DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 181-4
DROPS Design: Mynstur la-035
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Mælt fyrir miðju ca 52 cm.
Mælt meðfram kanti efst eftir strekkingu ca 207 cm.

Efni
DROPS LACE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 0501, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

PRJÓNFESTA:
Sjalið á að bleyta og strekkja í rétt mál í lokin, þannig að prjónfestan er ekki svo mikilvæg, en til að fá einhverja hugmynd um hvort prjónað sé of laust eða of fast er hægt að prjóna prufu á prjóna 3 og athuga hvort ca 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjón verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. 1. umferð = rétta.

FORMUN:
Ef skipt er yfir í annað garn frá garnflokki A þarf ekki að strekkja sjalið í rétt mál, en bleytið sjalið og leggið það varlega í rétt form. Látið það þorna. Endurtakið þetta síðan í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Prjónið frá miðju á kanti uppi á sjali í sléttprjóni og gataumferð og endið neðst niðri með kant með gatamynstri í garðaprjóni.

SJAL:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 3 með Lace – lesið PRJÓNFESTA að ofan.
Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 3 lykkjur) – lesið MYNSTUR að ofan. Í síðustu umferð eru sett 3 prjónamerki eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 27 lykkjur í umferð.
PRJÓNIÐ EFTIR MYNSTURTEIKNINGU A.2 TIL A.6 FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Prjónið A.2 (= 4 lykkjur), A.3 (= 5 lykkjur – fyrsta prjónamerki er staðsett í miðju á A.3), A.4 (= 5 lykkjur – annað prjónamerki er staðsett í síðustu lykkju í A.4), A.5 (= 4 lykkjur), A.3 (= 5 lykkjur – þriðja prjónamerki er staðsett í miðju á A.3) og A.6 (= 4 lykkjur). Þegar öll mynsturteikning A.2 til A.6 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 51 lykkjur í umferð.
Endurtakið útaukningu eins og útskýrt er í A.x – aukið síðan út til skiptis 4 og 8 lykkjur í hverri umferð frá réttu (þ.e.a.s. 12 fleiri lykkjur í hverri endurtekningu af A.x á hæðina), útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni hvoru megin við A.3. Endurtakið eins og útskýrt er í A.x alls 24 sinnum á hæðina = 339 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 36 cm.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað og aukið út um 4 lykkjur sem útskýrt er í fyrstu umferð í A.x = 343 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkja í hvorri hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýring að ofan, í gegnum allt stykkið). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og einungis er aukið út um 1 lykkju við miðjulykkju (= 3 lykkjur fleiri) = 346 lykkjur í umferð og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Héðan eru 3 prjónamerkin ekki notuð.

PRJÓNIÐ EFTIR MYNSTURTEIKNINGU A.7 TIL A.9 FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.7 yfir 4 lykkjur, endurtakið A.8 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 21 mynsturteikning 16 lykkjur), A.9 yfir 4 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATH! Í 11. umferð í mynsturteikningu er aukið út um 2 lykkjur í hverri mynsturteikningu af A.7, A.8 og A.9. Í 17. umferð er aukið út um 2 lykkjur í hverri mynstureiningu A.7 og A.9. Þegar öll mynsturteikning A.7 til A.9 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 430 lykkjur í umferð.

PRJÓNIÐ EFTIR MYNSTURTEIKNINGU A.10 TIL A.12 FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, A.10 yfir 7 lykkjur, endurtakið A.11 þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 23 mynstureiningar 18 lykkjur), A.12 yfir 7 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATH! Í 17. umferð í mynsturteikningu er aukið út um 3 lykkjur í A.10, 1 lykkja í A.11 og 2 lykkjur í A.12. Í 21. umferð er aukið út um 2 lykkjur í A.10 og í A.12. Þegar öll mynstureining A.10 til A.12 hefur verið prjónuð til loka eru 496 lykkjur í umferð – fellið laust af í síðustu umferð frá röngu – lesið AFFELLING að ofan.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – ekki vinda, rúllið síðan sjalinu inn í handklæði og klemmið til þess að ná meira vatni úr sjalinu – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Ef þið notið annað garn frá garnflokki A – lesið FORMUN að ofan. Leggið sjalið á mottu eða á dýnu – dragið það varlega út í rétt mál og notið nálar til að festa það með. Látið sjalið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.06.2018
Mynsturteikning hefur verið uppfærð A.7,A.8,A.9,A.10,A.11 og A.12. Röng mynsturtákn voru í 11. og 17. umferð.
Yfirfarið á vefsvæði: 28.06.2019
Ný mynsturteikning: A.3, A.4 og A.5
Yfirfarið á vefsvæði: 13.05.2022
Mynsturteikning A.5 hefur verið uppfærð.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju og látið prjónamerkið fylgja með áfram í stykkinu til að merkja miðju á A.3, lykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju og látið prjónamerkið fylgja áfram með í stykkinu (= miðju lykkja), prjónið slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = kantlykkja, prjónið slétt frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðinn (= gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn prjónaður og hinn látinn falla niður af prjóni (= gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (= ekki gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 3 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er fyrsti uppslátturinn prjónaður brugðinn, annar uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn og þriðji uppslátturinn er látinn falla niður af prjóni (= gat)
symbols = KÚLA: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 5 lykkjur), snúið stykkinu. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 5 lykkjur. Eftir þetta er önnur lykkjan á hægri prjóni steypt yfir fyrstu lykkju, steypið þriðju lykkju yfir fyrstu lykkju, steypið fjórðu lykkju yfir fyrstu lykkju og í lokin steypið fimmtu lykkju yfir fyrstu lykkju (= 1 lykkja eftir)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = engin lykkja
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (79)

country flag Gabriela Tzschentke wrote:

Tolles Tuch, würde es gerne für mich nach stricken, aber ohne Anleitung ist es schwierig. Die Anleitung kostenlos wäre super.

