DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ylva

Prjónuð peysa fyrir börn með köðlum og laskalínu. Stærð 2-12 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS Children 30-3
DROPS Design: Mynstur ai-005-bn
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 14, bleikfjólublár

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur C)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 19 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
---------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð í A.2.

ÚTAUKNING:
Aukið svona út í miðju undir ermi – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkjur slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, kemur berustykkið til með að vera of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili milli úrtaka.
----------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp.

Fitjið upp 132-142-150-150-150-160 lykkjur á hringprjón 5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig:

STÆRÐ 2 ára:
1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, A.1 (= 12 lykkjur), A.2 (= 6 lykkjur), A.1, A.2, A.3, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 15 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, A.1, A.2, A.1, A.2, A.1, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt.

STÆRÐ 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára:
1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, A.1 (= 12 lykkjur), A.2 (= 6-8-8-8 lykkjur), A.1, A.2, A.1, * 3 lykkjur brugði, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 20 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, A.1, A.2, A.1, A.2, A.1, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið.

STÆRÐ 11/12 ára:
1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, A.1 (= 12 lykkjur), A.2 (= 8 lykkjur), A.1, A.2, A.1, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 25 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, A.1, A.2, A.1, A.2, A.1, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6.

Prjónið síðan þannig:
Brugðið yfir fyrstu 9-11-11-11-11-14 lykkjur, A.3 (= 12 lykkjur), 6-6-8-8-8-8 lykkjur brugðið, A.3, 6-6-8-8-8-8 lykkjur brugðið, A.3, brugðnar lykkjur yfir næstu 18-23-23-23-23-28 lykkjur, A.3, 6-6-8-8-8-8 brugðnar lykkjur, A.3, 6-6-8-8-8-8 brugðnar lykkjur, A.3, brugðnar lykkjur yfir síðustu 9-12-12-12-12-14 lykkjurnar. Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út yfir 18-23-23-23-23-28 brugðnu lykkjurnar í hvorri hlið til 18-22-20-24-26-28 lykkjur = 132-140-144-152-156-160 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í brugðnu lykkjurnar (= 66-70-72-76-78-80 lykkjur á bakstykki og á framstykki). Haldið áfram með A.3 og brugðnar lykkjur eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-23-26-29-32-35 cm fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Nú eru 60-64-66-70-72-74 lykkjur á bakstykki og framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur.
Fitjið upp 30-30-30-35-35-35 lykkjur á sokkaprjón 5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir í sokkaprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-4-4-7-7-5 lykkjur jafnt yfir = 26-26-26-28-28-30 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-3½-3½-4½-4½-5 cm millibili alls 5-6-7-6-7-7 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-26-29-33-37-41 cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 30-32-34-34-36-38 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 180-192-200-208-216-224 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.

Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 5-5-6-5-5-6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 4-5-5-6-6-6 sinnum = alls 9-10-11-11-12 sinnum. Þegar ekki eru nægilega margar lykkjur eftir í hvorri hlið við laskalínu til að mynda kaðla í A.3 eru felldar af 6 lykkjur yfir A.3 í hvorri hlið með því að prjóna lykkjurnar slétt saman 2 og 2. Í síðasta skipti þegar fækka á lykkjum í laskalínu eru felldar af 6 lykkjur alveg eins yfir tvær miðju einingar af A.3.

Á eftir öllum úrtökum eru 72-76-76-84-92-92 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur þar sem fækkað er um 12-16-16-19-22-22 lykkjur jafnt yfir = 60-60-60-65-70-70 lykkjur. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

----------------------------------------------------------
Buxur:
Sjá DROPS Children 30-21 eða “Tengd mynstur” í uppskrift á netinu.
----------------------------------------------------------

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Loredana wrote:

Vorrei fare questo modello per una bambina di tre anni ma utilizzando ferri 3.4/4, come posso calcolare le misure. Grazie

17.11.2018 - 09:41

DROPS Design answered:

Buongiorno Loredana, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

17.11.2018 - 12:06

country flag Line wrote:

Diagrammet A3 viser at man skal flytte 8 masker ved snoningen. Men forklaringen til diagrammet siger, at man kun skal flytte fire og strikke fire. Hvilket betyder at der så er fire masker, jeg ikke ved hvad jeg skal stille op med. Jeg forstår med andre ord ikke hvordan snoningen skal laves. Jeg kender kun til snoninger hvor halvdelen flyttes og ikke en tredjedel. Er der ikke en fejl i opskriften?

19.10.2018 - 13:38

DROPS Design answered:

Hej Line, jo du ser at snoningen går over 8 masker, det vil sige at 3.pind (1.snoning) strikkes således fra retsiden: sæt 4 m på snoningspind foran arbejdet, strik de 4 næste masker, strik de 4 masker fra snoningspinden og til sidst de sidste 4 masker i diagrammet som strikkes ret. God fornøjelse!

