DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Nap

Prjónuð peysa fyrir börn með köðlum og laskalínu. Stærð 2-12 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS Children 30-7
DROPS Design: Mynstur ai-012-bn
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-200-200-250-250 g litur 16, blár

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur C)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓANR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓANR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðal.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 25 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 1 lykkju á eftir prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón, síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og prjónað er til loka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 136-144-152-160-168-176 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 25-27-29-29-31-33 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚRTAKA, prjónið A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð = 19-19-19-23-23-23 lykkjur sem auknar eru til 20-20-20-24-24-24 lykkjur í fyrstu umferð), prjónið 25-27-29-29-31-33 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, setjið 1 prjónamerki (= í hlið), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 67-71-75-79-83-87 lykkjur og fækkið jafnframt um 11-11-11-13-13-13 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Nú eru 60-64-68-72-76-80 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og 56-60-64-66-70-74 lykkjur á bakstykki = alls 116-124-132-138-146-154 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: 20-22-24-24-26-28 lykkjur með sléttprjóni, haldið áfram með A.1 (= 20-20-20-24-24-24 lykkjur) og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru prjónað A.2 yfir þessar 20-20-20-24-24-24 lykkjur. A.2 er síðan endurtekið áfram. Þegar stykkið mælist 20-23-26-29-32-35 cm fellið af 4-4-4-6-6-6 lykkjur á hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 2-2-2-3-3-3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Nú eru 56-60-64-66-70-74 lykkjur á framstykki og 52-56-60-60-64-68 lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 30-32-32-34-34-36 lykkjur á sokkaprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – lesið ÚRTAKA = 26-28-28-30-30-32 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-3½-3½-4-5-5½ cm millibili alls 6-6-7-7-7-7 sinnum = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-26-30-34-38-42 cm fellið af 4-4-4-6-6-6 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 2-2-2-3-3-3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 34-36-38-38-38-40 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 176-188-200-202-210-222 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram eins og áður með sléttprjón og A.2 við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNU – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-18 sinnum.
JAFNFRAMT þegar 2 úrtökur eru eftir í laskalínu (ef prjónfestan passar á hæðina mælist stykkið ca 31-35-39-43-47-51 cm við miðju að framan), prjónið 10-10-10-12-12-12 lykkjur yfir kaðal við miðju að framan slétt saman 2 og 2 (= 5-5-5-6-6-6 lykkjur færri). Í næstu umferð eru miðju 21-23-25-24-26-28 lykkjurnar settar á 1 band fyrir hálsmáli. Prjónið síðan stykkið fram og til baka frá hálsi og fellið af 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir hálsmáli.
Eftir allar úrtökur/affellingar fyrir laskalínu og hálsmáli eru 44-46-48-42-40-42 lykkjur eftir á prjóni.

KANTUR Í HÁLSI:
Prjónið upp frá réttu ca 67-71-75-68-68-72 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur á bandi að framan) á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin) í 3 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.
----------------------------------------------------------
Buxur:
Sjá DROPS Children 30-22 eða “Tengd mynstur” í uppskrift á netinu.
----------------------------------------------------------

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Nap

Martina, Afghanistan

Kinderpulli

Evelina, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Mieke wrote:

Ik kom er nog steeds niet uit mbt de kabel en het patroon nl op de foto heeft de trui twee kabels die elkaar kruisen en dat zie ik niet terug in het patroon. Kunt u mij aub het juiste patroon vertellen zodat ik de voorkant krijg conform de foto? Bij voorbaat heel hartelijk dank! Ik brei de kleine maat.....

01.11.2022 - 15:39

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Als je het patroon volgt dan ontstaat er vanzelf een kabel zoals op de foto. Dit is in het telpatroon aangegeven met 1 schuine streep die over een aantal steken loopt. Daarbij plaats je een aantal steken op een kabelnaald (afhankelijk van de maat die je aan het breien bent 5 of 6 steken)en houd deze achter het werk. Vervolgens brei je een aantal steken (afhankelijk van de maat die je aan het breien bent 5 of 6 steken) en daarna brei je weer de steken van de kabelnaald.

02.11.2022 - 14:48

country flag Mieke wrote:

Je bedoeld misschien grote maten 6 steken op de kabelnaald en kleine 3 maten 5? En klopt het dat de kabelnaald met de steken steeds ACHTER het werk moeten?

30.10.2022 - 21:34

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Bij de grote maten 6 steken op een kabelnaald zetten, 6 steken breien en dan de 6 steken van de kabelnaald breien. Je houd de steken van de kabelnaald inderdaad steeds achter het werk.

