DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Narvik Set

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, hálsskjóli og vettlingum með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Karisma.

DROPS 183-3
DROPS Design: Mynstur u-833
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf:
200 g litur 44, ljós grár
100 g litur 01, natur
50 g litur 48, vínrauður (í allar stærðir).

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 - 58/60 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-50 g litur 44, ljós grár
50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50 g litur 48, vínrauður

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M - M/L - L/XL
Mál:
Ummál að ofan: 50-53-57 cm.
Hæð: 26-28-30 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-100 g litur 44, ljós grár
50-50-50 g litur 01, natur

VETTLINGAR:
Stærð: S/M - M/L - L/XL
Mál: Lengd: 25-26-27 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-100-100 g litur 44, ljós grár
50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50 g litur 48, vínrauður

DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 15,9.
Í þessu dæmi er prjónuð ca 15. og 16. hver lykkja slétt saman þegar lykkjum er fækkað. Ef fjölga á lykkjum er slegið 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 16. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.4 og A.5.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumal á vettling):
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Næsta skipt sem aukið er út er það gert þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, þ.e.a.s. alltaf er aukið út að utanverðu við útauknar lykkjur.

ÚRTAKA (á við um vettlinga):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 111-117-123 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-7 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 108-112-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.1 (= 27-28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 0-4-2 lykkjur jafnt yfir = 108-108-114 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 18-18-19 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 16-17-17 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og í litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 18-19-20 cm setjið 6 prjónamerki í stykkið með 18-18-19 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu um ferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 10 sinnum í öllum stærðum = 12 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-26-28 cm ofan frá og niður.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk ca 8 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn niður efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður þar til efsti hluti á hálsskjóli er lokið. Þá skiptist stykkið upp í hliðum og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 111-117-126 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós grár Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-5-6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 104-112-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.3 (= 26-28-30 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 4-2-0 lykkjur jafnt yfir = 108-114-120 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 18-19-20 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum ljós grár til loka. Þegar stykkið mælist 10-11-12 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 54-57-60 lykkjur (= 1 prjónamerki í hvora hlið). Prjónið nú 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 8 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 8 lykkjum – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón á hæðina í hvorri hlið skiptist stykkið við bæði prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BAKSTYKKI:
= 54-57-60 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN – sá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12-13-14 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum (4 kantlykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni og ekki er aukið út yfir þessar 4 lykkjur) = 66-69-72 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni (uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið síðan af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Hálsskjólið mælist ca 26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti og niður.

FRAMSTYKKI:
= 54-57-60 lykkjur. Prjónið alveg eins og bakstykki.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 42-45-51 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum vínrauður Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-5-3 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 36-40-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.4 (= 9-10-12 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.4 er aukið út um 0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 36-42-48 lykkjur. Prjónið síðan A.5 (= 6-7-8 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 8 cm. Haldið áfram með litnum ljós grár til loka. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eftir A.5 er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Nú er aukið út fyrir opi fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í - lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 6-7-8 sinnum = 48-56-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 12-13-14 cm. Í næstu umferð er 13-15-17 þumallykkjur settar á þráð, haldið áfram hringinn með litnum ljós grár og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 36-42-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til vettlingurinn mælist 21-22-23 cm (nú eru eftir ca 4 cm til loka lengdar, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 18-21-24 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-4-3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-5-7 sinnum = 4-6-8 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 13-15-17 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 2 lykkjur aftan við þumal með litnum ljós grár = 15-17-19 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn sjálfur mælist ca 5-5½-6 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca ½ cm til loka lengdar). Prjónið 2 umferðir slétt þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt saman tvær og tvær í báðum umferðum = 4-5-5 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið eins og hægri vettlingur, en þegar útaukning fyrir opi fyrir þumal byrjar er prjónað þannig: Aukið út fyrir opi fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við síðustu lykkju í umferð. Afgangur af vettling er prjónaður alveg eins og hægri vettlingur.

Mynstur

symbols = vínrauður
symbols = ljós grár
symbols = natur
symbols = úrtökuumferð/útaukningsumferð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Narvik hat

Vanessa, United Kingdom

Narvik Hat

Theresa, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Claudia Carolina wrote:

.... volevo dire - - - per la talia "M" - - -

07.07.2019 - 11:40

country flag Claudia Carolina wrote:

Spett.le Drops... non mi trovo con i conteggi, nel aumentare, dove dice: """Sull’ultimo giro di A.3 distribuire 0-4-2 aumenti in modo uniforme sul giro = 108-114-120 maglie""" non mi sono trovata con gli aumenti per la taglia S... perché avendo 112 maglie se aumento 4 non ottengo 114 bensì 116 e ho tenuto 114 per avere il multiplo di 6 per seguire lo schema A2. grazie mille.

07.07.2019 - 11:38

DROPS Design answered:

Buongiorno Claudia Carolina. Abbiamo corretto il testo: gli aumenti sono 4-2-0 maglie. È quindi corretto avere 114 maglie. Buon lavoro!

07.07.2019 - 13:04

country flag Claudia Carolina wrote:

Spett.le Drops, grazie mille per tutti i modelli e per il modo in cui ci seguite mentre knittiamo e crochettiamo. Vorrei sapere quanti centimetri devo misurare dal inizio (avvio delle maglie) fino al giro in cui si dividono il davanti e il dietro. Grazie mille. Claudia

07.07.2019 - 11:29

DROPS Design answered:

Buongiorno Claudia Carolina. Deve arrivare a 10-11-12 cm e lavorare altri 6 ferri, quindi aggiungere poco meno di 3 cm. Buon lavoro!

07.07.2019 - 13:10

country flag Sue Mellgren wrote:

Neck warmer. After back piece is 5\" and I end on a P row, do my first row of 4 K, *K1P2* until last 5, then K5. what do I do when I flip to the wrong side? Exact same stitches? I tried that and it doesn\'t seem to make any sort of a pattern after the 1\".

11.08.2018 - 20:04

DROPS Design answered:

Dear Sue, when the piece measures 5", you have to work a purl row in which you increase 12 sts inside the 4 edge sts at each side. Then, you have to change needle and work: 4 edge stitches in garter stitch, * knit 1, purl 2 *, repeat from *-* until there are 5 stitches left on the row, knit 1 and finish with 4 edge stitches in garter stitch. Then, continue like this for 1". Happy knitting!

12.08.2018 - 17:22

country flag Carole wrote:

Bonjour J'ai un problème avec les augmentations pour les mitaines. Je fais les jetés tel que décrit mais les trous sont encore trop apparent. Est-ce que je peux faire d'autres sortes d'augmentations pour être certaine de ne plus avoir ces trous? Merci beaucoup de votre aide.

17.10.2017 - 03:15

DROPS Design answered:

Bonjour Carole, vous pouvez tout à fait utiliser la technique que vous souhaitez pour augmenter. Bon tricot!

17.10.2017 - 09:32

country flag Ann-Mari Lageholm wrote:

Hittar inte själva stickbeskrivningen, endast garnåtgång och diagram???

26.09.2017 - 20:16

DROPS Design answered:

Hei Ann-Mari. Her var det lagt dobbelt, men det er nå ordnet og oppskriften ligger nå under bildet. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. God Fornøyelse med å strikke dette flotte settet.

27.09.2017 - 09:12