto del lavoro? Sul rovescio, a sinistra non diminuisco? Grazie

08.09.2023 - 08:37

country flag Carol Paur wrote:

I am having troubles with the sleeve decreases. Are they done from the right side for the right sleeve or from both the right and the left sides, the beginning of each row?

03.09.2023 - 00:18

DROPS Design answered:

Dear Carol, the decreases are worked only from the right side (for the right sleeve) and for the left sleeve at the beginning of wrong side rows. Happy knitting!

03.09.2023 - 23:32

country flag Pascal Ansaldo wrote:

Bonjour, L'erreur du 13e rang est bien réelle, votre explication est juste mais le diagramme est faux, les deux symboles de croisement sur ce rang devraient être inversés, ils ne le sont pas. Regardez attentivement ;-)

23.08.2023 - 20:55

country flag Pascal Ansaldo wrote:

Bonjour, Il y a une erreur sur le diagramme A2. Au 13ème rang, lorsque le losange se referme, le premier symbole pour le croisement des mailles est erroné. Il devrait être inversé, semblable à celui des rangs suivants. Heureusement, je l'ai exécuté correctement, il m'a fallu tricoter trois fois le dessin avant de remarquer l'erreur. Merci pour ce modèle sympathique.

20.08.2023 - 20:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mr Ansaldo, sauf erreur de ma part, ce 13ème rang est bien juste, vous devez effectivement refermer la torsade, autrement dit, vous mettez 2 m devant l'ouvrage et tricotez la m envers suivante (vous avez maintenant 1 m envers avant les 2 m end), vous tricotez ces 2 end puis 4 m env, glissez la m envers suivante derrière l'ouvrage et tricotez les 2 m end, et terminez par la m env. Vous avez maintenant bien vos mailles comme au rang suivant: 1 m env, 2 m end, 4 m env, 2 m end, 1 m env (vu sur l'endroit). Bon tricot!

21.08.2023 - 09:30