DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Berries

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL. Prjónaðar handstúkur með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Karisma.

DROPS 181-16
DROPS Design: Mynstur u-823
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca:
400-450-500-550-600-650 g litur 44, ljós grár
50-50-50-100-100-100 g litur 48, vínrauður
50-50-50-100-100-100 g litur 72, ljós perlugrár
50-50-50-50-50-100 g litur 16, dökk grár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 13, kirsuber

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 44, ljós grár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 13, kirsuber
50-50-50-50-50-50 g litur 16, dökk grár
50-50-50-50-50-50 g litur 48, vínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 72, ljós perlugrár

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - M/L
Ummál: ca 18-20 cm.
Lengd: ca 23-23 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-100 g litur 44, ljós grár
50-50 g litur 01, natur
50-50 g litur 13, kirsuber
50-50 g litur 16, dökk grár
50-50 g litur 48, vínrauður
50-50 g litur 72, ljós perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – fyrir garðaprjón neðst niðri á fram- og bakstykki.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan.
Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-12-13-14-15-16 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-24-26-28-30-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-39-42-45-48 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-52-56-60-64 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-65-70-75-80 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-72-78-84-90-96 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 5.
Í þessu dæmi er aukið út á eftir 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist göt.
Ef fækka á lykkjum þá eru prjónaðar 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

LEIÐBEININGAR (á við um marglitt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á böndum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.
Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.3.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-2 (á við um op fyrir þumal):
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.
Í næsta skipti sem aukið er út er prjónað þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu í 6. hverri umferð, þ.e.a.s. aukið er út allan tímann að utanverðu við útauknar lykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 90-94-98-102-106-110 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós grár. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 18-20-22-30-32-34 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 108-114-120-132-138-144 lykkjur í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR!
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er prjónað A.1 hringinn (= 36-38-40-44-46-48 mynstureiningar 3 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1 eins og útskýrt er að neðan – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð með ör-1 er aukið út um 30-30-36-42-42-42 lykkjur jafnt yfir = 138-144-156-174-180-186 lykkjur.
Í umferð með ör-2 er aukið út um 24-27-30-33-36-36 lykkjur jafnt yfir = 162-171-186-207-216-222 lykkjur.
Í umferð með ör-3 er aukið út um 24-27-30-33-36-36 lykkjur jafnt yfir = 186-198-216-240-252-258 lykkjur.
Í umferð með ör-4 er aukið út um 20-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir = 206-224-244-268-282-294 lykkjur.
Í umferð með ör-5 er aukið út um 18-24-28-28-30-34 lykkjur jafnt yfir = 224-248-272-296-312-328 lykkjur.
Í umferð með ör-6 er aukið út um 16-16-16-16-16-24 lykkjur jafnt yfir = 240-264-288-312-328-352 lykkjur.
Í umferð með ör-7 er aukið út um 8-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 248-276-300-324-344-368 lykkjur.
Í umferð með ör-8 er aukið út um 8-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 256-288-312-336-360-384 lykkjur.
Í umferð með ör-9 er aukið út um 12-16-20-20-20-16 lykkjur jafnt yfir = 268-304-332-356-380-400 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með litnum ljós grár þannig: 41-44-49-52-58-62 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 52-64-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 82-88-98-104-116-124 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 52-64-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 41-44-49-52-58-62 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 180-192-216-228-252-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið A.2 hringinn (= 15-16-18-19-21-23 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 8 sinnum í hvorri hlið = 212-224-248-260-284-308 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32-33-34-34-34-34 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 8 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af með hringprjónum 4,5. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 52-64-68-74-74-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-10-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með ljós grár = 60-72-78-84-84-90 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2A hringinn (= 5-6-6½-7-7-7½ mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir A.2A er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 9-14-16-18-18-20 sinnum í S: Í 11. hverri umferð, í M: Til skiptis í 6. og 7. hverri umferð, í L: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð, í XL og XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 42-44-46-48-48-50 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-37-37-35-34-32 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá skiptingu að ofan, í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af með sokkaprjónum 4,5. Ermin mælist ca 42-41-41-39-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós grár.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-11 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 42-45 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.3 hringinn (= 14-15 mynstureiningar 3 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð merktri með ör-10 í mynsturteikningu er aukið út um 0-3 lykkjur jafnt yfir = 42-48 lykkjur. Haldið áfram með A.3. Í umferð merktri með ör-11 er fækkað um 2-4 lykkjur jafnt yfir = 40-44 lykkjur. Haldið áfram með A.3.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum (þ.e.a.s. allan tímann er aukið út utanverðu við útauknar lykkjur svo að það myndist gat fyrir þumal) = 48-52 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-19 cm. Haldið áfram með mynstur. JAFNFRAMT í 1. umferð á eftir síðustu útaukningu eru 9 lykkjur fyrir op á þumli settar á þráð, að auki eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 42-46 lykkjur. Prjónið A.3 til loka. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 2 lykkjur jafnt yfir = 44-48 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 3,5. Öll handstúkan mælist ca 23 cm í báðum stærðum.