02.11.2022 - 14:49

country flag Mieke wrote:

Ik snap het kabelpatroon niet nl wanneer moet ik 5 steken op de kabelnaald zetten en wanneer 6 steken. Ik zien telpatroon nl geen verschil

28.10.2022 - 18:36

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Alleen voor de grootste 3 maten zet je 5 steken op een kabelnaald en alleen voor de kleinste 3 maten zet je steeds 5 steken op een kabelnaald.

30.10.2022 - 17:09

country flag Tigresse wrote:

Bonjour, il doit y avoir des erreurs dans les explications. J'ai Voulu faire la taille 5/6 ans mais en mesurant la largeur je n'ai pas 40 cm mais 28. J'ai tout fait comme dit la première partie. Merci de m'éclairer.

18.03.2022 - 18:42

DROPS Design answered:

Bonjour Tigresse, avez-vous bien la bonne tension, soit 16 mailles x 20 rangs jersey = 10 x 10 cm? Avec cette tension, vous devez avoir 132 mailles/2 = 66 mailles pour le devant & le dos = environ 41 cm jersey soit environ 40 cm (à cause de la torsade). Bon tricot!

21.03.2022 - 07:40

country flag Staytru wrote:

I\'m knitting size 5/6 and found the section written for the Yoke unclear. It says to do a total of 15 raglan decreases every other row. However, from my interpretation, you complete 13 raglan decreases + 1 even row, and then on the 14th raglan decrease, you k2tog across the 10 cable stitches. Then would you knit another even row to put 25 stitches on scrap yarn? But then we are missing another raglan decrease.

05.03.2022 - 00:50

DROPS Design answered:

Dear Staytru, you are correct, but after putting the 25 stitches on scrap yarn, on the next row, you need to work the last raglan decrease, while casting off a stitch on each side of the neck. Happy knitting!

06.03.2022 - 13:09

country flag Viv wrote:

I am attempting this pattern for the second time. The first one I ended up pulling the whole thing undone! There appears to be a few errors with stitch counts both on the sleeve and yoke. I am knitting the second size. The cast off stitches for the neck also seem wrong. On both attempts the neck begins so far down the front that the shape is entirely wrong. Before I give up with this pattern and throw it away, can you please tell me if this problem has already been remedied?

31.01.2022 - 11:25

DROPS Design answered:

Dear Viv, in the 2nd time, neck is worked when piece measures 35 cm from cast on edge, and whole piece measures a total of 40 cm from shoulder down. You will then work 3 cm ribbing edge for collar. What kind of errors did you find? Please share so that we can check and fw our design team. Thank you!

31.01.2022 - 17:36

country flag Muriel wrote:

Bonjour, pour l'emplacement, diminuer tous les deux rangs, cela veut il dire un rang sur deux ou bien un rang avec diminutions et deux rangs sans?

25.08.2021 - 23:34

DROPS Design answered:

Bonjour Muriel, quand on doit diminuer tous les 2 tours/rangs, on tricote ainsi: *1 tour/rang de diminutions, 1 tour/rang sans diminutions*, et on répète de *-*. Bon tricot!

26.08.2021 - 08:35

country flag Glenda Novotny wrote:

I am struggling to understand the pattern in the yoke section. After the measurements mid front (size 5/6 - 39cm it says “knit together the 10 stitches over the cable mid front “2 and 2 (=5 stitches decreased)” what does this mean? I look forward to hearing from you. Regards Glenda

15.06.2021 - 15:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Novotny, you need more stitches for a cable than for stocking stitch, so in order to avoid the stitches on neck to be too wide, you will work the middle 10 stitches together 2 by 2 (= k2 tog a total of 5 times = 5 sts decreased, 5 sts remain). Hope this helps. Happy knitting!

15.06.2021 - 16:38

country flag Lisbeth wrote:

Hej, Jeg har nu sat masker på tråden som skal være over snoningen. Jeg har dog ikke laver snoningen, og jeg synes at jeg har alt for mange masker tilbage op pinden. Hvad gør jeg? Tager jeg “bare” et antal masker ind så det passer med slutantallet?

19.01.2021 - 09:01

DROPS Design answered:

Hei Lisbeth. Hvor mange masker har du til overs og hvilken str strikker du? Har du husket å strikkes de midterste maskene over fletten midt foran rett sammen 2 og 2, før du på neste omgang skal sette de midterste maskene på 1 tråd til hals? Om du følger oppskriften skal maskeantallet stemme. mvh DROPS design

25.01.2021 - 13:01

country flag Johanne Auger wrote:

Puis-je faire ce modèle avec des aiguilles normales et non circulaire?

07.01.2021 - 21:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Auger, il vous faudra faire quelques ajustements, cette leçon explique comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

08.01.2021 - 07:31