DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Namdalen Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, laskalínu og áferð, prjónuð ofan frá og niður, prjónuð úr DROPS Puna eða DROPS Sky. Stærð S - XXXL.

DROPS 179-2
DROPS Design: Mynstur pu-013
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 10, bleikfjólublár

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 10, bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS TRÉTALA, Kókos NR 516: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 254 lykkjur), mínus kanta að framan (= 14 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 30. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 30. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kant að framan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við þau prjónamerki sem eftir eru í umferð (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægir kant að framan. Þ.e.a.s. fellið af fyrir hnappagati í lok umferðar frá réttu. 1 HNAPPAGAT = Prjónið þriðju og fjórðu kantlykkju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm
M: 2, 11, 20, 29, 39 og 49 cm
L: 2, 11, 21, 31, 41 og 51 cm
XL: 2, 11, 21, 31, 41 og 51 cm
XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm
XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 128-134-140-146-152-158 lykkjur á hringprjón 3,5 með Puna eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið A.1a (= 7 kantlykkjur að framan), prjónið a.2a (= 2 lykkjur í fyrstu umferð), prjónið A.2b (= 36-38-40-42-44-46 mynstureiningar 3 lykkjur í fyrstu umferð), prjónið A.2c (= 4 lykkjur í fyrstu umferð), prjónið A.1b (= 7 kantlykkjur að framan). Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir af mynsturteikningu (til og með umferð merktri með ör í mynsturteikningu) skiptið yfir á hringprjón 4. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1a og A.1b til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2a, A.2b og A.2c hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 242-254-266-278-290-302 lykkjur í umferð og stykkið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem auknar eru út 2-8-16-24-20-34 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið ÚTAUKNING = 244-262-282-302-310-336 lykkjur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið 1. prjónamerki eftir 41-43-46-50-53-58 lykkjur. 2. prjónamerki eftir 47-52-56-58-56-59 lykkjur, 3. prjónamerki eftir 68-72-78-86-92-102 lykkjur og 4. prjónamerki eftir 47-52-56-58-56-59 lykkjur. Nú eru 41-43-46-50-53-58 lykkjur eftir í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður og í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 4. hverri umferð (= önnur hver umferð frá réttu) alls 6-8-9-10-12-13 sinnum = 292-326-354-382-406-440 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni án þess að auka út lykkjur þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er frá röngu og er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 47-51-55-60-65-71 lykkjur (= hálft hægra framstykki), setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 80-88-96-106-116-128 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 47-51-55-60-65-71 lykkjur sem eftir eru í umferð (= hálft vinstra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 190-206-226-246-270-294 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 3 cm er prjónað A.3 (= 6 lykkjur) mitt undir hvorri ermi þannig að það verða 3 lykkjur af mynsturteikningu hvoru megin í umferð. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Haldið svona áfram þar til A.3 hefur verið prjónað 11 sinnum á hæðina = 234-250-270-290-314-338 lykkjur. Stykkið mælist ca 27 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 20-22-23-24-27-30 lykkjur jafnt yfir = 254-272-293-314-341-368 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4 cm – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu, skiptið til baka yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur notið e.t.v. grófari prjóna eða sláið uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Setjið 59-68-74-78-80-85 lykkjur af þræði á sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-76-84-88-92-97 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur = mitt undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-6.-5.-4.-4.-3. hverri umferð alls 11-14-16-18-19-20 sinnum = 45-48-52-52-54-57 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-1-1-0-0 lykkjur = 45-48-51-51-54-57 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 35-33-32-30-28-27 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið nú stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur notið e.t.v. grófari prjóna eða sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Ermin mælist ca 39-37-36-34-32-31 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.01.2018
Leiðrétting undir berustykki: ...Prjónið fyrstu 47-51-55-60-65-71 lykkjurnar (= hálft hægra framstykki), setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á band (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 80-88-96-106-116-128 lykkjurnar (= bakstykki), setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á band (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 47-51-55-60-65-71 lykkjur sem eftir eru í umferð (= hálft vinstra framstykki).

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = stingið niður prjóninum á milli 4. og 5. lykkju, dragið þráðinn í gegn (= 1 ný lykkja), prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt.
symbols = prjónið nýja lykkju frá fyrri umferð og næstu lykkju (= 2 lykkjur) saman (= 1 lykkja færri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = þegar þessi umferð hefur verið prjónuð til loka, skiptið yfir á hringprjón 4
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Leroux wrote:

C\'est très compliqué pourquoi ne pas mettre tous les rangs comme sur certains de vos autres modèles. Ca fait 6 fois que je defais, vraiment trop dur. Mais merci beaucoup de votre réponse.