30.10.2018 - 09:36

country flag Giancarla Coco wrote:

Ho una curiosita':che significato ha il simbolo del diamante che compare nella foto del catalogo.Grazie se vorrete rispondere.

11.10.2018 - 14:46

DROPS Design answered:

Buongiorno Giancarla. Il diamante indica i modelli che sono riportati nella home page del sito, in corrispondenza delle catecogie: bambini, donna, maglioni e così via. Buon lavoro!

11.10.2018 - 16:23

country flag Lori Putman wrote:

Hello. When it says to put the body aside, is the yarn being cut?

25.09.2018 - 02:49

DROPS Design answered:

Hi Lori, Yes, it is easiest to cut the strand after each piece has been completed. Happy knitting!

25.09.2018 - 07:51

country flag Lori Putman wrote:

For size 3/4, cast on is 142. Starting the body, I can’t finish the first round as it adds up to 147. Am I reading the pattern wrong where it says ( * purl 3, knit 2*, work from * -* over next 20 stitches) mean this will cover a total of 25 stitches? Or does it mean that it will be repeated over a total of 20 stitches?

22.09.2018 - 05:54

DROPS Design answered:

Dear Lori, you have to repeat *purl 3, Knit 2* over 20 stitches. Happy knitting!

22.09.2018 - 22:41

country flag Heli wrote:

Ja vielä ohjeen jatkosta: ”kun silmukat eivät riitä palmikonkiertoihin, kavenna kummankin sivun A3 mallineuleen kohdalla 6 silmukkaa neulomalla silmukat pareittain yhteen”. Mitä tämä tarkoittaa? Montako silmukkaa siis pitää koko kierroksella vähentyä?

05.09.2018 - 14:11

DROPS Design answered:

Piirroksen A.3 mallikertoja on kerroksella yhteensä 6 ja jokaisesta mallikerrasta kavennetaan (neulomalla silmukat aina kaksi kerrallaan oikein yhteen) 6 silmukkaa, eli kerroksella kavennetaan yhteensä 36 silmukkaa.

05.09.2018 - 18:01

country flag Heli wrote:

Kiitos ihanasta ohjeesta! Olen tekemässä kaarroketta ja raglakavennuksia. Ohjeessa neuvotaan ”Jatka mallineuletta kuten aiemmin ja tee raglankavennukset. Toista tällaiset kavennukset joka 4.kerros 6 kertaa”. Teenkö kavennuksia siis yhteensä 7 kertaa? Työn alla on pusero kokoa 5/6.

05.09.2018 - 09:17

DROPS Design answered:

Hei, raglankavennukset tehdään joka 4. kerros yhteensä 6 kertaa.

05.09.2018 - 17:58

country flag Hanne Kristensen wrote:

Vedr indtagningen til raglan: kan man ikke få en bedre forklaring på dette: Noget af indtagningen sker jo i vrangmasker men der forklares kun i ret... og den maske der skal løftes over en anden maske gør hver 2. Gang at den vender den forkerte vej... skal man så ikke hver 2. Gang starte 'bagfra' i udtagningen? Det er ikke ordentligt forklaret da.

14.04.2018 - 14:38

DROPS Design answered:

Hei Hanne I denne oppskriften feller du alltid til raglan fra rettsiden, og du feller alltid med rettmasker som anvist i forklaringen for RAGLAN. Du har to masker i hver raglanovergang, med en merketråd mellom hver. Før de to rettmaskene feller du ved å strikke 2 masker rett sammen, og etter de to maskene tar du 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes rett, strikk 1 rett, løft den løse masken over. Slik gjør du ved alle 4 raglanovergangene. God fornøyelse.

25.04.2018 - 08:55

country flag Lena Larsson wrote:

Om sticktätheten är 16 makor på 10 cm, betyder det att det behövs 54-55 maskor till 32 cm som i stl 2 år. I mönstret står det 66 maskor för fram respektive bak. Dvs 12 maskor för mycket på fram resp bak, totalt 23 maskor för mycket. Något måste vara felskrivet. Antingen måtten på bilden eller antalet maskor i mönstret\\\\r\\\\nNu får jag riva upp och göra om från början. \\\\r\\\\nHälsningar Lena

09.04.2018 - 17:38

country flag Stina Stålnacke wrote:

Är det riktigt att man ska lägga upp 150 maskor i stl. 5/6? Det verkar väldigt mycket.

18.01.2018 - 14:44

DROPS Design answered:

Hei Stina. På denne modellen skal det legges opp det antallet det står i oppskriften. Om du ser på bildet av genseren, ser du at den er passe vidd for å være en vrangbord, men flettene drar den ekstra sammen. God Fornøyelse!

24.01.2018 - 09:49