ÞUMALL:
Setjið til baka 9 lykkjur af þræði á sokkaprjóna 3,5 og prjónið upp 7 nýjar lykkjur aftan við þumal með litnum ljós grár (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp + 2 lykkjur hvoru megin við þessar 3 lykkjur) = 16 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón (passið uppá að prjóna þumalinn ekki of fast). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI HANDSTÚKA:
Prjónið eins og hægri handstúka, nema spegilmynd, þ.e.a.s. þegar aukið er út fyrir op fyrir þumal er aukið út hvoru megin við síðustu lykkju í umferð, í stað hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.11.2018
Leiðrétting: BERUSTYKKI:..Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með ljós gráum þannig: 41-44-49-52-58-62 lykkjur slétt (= ½ bakstykki)

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = natur
symbols = ljós perlugrár
symbols = dökk grár
symbols = vínrauður
symbols = kirsuber
symbols = útauknings/úrtökuumferð
symbols = byrjið í þessari umferð í þinni stærð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter berries

Sandra, Spain

Winter berries

Robin, United States

Winter berries

Robin, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag M De Vries wrote:

Na het breien van patroon A.2A in de mouw moet ik gaan minderen. Er staat minder 2 steken. Moet ik dan 2 steken samen breien if 2x2 steken? Alvast bedankt.

08.10.2023 - 12:03

DROPS Design answered:

Dag M De Vries,

Je mindert verschillend aan elke kant van het midden, lees hiervoor 'TIP VOOR HET MINDEREN (voor midden onder de mouw)' bovenaan het patroon.

08.10.2023 - 16:57

country flag Marion wrote:

Is het de bedoeling dat het proeflapje op rondbreinaalden wordt gebreid? Of zijn gewone naalden ook goed? Alvast bedankt voor uw antwoord.

15.06.2023 - 21:23

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Je kunt het beste het proeflapje breien op de naalden waar je het uiteindelijke werkstuk ook mee gaat breien. Het kan namelijk zijn dat je losser of juist strakker breit op de rondbreinaalden.

18.06.2023 - 11:57

country flag Gabi wrote:

Guten Tag Bei den Ärmeln habe ich 64 Maschen , muss ich dort 8 Maschen zusätzlich aufnehmen oder nur eine Masche. Herzlichen Dank

13.10.2022 - 08:23

DROPS Design answered:

Liebe Gabi, in M sollen Sie 1 Masche in je die 8 Maschen unter die Ärmel auffassen - diese Lektion zeigt beim Bild 18a, wie das bearbeitet wird. Viel Spaß beim stricken!

13.10.2022 - 09:35

country flag Tina Nyborg wrote:

Strikker pulsvarmerne - men kan ikke få mønster til at passe når jeg begynder at tage ud til tommelfingerkilen. Det synes jeg ikke der er taget højde for ?

19.12.2021 - 14:35

DROPS Design answered:

Hei Tina. For å hjelpe deg best mulig er det fint for oss å vite hvilken str. strikker du, hvor i diagrammet er du når du gjøre første økning? Er det hver gang du gjør en økning at du mener det ikke passer? mvh DROPS Design

21.12.2021 - 11:34

country flag Tuula Santala wrote:

Winter berries u-823. Yoke: after the elevation,: work 1A after 1 row of grey. In the picture though the are several rows before A1? Or has she worn it backside front?? Just wandering how to do?

01.08.2021 - 09:17

DROPS Design answered:

Dear Tuula, you should do the edge, and teh elevation befor the one knit row, and then start the pattern. Happy Stitching!

02.08.2021 - 01:08

country flag Alison Morris wrote:

The part of the pattern for the sleeves refers to chart A2.A. Is this different to chart A2? I can’t seem to find it. Thank you

07.06.2021 - 21:17

DROPS Design answered:

Dear Alison, A.2A refers to the cardigan version of this modell. Happy Knitting!

07.06.2021 - 23:37

country flag Sue Parsell wrote:

I’m struggling to understand how to read the diagram and would appreciate some help please! I’m knitting a Medium size so rows 1-3 knitted in light grey across the row (increasing on R3) then rows 4-12 do I knit 1 stitch in light grey then 2 sets in white and repeat across the row? Thank you

30.01.2021 - 14:56

DROPS Design answered:

Hi Sue, It is correct: in size M: rounds 1-3 are in light grey (do not forget to increase evenly 30 sts in round 3); rounds 4-12 work 1 st in light grey and 2 sts in off white and repeat it across the round. Happy knitting!

30.01.2021 - 17:59

country flag Lynn Flitney wrote:

What gauge is this pattern... needke sz and stitches

08.10.2020 - 18:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Flitney, you will find the gauge and needle size as well as yarn required under the header, jumper and wrist warmers do not use both same needle size/tension. Happy knitting!

09.10.2020 - 07:32

country flag Manja wrote:

Hallo, wie stricke ich den Übergang an der hinteren Mitte, damit man den Wechsel von der einen zur anderen Farbe nicht so sieht? VG Manja

03.11.2019 - 17:22

DROPS Design answered:

Liebe Manja, je nach den Reihen vom Muster können Sie diese Technick stricken. Viel Spaß beim stricken!

05.11.2019 - 07:51

country flag Deb wrote:

Hi im working on this sweather and im at the point where i need to cast on the 8 stitches under the sleeve, is there a video that shows this, Ive put the 64 stitches on the thread for the sleeve, but where do i take the 8 stiches from, this is a new technique for me, Thanks so much for your help

28.03.2019 - 03:28

DROPS Design answered:

Hi Deb, You cast on the 8 stitches from the last stitch on the body (before the stitches you have put on a thread for the sleeve) and then continue working the stitches on the other side of the sleeve. I hope this helps and happy knitting!

28.03.2019 - 07:07