15.03.2024 - 13:34

country flag Leroux Michèle wrote:

Comment tricoter les rangs envers? svp

14.03.2024 - 09:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Leroux, tricotez les rangs envers en lisant les diagrammes de gauche à droite comme indiqué par la légende des symboles autrement dit, 1 tiret se tricote à l'endroit sur l'envers (jersey envers) et une case blanche à l'envers sur l'envers (jersey endroit). Bon tricot!

14.03.2024 - 16:37

country flag Eva Nygren wrote:

Hej skulle så gärna vilja se videon från 3/2 2020! Förstår inte heller!

16.10.2023 - 22:09

DROPS Design answered:

Hej Eva, her kommer den: Smock

17.10.2023 - 15:37

country flag Tamar wrote:

Hoi, er staat dat als 2a,b,c in de hoogte zijn gebreid je werk 10 cm meet vanaf de opzetrand. Ik zit bij pen 17 , halverwege, al op 12 cm van de opzetrand! Met zelfde garencategorie, naalddikte. Wat doe of begrijp ik verkeerd? Alvast bedankt.

04.06.2023 - 16:57

DROPS Design answered:

Dag Tamar,

Heb je er rekening mee gehouden dat in de telpatronen alle naalden zijn aangegeven? Dus zowel de naalden aan de goede kant als aan de verkeerde kant.

07.06.2023 - 11:32

country flag Louise wrote:

If you follow the pattern the band stitches for the buttons in front are always knit but in the photo detail of the garment seem to be rather garter stitch. Is the pattern right?

15.03.2022 - 18:09

DROPS Design answered:

Dear Louise, front band stitches will be knitted = worked in garter stitch all the way. Happy knitting!

16.03.2022 - 09:48

country flag Monika wrote:

Die Jacke ist sehr schön geworden. \r\nDanke für die Anleitung

05.09.2021 - 22:03

country flag Lena Lilja wrote:

Hur är det möjligt att atb endast mäter 10 cm, efter att diagrammet är färdigstickat? Stämmer det att diagrammet endast stickas från rätsidan? Mvh Lena

05.06.2021 - 12:57

country flag Liz wrote:

Thank you for your speedy reply and attempt to clarify my problem. If I use the instructions you give me I still end up with more yarn overs than what I should . 26 yarn overs and an uneven number of stitches in the last block at the end. I have counted my stitches many times and also used markers and I am 98% sure I have the correct number of stitches to start , i.e. 278. Where am I going wrong?

18.11.2020 - 19:46

DROPS Design answered:

Dear Liz, oops sorry, you should work like this: 7 front band sts, 6 sts, (increase 1 st with a yarn over, work 11 sts), repeat from (to) a total of 23 times (= 1+11 sts = 12 sts x 23 = 276 sts worked over 11 sts x 23 = 253 sts), make 1 yarn over, work 5 and finish with 7 front band sts = you have now: 7+6+ 276+1+5+7= 302 sts worked over 7 +6+ 253 + 12= =278 sts. Happy knitting!

19.11.2020 - 09:54

country flag Liz wrote:

I am making size XL and am trying to do the increases that come before the garter stitch ridges on the yoke. I have read your tips for increasing evenly but it does not seem to be working correctly for me. I have 278 st. I subtract 14sts from the front bands and then divide by 24, which is the number of increases I need? I get a result of 11 so I increase every after every 11th row. The number of sts I end up with I much more than the 302 I am supposed to have. Please help

17.11.2020 - 22:21

DROPS Design answered:

Dear Liz, you will read more about this increase technique here - in that case, you work 7 front band sts, 5 sts, (increase 1 st with a yarn over, work 10 sts), repeat from (to) a total of 23 times, make 1 yarn over, work 5 and finish with 7 front band sts. Happy knitting!

18.11.2020 - 08:03

country flag Liz wrote:

What kind of cast on would you recommend for this cardigan? This is my first time using a Drops design and I am impressed with all the help available. Which I need, as your method of writing a pattern is quite different from what I am used to :-)

15.10.2020 - 18:34

DROPS Design answered:

Dear Liz, we are here using the continental method but I guess you can use any cast on method - making sure (as always) it's not too tight. Happy knitting!

16.10.2020 - 08:57