04.03.2018 - 20:59

country flag Gabriela Tzschentke wrote:

Tolles Tuch .....😊

04.03.2018 - 20:55

country flag Lyne Larouche wrote:

Pour le rang des nope si je n'en veux pas en avoir je peux tricoter tout en endroit .ou bien je commence tout de suite le diagramme ligne 3 merci

27.02.2018 - 18:47

DROPS Design answered:

Bonsoir, vous pouvez tricoter a l'endroit. Bon tricot!

27.02.2018 - 19:11

country flag Jozefien De Bruijn wrote:

Ik heb het helemaal uitgetekend en nu klopt het wel. Kan ik dat ergens naartoe mailen ?

25.02.2018 - 18:48

DROPS Design answered:

Hallo Jozefien, Heb er nogmaals naar gekeken en het klopt toch, maar het is een kwestie van erg goed opletten waar je de minderingen maakt. Als je de steken gaat tellen in de telpatronen klopt het ook. Ik zal de voorgaande reacties even verwijderen, anders is het verwarrend. Dank voor het meedenken :)

25.02.2018 - 19:28

country flag Alie Booij wrote:

Ook ik kom er niet uit volgens het patroon. Denk dat ik het gewoon ga breien en voor de eerste mindering 7 ipv 6 steken brei. En dat ook na de laatste mindering. Misschien ook een idee voor Jozefien

24.02.2018 - 19:16

DROPS Design answered:

Hallo Alie, Na het maken van een proeflapje en de steken opnieuw te tellen, blijkt het telpatroon toch te kloppen. Je moet erg opletten waar je moet minderen en omslagen moet maken, maar als je het telpatroon precies volgt komt het goed.

25.02.2018 - 18:46

country flag Jozefien De Bruijn wrote:

Derde naald van schema A2 t/m A6: van het begin van de rechtse naald tot draad 1 worden 3 steken gemeerderd, van draad 1 tot draad 2 wordt 1 steek gemeerderd, van draad 2 tot draad 3 wordt 1 steek gemeerderd, van draad 3 tot het eind worden weer 3 steken gemeerderd. De averechtse naald geeft in de tekening steeds 2 steken aan tussen eind en draad 3, ook 2 steken tussen de draden 3 en 2, 2 steken tussen draden 2 en 1, en 2 steken tussen draad 1 en het begin van de naald.

20.02.2018 - 05:22

DROPS Design answered:

25.02.2018 - 18:45

country flag Lyne Larouche wrote:

Dans le diagramme A8 au 11 ième rangs entre la première et deuxième maille et la 15 et 16 mailles si il faut faire 2 jetes merci

20.02.2018 - 01:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Larouche, tout à fait, on fait 2 jetés au 11ème rang après la 1ère maille et 2 jetés avant la dernière m de A.8. Au rang suivant, tricotez le 1er jeté et lâchez le 2ème = vous augmentez ainsi 2 m dans A.8 et le trou est un peu plus grand. Bon tricot!

20.02.2018 - 08:48

country flag Jozefien De Bruijn wrote:

Dat deed ik, maar het resultaat is steeds hetzelfde. Ik moet maar een ander patroon kiezen. Jammer.

20.02.2018 - 00:19

DROPS Design answered:

Hallo Jozefien, Je kan evt. ook altijd om hulp vragen bij het verkooppunt waar je het garen hebt gekocht.

20.02.2018 - 16:32

country flag Jozefien De Bruijn wrote:

Het gaat over schema's 2 t/m 6. De gaatjes verspringen steeds. Rij 1 t/m 4 gaan goed = 39 steken op de naald, maar bij rij vijf (kantsteek, omslag, 6 rechts, mindering, omslag, gemarkeerde steek) zit die gemarkeerde steek dus al naar rechts. Brei ik verder (7 rechts, omslag, middelste steek) dan zit de middelste steek NIET in het midden. Verder hoef ik dan al niet te breien, want dan klopt het verder ook niet. Ergens moet ik een fout maken maar ik zie niet waar. U wel ?

19.02.2018 - 20:15

DROPS Design answered:

Hallo Jozefien, Het is jammer dat ik vanaf hier niet mee kan kijken, maar zoals je het beschrijft zou het toch moeten kloppen, en het telpatroon klopt ook. Misschien heb je toch ergens iets over het hoofd gezien. Het kan soms helpen om een test te maken met vrij dik garen; dan zie je sneller wat er evt. fout gaat.

19.02.2018 - 21:10

country flag Jozefien De Bruijn wrote:

Na zes keer opnieuw begonnen te zijn moet ik concluderen dat de eerste en derde rij gaatjes niet boven elkaar komen. Ik heb ervaring in het lezen van schema's, maar hier kom ik niet aan uit. Waar zit de fout ?

07.02.2018 - 11:39

DROPS Design answered:

Hoi Jozefien, Waar ben je precies in het patroon? Gaat het om telpatroon A.1? Je zet 3 steken op en begint dan met breien van A.1. De eerste naald is drie steken en tussen de 1e en 2e steek maak je een omslag. De tweede naald brei je op de verkeerde kant. Bij de derde rij maak je na de tweede en derde steek een omslag, zodat deze boven de omslagen van naald 1 komen.

07.02.2018 - 20:33