DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10868.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 64-1
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: S - M/L - XL/XXL
Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
950-1100-1300 gr litur nr 05, ljós fjólublár

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5 - eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir heklaðan kant í kringum fram- og bakstykki, ermar og hálsmál.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10868.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu - M.1, M.2, M.3 og M.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. (Það eru 6 lykkjur fleiri í hverri mynstureiningu, vegna þess að kaðlarnir dragast saman).
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Til þess að það verði kaðall við miðju að framan og mynstrið gangi jafnt upp í hliðum, eru hliðarsaumarnir færðir til um 4 lykkjur.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 116-136-154 lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur á hvorri hlið) á prjóna 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – jafnframt í síðustu umferð er aukið út um 34-40-42 lykkjur jafnt yfir = 150-176-196 lykkjur. Prjónið síðan M.1 – byrjið við ör fyrir rétta stærð – en 2 kantlykkjur á hvorri hlið eru prjónaðar með garðaprjóni (hægri hlið byrjar við gatamynstur eftir 2 kantlykkjur og vinstri hlið endar með 1 kaðli innan við 2 kantlykkjur).
Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 48-50-51 cm fellið af 6 lykkjur á hægri hlið og 2 lykkjur á vinstri hlið á stykki – mismunandi lykkjufjöldi er felldur af í hliðum, þetta jafnast út þegar bakstykki er saumað saman við. Fellið síðan af fyrir handveg í annarri hverri umferð: 4 lykkjur 0-1-1 sinnum, 3 lykkjur 1-3-3 sinnum, 2 lykkjur 2-4-4 sinnum, 1 lykkja 3-3-3 sinnum = 122-120-140 lykkjur. Prjónið áfram mynstur með 2 kantlykkjum með garðaprjóni á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 63-65-67 cm eru miðju 28-26-28 lykkjurnar settar á band fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við háls í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 2 sinnum, 2 lykkjur 4 sinnum, 1 lykkja 2 sinnum = 31-31-40 lykkjur eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 70-72-74 cm fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir á hvorri öxl. Í næstu umferð eru allar lykkjur felldar af.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki. Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki. Þegar stykkið mælist 68-70-72 cm fækkið um 12 lykkjur yfir miðju 60-58-60 lykkjurnar. Í næstu umferð eru miðju 48-46-48 lykkjurnar felldar af fyrir hálsmáli = 31-31-40 lykkjur eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 70-72-74 cm fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir á hvorri öxl. Í næstu umferð eru allar lykkjur felldar af.

ERMI:
Fitjið upp 54-54-54 lykkjur á prjón 3,5 með Muskat. Prjónið 2 umferðir garðaprjón – í síðustu umferð eru auknar út 14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 68-68-68 lykkjur. Prjónið M.1 – en 1 kantlykkja á hvorri hlið eru prjónaðar með garðaprjóni upp úr – byrjið við ör fyrir stærð XL/XXL í öllum stærðum.
Þegar stykkið mælist 8-8-8 cm er aukið út um 1 lykkju á hvorri hlið innan við kantlykkju 20-20-21 sinnum í stærð S: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð. Stærð M/L: í 5. hverri umferð. Stærð XL/XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð = 108-108-110 lykkjur – útauknu lykkjurnar eru prjónaðar í M.3 (= gatamynstur) þar til aukið hefur verið út nægilega mikið til að prjóna M.4 (= lítill kaðall). Þegar stykkið mælist 45-43-40 cm fellið af á hvorri hlið fyrir ermakúpu í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 6-3-4 sinnum, 1 lykkja 0-12-10 sinnum, 2 lykkjur 6-3-4 sinnum, 3 lykkja 2-2-2 sinnum. Stykkið mælist nú ca 56-58-55 cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlir saman.
Takið upp 110 til 120 lykkjur (deilanlegt með 10) – meðtaldar lykkjur á bandi að framan, í kringum háls með sokkaprjóna 3,5 með Muskat. Prjónið M.2 – jafnframt því sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 120 til 130 lykkjur. Þegar hálsmál mælist ca 7 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir hvern kaðal með því að prjóna saman 4 lykkjur tvær og tvær. Í næstu umferð er fellt af.
Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðarsauma innan við 2 kantlykkju og saumið síðan ermar í innan við 2 kantlykkju.

Heklið fastalykkjur með Muskat og heklunál 3 neðst í kringum fram- og bakstykki, ermar og í kringum hálsmál – heklið ca 19 fastalykkjur per 10 cm.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 64-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Iwona Harris wrote:

Thank you for your answer; however it does not solve my problem. I understand I have to cast off the same amount of stitches for armholes on both sides, but before you do that the pattern states "When piece measures 48-50-51 cm cast off 6 stitches in right side and 2 stitches in left side of piece - you cast off a different stitch-number in the sides; this evens out when sewn together with back piece". This is what my question was about. Please help.

29.12.2022 - 20:04

DROPS Design answered:

Hello Iwona Harris! It is to make a pattern fit at the side. Hope it helps!

30.12.2022 - 12:12

country flag Iwona Harris wrote:

Could you please explain the reason for casting off a different amount of stitches for armhole on the right and left side of piece (i.e. 6 and 2). Also, is right and left understood as facing you or as worn on the person. Thank youl

26.12.2022 - 14:17

DROPS Design answered:

Hello Iwona Harris! You must cast off armholes on both sides with the same amount of stitches. Meaning you cast off at the beginning of the row: 4 stitches 0-1-1 time (on both sides), then 3 stitches 1-3-3 times (on both sides), then 2 stitches 2-4-4 times (on both sides) and so on. Also, sides are given as worn on the person. Hope it helps!

29.12.2022 - 19:34

country flag Metha Nielsen wrote:

Jeg er nået til at strikke ærmerne, men er lidt i tvivl om hvorledes jeg skal strikke de udtagne masker. Hvis jeg strikker M3 på de udtagne masker, som der står i opskriften, får jeg to hulmønstre ved siden af hinanden, er det korrekt? Bh. Metha

20.09.2021 - 09:29

DROPS Design answered:

Hej Metha. Ja det blir så under ärmen att hålmönstret blir lite bredare under ärmen pga de ökade maskorna. Du kan självklart välja att sticka de i t.ex. glatstrik om du hellre vill det. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 10:06

country flag Janice Todd wrote:

Could you please explain the decrease in the front and back panel

22.06.2018 - 09:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Todd, not sure which decrease you are thinking about. If you are talking about the decrease in the diagrams, they are included in the diagram, work either K2 tog (then YO) or (first YO then) slip 1 as if to K, K1, psso (= 3rd and 4th symbol under diagram text) - the decrease are here compensated with a YO so that the number of sts keep constant. Happy knitting!

22.06.2018 - 16:44

country flag Lis Fredborg wrote:

Kan antal m passe? 150m minus 4 kantm og reporten er 16m. Er det rigtigt? Det er forstykket.

23.03.2016 - 17:31

DROPS Design answered:

Hej Lis. Rapporten er ikke 16 m. Du begynder med at strikke ved pilen og til slut (= 16 m). Herefter gentager du hele M.2 = 26 m, saa gaar det op.

24.03.2016 - 15:15

country flag Lis Fredborg wrote:

Jeg vil gerne lave trøjen smallere, da jeg er meget lille en xs. Hvordan kan jeg lave den så det passer med mønsteret?

13.02.2016 - 10:36

DROPS Design answered:

Hej Lis, hvis du vælger at slå færre antal masker op, så skal du sørge for at diagrammerne går op i det nye maskeantal. God fornøjelse!

03.03.2016 - 12:26