Narvik Set |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, hálsskjóli og vettlingum með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Karisma.
DROPS 183-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 15,9. Í þessu dæmi er prjónuð ca 15. og 16. hver lykkja slétt saman þegar lykkjum er fækkað. Ef fjölga á lykkjum er slegið 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 16. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.4 og A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumal á vettling): Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Næsta skipt sem aukið er út er það gert þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, þ.e.a.s. alltaf er aukið út að utanverðu við útauknar lykkjur. ÚRTAKA (á við um vettlinga): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 111-117-123 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-7 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 108-112-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.1 (= 27-28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 0-4-2 lykkjur jafnt yfir = 108-108-114 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 18-18-19 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 16-17-17 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og í litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 18-19-20 cm setjið 6 prjónamerki í stykkið með 18-18-19 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu um ferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 10 sinnum í öllum stærðum = 12 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-26-28 cm ofan frá og niður. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 8 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn niður efst á húfuna. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður þar til efsti hluti á hálsskjóli er lokið. Þá skiptist stykkið upp í hliðum og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 111-117-126 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós grár Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-5-6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 104-112-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.3 (= 26-28-30 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 4-2-0 lykkjur jafnt yfir = 108-114-120 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 18-19-20 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum ljós grár til loka. Þegar stykkið mælist 10-11-12 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 54-57-60 lykkjur (= 1 prjónamerki í hvora hlið). Prjónið nú 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 8 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 8 lykkjum – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón á hæðina í hvorri hlið skiptist stykkið við bæði prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BAKSTYKKI: = 54-57-60 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN – sá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12-13-14 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum (4 kantlykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni og ekki er aukið út yfir þessar 4 lykkjur) = 66-69-72 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni (uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið síðan af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Hálsskjólið mælist ca 26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti og niður. FRAMSTYKKI: = 54-57-60 lykkjur. Prjónið alveg eins og bakstykki. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 42-45-51 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum vínrauður Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-5-3 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 36-40-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.4 (= 9-10-12 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.4 er aukið út um 0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 36-42-48 lykkjur. Prjónið síðan A.5 (= 6-7-8 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 8 cm. Haldið áfram með litnum ljós grár til loka. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eftir A.5 er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Nú er aukið út fyrir opi fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í - lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 6-7-8 sinnum = 48-56-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 12-13-14 cm. Í næstu umferð er 13-15-17 þumallykkjur settar á þráð, haldið áfram hringinn með litnum ljós grár og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 36-42-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til vettlingurinn mælist 21-22-23 cm (nú eru eftir ca 4 cm til loka lengdar, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 18-21-24 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-4-3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-5-7 sinnum = 4-6-8 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 13-15-17 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5 og prjónið upp 2 lykkjur aftan við þumal með litnum ljós grár = 15-17-19 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn sjálfur mælist ca 5-5½-6 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca ½ cm til loka lengdar). Prjónið 2 umferðir slétt þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt saman tvær og tvær í báðum umferðum = 4-5-5 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið eins og hægri vettlingur, en þegar útaukning fyrir opi fyrir þumal byrjar er prjónað þannig: Aukið út fyrir opi fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við síðustu lykkju í umferð. Afgangur af vettling er prjónaður alveg eins og hægri vettlingur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Claudia Carolina wrote:
.... volevo dire - - - per la talia "M" - - -
07.07.2019 - 11:40Claudia Carolina wrote:
Spett.le Drops... non mi trovo con i conteggi, nel aumentare, dove dice: """Sull’ultimo giro di A.3 distribuire 0-4-2 aumenti in modo uniforme sul giro = 108-114-120 maglie""" non mi sono trovata con gli aumenti per la taglia S... perché avendo 112 maglie se aumento 4 non ottengo 114 bensì 116 e ho tenuto 114 per avere il multiplo di 6 per seguire lo schema A2. grazie mille.
07.07.2019 - 11:38DROPS Design answered:
Buongiorno Claudia Carolina. Abbiamo corretto il testo: gli aumenti sono 4-2-0 maglie. È quindi corretto avere 114 maglie. Buon lavoro!
07.07.2019 - 13:04Claudia Carolina wrote:
Spett.le Drops, grazie mille per tutti i modelli e per il modo in cui ci seguite mentre knittiamo e crochettiamo. Vorrei sapere quanti centimetri devo misurare dal inizio (avvio delle maglie) fino al giro in cui si dividono il davanti e il dietro. Grazie mille. Claudia
07.07.2019 - 11:29DROPS Design answered:
Buongiorno Claudia Carolina. Deve arrivare a 10-11-12 cm e lavorare altri 6 ferri, quindi aggiungere poco meno di 3 cm. Buon lavoro!
07.07.2019 - 13:10Sue Mellgren wrote:
Neck warmer. After back piece is 5\" and I end on a P row, do my first row of 4 K, *K1P2* until last 5, then K5. what do I do when I flip to the wrong side? Exact same stitches? I tried that and it doesn\'t seem to make any sort of a pattern after the 1\".
11.08.2018 - 20:04DROPS Design answered:
Dear Sue, when the piece measures 5", you have to work a purl row in which you increase 12 sts inside the 4 edge sts at each side. Then, you have to change needle and work: 4 edge stitches in garter stitch, * knit 1, purl 2 *, repeat from *-* until there are 5 stitches left on the row, knit 1 and finish with 4 edge stitches in garter stitch. Then, continue like this for 1". Happy knitting!
12.08.2018 - 17:22Carole wrote:
Bonjour J'ai un problème avec les augmentations pour les mitaines. Je fais les jetés tel que décrit mais les trous sont encore trop apparent. Est-ce que je peux faire d'autres sortes d'augmentations pour être certaine de ne plus avoir ces trous? Merci beaucoup de votre aide.
17.10.2017 - 03:15DROPS Design answered:
Bonjour Carole, vous pouvez tout à fait utiliser la technique que vous souhaitez pour augmenter. Bon tricot!
17.10.2017 - 09:32Ann-Mari Lageholm wrote:
Hittar inte själva stickbeskrivningen, endast garnåtgång och diagram???
26.09.2017 - 20:16DROPS Design answered:
Hei Ann-Mari. Her var det lagt dobbelt, men det er nå ordnet og oppskriften ligger nå under bildet. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. God Fornøyelse med å strikke dette flotte settet.
27.09.2017 - 09:12